Dagblaðið - 06.08.1980, Side 3

Dagblaðið - 06.08.1980, Side 3
DAGBI.AÐIO. MIÐVIKUDAGUR 6. AGÚST 1980. Þýzka fótboltann í sjónvarpið KnattspyrnuáhuijamaAur skrifar: Nú fer enski boltinn senn aft rúlla og upp úr þvi fcr knattspyrnuvcrtiftin aft hcfjast um alla livrópu. Ég vona aó enska knattspyrnan verði á sinum stað í vetrardagskránni, en langar jafnframt að skjóta þeirri hugmynd aó forráóamönnum sjónvarps, aö þcir rcyni að næla i nokkra leiki úr þýzku knattspyrnunni. Þjóðverjar eru núvcrandi Evrópumeistarar landsliða í knattspyrnu og það er mál manna, að þýzka fyrsta deildin sé sú sterkasta i heimi. Þá má benda á, að að meðaltali cru flest mörk skoruð i Þýzkalandi af öllum löndum Evrópu, þar sem knattspyrna er iðkuð. Þýzku fclagsllðin hafa einnig náð frábærum árangri i hinum þremur knattspyrnu- kcppnum evrópskra félagsliða, og sýnist mér sem þau myndu ciga fullt erindi til íslenzkra knattspyrnuáhuga- manna. Að lokum vil ég aðeins fagna þvi að við höfum fengið að sjá svip- myndir úr áðurnefndum þrcmur keppnum. Mciraaf svogóðu, Bjarni! Þýzka knattspyrnan er af mörgum talin sú bezta I heimi og bréfritari vill ólmur sjá glefsur úr henni i sjón- varpi. Guðrún var mjög hrifin af Mezzo- forte og fannst hljómsveitln hafa til að bera sjaldgæfan ferskleika. DB-mynd Ragnar Th. Mezzo- forte bar af öllum öðrum Guðrún Hauksdóttir skrifar: Sem hlustandi og tónlistarmaður á seinasta SATT-kvöldi langar mig að leggja nokkur orð i belg, vegna allra skrifanna um áðurnefnd kvöld. Þar sem skrifin hafa mest snúizt um hljómsveitina Hljóma, sem var sjálf- um sér og öðrum til háborinnar skammar, ætla ég að snúa mér að ferskasta og bezta atriði kvöldsins, nefnilega Mezzoforte, sem bar af þetta kvöld. Samt hefur minnst verið skrifað um hljómsveitina og finnst mér því tími til kominn að einhver geri hana að umræðuefni. Mér finnst að blaða- menn og aðrir ábyrgir menn og konur, sem hafa það hlutverk að gagnrýna tónlist, ættu að sjá sóma sinn í því, að reyna að sortera frá úr- ganginn i tónlistinni. Með jákvæðri hlustun gætu þeir einatt hjálpað þeim tónlistarmönnum, sem ekki leika tón- list sina vegna peninganna. Það er t.d. ekki hægt að láta country-unn- anda gagnrýna jazztónlist, og öfugt. Hljómsveitin Mezzoforte fannst mér hafa þann ferskleika, sem ekki hefur verið algengur i íslenzkri tónlist í áraraðir, að undanskildum Þursa- flokknum og Spilverki þjóðanna og nokkrum fleiri. Það sem meira er um vert er, að þessir menn bera virðingu fyrir þeirri list sem kölluð er tónlist, en það verður ekki sagt um þá tónlist- armenn sem spila eingöngu fyrir pen- ingana. Einhver skrifaði í Dagblaðið að hann saknaði ferskleika Mezzo- forte, en ég veit ekki hvað ferskleiki er, ef Mezzoforte hefur hann ekki. Hins vegar ef þessi sami kallar Meira Salt, Hljóma, Þú og ég, og svipaða tónlist ferska, þá skil ég af hverju honum fannst ekki Mezzoforte fersk- Spurning dagsirrs Hvað finnst þér skemmtilegast að rækta? (Spurt í Skólagörðum Revkjavíkur.) WBm Anna Guðrún Halldórsdóttir: Blómkál. Jón Þór Steingrimsson: Næpur. Gripið simann geriðgóð kaup Smáauglýsingar B1AÐ5IN5 Þverholtill sími 2 70 22 Opið til kl.10 í kvöld Hlynur Sigurðsson: Næpur. Berglind Þorsteinsdóttir: Rófur. Særún Armannsdóttir: Kartöflur. Arný F.gilsdóttir: Hvitkál. Göngum ávallt vlnstra megin á móti akandl umferð..

x

Dagblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.