Dagblaðið - 23.01.1981, Blaðsíða 4
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 23. JANÚAR 1981.
DB a ne ytendamarkaði
Spörum orkuna:
Slökkvum I jósin í auðum herbergjum
Ráðtil
raforkusparnaðar
1. Venjum okkur á að slökkva Ijósin
þegar við yfirgefum vistarverur.
Þetta á bæði við um glóperur og
flúrljós.
2. Lýsingin þarf að vera rétt. Hún
má hvorki vera of lítil né valda of-
birtu. Bezt er að hún beinist sem
mest að því sem horft er á en ekki
framan í áhorfandann. Auk þess
þarf að vera hæfileg birta i her-
berginu. Ljósir fletir endurkasta
birtunni miklu betur en dökkir.
Veljum því fremur ljósa liti en
dökka, þá þarf minni lýsingu. í
lampa sem eingöngu eru til
skrauts er bezt að nota perur sem
taka litinn straum, t.d. 15 vatta.
3. Flúrpípur gefa um 6 sinnum
meira ljós en glóperur miðað við
sömu raforkunotkun.
*►
Þegar lesið er við Ijós á það að skina
á bókina en ekki framan í þann sem
les.
DB-mynd Sigurður Þorri.
frá 40 vatta spegilperu er svipuð
og frá 75 vatta venjulegri glóperu
4. Spegilperur safna ljósinu saman
og beina því í ákveöna átt. Birta
en nær til minna svæðis. Notum
spegilperur þar sem við á, t.d.
geta þær hentað í leslampa og
önnur vinnuljós.
5. Ryk, fita og önnur óhreinindi á
perum og skermum getur
minnkað Ijósið um allt að 30%.
Hreinsum því lampa og perur
reglulega.
6. Það þarf um 30% minni orku
við að laga kaffi í kaffivél en
þegar „hellt er upp á könnuna”.
Auk þess er ekki hitað meira vatn
en notað er.
7. Notum hitakönnu til að halda
kaffinu heitu en ekki hitaplötuna
á kaffivélinni.
8. Sjóðum kartöflur, grænmeti og
egg i eins litl.u vatni og mögulegt
er. Á hitaveitusvæðum er hag-
kvæmt að nota heitt kranavatn
við suðu matvæla.
9. Þegar matreitt er í hraðsuðupotti
styttist tíminn sem matreiðslan
tekur allt niður í þriðjung. Með
þessu móti minnkar raforku-
notkunin um allt að 40%. Raf-
orkusparnaður næst þó fyrst
þegar suðutíminn er yfir 30
mínútur í venjulegum potti.
10. Við suðu á vatni er notuð um
helmingi minni orka ef notaður er
hraðsuðuketill í stað potts. Auk
þess er suðutíminn mun styttri.
Verðlaun íhöfuðvígi bókhaldsins:
„Ætla aö halda bókhaldinu áfram”
V
— segir ung húsmóðir á Bolungarvík
,,Ég vil byrja á því að þakka Dag-
blaðinu kærlega fyrir og sömuleiðis
verzlun Einars Guðfinnssonar,”
sagði Herdís Ormarsdóttir á
Bolungarvík sem fékk október-
vinninginn í neytendabókhaldi Dag-
blaðsins. Herdís fékk til umráða 160
þúsund gamlar krónur eða 1600
nýkrónur og átti fyrir þá upphæð að
velja sér eitthvað. Hún valdi kaffivél
og mínútugrill úr verzlun Einars
Guðfinnssonar og vantaði þá 12
þúsund gamalla króna upp á að upp-
hæðin nægði. Það gaf hins vegar
verzlunin henni fyrir gott starf á
liðnu ári. Herdís vinnur einmitt i
matardeildinni.
Herdís og maður hennar, Jósteinn
Ólafsson rafiðnaöarnemi, fluttu til
Bolungarvíkur fyrir ári frá Akranesi.
Finnst þeim Bolungarvík mun meira
aðlaðandi staður og hafa ekki hugsað
sér að fara þaðan í bráð. Á Bolungar-
vík er einmitt eitt helzta vígi Neyt-
endasíðunnar hvað bókhald varðar.
Herdis brá sér úr afgreiðslusloppnum
I matardeildinni og skellti sér inn
fyrir borðið i búsáhaldadeildinni og
eru verðlaun hennar á borðinu.
DB-mynd Kristján Friðþjófsson.
JOLAMANUÐURINN
DÝRARIEN HINIR
A. H. skrifar:
Loksins sendi ég upplýsingaseðil-
inn fyrir desember. Ég biðst
afsökunar á trassaskapnum. Jóla-
mánuðurinn er greinilega dýrari en
hinir mánuðurnir, þó reynt væri að
spara eins og kostur var. Liðurinn
annað er svimandi hár vegna þess að
viðkeyptumokkur bíl og kostnaður-
inn við það var 2,4 milljónir gamalla
króna. Svo óska ég ykkur alls góðs á
nýjaárinu.
Þó staðurinn sé ekki stór berast
þaðan mun fieiri seðlar en til dæmis
frá Akureyri sem er mun stærri
staður. Eftir þessu að dæma hugsar
fólk á Bolungarvík meira um verðlag
og heimilishald en gerist og gengur.
,,Ég ætla að halda bókhaldinu
áfram” sagði Herdís. „Með því
fylgist maður mun betur með verð-
laginu.”
Raddsr
neytenda
Hjá eiganda
Bolungarvíkur
Herdís vinnur eins og áður sagði í
verzlun Einars Guðfinnssonar.
Gárunginn hérna fyrir sunnan segir
að Einar eigi Bolungarvík en þar
rekur hann með sonum sinum auk
verzlunarinnar frystihús, loðnuverk-
smiðju, saltfiskverkun og útgerð.
Verzlun hans er stór og glæsileg enda
kcmur fólk þangað iðulega frá ísa-
firði til þess að verzla. Einar verzlar
með mat, vefnaðarvöru, búsáhöld og
sportvöru. Auk þess er bakað hjá
honum brauð og selt. Verzlunarstjóri
er Kristján Jónatansson.
-DS/KF, Bolungarvík.
Upplýsingaseðill
til samanburöar á heimiliskostnaði
Hvað kostar heimilishaldið?
Vinsamlega sendið okkur þennan svarseöil. Þannig eruð þér orðinn virkur þátttak-
andi i upplýsingamiðlun meðal almennings um hvert sé meðaltal heimiliskostnaðar
fjölskyldu af sömu stærð og yðar. Þar að auki eigið þér von um að fá nytsamt heimilis-
tæki.
Nafn áskrifanda
Heimili
Sími
Fjöldi heimilisfólks__
Kostnaður í desembermánuði 1980.
Matur og hreinlætisvörur kr.
Annað kr.
Alls kr.
m i iii i v