Dagblaðið - 29.12.1980, Blaðsíða 10
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 29. DESEMBER 1980
Fyrír síðasta kvöld ársins
Flugeldar, sólir, blys
og margt fleira
Þjóðin virðist enn ákveðin í því að
sprengja burt gamla árið með einum
allsherjar hvelli. Flugeldar, blys,
sólir, stjörnuljós og hvað þetta nú allt
heitir seljast eins og heitar lummur i
búðum núna dagana á milli jóla og
nýárs. Neytendasíðan f'ékk að
gægjast í poka hjá tveim innflytj-
endum þessarar vöru. Annars vegar
hjá Hjálparsveit skáta og hins vegar
hjá Björgunarsveitinni Fiskakletti í
Hafnarftrði. Sú sveit og nokkrar
aðrar á suðvesturhorni landsins hafa
slegið sér saman um innflutning.
Fjölskyldu-
pokar og laust dót
Mikið er keypt af svonefndum fjöl-
skyldupokum en svo kaupa menn
þess utan flugelda, innisprengjur og
annað dót í lausu. Við prófuðum
tvo fjölskyldupoka, annan á 13
þúsund frá Fiskakletti og hinn frá
skátum á 18 þúsund. í Fiskakletts-
pokanum var eftirfarandi, númerin
eiga við númerin á n yndinni.
1. rautt handhlys
2. 2 hcngulhlvs
3. 4 stjörnuregn, misstór
4. 2 kúlublys
5. 3 stokkar hcnguleldspýtur
i jafnmörgum litum
6 3 pakkar stjörnuljós
7. 2 litil blys
8. 2 örlitlar raketlur
9. 14 örlítið stærri raketlur
10. 12 aðeins stærri
11. næststærsta rakettan
12. stærsta rakettan
13. 3 sólir
14. 2 púðurkerlingar
15. 50 hvellsprengjur í pakka
16. 4 innibomhur
17. 2 pakkar hurðarsprengjur
18. I leiðbeiningarpcsi
á islenzku
> < nta nukkanum var eftirfarandi:
l.J.stamlhlys
5. fliúgandi diskar, 7 stykki
6. stjurnubolti
7. 2 innibombur
8. 2 stokkar bengalcldspýtur
9. 10 litlir fiugeldar
10. 8 meðalstórir flugeldar
11. 1 stór flugeldur
Sól frá Kiskakletti.
-fjölskyldu-
pokarkosta
milli5og35
þúsund
krónur
Fiölskyldupakki frá Hjálparsveit skáta innihélt þessa hluti.
Kin erlendu rakettnanna springur
þarna glæsilega.
DB-myndir: Sigurður Þorri.
Sambland af blysi og flugeldi frá
Skátum.
12.-13.3 stórir og 2 litlir
pakkur stjörnuljós
14. 3 kúlublys
leiðbeiningar i íslenzku
Verð og gæði fóru
saman
Því miður eða sem betur fer kom i
Ijós þegar farið var að prófa það sem
í fjölskyldupökkunum var að það
sem selt er i lausu 'á mestu verði er
það skemmtilegasta. Stóru rakett-
urnar, sólirnar, stóru blysin og fleira
þess háttar. Litlu flugeldarnir rétt
skutust upp í loftið á 1—4 sekúndum
og sýndu svo sem fallegar stjörnur en
þær loguðu stutt. Litlu standblysin
og bengalblysin voru svo sem
drjúgum skemmtileg og falleg en þó
ekki eins og þau stóru. Stjörnuregnið
skaut upp mismörgum kúlum eftir
stærð og tók gosið frá 14 og upp á 51
sekúndu. Að sögn eins skátans sem
kom og aðstoðaði okkur er ekki
tryggður neinn nákvæmur tími á
slikum blysum en svona nokkurn
veginn.
Innibombur og
stórir f lugeldar
Við reyndum einnig stóra flugelda
sem ekki voru i fjölskyldupökkun-
um. Frá Fiskakletti reyndum við einn
þýzkan og annan enskan. Þýzku
raketturnar kosta á bilinu 2900—
4300 krónur stykkið og þær brezku
980—7800 krónur stykkið á meðan
íslenzkar rakettur kosta 1400—3100
krónur stykkið. Það verður að
segjast eins og er, óþjóðlegt sem það
má kalla, að þesssar útlendu voru
mun skemmtilegri en þær íslenzku.
Þær loguðu lengur, fóru hærra og
varð meira úr þeim.
Frá skátum reyndum við nokkurs
konar sambland af flugeldum og
blysum. Kveikt var i þessumfurðu
verkum á jörðu niðri og skauzt þá
upp hvers kyns stjörnuregn og kúlur.
Þetta kostaði frá 800 til 2500 kr.
Skemmtilegast það dýrasta, 48 skota
raketta á 2500 krónur.
Hvers kyns innidót vakti lítinn
fögnuð hjá þeirri sem þetta skrifar en
vinnufélagarnir voru eins og börn og
glöddust ákaflega. Innibomburnar
skutu úr sér mislitum pappírsræmum
og úr þeim stærri komu pappirs-
hattarogfleiraþessháttar. -DS.
Íslenzkar (I), enskar (2) og þýzkar (3) rakettur frá Kiskakletti.
Fiskaklcttspakkinn var búinn þessum hlutum.