Dagblaðið - 23.01.1981, Blaðsíða 16
Vænir bunkar af atkvæða-
seðlum í Vinsældavali DB og
Vikunnar berast nú daglega,
þegar níu dagar eru eftir af
kosningunni. Flestir tónlistar-
menn indsins sem eitthvað
kvað að á síðasta ári hafa nú
komizt á blað og línurnar fara
nú senn að skýrast í þvi
hverjir taka á móti verðlaun-
um á Stjörnumessunni i ár.
Ekkert verður þó látið uppi
um úrslit fyrr en á Messunni
sjálfri sem verður haldin að
Hótel Sögu fimmtudaginn 12.
febrúar.
Atkvæðaseðillinn sem birt-
ur er í Dagblaðinu í dag er hinn
næstsíðasti að þessu sinni. Sá
síðasti verður í blaðinu á
þriðjudaginn kemur. Þá
verður jafnframt birtur list-
inn yfir alla þá tónlistarmenn,
hljómsveitir, plötur og lög
sem höfðu hlotið atkvæði um
miðjan mánuð. Listi þessi var
tekinn saman til þess að
hjálpa kjósendum við að fylla
atkvæðaseðilinn út.
Rétt er að minna á það enn
einu sinni að atkvæðaseðill er
gildur þó að hann sé ekki
alveg fylltur út. Eina skilyrðið
er að nafn, aldur og heimilis-
fang fylgi með. Skilafrestur á
seðlunum rennur út 1. febrú-
ar. Þeir sem enn eiga eftir að
kjósa, en ætla að vera með,
eru beðnir um að fylla seðil-
inn út sem allra fyrst og senda
hann til:
Dagblaðið
„Vinsældaval”
Siðumúla 12
105 Reykjavík.
Vcrðlaunagripirnir, sem afhentir verða á Stjörnumessunni, eru steyptir úr áli. Hér virða höfundar gripanna og starfsmenn
málmsmiðjunnar Hellu fyrir sér nokkra gripina. DB-mynd: Sig. Þorri.
DAGBLAÐSINS & VIKUNNAR 1980
Vinsœldaval DBogVikunnar
Innlendur Tónlistarmaður ársins 1. markaður Söngvari ársins 1. Vinsœldaval Dagblaðsins og Vikunnar 1980 Nafn: Aldur: Heimili:
2. 2.
3. 3.
Htfómsveit ársins 1 Söngkona ársins 1.
2. 2.
3. 3.
Hlfómplata ársins 1. Lagársins 1. Htfómsveit ársins 1. Söngvari ársins 1.
2. 2. 2. 2.
3. 3. 3. 3.
Lagahöfundur ársins 1. Textahöfundur ársins 1. Söngkona ársins 1. Htfómptata ársins 1.
2. 2. 2. 2.
3. 3. 3. 3.