Dagblaðið - 19.05.1980, Síða 6
6
> »'«r' wí xnm*ni !P 10 X4A j ioqo
A M.M .m/ju. j*jm i /. ninl I/w.
SiMI 77152 J« ^
^Spiní°a®
fo»»cm»^Í
Sparaksturskeppni BÍKR:
Daihatshu
ísérfhkki
— Renault 5 f ylgir f ast þar á ef tir
Ferlíki á land
Ferlíki mikið var híft á land í Hafn-
arfirðinum á föstudag. Þar var kominn
stærsti krani landsins en sá mun lyfta
90 tonnum. Stærsti krani sem fyrir var
á landinu lyfti 55 tonnum. Kraninn var
fluttur hingað í nokkrum hlutum, enda
erfitt að koma honum fyrir á annan
hátt eða lyfta honum í land.
Kraninn, sem er í eign Heimis og
Lárusar sf., kom hingað til lands með
skipinu Berglindi, sem er leiguskip Bif-
rastar.
- JH / I)B-mynd Bjarnleifur.
DB-mynd: Ragnar Th.
Daihatsu Charadc bilar komu, sáu og
sigruðu i sparaksturskeppni Bifreiða-
íþróttaklúbbs Reykjavíkur á laugardag.
Þrir sparneytnustu bilarnir i keppninni
voru af þessari gerð. en þeir kepptu
raunar allir í sama flokki.
Keppninni var skipt i 5 flokka eftir
vélarstærðum. I flokki bila með vélar
stærð undir 1000 cc sigraði Daihatsu
Charade. Hann komst 95,38 km og er
eyðslan 5,24 lítrar á hundraðið. I flokki
bíla með vélarstærð frá 1001 — 1300 cc
sigraði Renault 5 og komst 90,82 km og
eyðslan því 5,51 lítrar á hundraðið. Þrír
efstu bilar í flokknum voru af þessari
gerð.
í flokki bila með vélarstærðina
1301 — 1600 cc sigraði Volvo 345. Hann
komst 72,24 km og eyðslan þvi 6,92 á
hundraðið. 1 flokki bila með vélarstærð
1601 —2000 cc var aðeins einn bill, Saab
900, og komst hann 64,68 km og eyðslan
þvi 7,73 lítrar á hundraðið. I flokki bila
með vélarstærð milli 2001 og 3000 cc
sigraði Chevrolet Citation og komst
69,05 km og eyðslan þvi 7,24 lítrar á
hundraðið.
Ekið var innanbæjar fyrst, 24 km í
Reykjavík. Kópavogi og suður á Arnar
neshæð. Þar taldist innanbæjarakstri
lokið. en þeim akstri varð að Ijúka á 60
mínútum. Siðan var ekið suður i Engidal
og i átt til Krisuvikur. I Herdísarvík var
siðan snúið við. Halda varð lágmarks-
hraða, 45 km utanbæjar.
Birgir Þór Bragason formaður BlKR
sagði í gær, að vegurinn hefði verið
blautur og vindur á móti, þannig að töl-
urnar ættu að gefa nokkuð rétta mynd
af eyðslu bilanna. Hins vegar var þátt-
takan dræm. þannig að aðeins sést
eyðsla tiltölulega fárra bila.
Heildarúrslit voru sem hér segir:
0— 1000 cc Vegalengd Evðsla
1. Daihatsu Charade 95.38 km 5,241
2. Daihatsu Charade 95.34 km 5,241
3. Daihatsu Charade 95.15 km 5.431
4. Citroén braggi 86,66 km 5.771
5. Cilroen V isa 81.81 km 6.11 1
1001 — 1300 cc
1. Renault 5 90,82 knt 5.51 1
2. Renaul 5 85,21 km 5,871
3. Renault 5 84,53 km 5.921
4. Skoda E 74,38 km 6.721
1301 — 1600 cc
1. Volvo 345 72.24 km 6.921
2. Renault Alpine 72.10 km 6,931
3. Vauxhall C'hevette 62.43 km 8,001
1601—2000 cc
1. Saab 900 64.68 km 7,731
2001—3000 cc
1. Chevrolet Citation 69.05 km 7.24 1
2. Volvo 244 62.95 km 7.941
- JH
Mikið úrval höggdeyfa í flestar gerðir bifreiða, s.s. McPhersons inserts,1
gasdemparar, stýrisdemparar, loftdemparar, Heavy Duty demparar og fl.
ÓTRÚLEGA LÁGT VERÐ.
PÓSTSENDUM UM LAND ALLT.
Núer
sumar
Trimmgallarnir komnir aftur