Dagblaðið - 08.10.1980, Blaðsíða 9
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 8. OKTÓBER 1980.
9
Ringo Starr ásamt eiginkonunni tilvonandi, Barböru Bach.
BítíUogBach
i eina sæng
Ringó Starr fyrrum trommu-
leikari hljómsveitarinnar Beatles lék
nýlega stórt hlutverk í kvikmyndinni
Caveman (Hellisbúi). Þar átti hann
nokkrar ástarsenur með bandarísku
leikkonunni Barbara Bach. Eitthvað
hafa þau tekið hlutverkin alvarlega,
þvi að Ringo lýsti því yftr nýlega i
viðtali við blaðamann brezka viku-
ritsins Woman að þau tvö hygðust
ganga í hjónaband á næsta ári.
Ringo skildi fyrir nokkrum árum
við konu sína Maureen. Þau eiga þrjá
syni saman.
BoDerekhótað
nauögun og
itingum
Bo Derek í sínu þekktast;
kvikmyndahlutverki til þessa
10”.
Hollywoodstjarnan Bo Derek á ekki sjö dagana scela um þessar
mundir. Kynferðisglæpamaður hefur sent eiginmanni hennar. John
Derek, hvorki meira né minna en sjötíu hótunarbréf upp á síðkastið.
Þar gefur bréfritarinn greinargóðar lýsingar á því hvernig hann
hvggist nauðga og limlesta konu hans viðfvrsta tækifærið sem hann
færfæri á henni.
Lögreglan i Los Angeles leilar þessa bréfritara nú ákaft. Einnig
stendur lögregluvörður við hús þeirra hjóna allan sólarhringinn.
Nú er rótti timinn til að halda við brúna litnum frá í
sumar.
• Dömu-, herra- og hjónatimar, • Sturtur • GROHE
vatnsnudd. Setustofa • Kaffi.
PANTIÐ
TÍMAÍ
SÍMA
10256
ATHt Belosolsólbekkurinn er ekki sléttur,
heldur U-laga, þar afleiðandi mjög þægilegur.
Norska sjónvarpið sýndimyndina
Dauða prinsessu:
„ÓMERKILEG MYND
SEM ÞO VAR SJALFSAGT
AÐ SÝNA”
— var álit margra lesenda norska Dagblaðsins eftir
sýningu myndarinnar
Norska sjónvarpið sýndi þann 22.
september hina mjög umdeildu mynd
Dauði prinsessu. Við íslendingar
vorum um það bil að eiga þess kost að
sjá myndina 6. júní sl. en á síðustu
stundu tók útvarpsráð þá ákvörðun að
sýna ekki myndina eins og lands-
mönnum er enn í fersku minni.
Norðmenn tóku hins vegar þá á-
kvörðun að sýna ntyndina þrátt fyrir
hótanir Saudi-Araba. Ritstjóri norska
Dagblaðsins skrifar um myndina 23.
september og blaðið fær þrjátíu manns
á ólíkum aldri til að segja álit sitt á
henni.
„Loksins hefur norska sjónvarpið
sýnt hina umdeildu mynd Dauði
prinsessu, sem menn hafa rætt um án
þess að hafa séð hana,” segir rit-
stjórinn Jahn Otto Johansen m.a. og
segir ennfremur: „Sýning myndarinnar
kom á margan hátt eins og skrattinn úr
sauðarleggnum. Myndin er of löng og
ekki síður langdregin. Ekki er heldur
hægt að segja að hún sé áhrifamikil.
Undir venjulegum kringumstæðum
hefði myndin passað ágætlega sem
mánudagsmynd. Flestir sjónvarps-
áhorfendur hefðu þá beinlinis slökkt á
sjónvarpstækjum sínum vegna þess hve
myndin var leiðinleg.
Ef hún hefði verið venjuleg mynd
hefði norska sjónvarpið eflaust klippt
úr henni leiðinlegustu og lang-
dregnustu atriðin. í þessu tilfelli var
það hins vegar ekki mögulegt þar sem
sjónvarpið hefði þá verið sakað um rit-
skoðun. Myndin var alls ekki sú árás á
íslam og arabana, sem sumir hafp
viljað halda fram,” segir ritstjórinn i
grein sinni.
Ritstjóra norska Dagblaðsins fannst
það óþarft af aröbum að gera læti úl
af myndinni og segist ekki trúa því að
sýning norska sjónvarpsins á Dauða
prinsessu geti skaðað íslam eða araba á
nokkurn hátt.
Þá hafði blaðið samband við norska
sendiráðið í Jeddah, sem er höfuðborg
Saudi-Arabíu og fékk þær upplýsingar
að starfsfólk þar hefði engar áhyggjur
vegna sýningar myndarinnar í norska
sjónvarpinu. Ekki höfðu neinar
hótanir borizt sendiráðinu og gat það
stafað af því að það var nýflutt í nýtt
húsnæði og enginn sími verið þar í
nokkra daga.
Lesendur norska Dagblaðsins létu
einnig í sér heyra. Einn lesandinn sagði
um myndina: „Fyrir okkur voru
elskendumir, sem myndin fjallar um,
sjúkir. Það var rétt að sýna myndina
og ég skil ekki af hverju arabar eru
svona viðkvæmir fyrir henni.”
Flestum lesendum blaðsins fannst
það gott hjá norska sjónvarpinu að
sýna myndina og margir töldu hana
bæði nauðsynlega og lærdómsríka. Ein
kona taldi ósannað að prinsessan væri
yfirleitt dauð. ,,Hvað vitum við um
það?” spyr hún. Karl einn vildi hins
vegar halda því fram að myndin væri
dýrasta mynd sem sýnd hefði verið i
Noregi. „Hún á eftir að valda okkur
milljóna tapi. Ég tek efnahag okkar
fram yfir manneskjulíf af þessu tagi. Á
þessu tapar Noregur peningum og það
er það eina sem við áttum að hugsa
um.”
-ELA.
Leikkonan Suzanne Abou Taled fer
með hlutverk arabísku prinsessúnnar
i myndinni Dauði prinsessu.
ANDREWLL0YD WEBBER VINNUR
ÚR VERKUM SKÁLDSINS T.S. ELIOT
Andrew Lloyd Webber höfundur
Jesus Christ Superstar og Evitu hefur
tilkynnt að næsta verk hans verði
byggt á Old Possum’s Book of
Practical Cats eftir T.S. Eliot. Ekkja
skáldsins, Valerie Eliot, hefur gefið
Webber leyfi til að nota í verk sitt
áður óbirt Ijóð hans um fugla og
aðrar skepnur, sem hún fann í
skjölum manns síns.
Að öllum líkindum hefjast æfingar
á þessu nýja verki Andrew Lloyd
Webbers í febrúar. Gangi allt að
óskum verður frumsýningin i
London í apríl.
Aðeins
20-30% út
CROWN SHC - 3150
VERÐ: 381.435.-
Útborgun 95.000.- rest 3 mán.
CROWN SHC — 3350
VERÐ: 596.990.-
Útborgun 150.000,- rest4mán.
CROWN SHC — 5300
VERÐ: 718.860.-
Útborgun 200.000.- rest 5 mán.
CROVVN SHC - 5500
VERÐ: 727.815.-
Útborgun 200.000,- rest 5 mán.
CROWN SHC — 5600
VERÐ: 819.705.-
Útborgun 250.000.- rest 5 mán.
VERSLIÐ I
SÉRVERSLUN
MEÐ i gT~~
LITASJÓNVÖRP
OG HLJÓMTÆKI SKIPHOLTI 19 SfMI 29800