Dagblaðið - 08.10.1980, Blaðsíða 4
DAGBLAÐin. MIDVIKUDAGUR 8. OKTÓBER 1980.
Af staða sjálf stæðismanna til ríkisst jómarínnar samkvæmt skoðanakönnun DB:
Stjómarandstæðingar
f naumum meirihluta
Meirihluti stuðningsmanna Sjáll'-
stæðisflokksins er andvigur rikis-
stjórninni, en þetta er naumur meiri-
hluti. Af þeim, sem taka afstöðu, eru
54,3 af hundraði andvigir stjórninni
en 45,7 af hundraði fylgjandi henni.
Eetta eru niðurstöður úr skoðana-
könnunum Dagblaðsins. DB hefut
birl niðurstöður úr könnun um fylgi
ríkisstjórnarinnar og stjórnmála-
flokkanna, og einnig um hlutfallslegl
l'ylgi Geirs Hallgrímssonar og
Gunnars Thoroddsens, eins og
kunnugt er. Þegar nánar er athugað,
hver afstaða, þeirra sem segjast
standa næst Sjálfstapðisflokknum, er
gagnvart rík isst jórninni, kemur
framansagt i Ijós. Stuðningsmenn
Sjálfstæðisflokksins skiptust þannig,
að 36,9 prósent sögðust fylgja stjórn-
inni, 43,8 prósent sögðust andvigir
henni og 19,4 prósent voru
óákveðnir.
Þetta eru einkar athyglisverðar
tölur, þegar á það er litið, að yfir-
gnæfandi meirihluti þingflokks Sjálf-
stæðisflokksins er i stjórnarand-
stöðu.
Sjálfstæðiskonur
andvígar stjórninni
I Ijós kemur, að ríkisstjórnin á
mun meira fylgi meðal karla en
kvenna af því fólki, sem segist
standa næst Sjálfstæðisflokknum.
Meðal karla eru jafnvel lilið eitt
lleiri fylgjandi stjórninni en þeir, sem
eru andvígir henni.
Dæmið snýst við, þegar kemur að
konunum.
Meðal kvenna eru mun fleiri and-
vigar stjórninni en fylgjandi henni.
Þetta á einkum við um konur á
Rey kjavikursvæðinu.
DB birti í fyrradag niðurstöður
könnunar á þvi, hvort menn styddu
frekar Geir eða Gunnar. Meðal
þeirra stuðningsmanna Sjálfstæðis-
flokksins sem tóku afstöðu, sögðust
63,3% frekar styðja Gunnar en
36,7% kváðust frekar styðja Geir. Af
þessu sést, að mjög margir þeirra,
sjálfstæðismanna, sem taka Gunnar
fram yfir Geir, styðja samt ekki
stjórn Gunnars.
-HH.
Niðurstöður urðu þessar meðal stuðnings-
manna Sjólfstæðisf lokksins:
Fylgjandistjórninni 59 eða 36,9%
A ndvigir stjórninni 70 eða 43.8%
Óákveðnir J/ eða 19,4%
Ef aðeins eru teknir þeir, sem tóku afstöðu,
verða niðurstöðurnar þessar:
Fylgjandi stjórninni
A ndvígir stjórninni
45,7%
54,3%
Dagvistunarstofnanir Reykjavíkur geta senn tekið við 3000 bömum:
Dagheimilið Iðuborg opnað f Breiðholti
—en biðlistarnir eru ennþá langir
lélagsmálaráð Reykjavikurborgar
bauð blaðamönnum fyrir skemmstu að
skoða nýtt dagvistunarheimili i Breið-
holti, Iðuborg við Iðufell.
I Iðuborg verða 17 börn allan daginn
en 74 ýmist fyrir eða eftir hádegi. Það
er nýjung að blanda þannig saman dag-
heimili og leikskóla. Ennfremur er sá
hállur hafður að blanda börnunum.
sem eru allan daginn, án tillits til
aldurs, þannig að þau likjast systkina-
hóp l'remuren bekkjardeildum í skóla.
Eorstöðukona Iðuborgar verður
Guðrún Samúelsdóttir, áður l'óstra i
Völvuborg, og henni til aðstoðar 12
starfsmenn.
Innan nokkurra vikna verða opnuð
tvö önnur dagvistunarheimili í Breið-
holli, við Eáíkabakka og Hálsasel.
Verða þau jafnslór og með sama sniði
og lðuborg, enda byggð eftir sömu
teikningum.
Dagmæður og
tíu ára áætlun
Skóladagheimili var i síðasta mánuði
opnað í Auslurbæjarskólanum og
þannig fjölgar á þessu haustmisseri unt
270 pláss fyrir börn á forskólaaldri og
Þegar Ijósmyndarinn kemur er bezl að
gera sig viröulegan i andlitinu. Til að
vila það þarf maðiir ekki að vera
urdinn gamall.
Dli-inynd: Kinar Olasnn
msáN
HKiX
BLAÐSÖLUBÖRN
óskast í Stór-Reykjavík:
Kópavog
Hafnarfförð og Garðabœ
ENNFREMUR VANTAR BLAÐSÖLUBÖRN
VÍÐS VEGAR UM LANDIÐ.
SÍMI 27022 - VIKAN AFGREIÐSLA
vnuni
vaax
42 á skólaaldri. Njóta þá alls um 3000
börn einhverrar dagvistar á stofnunum
borgarinnar.
Biðlistarnir eru þó ennþá óralangir.
Gerð hefur verið áætlun utn að leysa
þörfina til fulls á næstu tíu árum.
Eins og sakir standa er biðtimi
stytzur fyrir hálfsdags vistun (leik-
skóla) 3ja til 4ra ára barna. Fulla dag-
vistun fá eingöngu einstæðir foreldrar
(og námsmenn).
Útivinnandi mæður, sem eru giflar
eða í sambúð, eiga ekki annan kosl en
konta börnum sínum í einkagæzlu til
dagtnæðra. Leyfi þarf til að taka börn i
gæzlu á þann hátt og borgin hefur eftir-
lit með dagmæðrum og gengst fyrir
námskeiðum fyrir þær. Um sjö
hundruð börn eru nú i slikri einka-
gæzlu.
Formaður stjórnarnefndar dag-
vistunarstofnana i Reykjavik er
Guðrún Helgadóttir, framkvæmda-
stjóri Bergur Felixson og eftirlit með
dagmæðrum hefur Margrét Sigurðar-
dóttir.
IHH.
SUS fundur um helgina:
Tillaga um
að Geir og
Gunnar
semji f rið
Tillagan afgreidd með
frávísunartillögu
Á fundi Sambands ungra sjálfstæðis-
manna um helgina var skotið fram til-
lögu sem snertir átökin innan Sjálf-
stæðisflokksins. Fjallaði tillagan um
það að kannað yrði til þrautar, hvort
forystumennirnir Geir Hallgrimsson og
Gunnar Thoroddsen gætu ekki náð
samkomulagi sín á milli. Og ef það
ekki tækist bæri að kjósa nýja forystu
Sjálfstæðisflokksins.
Að sögn Jóns Magnússonar for-
manns SUS var valin hin hefðbundna
leið að afgreiða tillöguna með frávis-
unartillögu. Tillagan um frávisun var
samþykkt. Voru hlutföll atkvæða 2 á
móti I, en fjöldi fundarmanna sat hjá
og vildi ekki taka afstöðu. Á þessum
fundi SUS var viðfangsefnið landflótt-
inn frá islandi. Höfðu vinnuhópar
unnið að málinu i sumar og gerðu nú
grein fyrir niðurstöðum í 8 erindum.
Fram kom að á 10 ára tímabili,
1970—1979, fluttust um 5000 íslend-
ingar úr landi. Samsvarar það t.d.
ibúafjölda Akraness.
-A.St.