Dagblaðið - 09.06.1980, Síða 14
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 9. JÚNÍ 1980
14
""“Sia FRAMRUÐU?
rrr
Ath. hvort við getum aðstoðað.
ilásí^ ísetningar á staðnum.
BÍLRÚÐAN "«oG2678»
Félag farstöövareigenda
DEILD 4
Aðalfundur deildar 4 verður haldinn laugardaginn 14. júní 1980 að Hótel
Heklu, Rauðarárstig 18 og hefst kl. 14 stundvislega.
Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf.
Sérstök athygli er vakin á þvi aðsýna þarf kvittun fyrir greidd ársgjöld.
i
Stjórn deildar 4.
ALBERT
var fyrstur Norðurlandamanna í fremstu röð
knattspyrnumanna í Englandi, Frakklandi og
Ítalíu. íþróttum hefur hann unnið allt sem hann
hefur mátt síðan hann kom heim.
Vegur íslenzkrar knattspyrnu varð verulegur
þegar Albert varð formaður Knattspyrnu-
sambands íslands.
Þannig eiga íþróttir honum margt að þakka frá
liðnum árum. Við lýsum yfir stuðningi við
Albert Guðmundsson og Brynhildi Jóhanns-
dóttur við forsetakjör 29. jání nk.
Gisli Halldórsson forseti ÍSL
Sveinn Björnsson varaforseti ÍSÍ.
Heimir Sindrason formaður Gróttu.
Böðvar Björgvinsson form. Skallagríms.
Helgi Bjarnason form. körfuboltad. Skallagríms.
Jóhann Kjartansson Skallagrími.
Alfred Þorsteinsson Fram.
Hilmar Guðlaugsson form. Fram.
Jón G. Zoega form. knattspyrnud. Vals.
Freyr Bjarnason form. Völsungs.
Boði Björnsson form. Stjörnunnar.
Jón Ólafsson hástökkvari.
Einar Gunnarsson Keflavík.
Hafsteinn Guðmundsson form. IJMFK.
Helgi I lólm form. ÍK.
Siguröur Steindórsson form. KF.
Óskar Færseth knattspyrnum.
Magnús Garðarsson Handknattleiksráði Keflavíkur.
Kristbjörn Albertsson stjórn körfuknattleiksr.
Sigurður Ingvarsson fv. form. Víðis.
Júlíus Jónsson viðskiptafr. Sandgerði.
Óskar Valgarðsson form. knattspyrnud. ÍR.
Július Hafstein form. HSÍ.
Baldur Jónsson vallarstjóri.
Anton Örn Kærnested form. Vfkings.
Úlfar Þórðarson form. ÍBR.
Kjartan Trausti Sigurðsson framkvæmdastj. KSÍ.
Ólafur Erlendsson form. KRR.
Þórður Þorkelsson gjaldk. ÍSÍ.
Sigurður Magnússon útbrstj. ÍSÍ.
Haukur Bjarnason ritari ÍBR.
Fríður Guðmundsdóttir form. Íþróttafélags kvenna.
Viktor Helgason þjálfari ÍBV.
Tómas Sigurpálsson lyftingamaður.
Þórður Hallgrímsson ÍBV.
Snorri Þ. Rúts ÍBV.
Sveinn B. Sveinsson ÍBV.
Blómlegt skáklíf
f Bandaríkjunum
Eftir aö Fischer náði heimsmeist-
aratitlinum í Reykjavík 1972 fór
mikil skák-bylgja yfir Bandaríkin og
hvarvetna drógu menn töfl upp úr
pússi sínu. En það stóð aöeins í nokk-
ur ár. Áhuginn fór aftur að dofna
þegar Fischer dró sig í hlé og þótti
mörgum sem í óefni væri komið.
Bandaríska skáksambandiö var harð-
lega gagnrýnt og einstaklingar áttu
það til að stofna sér-skáksambönd til
að stuðla að framgangi skáklistarinn-
ar. Nú er svo komið að i New York
einni rekur hvert alþjóölega skák-
mótið annaö og skáklíf hefur sjaldan
staöið með eins miklum blóma.
Sá er þetta ritar er einmitt ný-
kominn frá New York þar sem hann
tefldi í tveimur mótum. Hiö fyrra fór
fram í Manhattan skákklúbbnum og
var skipulagt af Bill Goichberg.
Goichberg er mörgum íslendingum
að góðu kunnur, því hann hefur ár-
lega staðið fyrir „World Open”
skákmótinu í Fíladelfíu sem íslenskir
skákmenn hafa sótt og verið sigur-
sælir á.
Mótið i Manhattan var í styrkleika-
flokki 8 og mættu 3 stórmeistarar til
leiks og 5 alþjóðlegir meistarar.
Bandariski stórmeistarinn Alburt,
sem er landflótta Sovétmaður, tók
forustuna strax í byrjun og reyndist
óstöðvandi. Þegar yfir lauk hafði
hann aðeins leyft þrjú jafntefli, en
unnið sjöskákir.
Ég hafnaði að lokum í 2. sæti,
aöeins einum vinningi frá stórmeist-
araárangri. Sá litli vinningur var þó
ætíð iangt undan, því það var ekki
fyrr en í seinni hluta mótsins sem
prikin komu á mótstöfluna. Ég má
þó vel við una og skaut meðal annars
aftur fyrir mig tveimur stórmeistur-
um, Dzindzichashvili og Lein. Sá
fyrrnefndi gerði óvenju mikið af
„stórmeistarajafnteflum” og Lein
var aö reyna að hætta reykingum.
Úr því að minnst er á reykingar má
nefna að i Bandaríkjunum virðist það
vera algild regla að banna reykingar i
skáksal. Það er atriði sem íslensk
skákyfirvöld mættu gjarnan taka til
athugunar.
Lokastaðan á mótinu varð annars
þessi:
1. Alburt (Bandaríkin) 8 1/2 v, af 10
mögulegum.
2. Jón L. Árnason 6 1/2 v.
3. Dzindzichashvili (israel) 6. v.
4. -5. Lein og Kastner (Bandarikin) 5
1/2 v.
6. Zapata (Kólumbíu) 5 v.
7. -8. Valvo og Petcrs (Bandaríkin) 4
9.-10. Coudari (Kanada og Benjamin
(Bandaríkin) 3 1/2 v.
11. Fedorowicz (Bandaríkin) 3 v.
Bandariski skákmeistarinn Kastner
náði árangri alþjóðlegs meistara.
Síðara mótið fór fram í Marshall
skákklúbbnum og sá ungur hljóm-
sveitarstjóri, Eric Schiller að nafni
um framkvæmd þess. Til marks um
það hvað heimurinn er lítill, má
nefna að móðir hans var nemandi
bandariska píanóleikarans Alan
Marks, sem staddur var hér á landi i
síðasta mánuði.
Mótið var kennt við franska skák-
snillinginn og tóniistarmanninn
Francois André Danican Philidor,
sem uppi var á 16. öld. Aðeins þrír al-
þjóðlegir meistarar tóku þátt í mót-
inu og þrír FIDE-meistarar. Það var
því ekki eins vel skipað og fyrra
mótið, en náði þó styrkleikaflokki
fjögur.
Mót sem þetta miðast fyrst og
fremst við að gefa innfæddum mögu-
leika á að ná alþjóðlegum meistara-
titlum og að því leytinu tókst mótið
vonum framar. Zlotnikov og Kudrin,
sem báðir eru rússneskættaöir
Bandarikjamenn náðu alþjóðlegum
meistaratitli og Duarte frá Brasilíu
náði FIDE-meistaraárangri. Loka-
staðan varð þessi:
1. Jón L. Árnason 10 1/2 v. af 13
mögulegum.
2. Zlotnikov (Bandaríkin) 10 v.
3. -4. Zuckerman og Kudrin (Banda-
ríkin) 9 v.
5. Pritchelt (Skotland) 7 1/2 v.
6. Taylor (Bandaríkin) 7 v.
7. -8. Blumenfeld (Bandaríkin) og
Duarte (Brasilia) 6 1/2 v.
9. Weeramantry (Srí Lanka) 6 v.
10. -11. Blocker og Bonin (Banda-
ríkin) 5 v.
12. Renna
13. Pavlovic (Júgóslaviu) 3 v.
14. Braun (Bandaríkin) 2 v.
15. Shipman (Bandaríkin) 1 1/2 v.
Shipman hætti í mótinu eftir 6 um-
ferðir og var þvi strikaður út. Það
kom sér illa fyrir mig, því hann hafði
unnið helsta keppinaut minn, Zlotni-
kov, en tapað fyrir mér í fyrstu um-
ferð — i fjörugri kóngsbragsskák:
Hvítt: Jón L. Árnason
Svart: Shipman (Bandaríkin)
Kóngsbragð
1. e4 e5 2. f4 exf4 3. Rf3 g5 4. Bc4
g4 5. 0—0 De7l?
í bókunum er þessi leikur talinn
hæpinn vegna 6. d4 gxf3 7. Dxf3 og
hvítur hefur sóknarstöðu. Eftir hins
vegar 7. — Rc6! eins og leikið var i
skákinni Steinitz-Anderssen, London
1862 (nýrri dæmi finnast ekki) er
staðan óljós. Hér velur hvitur aðra
„óljósa” leið.
6. Re5!? Dxe5 7. d4 Dh5
Ef 7. — Bc5, þá 8. Bxf7 + ! Kxf7 9.
Bxf4 og ef 9. — Dx4+ þá 10. Be3
með fráskák! 7. — De7, eða 7. —
Dg7 voru þó raunhæfir möguleikar.
8. Bxf4 d6 9. Rc3c6
Svartur sem er heilum manni yfir
bauð hér jafntefli sem að sjálfsögðu
var hafnað. Hvitur hefur yfirburði i
liðsskipan.
10. Dd3 Rd7 11. Hael Rb6 12. d5
Rxc4 13. Dxc4 Bd7 14. e5 0-0-0 15.
e6! fxeó 16. dxe6 Bg
Hér fylgdi annað jafnteflisboð.
Ekki gekk 16. — Be8 vegna 17. Dd4!
og kóngshrókur svarts er dauðans
matur. Ef 17. — Dc5, þá 18. Dxc5
dxc5 19. Be5!
17. exd7 + Hxd7 18. Re4d5? 19. Dc5
Re7 20. Dxa7 Kd8 21. Db8+ Rc8 22.
Rd6
Einfaldara var 22. Bg5+ !
22. — Hxd6 23. Bxd6 Bd4+ 24. Khl
Bb6 25. Be5 He8 26. Dxb7. Svartur
gafst upp. Ef 26. — Hxe5, þá 27.
Hf8 + og vinnur.
Að lokum kemur hér ein af sigur-
skákum Alburts úr fyrra mótinu.
Hvítt: Lein
Svart: Alburt
Aljekín-vörn
1. e4 Rf6 2. Rc3 d5 3. exd5 Rxd5 4.
Bc4 Rb6 5. Bb3 Rc6!
Alburt er mikill sérfræðingur i
Aljekín-vörn og beitir henni við hvert
tækifæri. Fyrir tæpum 30 árum stakk
Euwe upp á textaleiknum (í stað 5. —
c5) og taldi hann svartan fá jafnt tafl.
Af ftessari skák að dæma virðist hann
hafa rétt fyrir sér.
6. Rf3 Bf5 7. d4 e6 8. Bf4 Bd6 9. Dd2
0-0 10. Bg3 Bg4 11. 0-0—0 Ra5 12.
HdelRxb3+ 13.axb3a5
Svartur má vel við una.
14. Re5 Bf5 15. Bf4 BxeS! 16. Bxe5
a4 17. bxa4 Rxa4 18. g4 Bg6 19. h4
Rxc3 20. Dxc3
20. — Ha6!
Mætir hótuninni 21. h5 á skemmti-
legan hátt (21. —Hc6). Svartur hefur
náðað hrifsa til sín frumkvæmið. Ef
21. Dxc7, þá 21. — Da8! með sókn
eftir c-linunni.
21. De3 Hc6 22. c3 Da8 23. Kdl
Da4 + ! 24. Ke2 Db5+ 25. Kf3 Dxb2
26. Hcl f6 27. Bg3 Bc2 28. c4 Db3 29.
Hxc2
Hvítur var varnarlaus. Endataflið
eftir 29. —Dxb3 er vonlaust.
29. — Dxc2 30. Hcl Da2 31. Kg2 He8
32. c5 Dd5 + 33. Kh2 Hd8 34. Hdl eS
35. g5 exd4 36. Df4 Dxc5 37. gxf6
Hxf6 38. Dd2 Hf7 39. Hcl Dh5 40.
Dd3 c5 41. Db5 d3 42. Hel d2 og
hvíturgafst upp.
Hestamannafélagið Máni
HESTAÞING
MÁNA
verður haldið á Mánagrund 14. og 15. júní.
Keppnisgreinar: A-flokkur, B-flokkur, unglinga, 12 ára og
yngri, unglinga 13—15 ára, opin töltkeppni, 800 m brokk,
800 m stökk, 350 m stökk, 250 m stökk, 250 m skeið ög
150 m nýliðaskeið.
Skráning keppnishesta verður í síma 1343 alla daga milli kl.
11 og 14 og 18 og 21. Skráningu skal vera lokið fyrir há-
degi föstudaginn 13. júní.
Nefndin.
JÓN L. ÁRNAS0N
SKRIFAR UM SKÁK
m