Dagblaðið - 29.12.1980, Blaðsíða 28
frfálst, úháð daghlað
Margir urðu til að votta látnum ástvinum sínum virðingu sína um jólin með því að leggja blóm eða grenigreinar á leiði í Fossvogs-
kirkjugarði. DB-mynd: Sig. Þorri.
Evrópumeistaramót uigJinga í skák:
JON TAPLAUS YF1R JOUN
Aö loknum 9 umferðum af 13 á
Evrópumeistaramóti unglinga i skák
er Jón L. Ámason i 5.-7. sæti með 6
vinninga. Jón hefur ekki tapað skák
siðan i 1. umferð en þrátt fyrir það
telur hann sig tæpast eiga sigurmögu-
leika á mótinu.
Sviinn Akesson er efstur með 7,5
vinninga. Hann vann sjö fyrstu skák-
ir sinar eða þar til að hann mætti
Jóni í 8. umferð. Skák þeirra lauk
með jafntefli og i 9. umferö tapaði
Akesson fyrir Sovétmanninum Pigu-
sov. Jón gerði jafntefli við Pigusov í
5. umferð, vann Watson frá
Englandi í 6. umferð og vann Leskí,
Frakklandi, í 7. umferð. Siðan gerði
hann jafntefli við Akesson og
Andrianov, Sovétríkjunum.
Pigusov er í 2. sæti með 7 vinn-
inga. Síðan koma Andrianov og
Danailov, Búlgaríu, með 6,5 vinn-
inga. Jón er i 5.-7. sæti með 6 vinn-
inga ásamt Bouven, HoUandi, og
Motwani, Skotíandi. Hann mætir
Bouvenídag.
-GAJ.
MÁNUDAGUR 29. DES. 1980.
Verkfall
bensínaf-
greiðslumanna
— nýrfundur enn ekki
boðaður
Verkfall bensinafgreiðsiumanna í
Dagsbrún, Hlíf og á Suðurnesjum
hófst á miðnætti í fyrrinótt. Samninga-
fundur stóð til kl. 21 á laugardag en
ekki náðist samkomulag. Annar
fundur hefur ekki verið boðaður en
;ákvörðun verður tekin um það
síðdegis hvort boðaður vefður fundur
með bensinafgreiðslumönnunum í dag
eða á morgun.
Þá hefjast í dag kl. 14 fundir með
bifreiðastjórafélaginu Sleipni og kl. 16
með byggingamönnum utan Sambands
byggingamanna, þ.e. uppmælingar-
mönnum. .jh.
Forsætisráðherra
sjötugur:
Lúðrablástur,
flugeldarog
ræðuhöld
— eftir blysför að heimili
forsætisráðherra f dag
Mikið verður um dýrðir við heimili
Gunnars Thoroddsens-- forsætisráð-
herra síðdegis í dag þegar stuðnings-
'menn hans ber að garði í tilefni sjötugs-
afmælis hans. Verða göngumenn með
70 logandi kyndla.
} Ákveðið hefur verið að Ieggja af stað
Trá Lækjartorgi kl. 17 í dag og verður
Sveinn Björnsson forseti ÍSÍ göngu-
stjótí. Lúðrasveit Kópavogs undir
stjórn Bjöms Guðjónssonar fer fyrir
göngunni og leikur marsa, sem og fyrir
framan heimili Gunnars að Víðimel 27.
Þar flytur Úlfar Þórðarson læknir
ræðu og Magnús Jónsson leiðir söng.
Klukkan hálfsex skjóta félagar ‘úr
Hjálparsveit skáta sjötíu flugeldum á
loft.
Á bls. 16 í blaðinu í dag er viðtal við
Gunnar Thoroddsen, sem Inga Huld
Hákonardóttir blaðamaður hefur átt
við forsætisráðherra í tilefni afmælis
hans. -ÓV.
LUKKUDAGAR:
24. DESEMBER 10844
Sharp vasatölva CL 8145.
26. DESEMBER 6437
Henson æftngagalli.
27. DESEMBER 2721
Kodak pocket A1 m.vndavél
28. DESEMBER 28768
Sharp vasatölva CL 8145
25. DESEMBER 5375
Mulinette kvörn
29. DESEMBER 18243
Kodak Ektra 12 myndavél.
Vinningshafar hringi
ísíma 33622.
Bráðabiigðalög á gamlársdag?
HANGKAUT
ÁBLÁÞRÆÐT’
,,Þetta hangir allt á bláþræði,”
sagði háttsettur stjórnarliði í gær um
raunir stjórnarliða við að koma
saman efnahagsaðgerðum fyrir ára-
mót. Samkomulag hafði enn ekki
tekizt þráft fyrir stöðug fundarhöld
yfir hátíðimar. Flestir reiknuðu þó
með einhverju samkomulagi og að
bráðabirgðaiög yrðu gefin út ,,á
gamlársdag”.
Vaxtamálin eiga að vera þáttur i
„pakkanum”. í bráðabirgða-
lögunum eiga að vera ákvæði til að
hindra hækkun vaxta um áramótin,
en hækkunin gæti annars verið 10
prósentustig. Framsóknarmenn setja
alþýðubandalagsmönnum þau skil-
yrði, að þeir verði að samþykkja
áhrifamiklar efnahagsaðgerðir,
annars verði engin bráðabirgöalög
sett og vaxtahækkuninekkistöðvuð.
Alþýðubandalagsmenn vilja 1 leiðinni
láta lækka vexti á afurða- og
rekstrarlánum.
Stjórnarliðar tala um, að gengis-
felling verði hluti af áramóta-
pakkanum en það verði,,lítil”gengis-
felling, 3—5 prósent. Stjórnarliðar
stefna að um 15% hækkun fiskverðs,
en sjómenn krefjast 30% hækkunar.
Auk gengisfellingar verða aðrar
gerðir til að koma til móts við
frystihúsin og gengið verður á gengis-
munarsjóði Seðlabankans.
Gert er ráð fyrir breytingum á vísi-
tölukerfinu, sem leiði til kjara-
skerðingar en hinum tekjulægstu
verði bætt skerðingin með skatta-
lækkunum. t Alþýðubandalaginu
— rættun3-5%
gengisfellinguog
15% hækkun
fískverös
— vaxtahækkun
stöðvuð
— kjaraskerðingað
nokkrubættmeð
skattalækkunum
hefur komið upp mikillágreiningurút
af þessu atriði.
Alþýðubandalagið leggur áherzlu
á „algert stopp” um áramótin eða
„uppgjöri” eins og alþýðubandalags-
menn kalla það. Verði þá skert kjör
ýmissa hópa. Ljóst mun vera, að
efnahagsúrræðin verða ekki kölluð
„niðurtalning”.
Ríkisstjórnarfundur um málið var
haldinn klukkan fimm í gær. Gert er
ráð fyrir nær látlausum fundar-
höldum, þangað til endar ná saman.
-HH.
Hafnar-
garðuríim
ísundur:
MIUJARÐA TJ0N
VARD A AKRANESI
Um 80 metra langur kafli brotnaði
úr hafnargarðinum á Akranesi í
óveðrinu á laugardaginn. Fór stykkið
úr hlífðargarði sem hlaðinn var í
sumar og var allt upp í 6 metra
breiður á köflum. Sjór gekk inn um
skarðið sem myndaðist og olli miklu
hafróti í. höfninni, þannig aö binda
varð skip kirfilega niður. Tjónið er
taliö skipta milljörðum.
Að sögn Bjöms H. Björnssonar
hafnarstjóra á Akranesi voru 18 skip
I Akraneshöfn er veðrið gekk yfir.
Sem betur fór voru menn I þeim
stærstu þeirra sem bundu þau niður
fyrir háflóði á laugardagskvöldið,
þannig að skipin urðu ekki fyrir veru-
legu tjóni. En bryggjufestingarnar
létu um siðir undan veðrinu og varð
af því mikið tjón. „Ég man ekki eftir
öðrum eins látum í höfninni siðan
1958,” sagði Björn.
f sumar var hlaðinn 200 metra
langur hlífðargarður við höfnina og
kostaði verkið allt 40 milljónir. Um
þriðjungur garðsins er farinn að sögn
Björns og kostar mun meira að gera
við hann heldur en kostaði að byggja
hann. Erfitt er því að meta tjónið.
Menn voru á vakt allan laugar-
daginn við höfnina og samfleytt að
minnsta kosti til miðnættis í nótt. Þá
var veðrið aðeins farið að ganga
niður en í morgun var það farið að
versna aftur. Þegar veðrið var verst
var ekki fært um hafnargaröinn fyrir
særoki þánnig að það var ekki fyrr en
veðrinu slotaði að menn gerðu sér
grein fyrir alvöru málsins.
-DS.