Dagblaðið - 23.01.1981, Page 11
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 23. JANÚAR 1981.
Kjallarinn
Friðrik Sophusson
að halda genginu föstu. Hann sagði,
að tími væri kominn til að stjórnin
endurgreiddi þannig skattana, sem
hún hefur tekið af atvinnurekstrin-
um. Hér er á ferðinni alvarlegur mis-
skilningur, því að ríkisstjórnin ætlar
að taka lán til að standa undir milli-
færslunni. Hún ætlar ekki að skera
niður ríkisútgjöldin. Lán þarf að
borga til baka síðar. Og endurgreiðsl-
urnar verða sóttar í formi nýrra
skatta á atvinnuvegi og einstaklinga.
Það þarf meira að segja að endur-
greiða nýja lánið hans Ragnars, sem
hann tók í London um daginn. Það
gera skattgreiðendur árið 2016. Þá
verður núverandi fjármálaráðherra
78 ára og forsætisráðherrann 106
ára. Og guð einn veit, hvað þeir þurfa
að bera mikinn þunga af þeirri skatt-
byrði.
Hver er árangurinn?
Almenningur er þakklátur ríkis-
stjórninni fyrir að vakna af 11
mánaða þyrnirósarsvefni. En stjórn-
in hefur varla efni á að gleðjast mikið
yfir árangrinum í baráttunni við
verðbólguna, þegar það er rifjað
upp, að í upphafi ferils síns lofaði
ríkisstjórnin að koma verðbólgunni í
árslok niður í — ekki 50% — heldur
19%.
Ríkisstjórnin hefur sem sagt
ákveðið að hætta að moka kolum á
verðbólgubálið um sinn. Síðari hluta
ársins hyggst hún hins vegar hefja
sönginn á ný: „Kveikjumn eld,
kveikjum eld, kátt hann brennur!”
Svo koma ný áramót. Hver veit nema
þá verði aftur „skipt á sléttu”?
Friðrik Sophusson
alþingismaður.
Kjallarinn
Þorvaldur Örn Árnason
verksmiðjan eru dæmi um þess konar
stóriðju og einnig fyrirhuguð salt-
verksmiðja og járnbræðsla, ef þær
verksmiðjur verða hafðar af hóflegri
stærð.
Það er varasamt að selja fáeinum
embættismönnum og pólitíkusum
sjálfdæmi til mótunar stóriðjustefnu.
Margir þeirra eru undir áhrifum og
þrýstingi voldugra erlendra auð-
hringa og sumir standa i leynilegu
samningamakki við þá. Saga
Sturlungaaldarinnar kennir okkur að
treysta ekki stórlöxum einum fyrir
fjöreggi þjóðarinnar, þ.e. efnahags-
legu og stjórnarfarslegu sjálfstæði.
ÞorvaldurÖrn Árnason
kennari
ísafirði.
Fjórtán f jölskyldna stjómin í El Salvador:
ORYGGISSVEITIR STJORNAR-
INNAR BERA ÁBYRGD Á 80
PRÓSENT ALLRA MORDANNA
—segja kirkjunnar menn í El Salvador. Mannrettindabrot hvergi eins mikil
ogíEISalvador
Litla Mið-Ameríkuríkið E1
Salvador hefur verið mjög í fréttum
undanfarna mánuði og ekki að á-
stæðulausu. Þar hefur borgara-
styrjöld sett mjög mark sitt á líf
íbúánna og um áramótin var E1
Salvador efst á blaði yfir þau lönd
þar sem flest mannréttindabrot voru
framin á síðastliðnu ári. Tölum um
mannfall þar i landi af völdum borg-
arastyrjaldarinnar bar ekki saman,
en ljóst virðist að fjöldi fallinna er
einhvers staðar á bilinu tíu til tuttugu
þúsund og það sem af er þessu ári
gefur ekki til kynna að neitt lát ætli
að verða þar á.
íbúar E1 Salvador eru 5,5
milljónir og herforingjastjórnir hafa
farið þar með völdin í nærri fimmtíu
ár. Þrír fjórðu hlutar landsins eru í
eigu fámennisstjórnar, sem kölluð
hefur verið „fjölskyldurnar
fjórtán”, sem ekki aðeins stjórna
fjármálum þjóðarinnar, heldur
einnig hernum.
Samkvæmt skýrslum Sameinuðu
þjóðanna frá 1976 þjáðust 75 prósent
barna undir Fimm ára aldri af van-
næringu, 63 prósent íbúanna höfðu
ekki aðgang að hreinu vatni, at-
vinnuleysi var um 50 prósent og 90
prósent íbúanna höfðu minna en
svarar 600 íslenzkum nýkrónum á
ári.
í október 1979 var herforingja-
stjórn Carlos Humberto Romeros
leyst af hólmi af herforingjastjórn
sem einn herforingjanna, Adolfo
Majano, lýsti sem nútíma vinstri-
Á siðastliðnu ári voru framin á milli tiu og tuttugu þúsund morð í F.l Salvador.
Kirkjunnar menn þar i landi segja að öryggissveitir stjórnarinnar beri ábyrgð
á 80 prósent þessara morða.
hreyfingu. Hún hafði safnað saman
mönnum með ólíkar pólitiskar
skoðanir. Ríkisstjórnin var
viðurkennd af Bandaríkjunum, sem
buðust til að aðstoða við endurbót á
landbúnaðarkerfi landsins.
Stjórnin átti ákaflega erfitt
uppdráttar og gafst að lokum upp
fyrir ofbeldisverkunum í landinu. Ný
herforingjastjórn tók við völdum,
samansett af hægriöflum innan
Kristilega demókrataflokksins og
fulltrúum hersins. Forseti varð Jose
Napoleon Bonaparte, úr flokki
kristilegra demókrata, með Jaime
Abdul Guttierez hershöfðingia sem
varaforseta.
Sem mótvægi við sífellt auk-
inni hægrisveiflu í stjórn landsins
hafa óháðir kommúnistar,
sósíaldemókratar og hægfara
kristilegir demókratar myndað
bandalag, FDR. Þetta bandalag
hefur pólitíska forystu fyrir
skæruliðahreyfingunni FMNL, sem
er samtök fjögurra vinstri sinnaðra
skæruliðaflokka. Opinberlega for-
dæmir ríkisstjórnin öll pólitísk
morð í landinu og skrifar þau á
reikning hægri og vinsri sinnaðra
öfgahreyfinga í landinu, sem herinn
hafi ekki stjórn á.
En mannréttindahreyfingar í
landinu halda því fram að öryggis-
sveitir stjórnarinnar beri ábyrgð á
flestum morðunum.
Upplýsingar frá kirkjunnar
mönnum i landinu benda til að 80
prósent af öllum morðunum séu
framin af öryggissveitum landsins.
Bandaríkin, sem vildu koma í veg
fyrir að E1 Salvador fylgdi í fótspor
Nicaragua inn á braut byltingar,
studdu ríkisstjórnina með 90
milljónum dollara á síðastliðnu ári.
Er fjórar bandarískar nunnur voru
drepnar í desember síðastliðnum
voru hergagnasendingar að andvirði
5,4 millj. dollara stöðvar.
Það liðu þó ekki nema fjórar
vikur þar til að Carter ákvað að
láta stjórnina í E1 Salvador þann
stuðning einnig i té. í Banda-
ríkjunum hafa þessar sendingar verið
réttlættar með því að skæruliðar i E1
Salvador fái vopn frá Sovétríkjunum
og Kúbu og einnig frá róttækutji
hreyfingum í Mexíkó, Costa Rica og
Nicaragua.
Stjórn E1 Salvador segist nýverið
hafa hrakið á flótta hundrað
skæruliða er komu með bátum frá
nágrannalandinu Nicaragua. Þar í
landi hefur því hins vegar verið
neitað.
(Dagbladet)
Ibúum fækkar í Tókíó
Það eru fleiri en Reykvíkingar sem kvarta undan hárrí leigu og húsnæðiseklu
Nýlega birtu japönsk stjórnvöld
tölur um fólksfjöldann í Japan 1.
október sl. Taldist þeim til að Japanir
væru hvorki fleiri né færri en
117.057.484 sem er aðeins 4,6%
aukning sl. 5 ár. Eins og í fyrri tíiln-
ingum kom í ljós að enn streymir
fólkið frá dreifbýlinu til borgarkjarn-
anna en þó með einni undantekn-
ingu. í fyrsta skipti síðan eftir siðari
heimsstyrjöldina sýndu tölur frá
Tókíó fólksfækkun sem nam um
0,5%. Nú búa á Tókiósvæðinu um
10% þjóðarinnar eða 11.615.069
manns.
Meginástæðan fyrir þessari fólks-
fækkun í Tókíó er húsnæðisleysi.
Gífurlega erfitt er að fá húsnæði leigt
og verð á fasteignum er svo hátt að
hinn almenni borgari á litla mögu-
leika að eignast sitt eigið húsnæði.
Byggð er orðin svo þétt í Tókíó að
eina leiðin til að minnka húsnæðis-
skortinn er að byggja upp en sakir
hárra öryggisstaðla gagnvart jarð-
skjálftum er byggingarkostnaður há-
Baldur Hjaltason
skrifar frá Japan
hýsa hár og einnig margir sem vilja
ekki búa í háhýsum af fyrrgreindri
ástæðu. Þess ber að gæta að ekki er
nema rúmur áratugur síðan leyft var
að byggja skýjakljúfa í Tókíó vegna
jarðskjálftahættu.
Nýársdagur í Meiji-Jingu 1 Tókió
sér farsæls nýs árs.
en 2 milljónir manna komu þangað til að óska
Enn eru fáir skýjakjúfar i Tókió, en
fer fjölgandi. Þessir eru i Shinjuku.
(DB-myndir BH).
„Tatami" ístað
fermetra
Þeir sem eru svo heppnir að fá íbúð
eða herbergi með eldunaraðstöðu á
leigu þurfa yfirleitt að borga háa
leigu. Hér miðar fólk ekki við fer-
metrafjölda heldur „tatami”, sem
eru strámottur sem eru notaðar á
gólfum á japönskum heimilum í stað
teppis eða dúks á Vesturlöndum. Ein-
staklingar gera sig yfirleitt ánægða
með 6—8 tatami herbergi (um 10—14
m!) með eldunaraðstöðu og margir
byrja raunar sinn búskap í svona litlu
húsnæði. Fyrir þetta húsnæði verður
að borga um 1100 nýkrónur á mán-
uði í leigu. En þar með er sagan ekki
öil. Hér borgar fólk svokallaða trygg-
ingu sem nemur 2—3 mánaða leigu
sem í flestum tilvikum endurgreiðist
að leigutíma loknum. Þar að auki
verður leigutaki að borga það sem ég
kalla mútugreiðslur, þ.e. 2—3
mánaða leigu sem endurgreiðist ekki.
Fyrirframgreiðsla er aftur á móti litil,
aðeins 1—2 mánuðir, stundum engin.
Þegar þetta er tekið saman verður
leigutaki að punga út með 7—8 þús-
und nýkrónur áður en hann flytur í
sitt 10—15 fermetra herbergi. Auð-
vitað eru til undantekningar og þetta
er háð því hve langt frá kjarna borg-
arinnar þú vilt búa. í úthverfum
Tókíóborgar má allt að því helminga
þessa upphæð en þá verður þú að
sætta þig við að sitja kannski um 2—
3 tíma á dag í lest til og frá vinnu.
Japan sjötta fjöl-
mennasta þjóð heims
Ef litið er á dagblöðin má lesa
langa dálka af auglýsingum þar sem
boðnar eru til leigu íbúðir innréttaðar
á vestrænan máta. Leiguverð þessara
íbúða (3—6 herbergi yfirleitt) er um
10.000 nýkrónur á mánúði. Aftur á
móti er leiguverð íbúða sem eru inn-
réttaðar á japanskan máta mun lægra
og ofangreindar ibúðir eru lúxus-
ibúðir margar hverjar. Af þessu má
sjá að engin furða er þótt fólki uggi
við að flytja til Tókíó.
Svo litið sé aftur á fólksfjöldann í
Japan kemur i ljós að Japan er komið
í sjötta sæti yfir fjölmennustu þjóðir
heims. Féll Japan niður um eitt sæti
frá fyrri talningu og er nú á eftir
Kína, Indlandi, Rússlandi, Banda-
ríkjunum, Indónesíu og Brasilíu.
Aftur á móti er fólksfjöldi á ferkíló-
metra 314 sem gerir Japan að fimmta
þéttbýlasta landi heims. Sakir jtess hve
hægt hefur á fólksfjölgun í Japan
kemur upp annað alvarlegt vanda-
mál. Innan fárra ára verður stór hluti
japönsku þjóðarinnar kominn á eftir-
launaaldur meðan sá hópur sem
borgar skattana sem standa undir
eftirlaunakerfinu fer minnkandi.