Dagblaðið - 08.10.1980, Blaðsíða 17

Dagblaðið - 08.10.1980, Blaðsíða 17
DAGBLAÐIÐ. MIDVIKUDAGUR 8. OKTÓBER 1980. Grunnskólinn i Grindavik getur tæplega kallazt tákn um rósemi og friðsæld. Mikiar deilur hafa risið um tvo skólastjóra og einn kennara að auki. 17 N hætt við að skipta um skrárnar þar sem kostnaður við það reyndist mikill. Þó var skipt um skrá á skóla- stjóraskrifstofunni. Lyklar Frið- bjarnar hefðu ftvi átt að ganga að öllum öðrum hurðum í skólanum, áleit Bogi. Hundurinn sagði ekki ég, kötturinn sagði... Hér að framan hefur verið stiklað á stóru og aðeins drepið á örfá atriði i „skólastjóramálinu hinu fyrra í Grindavík” til að menn geti glöggvað sig örlítið á f>ví um hvað var deilt. Ríkissaksóknari fékk kæru Frið- bjarnar til meðferðar í fyrrahaust en sendi málið rannsóknarlögreglu- stjóra þann 16. október 1979 lil rannsóknar. Rannsóknarlögreglan sendi embætli rikissaksóknara málið til baka 19. október „til athugunar" .......Skv. utnlali.” Þann 25. október sendi ríkissaksóknari gögnin á ný lil rannsóknarlögreglu- stjóra „með kröfu um að þér látið umbeðna rannsókn fram fara.” Rannsóknarlögreglan lauk rannsókn Friðbjarnarmálsins og sendi skýrslur um það til rikissaksóknara 27. maí i vor. Frá rikissaksóknara fóru gögnin til menntamálaráðuneytisins en á þeim bænum þótti mönnum „eigi vera efni til frekari aðgerða í málinu,” eins og segir i bréfi til Arn- mundar Bachmanns og vilnað er i í upphafi greinarinnar. „Sannleiksást Frið- bjarnar og ráðherra hans" Bogi Hallgrímsson fyrrum skóla- stjóri og yfirkennari i Grindavík kemur við sögu í máli þessu svo sem fyrr segir. Bogi hefur sent afrit af bréfi ríkissaksóknara til rannsóknar- reglunnar til fjöimiðla og fylgdi nteð yfirlýsing Boga um málið. Segir Bogi þar m.a.: „Þyrlaði Friðbjörn ásamt fyrrver- andi menntamálaráðherra Ragnari Arnalds upp miklu moldviðri og báru undirritaðan þungum sökum m.a. þvi að hafa hindrað Friðbjörn i að taka við starfi sem skólastjóri haustið 1979 með því m.a. að hafa skipt um skrár í skólanum og hafa neitað að afhenda honum lykla sem hvorugt er rétt þar sem ekki var skipt um skrár. Þar af leiðandi hafði hann alla lykla að skólanum frá þvi hann gegndi starfi sem skólastjóri. Fjarstæða er að ég hafi vísað honum á dyr eða eins og hann orðar það í viðtali við eitt dagblaðanna, að ég hafi kastað honum út. Rannsókn þessari er nú lokið. Eru yfirheyrslur og skjöl málsins á 3ja hundrað siður og er þar saman kominn mikill fróðleikur um feril Friðbjarnar og sannleiksást hans og ráðherra hans. Niðurstaða rikissaksóknara er að sjálfsögðu sú að ekki sé ástæða til frekari aðgerða í málinu,” segir Bogi Hallgrímsson að lokum. „Maðurinn var flæmdur burtu" „Ég er að kanna málið og mun óska eftir áframhaldandi rannsókn málsins ef mér sýnist svo. Ef ekki mun ég einbeita mér að þvi að kanna grundvöll fyrir skaðabótakröfa Frið- bjarnar á hendur einhverjum í Grindavik. Það stendur alla vega upp úr að Friðbjörn var flæmdur burtu úr plássinu, ákveðið fólk þar batzt samtökum um að gera honum lífið sem erfiðast,” sagði Arnmundur Bachmann lögmaður Friðbjarnar Gunnlaugssonar þegar Dagblaðið spurði hann um það álit rikissak- sóknara að ekki séu tilefni frekari aðgerða í kærumáli Friðbjarnar. Bogi Hallgrímsson sendi fjölmiðlum Ijósrit af bréfi ríkissaksóknara til rannsóknarlögreglu ríkisins þar sem þetta kemur fram eins og fyrr segir, en afrit af bréfinu var sent Arnrrtundi Bachmann. „Bréfið kom mér í opna skjöldu, enda hafði ég skömmu áður óskað eftir því að rannsókn þessa máls yrði ekki lokið fyrr en mér hefði gefizt tækifæri til að koma athugasemdum á framfæri. Auk þess þykir mér furðulegt að Bogi Hallgrímsson skuli hafa aðgang að þessu bréfi og senda (af því Ijósrit til fjölmiðla. Málinu er ekki lokið af okkar hendi. Alveg er Ijóst að Friðbjörn hefur orðið fyrir verulegu tjóni og þó svo færi að ekki tækist að sanna hegningarlagabrot gagnvart honum þá stendur eftir að kanna möguleika á að höfða skaðabótamál fyrir hans hönd,” sagði Arnmundur Bach- mann. Gunnlaugur Dan Ólafsson skólastjóri var eitt af vitnum I rannsókn á deilum um lyklavöld i grunnskólanum i Grindavik og dót I herbergi i kennarabústaónum. DB-mynd Ragnar Th. Byljasamt í Grindavík Óhætt er að segja að undanfarin ár hafi verið ærið stormasamt í kringum skóla þeirra Grindvíkinga eins og frá hefur verið greint í fjölmörgum fréttum og frásögnum í Dagblaðinu. Hafa sumir stormsveipir verið djúpir og krappir og náð stigi felli- bylsins í bæjarlífinu. Mál Frið- bjarnar Gunnlaugssonar, „skóla- stjóramál hið fyrra”, komst fyrst verulega í hámæli fyrir réttu ári þegar mest var skrifað og deilt um „skóla- stjóramálið hið siðara”. Síðari skólastjóraþræta Grindvik- inga var um þá ákvörðun Ragnars Arnalds að setja Hjálmar Árnason skólastjóra í Grindavík um eins árs skeið frá og með 25. sept. 1979. Af því varð eitt heljar mikið fjaðrafok og leiðindi eins og menn muna. Lyktir urðu þær að Hjálmar sagði upp störfum 4. október eftir miklar deilur og harðar. Síðast hvessti í Grindavík fyrir fáeinum vikum þegar nokkrir foreldrar kröfðust þess að Ragnar Ágústsson kennari viki og sendu ekki börn sín til hans í tíma kröfum sinum til áréttingar. Var Ragnar l'ærður til i kennslu við grunnskólann og er ekki annað vitað en skólastarfið gangi nú eðlilega fyrir sig. Storma hefur lægt við Grinda- vikurskólann i bili. Hver veit nema að það sé logn á undan næsta stormi. Hvað er það: Eitt er víst að það er uppvaxandi Grindvíkingum, þ.e. nemendum í grunnskólanum, litill þroskaauki að fylgjast með eldra og reyndara fólki gera út um mál sín á jafnharkalegan hátt og raun ber vitni. Það vill því miður glevmast stundum. -ARH. Heimilistölvan Tölvuskóli Borgartúni 29 105 Reykjavík Sími 25400 Tolvu- námskeið Byrjenda- og framhaldsnámskeið Örtölvan er án el'a byItingarkenndasta uppfinning þessarar aldar. Með tilkomu hennar hafa tölvur med sambærilega afkastagetu lækkað i verði ur l .000.000 dollara i 2.000 dollara á siðastliðnum 10 árum. Bein afleiðing þessarar þróunar er m.a. sú að nú geta lítil fyrirtæki nieð 3—10 menn i vinnu loks eignast og rekið sínar eigin tölvur. Læknastofur. fasteigna- og bílasölur, endurskoðunarskrifstofur.lögfræðiskrifstofur, út- gerðarfyrirtæki, verktakar og jafnvel einstaklingar geta nú tekið tölvutæknina í sina þjónustu. Verkefnin eru óþrjótandi. I>ví miður hafa fæst okkar fengið nokkra kennslu í meðferð tölva. þvi skólakerfið hefur ekki séð fyrir þessa merkilegu þróun. Langflestar litlar tölvur nota lorritunarmálið BASIC sem cr byggt upp úr auðveldum enskum orðum sem flestir kannast við. Fölvuskólinn býður yður nú upp á tækifæri til að kynnast hinum fjölbreyttu notkunar möguleikum smátölva af eigin raun um leið að læra forritun í BASIC máli.. Námskeiðin eru byrjendanántskeið í meðferð tölva og henta hverjum þeim sem vill læra að hagnýta sér þá margvíslegu möguleika sem smátölvur Imicrocomputers) hafa upp á að bjóða. Kennsla fer að miklu leyti fram undir leiðsögn tölva. Tveir nemendur vinna við hverja tölvu og námsefnið er að sjálfsögðu allt á íslensku. INNRITUN ÍSÍMA 25400

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.