Dagblaðið - 14.11.1980, Qupperneq 3
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 14. NÓVEMBER 1980.
3
Síðasti sjálf stæðismaðurínn?
Blm. DB drógu alla í dilka t
Hvorki Gunnars- né Geirsmaður
skrifar:
Kæra ritstjórnarfólk!
Ekki hélt ég að fyrir mér ætti að
liggja að skrifa ykkur bréf af einu eða
öðru tagi en nú er svo komið að
hneykslan mín er slik orðin að vart
fæ ég lengur orða bundizt.
í baksíðufrétt í Dagblaðinu
fimmtudaginn 6. þ.m., um mannaval
uppstillingarnefndar fyrir stjórnar-
kjör Landsmálafélagsins Varðar, sem
var sl. miðvikudag, tókst þeim blaða-
mönnunum Jónasi Haraldssyni og
Braga Sigurðssyni að flokka þá sem
upp var stillt sem annaðhvort Gunn-
ars- eða Geirsmenn, alla nema einn.
Hverju sætir þetta? Hví bregzt
Dagblaðið svo upplýsingaskyldu
sinni gagnvart alþjóð? Hvernig
dettur Dagblaðinu í hug að skilja al-
menning eftir í óvissu um það hverj-
um þessi eini sem óflokkaður er,
heldur með?
Ég efast ekki um að það eru miklu
fleiri íslendingar en ég sem líða sálar-
kvalir og hugarangur fyrir það eitt að
vita ekki hvar þessi eini lendir í dilka-
drættinum. Það hlýtur að vera hjart-
ans mál allra landsmanna að fá að
fylgjast með því hverjir halda með
hverjum í hinum æsispennandi leik
Gunnarsgegn Geir.
Ég spyr: „Hvar er rannsóknar-
blaðamennskan”? Var ekki hægt að
gera út af örkinni viljugan og hug-
prúðan blaðamann og bara hreinlega
segja honum að vera ekkert að koma
aftur fyrr en hann hefði flokkað
þennan eina?
' Kannast einhver við rendurnar?
dýrin
hans
Bjarna
9825-0328 hringdi:
Allt of lítið er af körfubolta-
myndum í íþróttaþættinum. Mér
finnst það, svo og öllum á heimilinu.
Þegar Bjarni ioksins sýnir körfu-
myndir, þá er það af KR.
Mér finnst allt í lagi að sýna bad-
minton og fleiri iþróttir en ekki of
lengi í einu. Það er nóg að sýna bara
glefsur. Annars er Bjarni ágætur oft
á tfðum en hann er anzi gjarn á að
hampa zebradýrunum sínum.
Raddir
lesenda
Zebra
S\J'J0
SJÖNVARPSSTOFAN
Austurvegi 11
Selfossr
Sírni 99-1492
‘Firestik’
CB—LOFTNET
Loksins
á íslandi
5 ARA
ÁBYRGÐ
MSfTftí
Nú er svo komið að vart mega tveir
menn hittast, hvað þá fleiri, án þess
að velt sé vöngum yfir þessu dular-
fulla ástandi. Fáum ber saman um
ástæðuna, sumir telja þennan eina
Geirsmann aðrir Gunnarsmann en
allir eru sammála um að hann er ann-
aðhvort. Það kemur jú ekkert annað
til greina, eða hvað?
Ég hitti einn kunningja minn yfir
kaffibolla um daginn og auðvitað
hófum við umræður okkar á þessu
máli allra iandsmanna. Hann sagðist
hafa átt margar andvökunætur út af
þessu og skyndilega eina nóttina datt
honum alveg fáránieg lausn í hug:
Hugsanlega var þessi eini hvorki
Gunnars- neð Geirsmaður heldur
bara venjulegur sjálfstæðismaður
sem vill vinna flokki sinum og þjóð
vel án tillits til manna og þess vegna
ekki hægt að flokka hann. Ég var
fljótur að afgreiða þessa firru kunn-
ingja míns sem svo að þetta hlyti þá
að vera „síðasti sjálfstæðismaður-
inn” og vafalaust eitthvað skrýtinn,
því það vita jú allir að menn verða að
halda með öðrum hvorum, annars
stæðist náttúrulögmálið ekki.
En þessi hugmynd sótti á mig
næstu daga og brátt var ég orðinn svo
ruglaður að ég vissi varia hvað ég hét.
Gat það verið að enn leyndust menn
innan Sjálfstæðisfl. sem höfðu
ekki skipað sér í annan hvorn arm-
inn? Var það mögulegt að menn létu
ekki draga sig í dilka en gerðu hvað
þeir gætu til að sameina flokkinn á
ný? Var það hugsanlegt að einhverjir
þeirra sem nú þegar höfðu verið
flokkaðir væru e.t.v. alls ekki á þeirri
línu að halda með öðrum hvorum,
heldur störfuðu enn að framgangi
sjálfstæðisstefnunnar, þrátt fyrir
ríginn milli Gunnars og Geirs? Var
það hugsaniega mögulegt að í Sjáif-
stæðisflokknum væru menn sem
Finnast innan Sjálfstxðisflokksins menn sem hvorki teljast til Gunnars né Geirs?
DB-mynd: Ragnar Th.
hugsuðu um hag flokksins og um leið
þjóðarinnar sem mikilvægara verk-
efni en að taka þátt í þessum leik
þeirra Gunnars og Geirs?
Mig bókstaflega svimaði við til-
hugsunina eina saman.
í ljósi þessa bið ég ykkur, Dag-
blaðsmenn, að komast að hinu sanna
í málinu og upplýsa okkur hin um
niðurstöðuna. Það væri jú leiðinlegt
ef maður hefur misskilið þetta allt
saman og hreinlega ósanngjarnt
gagnvart Sjálfstæðisflokknum að
vaða í þeirri hugsanlegu villu að þar
gangi allt út á hvor er vinsælli
Gunnar eða Geir.
Hverjir vinna 1. deild
karla íblaki
Finnbogi Gunnlaugsson nemi: Eru
ekki Laugdælir beztir? Nei annars,
Framarar unnu Laugdæli, svo að þeir
hljóta að vera beztir.
Sigurður Rafn Borgþórsson nemi:
Stúdentarnir, þeir hafa öft verið góðir.
Ég held með Fram i fótboltanum en
ekki í blakinu af því að þeir eru svo
lélegir.
Hergelr Eliasson nemi: Ætli það verði
ekki Þróttarar, þeir eru beztir. IS
verður I öðru sæti og Fram i þriðja.
Haraldur Þór Gunnlaugsson nemi:
Fram, það er bezta liðið.
Kristján Þórarinsson neml: Ég held að
Þróttur vinni, Fram verður I fjórða
sæti.