Dagblaðið - 29.12.1980, Blaðsíða 15
14
Iþróttir
Leikdögunum
ekkibreytt
— í Evrópuleikjum Víkings og Lugi.
Víkingar þvf ekki í keppnisförinni til
Þýzkalands og Belgíu
„Það er útséð um, að landsliðsmenn Vikings geti
tekið þátt í keppnisfur þess til Vestur-Þýzkalands og
Belgíu í janúar. Sænska liðið Lugi, sem leikur við
Víking í Evrópukeppninni, gat ekld breytt leik-
dögum Evrópuleikjanna vegna þess, að það hefði
raskað of mikið keppninni i Allsvenskan. Við förum
með 12 leikmenn til V-Þýzkalands og Belgiu og ég
þarf því að velja 3—4 nýja leikmenn í þá för. Ennþá
hef ég ekkert ákveðið hverjir það verða,” sagði
Hilmar Björnsson, landsliðsþjálfarinn i handknatt-
leik, þegar DB ræddi við hann i gær.
Fyrri leikur Vikings og Lugi hefur verið ákveðinn
sunnudaginn 18. janúari Reykjavik. Siðari leikurinn
verður í Lundi i Sviþjóð viku síðar, eða 25. janúar.
Þar sem ekki var hægt að fá leikdögunum breytt
geta landsiiðsmenn Víkings, sex að tölu, ekki leikið
við V-Þýzkaland i Hamborg 20. janúar og 22.
janúar i Liibeck. Leikið verður við Belga 23. janúar.
Sennilega aðeins einn leikur að ósk Belgiumanna.
Hinn 27. janúar leika Frakkar landsleik við
íslendinga i Reykjavik og þar ætti landsliðshópur-
inn, sem fer i B-keppnina i Frakklandi siðari hluta
febrúar, að geta leikið. Komið hefur til tals að fresta
síðustu umferð íslandsmótsins fram yfir heims-
meistarakeppnina í Frakklandi. Þaö gæti komið sér
vel fyrir landsliðið — það fengi þá lengri undir-
búningstima fyrir B-keppnina.
Norðurlandamet
hjáSkúla og
þrjú íslandsmet
—á kraftiyftingamóti KR
Skúli Óskarsson setti nýtt Norðurlandamet á
Kraftlyftingamóti KR á laugardag og Óskar Jakobs-
son setti þar nýtt íslandsmet. Ágætur árangur náðist
í heild á mótinu. Jón Páll Sigmarsson setti tvö
íslandsmet.
Skúli var nokkru þyngri en áður og flutti sig upp
um flokk. Keppti i 82.5 kg fiokki í stað 75 kg áður
oftast. í aukatilraun i hnébeygjulyftu náði Skúli að
lyfta 307.5 kg. og bætti eldra Norðurlandamet sitt
um 2.5 kg. Hins vegar á hann 300 kg bezt i 75 kg
flokki. Skúli lyfti samtals 720 kg, 130 i bekkpressu,
290 í réttstöðulyftu og 300 i hnébeygju.
Skemmtileg keppni var i bekkpressu i 125 kg
flokki milli Óskars og Jóns Páls Sigmarssonar.
Óskar setti nýtt met á dögunum, 197.5 kg og
byrjaði nú á 200 kg sem hann tók. Jón Páll bætti
íslandsmetiö i 202.5 kg en Óskar hafði ekki sagt sitt
siöasta orð. Tók 205 kg. Þriðja íslandsmetið. Jón
Páli reyndi 205.5 kg og náði þyngdinni upp. Hins
vegar dæmdu tveir af þremur dómurum það ógilt.
I flokknum reyndi Jón Páll viðEvrópumet Arthúrs
Bogasonar i réttstöðulyftu. Var mjög nærri að lyfta
þeirri þyngd. Tókst þó ekki en það virðist aðeins
timaspursmál hvenær hann gerir það. Jón Páll setti
íslandsmet í hnébeygju. Lyfti þar 320.5 kg og sam-
tals 855 kg sem Ifka er íslandsmet. 202.5 kg. i bekk-
pressu og 335 i réttstöðulyftu. Í 100 kg flokki var
skemmtileg keppni milli Harðar Magnússonar, KR,
sem sigraði 745 kg og Halldórs Sigurbjörnssonar,
KR, sem lyfti samtals 730 kg. Þeir reyndu báðir við
Íslandsmet i hnébeygjulyftu en tókst ekki þó litlu
munaði.
Keppt var um farandbikar i stigakeppni og vann
Skúli Óskarsson bikarinn þriðja árið i röð. Til
eignar. Hlaut 455.688 stig. Jón Páll varð annar með
449.644 stig og Sverrir Hjaltason, KR, þriðji með
440.993 stig I 90 kg flokki. Hann reyndi við 315 kg i
réttstöðulyftu, sem hefði gefið honum sigur i stiga-
keppninni, og munaði litlu að hann tæki þá þyngd.
Aberdeen fór létt
meðCeltic
Aberdeen vann auðveldan sigur á Celtic á heima-
veili á laugardag. Stefnir greinilega á að halda
meistaratitli sinum. Úrslitin 4—1 og Aberdeen
komst i 4—0 með mörkum McLeish, Miller, McAle
og Stracham, víti, áður en Nichollas skoraði eina
mark Celtic. Aberdeen hefur nú 31 stig en Celtic 28
og hefur leikið einum leik meira. Rangers er i þriðja
sæti með 24 stig. Leik Rangers við St. Mirren á laug-
ardag var frestað. Dundee Utd. vann hins vegar
Hearts 4—1 og Morton vann Partick 2—0. Hvort
tveggja heimasigrar. Leik Airdrie og Kilmarnock var
frestað.
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 29. DESEMBER 1980
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Pétur Guðmundsson gnæfir yfir aðra leikmenn og sendir knöttinn í átt að körfu
Frakka. Hann var stigahæstur i báðum landsleikjunum. í útvarpsviðtali fyrir helgi
lýsti Pétur því yfir, að hann mundi leika með sinum gömlu félögum hjá Val eftir ára-
mótin — í fjóra mánuði að minnsta kosti. DB-mynd: emm,
Lpkakafli Péturs færði
Islandi aftur sigurinn
—íslenzki risim skoraði sjö síðustu stig íslands, þegar ísland vann Frakkland
69-65 íKeflavík ígær
ísland sigraði Frakkland öðru sinni í
landsleik þjóðanna i Keflavik i gær.
Lokatölur 69—65 og var leikurinn
skemmtilegur fyrir áhorfendur, sem
voru eins margir og húsið rúmaði. Yfir
þúsund áhorfendur. Spenna allt til loka
en leikurinn ekki sérlega vel leikinn.
Hittni leikmanna fremur slæm. Jón
Sigurðsson var bezti maður islenzka
liðsins og stjórnaði leik þess með
tilþrifum. Pétur Guðmundsson
innsiglaði sigurinn með snjöllum loka-
kafla. Skoraði sjö síðustu stig islenzka
liðsins. Hafði áður ekki verið hittinn en
snjall í fráköstum. Frakkar voru
óheppnir, þegar bezti maður liðsins
Franck Cazalon meiddist i byrjun s.h.
og gat ekki leikið meira. Einum
leikmanni Frakka, Yvon Leo, var vikið
alveg af leikvelli fyrir að slá mótherja,
Jónas Jóhannesson. Sigur islenzka
liðsins var sanngjarn en það franska
ekki eins sterkt og reiknað hafði verið
með.
Áður en leikurinn hófst heilsaði
Tómas Tómasson, forseti baejar-
stjórnar Keflavíkur, leikmönnum en
hann var heiðursgestur KKÍ á leiknum.
Síðan hófst Ieikurinn og Torfi Magnús-
son skoraði fyrstu landsliðskörfuna i
nýja íþróttahúsinu í Keflavik. ísland
byrjaði betur. Komst í 4—2 og 8—6 en
síðan komust Frakkar yfir og höfðu
oftast forustu í fyrri hálfleik. 28—22 og
30—24.
Jón Jörundsson átti góðan leikkafla
og minnkaði muninn i 28—31 og siðan
komst ísland í 32—31. Leiktímanum í
hálfleiknum var lokið en vegna mistaka
tímavarða ekki flautað. Guðsteinn
Ingimarsson braut af sér. Dæmd víti og
Frakkar nýttu þau. Komust í 33—32,
sem var staðan i hálfleik.
Framan af siðari hálfleiknum höfðu
Frakkar forustu 41—38 en síðan tókst
þeim Jóni Sigurðssyni og Kristni
Jörundssyni með góðan leik að skora
sex stig í röð. Island var komið yfir
44—41. Frakkar jöfnuðu en þegar 10
mín. voru til leiksloka var staðan 52—
50 fyrir ísland. Þá fóru þeir Jón. Sig.
og Pétur útaf og það orsakaði slakasta
leikkafla fslands. Frakkar komust í
55—52, en Jón og Pétur komu inn á
aftur. Lokakaflinn var spennandi.
Þegar 90 sekúndur voru eftir var staðan
63—62 fyrir fsland og undir lokin sýndi
Pétur yfirburði sina. Skoraði sex
síðustu stig íslands, en Frakkar þrjú.
Úrslit því 69—65.
Vörnin var aðall íslenzka liðsins í
leiknum en hittnin ekki góð. Leikmenn
jafnir yfirleitt. Dómarar Þráinn Skúla-
son og Sigurður Valur Halldórsson.
Eftir leikinn sagði Einar Bollason,
landsliðsþjálfari. „Ég er ánægður með
sigrana gegn Frökkum. Landsliðið er
skipað samstilltum hóp og það er á
réttri leið.”
Flest stig íslands skoruðu Pétur 23,
JónSig. 14, Torfi 12, Símon Ólafsson 9
og Jón Jör. 6. Cazalon var stigahæstur
Frakka þrátt fyrir meiðsUn með 8 stig.
-emm.
Ovæntur enverðskuld-
aður sigur íslendinga!
—sætur sigur, 79-75, á Frökkum í fyrri leik þ jóðanna
íslendingar unnu óvæntan en afar
verðskuldaðan sigur á Frökkum i fyrri
landsleik liðanna i körfuknattleik, sem
fram fór i Laugardalshöllinni á laugar-
dag. Lokatölur urðu 79—75 eftir að
staðan f hálfleik hafði veríð 37—34
íslandi i vil. Mikil spenna rlkti i
Höllinni undir lok leiksins. ísland
leiddi 77—75 er 39 sek. voru eftir.
Landinn hóf sókn, en Frakkamir gáfu
ekki höggstað á sér i vörninni. Þegar 30
sekúndumar voru um það bil að renna
út barst knötturínn tii Guðsteins Ingi-
marssonar, sem var út við hliðarlinu
miðja vegu á milli endalinu og miðlinu
vallar. Guðsteinn leit á klukkuna, sá að
engu mátti muna, og sendi siðan
knöttinn með faliegu skoti rakleiðis i
körfu Frakkanna. Þeir hófu þegar i
stað sókn en tókst ekki að brúa bilið
hvað þá að laga stöðuna og sigur
íslands var i höfn. Geysileg kátina leik-
manna brauzt út enda eru Frakkar A-
þjóð i körfunni en ísland telst hins veg-
ar á meðal C-þjóða.
Leikurinn á laugardag var geysilega
jafn allt frá upphafi til loka. Skildu
liðin sjaldnast nema örfá stig að. Torfi
Magnússon, Jón Sigurðsson, Kristinn
Jörundsson, Símon Ólafsson og Pétur
Guðmundsson hófu leikinn fyrir
íslands hönd og liðsheildin virtist
ekkert veikjast þótt aðrir leikmenn
kæmu inn á. Jón Sig. var þó sem fyrr
driffjöðrin í leik liðsins og Pétur
Pétur fer
til Vals
Pétur Guðmundsson lýsti þvi yfir i
viðtali við útvarpið um heigina að hann
myndi ganga til liös við sfna fyrrí félaga
f Val eftir áramótin. Þar með virðist
botninn sleginn i kapphlaup Vals og
KR um að ná i kappann. Ekki er að efa
að Valsmenn munu þjarma vel að
Njarðvikingum eftir áramótin með
Pétur innanborðs.
geysilega sterkur í miðherjastöðunni.
í upphafi síðari hálfleiks virtist svo
sem Frakkarnir myndu e.t.v. taka
leikinn í sínar hendur. Þeir breyttu
stöðunni úr 36—41. i 43—41 sér í vil á
skömmum tíma og virtust til alls
líklegir. Það stóð hins vegar ekki lengi
og ísland svaraði með 6 stigum í röð og
náði yfirhöndinni aftur. Eftir það náðu
Frakkarnir aldrei að komast yfir og
sigur íslands var öruggur þótt spennan
væri mikil í lokin.
Það var fyrst og fremst stórgóður
varnarleikur landsliðsins, sem skóp
sigurinn. Leikmenn börðust eins og
ljón allan tímann og gáfu aldrei
þumlung eftir. Það var sama hvaða
fimm leikmenn voru inn á — allir virt-
ust ná vel saman. Sóknarleikurinn var
hins vegar ekki nógu beittur á köflum
og nokkuð var um misheppnaðar
sendingar. Það er ákaflega erfitt að
tína út einstaka leikmenn því ef sigur
liðsheildar er á annað borð til, sást
hann í þessu tilviki. Hins vegar verður
ekki hjá því komizt að draga styrkleika
franska liðsins í efa. Það er útilokað að
þetta sé bezta lið Frakka. Þjóð, sem
stendur uppi á hárinu á Spánverjum,
Rússum og Júgóslövum tapar ekki fyrir
íslandi — og það I tvígang. Annars
hafði ég spurnir af því í gegnum
kunningja frá Frakklandi að þetta
væri langt í frá að vera A-lið Frakka.
Langbezti maður franska liðsins var
svertinginn Cazalon. Leikmaður, sem
oft minnti mjög á Danny Shouse.
Kattliðugur og stökkkrafturinn með
ólíkindum. Aðrir leikmenn franska
liðsins voru áþekkir að getu.
Jón Otti Ólafsson og Kristbjörn
Albertsson dæmdu leikinn mjög vel og
í annan tíma minnist ég varla eins
góðrar dómgæzlu.
Stig Islands: Pétur Guðmundsson
27, Ríkharður Hrafnkelsson 12, Jón
Sigurðsson 12, Kristinn Jörundsson 8,
Torfi Magnússon 6, Guðsteinn Ingi-
marsson 4, Gunnar Þorvarðarson 4,
Jónas Jóhannesson 4, Simon Ólafsson
2.
-SSv.
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 29. DESEMBER 1980
15
íþróttir íþróttir íþróttir íþróttir
Liverpool enn á toppnum
—þrátt fyrir slaka jólaleiki. Skoraði ekki mark. Ipswich og Aston Villa hlutu 3 stig en Man. City og Brighton
gerðu enn betur. Sigruðu í báðum leikjum sínum.
John Wark jafnaði úr vítaspyrnu fyrir Ipswich gegn Arsenal á laugardag. Skoraði
einnig gegn Norwich daginn áður. Hefur nú skorað 23 mörk á leiktimabilinu.
Þrátt fyrír litlausa leiki í jólavikunni
heldur Liverpool enn forustu i 1. deild-
inni ensku en naumt er það. Liðið
hefur sama stigafjölda og sama marka-
mun og Aston Villa en hefur hins vegar
skorað fieiri mörk. Það ræður með
efsta sætið. Á föstudag lék Liverpool
við Man. Utd. á Old Trafford i Manc-
hester og þar voru fleiri áhorfendur en
áður á deildaleik á leiktímabilinu eða
57.053. Þeir urðu fyrir vonbrigðum —
allt of mikil hlaup en lítil kaup. Kenny
Dalglish og David Johnson léku með
Liverpool á ný eftir meiðsli og það
næsta sem liðið komst að skora var á
80. min. Ray Kennedy spyrnti knettin-
um í þverslá marks United. Hinum
megin varði Ray Clemence snilldarlega
frá Thomas. Ekkert mark skorað i
leiknum og Allan Hanscn, miðvörður
Liverpool, varð að yfirgefa völlinn
vegna meiðsia. Graeme Souness lék
ekld með Liverpool — komst ekki í
gegnum læknisskoðun rétt fyrir leik-
inn.
Á laugardag lék svo Liverpool við
Leeds á heimavelli án Souness og Han-
sen. Richard Mooney lék sem bak-
vörður en Phil Neal var miðvörður með
Irvine. Ekki náði Liverpool-liðið sér
heldur á strik í þeim leik og átti meira
að segja um tíma í vök að verjast vegna
stórleiks Argentínumannsins Sabella
hjá Leeds. Vörn Yorkshire-liðsins var
sterk með landsliðsmanninn Trevor
Cherry sem bezta mann. Tíu mín. fyrir
leikslok varð Dalglish að yfirgefa völl-
inn. Meiðsli hans tóku sig upp — og
ekkert mark var skorað í leiknum
frekar en á Old Trafford.
Frank Wprthington — skoraði sigur-
mark Tlírmingham gegn Sunderland á
lokasekúndum leiksins.
Úrslit á 2. í jólurn — föstudag —
urðu þessi:
1. deild
Aston Villa-Stoke 1—0
Coventry-Middlesbro 1—0
C. Palace-Arsenal 2—2
Everton-Man. City 0—2
Ipswich-Norwich 2—0
Leeds-Birmingham 0—0
Leicester-Brighton 0—1
Man. Utd.-Liverpool 0—0
Sunderland-WBA 0—0
Tottenham-Southampton 4—4
Wolves-Nottm. Forest 1—4
2. deild
Blackburn-Preston 0—0
Bristol City-Cardiff 0—0
Derby-Oldham 4—1
Grimsby-Newcastle 0—0
Luton-Chelsea 2—0
Notts. Co.-Cambrídge frestað
Orient-Watford 1—1
QPR-West Ham 2—0
Sheff. Wed.-Shrewsbury 1—1
Swansea-Bristol Rov. 2—1
Wrexham-Bolton 0—1
Þrjú stig Villa
og Ipswich
Aston Villa og Ipswich náðu hins
vegar þremur stigum í jólaleikjunum.
Bæði sigruðu á föstudag. Villa vann
Stoke 1-0 með marki Peter Withe eftir
að Fox hafði varið snilldarlega frá
Shaw. Ekki sannfærandi sigur og litlu
munaði að Stoke næði stigi. Jimmy
Rimmer varði eitt sinn frá Mike Doyle
og knötturinn fór í þverslá marks Villa.
Ipswich lék einnig á heimavelli og sigr-
aði Norwich 2-0. Brazil og Wark skor-
uðu.
Á laugardag lék Ipswich við Arsenal
í Lundúnum og átti lengi vel í vök að
verjast. Alan Sunderland náði forustu
fyrir Arsenal á 35. mín. Hollins tók
hornspyrnu og Willie Young skallaði
knöttinn til Sunderland. í s.h. náði
Ipswich-liðið sér betur á strik en
Cooper markvörður varð þó tvívegis að
taka á honum stóra sínum til að verja
frá Stapleton áður en Ipswich jafnaði.
Það var á 77. mín. Pat Jennings varði
þá mjög vel frá Mariner en hélt ekki
knettinum. Mariner náði honum aftur
en var felldur af Gatting. Vítaspyrna,
sem Wark skoraði úr. 23ja marka hans
á leiktímabilinu.
Villa lék þá gegn Nottingham Forest
á City Ground í Nottingham. Náði
forustu á 16. mín. með heldur óvenju-
legu sjálfsmarki. Bakvörðurinn Gunn
spyrnti knettinum en beint í samherja
sinn, Larry Lloyd, og af honum hrökk
boltinn í markið. Eftir mikla pressu
tókst Trevor Francis að jafna fyrir
Forest fyrir hálfleik. { s.h. náði Villa
aftur forustu með marki Gary Shaw á
67. mín. Hans 16. á leiktímabilinu. Sex
mín. fyrir leikslok jafnaði Martin
O’Neil.
Fjögur stig Brighton
og Man. City
Tvö lið í 1. deiid hlutu fullt hús stiga.
Brighton sigraði botnliðin bæði. Fyrst
Leicester á útivelli á föstudag með
marki bakvarðarins John Gregory og
síðan Crystal Palace á laugardag, 3-2.
Þar skoraði Gregory síðasta mark
leiksins, sjálfsmark. Brighton komst i
2-0 með mörkum O’SulIivan og Robin-
son. Murphy minnkaði muninn i 2-1 en
Mike Robinson kom Brighton 13-1.
Man. City varð fyrst liða á leiktíma-
bilinu til að sigra Everton á Goodison
Park í Liverpool. Þann sigur getur liðið
þakkað einum manni öðrum fremur.
Joe Corrigan markverði, sem átti
snilldarleik. Fékk ekki á sig mark þó
Everton hefði umtalsverða yfirburði í
leiknum. City skoraði á fyrstu min.
síðari hálfleiks, Reeves, og gulltryggði
svo sigurinn á síðustu mínútu leiksins
eftir að Everton hafði sótt látlaust.
Paul Power.
Á laugardag léku leikmenn City svo
Úlfana grátt. Það var þó ekki fyrr en
á 63. mín. að bakvörðurinn MacDon-
ald skoraði fyrsta mark leiksins. Fyrsta
mark hans fyrir Man. City og á eftir
Blackpool-Chester 2—3
Brentford-Colchester 2—1
Cariisle-Burnley 3—2
Chesterfield-Barnsley 0—0
Fulham-Sheff. Utd. 2—1
Gillingham-Millwall 1—2
Hull City-Rotherham 1—2
Newport-Swindon 0—2
Oxford-Charlton 1—0
Plymouth-Exeter 0—2
Portsmouth-Reading 0—0
Walsall-Huddersfield 2—2
4. deild
Aldershot-Hereford 4—0
Bournemouth-Southend 2—1
Bradford-Doncaster 1—1
Bury-York 2—0
Darlington-Hartlepool 3—0
Mansfield-Scunthorpe 1—0
Peterbro-Northampton 3—0
l’ort Vale-Lincoln 0—1
Rochdale-Halifax 1—1
Torquay-Wimbledon 2—3
Tranmere-Stockport 1—0
Wigan-Crewe 0—0
fylgdu þrjú mörk á skömmum tíma.
Tommy Hutchison, sem John Bond
keypti frá Coventry um leið og
MacDonald, skoraði tvívegis. Reeves
fjórða markið. Þegar Bond tók við
Man. City var liðið næstneðst með
aðeins 4 stig. Hefur síðan hlotið 20 stig
i 16 leikjum og er nú um miðja töflu.
Aðeins tapað þremur leikjum í tíð
Bonds.
Dýrlingarnir
skoruðu átta
Kevin Keegan lék sinn fyrsta leik
með Southampton í sex vikur á laugar-
dag og eftir aðeins sjö mín. hafði hann
skorað gegn Leicester. Síðan skoruðu
þeir Baker, víti, Charlie George og
Steve Moran fyrir Dýrlingana. 4-0 í
hálfieik eri fieiri urðu mörkin ekki.
Á föstudag gerðu Dýrlingarnir jafn-
tefli við Tottenham í hörkuskemmtileg-
um leik í Lundúnum. Tottenham náði
tvivegis tveggja marka forustu, 2 -0 og
4-2 en jafntefii varð 4-4. Archibald
Úrslitá
laugardag
Úrslitin i ensku knattspyrnunni á
laugardag uröu þessi:
l.deild
Arsenal-Ipswich 1—1
Birmingham-Sunderland 3—2
Brighton-C. Palace 3—2
Liverpool-Leeds 0—0
Man. City-Wolves 4—0
Middlesbro-Everton 1—0
Norwich-Tottenham 2—2
Nottm. For.-Aston Villa 2—2
Southampton-Leicester 4—0
Stoke-Coventry 2—2
WBA-Man. Utd. 3—1
2. deild
| Bolton-Blackburn 1—2
Bristol Rov.-Luton 2—4
Cambrídge-Shheff. Wed. frestað
Cardiff-Swansea 3—3
Chelsea-Bristol City 0—0
Newcastle-Derby 0—2
Oldham-Grimsby 1—2
Preston-Notts. County 2—2
Shrewsbury-Wrexham 1—2
Watford-QPR 1—1
West Ham-Orient 2—1
Leikjum Cambridge var frestað
vegna inflúensufaraldurs hjá félaginu.
3. deild
Barnsley-Walsall 3—0
Burnley-Blackpool 4—1
Charlton-Fulham 1—1
Chester-Chesterfield 2—1
Colchester-Gillingham 2—1
Exeter-Newport 2—2
Huddersfield-Hull 5—0
Millwall-Portsmouth 0—0
Reading-Oxford 0—1
Rotherham-Carlisle 3—0
Sheff. Utd.-Brentford 0—0
Swindon-Plymouth 3—0
4. deild
Crewe-Peterbro 1—0
Doncaster-Tranmere 1—0
Halifax-Darlington 1—2
Hartlepool-Bradford 2—2
Hereford-Torquay 0—1
Lincoln-Mansfield 1—1
Northampton-Port Vale 5—1
Scunthorpe-Bury 2—2
Southend-Aldershot 3—0
Stockport-Wigan 0—1
Wimbledon-Bournemouth 2—0
York City-Rochdale 1—2
og Crooks komu Tottenham í 2-0.
Moran og Baker jöfnuðu. Þá skoraði
nýliðinn Garry Brooke, sem lék sinn
fyrsta leik í aðalliði Tottenham i stað
Ardiles, tvívegis. Dýrlingarnir jöfnuðu
með mörkum George og Moran.
Á laugardag lék Tottenham í Nor-
wich og þar varð einnig jafntefli.
Archibald náði forustu fyrir Totten-
ham en Fashanu jafnaði. Síðan komst
Tottenham aftur yfir með marki
Hoodle um miðjan s.h. en rétt á eftir
slasaðist markvörður Tottenham
Aleksic. Var borinn af velli og Hoddle
fór í markið. Norwich jafnaði svo með
vítaspyrnu Kevin Bond.
Skellur Úlfanna
Úlfarnir fengu skelli í báðum jóla-
leikjunum og eru nú komnir í alvarlega
fallhættu. Andy Gray kom þó inn sem
varamaður gegn Nottingham Forest og
þessi snjalli miðherji gæti lagað stöð-
una hjá Úlfunum. Langvarandi meiðsli
hans hafa sett strik í reikning Úlfanna.
En þegar Gray kom inn á höfðu
Úlfarnir tapað leik sinum gegn
Nottingham Forest á föstudag og það á
heimavelli. Forest hafði skorað fjórum
sinnum. Fyrst John McGovern,
Frankie Gray, víti, þá sjálfsmark
Palmer bakvarðar og fjórða mark
Forest skoraði Svisslendingurinn
Ponti. Stórglæsilegt mark. John
Richards minnkaði muninn í 1-4 úr
vítaspyrnu rétt fyrir lokin. Trevor
Francis hefur mjög breytt liði Forest til
hins betra eftir rúmlega sjö mánaða
fjarveru vegna meiðsla. Skorað þrjú
mörk.
Coventry og Birmingham hlutu þrjú
stig í jólaleikjunum. Coventry sigraði
Middlesbrough á föstudag með marki
Gary Daly og á laugardag gerði liðið
jafntefii í Stoke. Mark Hateley og Gary
Thompson skoruðu fyrir Coventry.
Doyle og Griffith fyrir Stoke. Á laugar-
dag sigraði Middlesbrough Everton á
heimavelli með marki Billy Ashcroft.
Miðvörðurinn fékk knöttinn á miðju
vallarins. Lék í átt að marki Everton og
skoraði með miklum þrumufleyg. Var
áðúr miðherji.
Birmingham gerði jafntefli í Leeds 0-
0 en vann Sunderland á heimavelli 3-2 á
laugardag. Frank Worthington skoraði
sigurmark Birmingham á lokamínútu
leiksins. Á fyrstu mín. leiksins var
dæmd vítaspyrnu á Birmingham en
nýliðinn Tony Coton gerði sér lítið
fyrir og varði. Sunderland náði þó
forustu á 31. mín. þegar Hawley skor-
aði, Archie Gemmill jafnaði. Bertschin
kom Birmingham í 2-1 en Rowell jafn-
aði. Svo kom sigurmark Worthington á
síðustu stundu.
United tapaði að venju
Man. Utd. fór ekki sigurför fil West
Bromwich frekar en áður. Hefur ekki
sigrað þar síðan 1966. WBA náði
forustu á 34. mín. þegar Bailey mark-
vörður braut á Gary Owen. Víta-
spyrna, sem Owen skoraði sjálfur úr.
Á 43. min. kom Peter Barnes WBA í 2-
0. Framan af s.h. náði United sínum
bezta leik. Jovanovic minnkaði muninn
í 2-1 — Godden varði mjög vel frá
Jordan og síðan var Jordan felldur.
Leikmenn United vildu fá vitaspyrnu
en dómarinn var á annarri skoðun. Þá
fór Mickey Thomas illa með gott færi
áður en Cyrille Regis skoraði þriðja
mark WBA á 63. mín.
Leikmenn Arsenal voru miklir klauf-
ar að sigra ekki C. Palace á föstudag í
innbyrðisviðureign Lundúnaliðanna.
Stapleton náði forustu fyrir Arsenal en
á 38. min. jafnaði Sealey eftir horn-
spyrnu. Arsenal komst aftur fyrir —
Brian McDermott — en Sealey jafnaði
í 2-2.
Góð forusta West Ham
Efsta liðið í 2. deild, West Ham,
fékk skell gegn QPR á föstudag, þar
sem nýju leikmennirnir frá Crystal
Palace, Burridge, Fenwick og Flanag-
an stóðu sig vel í liði QPR. En á laugar-
dag tókst WH að sigra annað
Lundúnalið, Orient, að viðstöddum
34.418 áhorfendum. Pat Holland og
Paul Allen skoraði fyrir WH. Nígeríu-
maðurinn John Chiedozie jafnaði í 1-1
fyrir Orient. Swansea er í öðru sæti í 2.
deild og lið John Toshack gerir það
gott. Curtis, Leighton og Robbie James
skoruðu gegn Cardiff á laugardag í 3-3
jafntefiinu. Alan Curtis hætti við að
fara til Cardiff á síðustu stundu eins og
Terry Yorath. Söðlaði yfir og fór til
síns gamla félags, Swansea. Hins vegar
fór Yorath ekki í stað Curtis til Leeds
og hefur leikið í aðalliði Tottenham í
síðustu leikjum. Chelsea náði aðeins
jafntefli á heimavelli gegn Bristol City
og hefur ekki sigrað í sex siðustu
leikjunum. Heldur þó enn þriðja sæti
en vert er að veita uppgangi Derby og
Luton athygli. Derby sigraði i New-
castle með mörkum Boam, sjálfsmark
og McFarland. Brian Steen skoraði
fimm mörk fyrir Luton í jólaleikjun-
um. Yfir 22 þúsund áhorfendur sáu leik
Watford og QPR. King náði forustu
fyrir QPR — John Ward jafnaði.
Swindlehurst og Biley skoruðu tvö
mörk hvor fyrir Derbygegn Oldham.
í 3. deild er Charlton efst með 38
stig. Barnsley hefur 37 stig, Rotherham
35 og Burniey 34 stig. Ian Greaves,
áður stjóri Bolton og Huddersfield og
bakvörður hjá Man. Utd. sem leik-
maður, tók við Oxford í síðustu viku.
Oxford sigraði i báðum jólaleikjunum.
í 4. deild er Southend efst með 40 stig.
Lincoln hefur 38 stig og þessi lið eru að
stinga önnur af í deildinni. Mansfield
er i 3ja sæti með 32 stig. Hartlepool og
Doncasterhafa31 stig. -hsím.
Staðaná
Englandi
Liverpool 25 11 12 2 46—27 34
A. Villa 25 14 6 5 42—23 34
Ipswich 23 12 9 2 39—20 33
Arsenal 25 10 10 5 37—28 30
Nottm. For. 25 11 7 7 40—27 29
WBA 24 10 9 4 30—25 29
Man. Utd. 25 6 15 4 33—23 27
Southampton 25 10 7 8 48—39 27
Everton 24 10 6 8 38—31 26
Tottenham 25 9 8 8 49—47 26
Stoke 25 7 11 7 29—34 25
Middlesbro 24 10 4 10 35—32 24
Man. City 25 9 6 10 36—36 24
Birmingham 24 8 8 8 30—32 24
Coventry 25 9 5 11 29—37 23
Leeds 25 8 6 11 20—34 22
Sunderland 25 7 6 12 32—35 20
Brighton 25 8 4 13 32—43 20
Wolves 25 7 6 12 23—37 20
Norwich 25 7 6 12 31—47 20
Leicester 25 6 2 17 21—42 14
C. Palace 25 5 3 17 33—53 13
2. deild
West Ham 25 15 6 4 41—21 36
Swansea 25 11 10 4 39—24 32
Chelsea 25 11 8 6 38—24 30
Notts. Co. 24 10 10 4 28—24 30
Derby Co. 25 10 9 6 38—32 29
Blackburn 24 10 8 6 27—20 28
Luton 25 10 6 8 34—30 28
Orient 24 10 7 7 33—27 27
Sheff. Wed. 23 11 5 7 32—27 27
Grimsby 25 7 11 7 22—23 25
QPR 24 8 7 9 32—24 23
Cambridge 22 10 3 9 27—30 23
Wrexham 25 8 7 10 22—26 23
Bolton 25 8 6 11 41—36 22
Watford 25 8 6 11 30—32 22
Newcastle 24 7 8 9 17—33 22
Cardiff 23 8 5 10 26—32 21
Preston 25 5 11 9 23—37 21
Shrewsbury 25 5 10 10 24—27 20
Oldham 25 5 9 11 19—28 19
Bristol City 25 4 10 11 18—33 18
Bristol Rov. 25 1 10 14 21—44 12
Urslit á föstudag
3. deild