Dagblaðið - 08.10.1980, Side 20
20
i
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 8. OKTÓBER 1980.
Menning
Menning
Menning
Menning
I
Myndhöggvari og málari
— Sóttu báðir innblástur ílist fortíðar
— Marino Marini og Philip Guston látnir
Marino Marini — Riddaraslylta, 1956, Iré.
Nýlega eru látnar tvær kempur í
hópi myndlistarmanna sem vert er að
minnast. Þetta eru þeir Marino
Marini, italski myndhöggvarinn
frægi, 79 ára að aldri, og bandaríski
listmálarinn Philip Guston, 67 ára.
Báðir settu þeir mikinn svip á listir í
heimahögum sínum meðan þeir lifðu,
en áhrif þeirra út á við voru kannski
minni en verk þeirra verðskulda.
Marino Marini var fæddur i
Túskaníu, en nam skúlptúr í Flórens
og París 1928—29. Hann varð fyrstur
landa sinna til að leita sér nútímalegs
myndmáls í fortíðinni, í forngrískum
höggmyndum og verkum Endur-
reisnarmanna. Óhætt er að segja að
þetta hafi Marini tekist og því er það
sem skúlptúr hans hefur á sér fremur
einfalt og hreinlegt snið, séður úr
fjarlægð, en þegar nær kemur verða
Ijós ýmiss konar expressjónísk smá-
atriði og jafnvel yfirmálun, sem eru
áhrif nútímameistara á borð við
Rosso og Rodin.
Maður á hesti
En þótt einfaldleiki sé aðalsmerki
Marinis, tekst honum samt að tjá í
myndum sinum mikla andlega
spennu og átök, jafnvel grimmd og
þannig er skúlptúr hans í anda vorra
tíma. Skúlptúr Marinis er tiltölulega
takmarkaður að inntaki. í byrjun
ferils síns einbeitti hann sér að
goðsagnalegum konumyndum í anda
Maillols eða portrettmyndum, en
árið 1935 hóf hann að fást við æva-
fornt mótif, riddaramyndina, sem
hann síðan vann að, meira og minna
til dauðadags. I meðferð Marinis
verður þetta myndefni æ dramatísk-
ara eftir því sem árin liða. Maður og
hestur byrja sem andstæð öfl, ganga
síðan saman i eitt en heyja loks
baráttu úpp á líf og dauða. í síðari
skúlptúr Marinis eru deyjandi hestar
og riddarar algengir og endurspegla
þannig tíðarandann. Marini
hlotnaðist margur heiðurinn, hlaut
skúlptúrverðlaun á Biennal í
Feneyjum árið 1952 og aðrar álíka
viðurkenningar. Hann stundaði
einnig málaralist alla ævi, þar sem
svipuð viðhorf koma fram og í skúlp-
túr hans, sem finna má í öllum helstu
nútímasöfnum heims.
Hið kvika handbragð
Philip Guston var fæddur í
Kanada, ólst upp í Los Angeles,
þaðan sem hann gat brugðið sér til
Mexíkó til að sjá hina mikíu vegg-
myndamálara Mexikana. Sú reynsla
kom honum til góða er hann gerðist
vinnumaður hjá listadeild bandarísku
viðreisnarinnar, WPA Federal Arts
Project, frá 1936—40. Guston er
venjulega talinn með hinum amerísku
afstrakt-expressjónistum,' þótt hann
stæði að mörgu leyti utan við megin-
straum þeirrar hreyfingar. Eins og
Pollock, de Kooning og Kline hóf
Guston að útrýma hinu hlutlæga úr
málverkum sínum á árunum 1947—
50 en þess í stað fór hann að leggja
alla áherslu á hina kviku handahreyf-
ingu, frjálslega óhlutbundna hrynj-
andi. Þróaði Guston með sér stíl sem
sumir vildu kalla afstrakt impress-
jónisma, sökum hinna sterku ljóð-
rænu einkenna hans. í fínlegum
dráttum lagði Guston net litflekkja
einhvers staðar nálægt miðbiki
myndflatar, og litir hans eru ljúfir
bleikir, blágrænir, himinbláir, séðir
eins og í móðu. Sú tegund mynda
Gustons varð afar vinsæl og álíta
sumir t.d. að Kristján Davíðsson hafi
verið undir áhrifum þessara mynda á
tímabili.
Ádeilur
En við upphaf sjöunda áratugarins
breyttust áherslur allar i verkum
Gustons, einkum og sér í lagi eftir
Italíuferð málarans (1960) og rann-
sóknir á verkum Endurreisnarmanna
á borð við Mantegna og Piero della
Francesca. Stíll hans varð hlutlægur
á ný, táknrænn, jafnvel grófur og
myndefnið bar vott þeirri þjóðfélags-
legu vitund sem Guston hafði áður
látið i Ijós. Þetta eru ádeilur á kyn-
þáttamisrétti, hrottaskap samtímans,
vopnamangara o.s.frv. En ekki er
eins mikill munur á þessum myndum
og eldri Ijóðrænum verkum hans og
menn halda, því Guston taldi eins
og aðrir kollegar hans að öll góð
myndverk hefðu skýrt inntak, hvort
sem þau væru hlutlæg eða afstrakt.
Dauða Guston ber að meðan mikil
yfirlitssýning á verkum hans gengur
um Bandaríkin.
-AI.
Myndlist
AÐALSTEINN
INGÓLFSSON
Philip f iuston.
c
Þjönusta
Þjónusta
Þjónusta
j
c
Viðtækjaþjónusta
j
LOFTNE
Kaumenn annast
uppsetniimu á
I RIAX-loftnetum fvrir sjónvarp —
FIVl stereo op AIVl. Gerum tilbod í
ioftnetskerfi, endurnýjum eldri lannir.
ársábyruó á efni op vinnu. Greiöslu-
kiftr LITSJÓNVARPSÞJÓNUSTAIM
‘3r
DAGSÍMI 27044 - KVÚLDSÍMI 40937.
Sjónvarpsviðgerðir
Heima eda á Verkstæði.
Allar tefjundir.
3ja mánaða ábyrgð.
Skjárinn, Bergslaðastrati 38.
I)ag-, ksold- og helgarsimi
21940.
Sjónvarpsloftnet.
Loftnetsviðgerðir.
Skipaloftnet,
íslenzk framleiúsla.
Uppsetningar á sjónvarps- og
útvarpsloftnetum.
öll vinna unnin af fagmönnum.
Árs ábyrgð á efni og vinnu.
SJÓNVARPSMIÐSTÖÐIN hf
Siðumúla 2,105 Reykjavik.
Slmar: 91-3^090 verzlun — 91-39091 verkstæði.
OTVAWW.RlOA
KiSfAni
Loftnetsþjónusta
Viðgerð og uppsetning á útvarps- (og) eða sjónvarpsloft-
netum og sjónvarpstsekjum. Höfum allt efni. Öll vinna
unnin af fagmönnum. Ársábvrgð á efni og vinnu. Kvöld- og
helgarþjónusta.
ELEKTRÓNAN SF. Símar 83781 og 38232.
C
Verzlun
)
NÝ SÓLST0FA
í Háaleitishverfi
Vönduð vestur þýzk loftkæld Ijós.
Þægilegir U-laga bekkir. Góð að
staða. Veriðvelkomin.
SÓLSTOFAN SELJUGERÐI4
HÁALEITISHVERFI. SÍMI31322.
SEDRUS *
Súöarvogi 32 • Símar: 30585 & 84047
Húsbyggjendur
Hef ávallt fyrirliggjandi allar gerðir af fylling-
arefni og gróðurmold. Tek að mér ýmisskonar
jarðvegsskipti. Leigi út jarðýtur og belta-
gröfur. Magnús Hjaltested, sími 81793.
FERGUSON
flfe
Einnig stereosamstæóur,
kassettuútvörp fjg
og útvarpsklukkur.
4
litsjónvarpstækin
20" RCA
22" ameriskur
26" myndlampi
Orrí
Hjaltason
Hagamel 8
Sími 16139
Sumarbústaðir - Sumarbústaðalönd
Tryggið ykkur land undir sumarhús, örfá lönd
á skipulögðu svæði miðsvæðis í Borgarfirði til
sölu eða leigu. Uppl. í síma 93-2722 á daginn.
93-1835, 93-1947, og 93-2095 á kvöldin.
C
Pípulagnir -hreinsanir
)
Er stíflað?
Fjarlægi stiflur úr voskum. wc rörum.
haðkcrum og mðurfollum. notum n> og
lullkomin tarki. rafmagnssnigla Vanir
rncnn Upplýsingar i sima 43879
Stífluþjónustan
Anton AðalatalnMon.