Dagblaðið - 14.11.1980, Síða 23

Dagblaðið - 14.11.1980, Síða 23
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 14. NÓVEMBER 1980. VIRIDIANA—sjónvarp í kvöld kl. 22,40: ára til Cannes sem framlag Spánverja til kvikmyndahátfðarinnar þar. Spánska nefndin hafði áður en myndin var gerð lagt blessun sfna yfir myndina. Myndin fékk Gullpálmann í Cannes en olli eftir það miklum deifum og umtali. Fólk var ákaflega hneykslað á mörgum atriðum myndarinnar en þá var búið að veita henni verðlaun svo ekki varð aftur snúið,” sagði Sonja. Myndin var sýnd hérá landi fyrir mörgum árum í Hafnarbíói og vakti hér sem annars staðar nokkra hneykslun. Sérlega þótti mönnum þó lokaatriði myndarinnar þess virði að tala lengi um það á eftir. -DS. K Betlararnir f Viridiana. Ásteytingarsteinn fyrri „Myndin hefur raunsæislegt yfir- bragö og margt af því sem í henni gerist gæti gerzt. En hún er um leið dæmisaga um baráttu hins góða og hins illa,” sagði Sonja Diego um myndina Virdiana sem sjónvarpiö sýnir í kvöld. Sonja er þýðandi myndarinnar sem gerð er af spænska leikstjóranum Luis Bunuel. Myndin er unnin í samvinnu Mexíkana og Spánverja og er frá árinu 1 % 1. „Myndin fjallar um unga stúlku sem er i þann veginn að verða nunna. Hún fær skilaboð frá frænda sínum, sem hún hefur ekki séð nema einu sinni eða tvisvar áður. Hún fer að finna hann og lendir í ýmsu hjá hon- um sem verður til þess að hún á-. kveður að snúa ekki aftur til klaustursins. Þess í stað hyggst hún koma upp nokkurs konar hæli fyrir fátækt fólk, sem á erfitt uppdráttar, lábúgarði frændasíns. Þessi mynd var á sínum tíma send Nýjasta plata hljómsveitarinnar Blondie verður kynnt f útvarpinu f kvöld f þættinum Nýtt undir nálinni. NÝTT UNDIR NÁLINNI—útvarp íkvöld kl. 20,05: Blondie og Lennon „Þessum þáttum er ætlað að kynna það nýjasta í poppinu,” sagði Gunnar Salvarsson kennari um útvarpsþáttinn Nýtt undir nálinni sem hann sér um í kvöld sem önnur föstudagskvöld. Þátturinn er á dagskrá á sama tfma og sjónvarpsfréttirnar. „Ég reyni að vera með ný íslenzk lög, eftir þvi sem plötur koma út með þeim. Aðallega verða þetta samt erlend lög og þá nær eingöngu frá Bretlandi og Bandaríkjunum. Mjög erfitt er að fá plötur frá öðrum löndum nema að þekkja einhvern í viðkomandi landi og fá hann til þess að senda sér þær. Þessar plötur koma ekki í búðir hér. í þættinum í kvöld verður líklega tvennt bitastæðast Það eru ný lög með John Lennon og Blondie sem bæði eru leikin hér á landi í fyrsta sinn í kvöld. Bæði lögin eru af tveggja laga plötum sem gefnar hafa verið út til kynningar á stórum plötum sem eru væntanlegar frá þessum listamönnum. Mér sýnist líklegt að þessi lög eigi eftir að sláígegn. Lag Blondie er þegar á uppleiö, því að fyrstu vikuna sem það var leikið í London komst það i fimmta sæti vinsældalistans. Lag Lennons gengur hægar. Þetta er það fyrsta er hann lætur frá sér fara í 6 ár og menn vita ekki alveg við hverju þeir eiga að búast. Yoko Ono syngur helming á móti honum, bæði á litlu plötunni og þeirri stóru, og það sem er á þeirri litlu er ágætt. Ég hef þó líklega ekki tíma til að leika það í kvöld,” sagði Gunnar. INNAN STOKKS 0G UTAN - útvarp í dag kl. 15,00: Útvarp 12.00 Dagskráin. Tónleikar. Til- kynningar. A frfvaktinni. Sigrún Sigurðardóttir kynnir óskalög sjómanna. 15.00 Innan stokks og ulan. Árni Bergur Eiriksson stjórnar þætti um heimilið og fjölskylduna. 15.30 Tónleikar. Tilkynningar. 16.00 Fréttir. Dagskrá. 16.15 Veð- urfregnir. 16.20 Siðdegistónleikar. Mark Lubotsky og Enska kammer- sveitin leika Fiðlukonserl op. 15 eftir Benjamin Britten; höfund- urinn stj. / Sinfóníuhljómsveit Vinarborgar leikur Sinfóntu nr. 3 í C-dúr op. 52 eftir Jean Sibelius; Lorin Maazel stj. 17.20 Lagið mitt. Kristfn B. Þor- steinsdóttir kynnir óskalög barna. 18.00 Tónleikar. Tilkynningar. 18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins. 19.00 Frétlir. Tilkynningar. 19.40 Á vettvangi. 20.05 Nýtt undir nálinni. Gunnar Salvarsson kynnir vinsælustu popplögin. 20.35 Kvöldskammtur. Endurtekin nokkur atriði úr morgunpósti vikunnar. 21.00 Frá tónlistarhátiðinni i Björgvin á liðnu sumri. Filhar- móníusveitin í Rotterdam leikur Sinfóniu nr. 2 í D-dúr op. 73 eftir Johannes Brahms; David Zimm- an stj. 21.45 Guðmundur Magnússon skáld — Jón Trausti. Sigurður Sigurmundsson bóndi og fræði- maður f Hvitárholti flytur erindi. 22.15 Veðurfregnir. Fréttir. Dag- skrá morgundagsins. 22.35 Kvöldsagan: Reisubók Jóns Olafssonar Indiafara. ' Flosi Ólafsson leikari les (5). 23.00 Djass. Umsjónarmaður: Gerard Chinotti. Kynnir: Jórunn Tómasdóttir. 23.45 Fréttir. Dagskrárlok. í Sjónvarp D Föstudagur 14. nóvember I9.45 Fréttriágrip á táknmáli. 20.00 Frél'.ir og veður. 20.30 Anglýsingarogdagskrá. 20.40 Á döfinni. Stutt kynning á þvivs:m er á döfinni i landinu i lista- og útgáfustarfsemi. 20.50 Prúðu leikararnir. Gestur i þessum þætti er Linda Carter. Þýðandi Þrándur Thoroddsen. 21.25 Frétlaspegill. Þáttur um inn- lend og erlend málefni á líðandi stund. Umsjónarmenn Bogi Ágústsson og Guðjón Einarsson. 22.40 Viridiana s/h. Spænsk- mexíkönsk bíómynd frá árinu 1961. Leikstjóri Luis Bunuel. Aðalhlutverk Silvia Pinal og Fernando Rey. í þessari kunnu dæmisögu Bunuels stofnar Viridiana kristilegt heimili fyrir betlara og umrenninga og þar verða átök góðra afla og illra. Þýðandi Sonja Dicgo. 00.05 Dagskrárlok. HEIMILIN 0G F0LK- IÐINNIÁ ÞEIM Offsetprentvél tí/sö/u Rota print R 40—30.— 35,6x51 cm. Keðjufrálag. Aðeins tveggja ára gömul í toppstandi. Innan stokks og utan nefnist nýr út- varpsþáttur sem hefst í dag. Er þar á ferðinni þáttur um heimilið og fjöl- skylduna i umsjón Árna Bergs Eiríks- sonar. Árni er forstjóri Vilkó fyrir- tækisins og hefur hann áöur verið með útvarpsþætti um málefni neyt- enda. Árni verður með þátt hálfs- mánaðarlega á móti þætti Sigurveigar Jónsdóttur, Heimilisrabbi. „Þessir þættir eiga aö vera um fjöl- skylduna í breiðasta skilningi þeirra orða,” sagði Árni um þætti sina. „Eitt af þessu eru neytendamál en einnig margir aðrir þættir. í þættinum í dag verður fyrst litið inn á fasteignasölum og rætt um húsa- kaup fólks. Þar ræði ég við Erlend Knútsson hjá Fasteignaþjónustunni. Ég ræði einnig við Guðmund F. Björnsson hjá Meistarasambandi Árni Bergur Eirfksson. byggingarmanna um þau hús sem menn byggja. Jóna Gróa Sigurðardóttir hús- móðir segir sína skoðun á því, hvernig hús eigi að vera, utan stokks sem innan. Þaðan verður leitað skoðunar Þórunnar Björgúlfsdóttur, innanhúss- arkitekts á innra skipulagi heimila. Frá sjálfum umbúnaðinum, heim- ilinu, verður vikið að fólkinu sem þar býr. Skilnuöum fjölgar mjög, óvigðri sambúð, sambúð og óskilgetnum börn- um. Signý Sen lögfræðingur gerir grein fyrir réttarstöðu í óvígðri sambúð og Auður Haralds rithöfundur segir frá þvf hvernig er að vera einstæð móðir með þrjú börn. Haraldur Ólafsson lektor verður einnig fenginn til þess að gera grein fyrir þeim miklu breytingum, sem orðið hafa á íslenzkri fjölskyldu. Það hefur nefnilega komið í Ijós, f erlendum stórborgum, meðal annars þeim sem íslendingar sækja mikið til, að einstæðingar sem eru al- gjörlega afskiptir eru á vissum tfmum um 15% íbúa. Ég spyr Harald að þvi hvort við séum á þeirri ieið og hvað sé þá til ráða,” sagði Árni Bergur. -DS. Upplýsingar í síma 98-1210 (heima 98-1214). ÚTBOÐ-JARÐVINNA Stjóm verkamannabústaða í Reykjavík óskar eftir tilboðum í jarðvegsskipti í húsgrunnum í hluta af þriðja byggingaráfanga á Eiðsgranda. Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu V.B. Suðurlandsbraut 30 gegn 50 þús. kr. skila- tryggingu. Tilboðin verða opnuð á sama stað þriðjudaginn 25. nóv. kl. 15.00. Stjórn Verkamannabústaða i Reykjavik.

x

Dagblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.