Dagblaðið - 23.01.1981, Qupperneq 8
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 23. JANÚAR 1981
GUNNLAUGUR
A. JÓNSSON
Gíslarnir
styöji
Sakharov
*-____
Sovézki rithöfundurinn og andófs-
maðurinn Georgy Vladimov, hvatti í
gær bandarísku gíslana 52 til að tala
máli mannréttindabaráttumannsins
Andrei Sakharov nú á eins árs útlegðar-
afmæli hans. Hinn 59 ára gamli
vísindamaður og nóbelsverðlaunahafi,
Andrei Sakharov var rekinn í útlegð frá
Moskvu 22. janúar í fyrra og dvelst
hann nú í borginni Gorku við Volgu.
Kona hans segir að Iögregluvörður
sé stöðugt við íbúð hans og hann fái
ekki að taka á móti gestum. Hún hefur
látið í ljós ótta um heilsu hans.
Pólskir verkamenn, sem krefjast
fimm daga og fjörtíu stunda vinnu-
viku, hyggja á frekari verkföll í dag.
Stjórnvöld íhuga sáttatillögu Ein-
ingar um 41,5 stunda vinnuviku.
Fjögurra stunda aðvörunarverk-
föll eru skipulögð víða í Póllandi í
dag, í verksmiðjum, háskólum og
meðal flugvallarstarfsmanna.
Strætisvagnabílstjórar í höfuðborg-
inni hafa einnig hótað verkfalli.
Hundruð þúsunda verkamanna
fóru í verkföll víðs vegar um PóIIand
í gær til að mótmæla tregðu stjórn-
valda til að fallast á fjörutíu stunda
vinnuviku. Verkamenn segja að
stjórnvöld séu þar með að ganga á
bak loforða sinna frá í sumar en
stjórnvöld segja að fjörutíu stunda
vinnuvika muni einungis leiða til
versnandi lífskjara i landinu.
Jozef Barecki, talsmaður pólsku
stjórnarinnar, gaf í gærkvöldi til
kynna að stjórnvöld kynnu að fallast
á sáttatillögu Einingar. Hann sagði
að það mundi þó þýða endurskoðun
fjárlagafrumvarpsins og hafa í för
með sér versnandi lífskjör.
Donna
Summer
gerist
trúuð
„I BeUeve in Jesus”, eða Ég trúi á
Jesú. Þannig syngur söngkonan heims-
þekkta á nýjustu plötu sinni og greinir
þar frá trú sinni. Kristin tónUst er nú
sögð eiga auknum vinsældum að fagna
í Bandaríkjunum og meðal þekktra
söngvara sem boða trú í lögum sínum
er Bob Dylan. Talinn er markaður fyrir
slíka tónlist í Bandaríkjunum enda
sýnir nýleg Gallup skoðanakönnun, að
19 prósent Bandaríkjamanna telji sig
endurfædda til trúar á Krist.
Eining krefst einnig aðgangs að verkalýðssamtaka bænda og að póli-
fjölmiðlum, lögleiðingar sjálfstæðra tiskir fangar verði látnir lausir.
Pólsk stjórnvöld segja að 40 stunda vinnuvika muni leiða til versnandi lifskjara i
landinu.
INorska landhelgisgæzlan er svo fáliðuð og illa búin tækjum að henní gengur ákallega ertiólega ao koma I veg fyrir ítrekuð landhelgisbrot sjómanna frá löndum
Efnahagsbandalags Evrópu.
Enginn veit hve mikið er fiskaö ólöglega i norskri landhelgi en sérfræðingar eru sammála um að það sé mjög mikið.
Einbýlis eða raðhús
Höfum fjársterkan kaupanda að einbýlis- eða raðhúsi í
Reykjavík, Kópavogi eða Seltjarnarnesi. Útborgun allt að
ein milljón nýkróna.
Eignanaust
Laugavegi 96, sími 29555
Veiöiþjófamir
gera Norömöm-
um lífið leitt
Verzlunarhúsnæði og íbúð
óskast í skiptum fyrir stórt þriggja hæða einbýlishús í
vesturbæ.
Eignanaust
Laugavegi 96, sími 29555
Höfum mikið úrval eigna á söluskrá og
kaupendur að öllum stærðum eigna.
Eignanaust
Laugavegi 96, sími 29555
—Norska landhelgisgæzlan er svo fáliðuð
að hún fær ekki við neitt ráðið. Vaxandi
spenna á milli Norðmanna ogsjómanna
f rá Efnahagsbandalagslöndunum
Útlendir veiðiþjófar hafa að undan-
förnu gert mikinn usla i norskri land-
helgi og eru Norðmenn mjög áhyggju-
fullir vegna þeirrar þróunar. Norska
landhelgisgæzlan þykir engan veginn
nægilega öflug og stendur hún nánasl
ráðalaus frammi fyrir veiðiþjófunum
vegna þess hversu fáliðuð hún er og illa
búin tækjum.
Norska Dagblaðið fjallaði nýverið
um þetta mál. Þar segir meðal annars
að enginn viti hve ólöglegur afli út-
lendinga innan norskrar landhelgi sé
mikill en sérfræðingar í sjávarútvegi
séu sannfærðir um að hann sé mjög
mikill.
Blaðið segir að undanfarið hafi
spennan aukizt á milli sjómanna frá
Efnahagslöndunum og Norðmanna.
Fyrir hálfum mánuði varð norska land-
helgisgæzlan að hóta að skjóta á
skozkan togara, sem hafði reynzt ákaf-
lega viðskotaillur.
Þar sem Efnahagsbandalagið hefur
enn ekki staðfest samkomulag við
Norðmenn um fiskveiðar hafa
Norðmenn ákveðið að norska land-
helgin skuli algjörlega lokuð
veiðiskipum frá Efnahagsbandalags-
löndunum. Strandgæzlunni gengur
hins vegar illa að framfylgja þeirri
stefnu vegna þess hve fáliðuð hún er og
á meðan halda veiðiþjófar áfram
veiðum í norskri landhelgi í stórum stíl
og þá einkum i Norðursjónum.
Dagblaðið norska segir að í fyrra
hafi aðildarlönd Efnahagsbandalagsins
veitt að minnsta kosti 200 prósent
meiri makríl í norskri landhelgi en þeim
var heimilt.
Erlent
Erlent
Erlent
Erlent
Aukinn
firami
Nabavis
Þvi er spáð af ýmsum þeim er gerst
þekkja til mála í íran að Behzad
Nabavi, aðalsamningamaður írana i
gísladeilunni, kunni að eiga aukinn
frama í vændum vegna góðrar frammi-
stöðu í gísladeilunni. Er því jafnvel
spáð að Nabavi, sem á sæti í irönsku
stjórninni, verði orðinn forsætisráð-
herra landsins innan skamms.
Nabavi er talinn i hópi harðlínu-
manna i íran.
Yoko Ono
þakkar
fyrirsig
Yoko Ono, ekkja Bítilsins Johns
Lennons, birti um helgina opið bréf i
formi heilsíðuauglýsinga í New York
Times, Washington Post og Sunday
Times, þar sem hún hvetur alla þá er
syrgja John Lennon til þess að láta
dauða hans verða sér hvatningu til að
vinna að friði í heiminum.
,,Ég þakka ykkur fyrir bréf, skeyti
og hugsanir ykkar,” skrifar Yoko. ,,Ég
þakka ykkur fyrir reiði ykkar yfir
dauða Johns. Ég á hlutdeild í þeirri
reiði. Ég er reið sjálfri mér fyrir að hafa
ekki getað varið John. Ég er reið okkur
öllum fyrir að láta samfélagið falla
saman á þennan hátt.
Eina hefnd okkar er í því fólgin að
breyta samfélaginu í tæka tíð, breyta
þvi í samfélag byggt á kærleika og til-
litssemi. Þannig fannst John að það
gæti orðið. Mér fannst ég skulda ykkur
þettabréf,” skrifar Yoko.
REUTER
Áframhaldandi ólga í Póllandi
Hundruð þúsunda
TOKO I IIAhLfo11 — Stjómvöldíhuga
| dl d | Wl#l Imldill sáttatillöguEiningar