Dagblaðið - 08.10.1980, Side 7
DAGBLAÐIÐ. MIDVIKUDAGUR 8. OKTOBER 1980.
7
íransforseti kokhraustur í útvarpsviðtali:
„Iranir sterkir — Irakar veikir”
„búumst til lokaorrustunnar við innrásarlið íraka”
Bani Sadr íransforseti hefur lýst
yfir því að íranski herinn búist nú til
,,lokaorrustunnar” gegn innrásar-
herjum íraka.
„Við styrkjumst með hverjum degi
sem iíður en óvinurinn veikist að
sama skapi,” sagði forsetinn, sem
jafnframt er æðsti maður herafla
Írana, í útvarpsviðtali í Teheran seint
í gærkvöldi.
„Veikleiki íraka er sá að þeir vita
ekki fyrir hverju þeir eru að berjast,
en herir okkar eru þess vel meðvitaðir
að þeir berjast fyrir trú sína og föður-
land.”
Bani-Sadr bætti því við að sérstök
nefnd hefði verið sett á laggirnar i
gær til þess að rannsaka á hvem hátt
iraskar orrustuþotur kæmust inn yfir
íranskt landsvæði án þess að þær
komi fram á radar íranska hersins.
Þá sagði forsetinn að öryggisráð
írans kæmi saman í dag til að meta
styrk og veikleika í vörnum landsins.
„Þið eruð þjóðníðingar”
— forystumaður samtaka gegn erl. verkafólki ákærður fyrir
kynþáttastefnu
,,Ef við ekki tökum upp baráttu
gegn innflytjendum munum við eftir
fá ár horfast í augu við óheftan
innflutning fólks og svipuð vandamál
og tíðkast í Þriðja heiminum:
stjórnleysi, hungursneyð, fíkniefna-
neyzlu í stórauknum mæli. Við
verðum að höggva að rótum meinsins
og beina spjótum okkar að
múhameðstrú og öðrum ósiðlegum
trúarbrögðum.”
Konan sem mælir svo heitir Vivi
Krogh, norskur bæjarfulltrúi Verka-
mannaflokksins i Bærum í Noregi og
heiðursfélagi í æskulýðssamtökum
sósíaldemókrata. Hún er stofnandi
og helzta idriffjöður- í „Samtökunum
gegn hættúlegum innflytjendum”, og
hefur kontið þar fram i fjölmiðlum
með harkalegar árásir á Pakistani og
annað fólk sem búsett er í Noregi.
Hún er ákærð fyrir kynþáttahatur
bæði í orði og verki, sem er brot á
norskum lögum. Á dögunum boðuðu
samtök hennar til útifundar i Sand-
vika og Osló. Vakti fundarboðun sú
athygli og reiði, enda er þetta i fyrsta
sinn frá stríðslokum að boðað er til
opinbers fundar þar sem kynþátta-
stefna er aðalfundarefnið. Samtök
erlendra innflytjenda, fólk úr verka-
lýðshreyfingunni, stúdentasamtök og
fleiri boðuðu til útifundar og mót-
mæla á sama stað í Osló og
Sandvika og hvöttu til að aðgerðir
„Samtakanna gegn hættulegum
innflytjendum” yrðu stöðvaðar. Þeg-
ar til átti að taka mætti Vivi Krogh
ein á staðinn í Sandvika veifandi
norskum fána og æpti að mót-
mælendum að þar færu tómir
„dópistar og þjóðníðingar”.
Lögreglan skakkaði leikinn og leiddi
frúna á brott, en fundur samtaka
hennar í Osló var afboðaður.
Samtök nýnasista í Noregi sendu
samdægurs út fordæmingaryfir-
lýsingu vegna þessa og lýstu
stuðningi við Vivi Krogh. „Hennar
barátta er um leið okkar barátta,”
sögðu nýnasistar.
jhdo
Ný námskeið hefjast 15. október.
Kennari: Viðar Guðjohnsen.
Innritun og upplýsingar í síma 83295
alla virka daga frð kl. 13-22.
JÚDðDEILD ÁRMANNS
Ármúla 32.
Íraski herinn hélt uppi miklum
loftárásum á verksmiðjur, herflug-
velli og oliuhreinsunarstöðvar í íran á
mánudaginn. Fjórir létu lifið og 65
særðust. Árásarflugvélarnar flugu
mjög lágt inn yfir landið til að forð-
ast radargeisla og loftvarnabyssur
írana fóru ekki i gang fyrr en eftir að
fyrstu sprengjurnar féllu á skotmörk-
.in. Fáum mínútum síðar vældu loft-
varnaflautur í útvarpinu.
i Washington lýstu talsmenn
Bandaríkjastjórnar yfir áhyggjunt
sinum vegna hreyfingar Jórdaníu-
manna i átt að þátttöku i stríði írana
og Íraka. Jórdanir hafa safnað tug-
þúsunda manna herliði á landamær-
unum við írak og búast til að leggja
írökum liðgegn írönum. Bandaríkja-
nienn segjast jafnframt vilja hjálpa
löndum i þessum heimshluta ef
stjórnir þeirra telji hagsmunum
sínum ógnað vegna stríðsins.
Talsmaður stjórnarinnar í
Washington sagði að lítill árangur
íraka í stríðinu benti til að hvorki
íran né írak gæti sýnt styrk til að
taka við hlutverki írans á keisaratim-
anum sem hernaðarlega styrkasta
rikið á þessum slóðum.
í Írak var fréttamönnum sagt að
árásir héldu áfram á Abadan, mestu
olíuhreinsunarstöð Írana við Shatt-
Al-Arab. irakar segjast söntuleiðis
vera í þann veginn að taka borgina
Korramshahr á sitt vald til fulls.
Fermingargjöfin í ár
eru stílhreinu furuhillurnar sem unga
fólkið getur sett saman sjálft og gefa
óþrjótandi möguleika.
Póstsendum.
Klapparstíg 27.
Sími 14140.
Á horni Klapparstígs og Hverfisgötu.
Starfsfólk banka
og sparisjóða
Allsherjaratkvæðagreiðsla vegna nýgerðra kjara-
samninga fer fram á vinnustöðum dagana 14. og
15. október nk.
'Fundir til kynningar á samningunum verða sem
hér segir:
Miðvikudaginn 8. okt. Hótel Borg, Reykjavík,
kl. 20.30 fyrir Reykjavík og nágrenni.
Fimmtudaginn 9. okt. Hótel Stykkishólmur kl.
20.00 fyrir Snæfellsnes og Búðardal.
Fimmtudaginn 9. okt. í sal Landsbanka íslands á
Selfossi kl. 20.00 fyrir Suðurland.
Föstudaginn 10. okt. í Sjómannastofunni á ísa-
firðikl. 18 fyrir Vestfirði.
Laugardaginn 11. okt. í sal Landsbanka íslands á
Akureyri kl. 14 fyrir Norðurland.
Laugardaginn 11. okt. í sal verkalýðsfélaganna
Hafnargötu 80 Keflavík kl. 14 fyrir Suðurnes.
Sunnudaginn 12. október í Valaskjálf á Egils-
stöðum kl. 15 fyrir Austurland.
Sunnudaginn 12. okt. í sal Landsbankans á Akra-
nesi kl. 14.30 fyrir Akranes og Borgarnes.
Félagar fjölmennið á fundina og takið þátt í at-
kvæðagreiðslum.
Samband íslenskra bankamanna.