Dagblaðið - 08.10.1980, Blaðsíða 3
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 8. OKTÓBER 1980.
3
ÓLAFUR RAGNAR Æni AÐ
HALDA SIG VIÐ HÁSKÓLANN
— og láta flugmálin ífriði
Það er býsna eftirtektarvert hve
margir menn eru allt í einu farnir að
hafa mikinn áhuga á flugmálum
okkar, menn af öllum mennta-
gráðum og frá ólíklegustu félagasam-
tökum, pólitískum sem öðrum.
Einn þessara manna hefur nú um
nokkurt skeið, líklega ein tvö ár, haft
alveg sérstaklega áhuga á samgöngu-
málum okkar í lofti sem á legi. Þessi
maður heitir Ólafur Ragnar Gríms-
son prófessor, skammstafað O.R.G.,
og hafa aðaláhugamál hans verið að
láta rannsaka félögin, Flugleiðir og
Eimskipafélag íslands. Hann segir
sjálfur frá því í Morgunblaðinu að
hann hafi fyrir tæplega tveimur árum
flutt á Alþingi tillögu um rannsókn á
rekstri Flugleiða (og Eimskipafélags
íslands). Spyr maður nú sjálfan sig af
hverju þessi mikli áhugi sé nú sprott-
inn fyrir þessum tveimur höfuð sam-
göngufyrirtækjum okkar, en svörin
eru hins vegar harla torskilin.
O.R.G. segir ,,að Flugleiðir hafi
grætt 1979 4 millj. dollara á Evrópu-
fluginu, en tapað á Atlantshafsleið-
inni margfalt meira, og íslenzkur al-
menningur sé látinn borga sem svarar
tveimur milljörðum íslenzkra króna
meira fyrir að fljúga til Evrópu en
þörf var á samkvæmt kostnaði við
rekstur sliks flugs.”
Hvað er maðurinn að fara? Veit
hann ekki að fargjöld í Evrópu eru
þó' nokkuð hærri hlutfallslega heldur
en fargjöld á langleiðum. Fargjöld i
Evrópu og reyndar víðar, eru
ákvörðuð af flugfélagasamsteypunni
ÍATA sem Flugfélag íslands, á
meðan það var og hét, var félagi i.
Annars skal ég ekki fara að ræða
við O.R.G. um fjármál Flugleiða því
ég tel mig ekki hafa á því vit sem ég
held að O.R.G. hafi ekki heldur.
Áhugi O.R.G. er líklega af öðrum
toga spunninn. Flogið er nefnilega til
USA og það er heila málið.
Setjum hins vegar svo að tapið á
fluginu hefði verið á milli íslands og
Ráðstjórnarríkjanna, þá hefði allt
verið í sómanum því að til þess að
halda uppi menningarsambandi við
USSR hefði verið mikið á sig leggj-
andi. Menningartengsl við USA eru
O.R.G. nefnilega einskis virði.
Þangað sækjum við þó mikla tækni
sem USSR kemst ekki i hálfkvisti við.
„Skomager bliv ved din læst”, er
gamalt danskt máltæki og þetta ætti
O.R.G. að gera. Hann ætti að halda
Sjónvarpsáhorfandi hringdi:
Vinnufélggar mínir voru að segja
mér frá bráðskemmtilegum
brandaraþætti sem sýndur var á
sunnudagskvöldið i sjónvarpinu. Þvi
miður var ég ekki heima og varð því
af þessum þætti en mér er sagt að
fólk hafi legið i gólfinu af hlátri er
það horfði á þáttinn. Auk þess var
hann hvergi auglýstur í dagskránni
áfram að kenna við Háskólann, þótt
hann prediki þar kommúnisma, illu
heilli, en láta þá er vit hafa á flugmál-
um í friði, vera ekki að kássast upp á
þá menn sem hafa gert sér það að lífs-
starfi að stjórna fiugi á íslandi. Þeir
eru ekki að kássast upp á þá stofnun
sem O.R.G. er prófessor við og láta
hanaifriði.
Mér datt þetta (svona) í hug.
Siggi flug.
heldur bara skellt skyndilega á án
þess að fólki gæfist kostur á þvi að
koma sér fyrir framan sjónvarpið og
endurskoða aðrar ákvarðanir um
notkun kvöldsins.
Þessi þáttur var að sögn tekinn upp
i Kópavogi og fjallaði um ýmis sér-
kenni þess staðar. Vil ég skora á sjón-
varpið að endursýna þáttinn sem
Endursýnið brandaraþáttinn
BEOCENTER4600
Lestu einhver eriend
blöð eða tímarit?
Steinn Hansson. starfsmaður Shell:
Nei. éggeri litiðaðþvi.
Jón A. Sverrisson sendihílstjóri: Nei,
stundum les ég þó MAD og timarit um
miit áhugamál sem eru skraulfiskar.
Fyrir þá sem vilja
spara pláss án þess
aö fórna gæöunum!
Bang&Olufeen
VIÐ ERUMÁ ALLT ANNARRI LÍNU!
ÞEGAR HLJÓMGÆÐIN
GLEYMDUST...
Þróunin í hljómtœkjaframleiðslunni
hefur verið sú að draga margar einingar
saman í eina heild, svonefndar sam-
stœður. Þetta hefur sína góðu kosti. Þú
kaupir útvarpsmagnara, kassettusegul-
band, plötuspilara og hátalara í einum
og sama pakkanum. Þú sparar pláss og
sú leið er ódýrari en kaup á einstökum
einingum.
En þetta hefur líka sínar slœmu
hliðar. Ein er sú að hljómgœðum hefur
oftast verið fórnað til þess að halda verði
í lágmarki. Því það getur enginn boðið
allan pakkann á hálfvirði án þess að gefa
eftir í gæðunum. Það liggur Ijóst fyrir.
BEOCENTER 4600
HINN SANNI TÓNN HÖNNUNAR
OG HLJÓMGÆÐA.
Bang og Olufsen voru óánægðir með
þessa þróun og hönnuðu því samstæðu
sem er ólík öllum þeim hljómtœkjum
sem fyrir eru á markaðinum.
Það er BEOCENTER 4600. Þar er
ekkert gefið eftir í gæðum, þvert á móti er
lögð áhersla á óskerta eiginleika hverrar
einingar fyrir sig. Samstœðu með há-
marks hljómgæði á sanngjörnu verði.
Plássins vegna verða hér aðeins
talin upp nokkur þeirra atriða sem gera
BEOCENTER 4600 samstæðuna ein-
staka í sinni röð.
SEGULBAND.
• Hraðanákvœmni (woui and flutter
DINjer 100% ± 0.2%, en það útilokar
falska tóna.
• Margföld ending slitflata á tón-
bandsnema (en þeir eru í sífelldri snert-
ingu við bandið) er tryggð með sérhertum
málmi.
• DOLBY, en það er útbúnaður sem
eyðir suði við upptökur og afspilun.
PLÖTUSPILARI.
• Spilarinn hlaut verðlaun nýverið
sem “beztu kaup„ á Evrópumarkaði.
• Armurinn og tónhausinn marka
tímamót í hönnun á plötuspilurum, því
samanlögð þyngd þeirra er aðeins 50g
sem er 10 sinnum minna en þekkist.
Háfœgð demantsnálin hvílir því í raun
með 0,3g þunga á plötunni í stað 1 til 2g
Þessi staðreynd ásamtfullkominni gorm-
fjöðrun tryggir hámarks upptökugæði
og fyrirbyggir að hljómplata eða nál
bíði tjón, jafnvel þó að utanaðkomandi
titringur eða hnjask komi til.
GERÐUSVO VEL.
Viljir þú sannreyna þessa aug-
lýsingu er þér velkomið að ræða málin
til hlítar við sölumenn okkar um
BEOCENTER 4600 og reyna tœkin.
Fyrir alla muni gerðu samanburð.
Verslið í sérverslun með
LITASJÓNVÖRP OG
HLJÓMTÆKI
BUÐIIM
SKIPHOLTI19
SÍMI29800
Verð á Beocenter 4600
er kr. 833.410.-
Góðir
greiðsluskílmálar.
Guðni Jónsson framkvæmdastjóri: Já,
ég er áskrifandi að 6 eða 7 erlendum
limaritum, aðallega ritum um viðskipti
og það sem er efst á baugi.
Anna Sigurborg Kristinsdóttir skrif-
stofustúlka: Ég les Newswéek og
Times og reyndar flest það sem ég
kemst yfii.
mm
•xmm
Birgir Viðar Halldórsson namm-
borgaratæknir: Mjög litiðað þvi, ég hef
of lítinn tima til sliks.
Guðbjörg Sigurjónsdóttir bréfberi:
Nei. Ég geri mjög lílið að þvi.