Dagblaðið - 23.01.1981, Blaðsíða 1
frjálst,
dagblað
1. ÁRG. - FÖSTUDAGUR 23. JANÚAR 1981 - 19. TBU
RITSTJÓRN SlÐUMÚLA 12. AUGLÝSINGAR OG AFGREIÐSLA ÞVERHOLTI 11.—AÐALSÍMl 27022.
AHUGAMANNAREGLUR KSI
BROTNAR ÍBAKOC FYRIR
—og er þar ekkert 1. deildarfélag undanskilið
„Öll 1. deildarliðin i knattspyrnu
kaupa eða lokka til sin leikmenn með
cinum eða öðrum ráðum. Þau fara
aðeins misjafnlega áberandi að því.”
Þetta eru ummteli þekkts I. deildar-
leikmanns i spjalli viö DB.
Á íþróttasíðum blaðsins í dag er
að finna grein um hvernig áhuga-
mannalög KSÍ eru brotin í bak og
fyrir og um þá hálfatvinnumennsku
sem er að ryðja sér til rúms hérlendis.
Þarsegirm.a.:
.......Samfara þessum auknu
félagaskiptum færist það mjög í vöxt
að félögin bjóði leikmönnum fríðindi
af ýmsu tagi. Þar er um að ræða
greiðslu húsaleigu, góða atvinnu, þar
sem menn geta veriö iausir hvenær
sem henta þykir og jafnvel reiðufé.
Séu leikmenn i fasteignahug-
leiðingum hefur það einnig þekkzt að
félögin hafi útvegað þeim mutt hærri
lán en þeir hefðu annars fengið undir
eðlilegum kringumstæðum. Bila-
styrkir, greiðslur fyrir vinnutap, dag-
peningar vegna ferðalaga erlendis,
allt þekkist þetta í 1. deildinni.”
......Knattspyrnan hérlendis,
a.m.k. í 1. deild erekki lenguráhugá-
mennskan uppmáluð eins og haldið
hefur verið fram. Viö erunt smám
saman að færast i áttina að hálfat-
vinnumennsku, hvort sent okkur
líkar það betur eða verr.”
-SSv.
sjánánaríþróttirbls. 12-21
Hvaðeráseyði
umhelgina?
Frumsýning
helgarínnar:
ÓTEMJAN í IÐNÓ
Skemmtun
helgarinnar:
VOR- OG SUMAR-
TÍZKAN í
H0LLYW00D
Veitingahús
vikunnar:
NAUST
Bækur vikunnar:
SKÁLDSÖGUR
BARBÖRU PYM
— sjá Helgardag-
bókDB
ábls. 13-20
Heimsmeist-
ararV-Þjóð-
verjalagðir
áheimavelli
- ísland sigraði
13-11 ígærkvöld
— sjá íþróttir á
bls. 12 og 21
Síðustuforvöð
aðkjósaí
vinsældavalinu
— atkvæðaseðill
á bls. 24
Þorrinn gengur i garð í dag. Hann er
fjórði mánuður vetrar að forníslenzku
tímatali og hefst á föstudegi í 13. viku
vetrar (19.-25. janúar). ^_
í gamla daga var það venja að hafa
einhvern mannfagnað á heimilum á
fyrsta dag þorra. Átti bóndinn þá að
fara fyrstur manna á bænum á fætur.
Skyldi hann fara út og hoppa á
öðrum fæti í kringum allan bæinn á
skyrtunni einni, bæði berlæraður og i
berfættur en fara í aðra brókar-
skálmina og draga hina á eftir sér.
Fagnaður á fyrsta degi þorra var
kallaður þorrablót.
Fyrsta þorrablót í nýjum siö sem
vitað er um var haldið á vegum
stúdenta í Kaupmannahöfn árið 1873.
Upp úr því fara þorrablótin að verða
vinsæl hérlendis en það er ekki fyrr en
eftir 1960 sem þau fá á sig þá mynd,
sem þau eru i dag. T.d. sást orðið
þorramatur ekki á prenti fyrr en 1958.
í dag bjóða veitingastaðir og
verzlanir upp á þorramat. Hólagarður í
Breiðholti býður 16 tegundir á bakka, í
kringum kg á þyngd, á 45 kr., Kjötmið-
stöðin Laugalæk er með 15 tegundir á
bakka, 750—800 gr á 35 kr., í Kjöt-
verzlun Tómasar er hægt að fá allar
tegundir af þorramat, bæði t lausu og í
lokuðum fötum. Fatan kostar 65 kr. og
er ætluð 4—6 manns.
-KMU.
Hve margar klukkustundir varstþú við heimilis-
störf vikuna24.-30. jan?
— sagt frá manntalinu á bls. 5
tnœr voru sturfsmenn Múlakuffis i óða önn aö útbúa þorramatinn. Þar er hœfít aö.fó 1200—1300 Rr I kassafyrir 75 kr. og þorramáltíð á staðnum fyrir sama verð.
DB-mvnd: Siyurður Þorri.
Þ0RRINN GENGINN í GARD