Dagblaðið - 23.01.1981, Side 23
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 23. JANÚAR 1981.
<§
Útvarp
SKONROK(K) — sjónvarp kl. 20,50:
31
Sjónvarp
i
Smurbrauðstofan
BJORNINN
Njáisgötu 49 — fimi ljlOS
Jack Nicholson leikur oliubormanninn Bobby.
INNAN STOKKS OG (JTAN - útvarp kl. 15,00:
RÆTT VK) BUND HJÓN
SEM HALDA HEIMILI
— Einnigf jallað um Hússtjórnarskóla Reykjavíkur
Sigurveig Jónsdóttir stjórnar þætt-
inum Innan stokks og utan sem er á
dagskrá útvarps í dag kl. 15.
Megnið af þættinum fer 1 að fjalla
um Hússtjórnarskóla Reykjavíkur og
verður reynt að gefa góða mynd af
því sem þar fer fram. Verður í þætt-
inum rætt við tvo nemendur, unga
stúlku sem er í 5 mánaða námi og
karlmann sem er að ljúka 5 vikna
kvöldnámskeiði í matreiðslu.
Því næst hyggst Sigurveig ræða við
blind hjón um það hvernig sé að
halda heimili með engan sjáandi á
heimilinu. -KMU
Verkamannafélagið
Dagsbrún
75 ára
í tilefni 75 ára afmælis Dagsbrúnar verður opið hús og
veitingar í Lindarbæ sunnudaginn 25. janúar frá kl. 3 til 6
eftir hádegi fyrir Dagsbrúnarmenn og maka þeirra og vel-
unnara félagsins.
Stjórn Dagsbrúnar.
VIDEO
SPÖRUM RAFORKU
Orkusparnaður — þinn hagur — þjóðarhagur
VHS videospólur til leigu í miklu úrvali ásamt mynd-
segulbandstækjum og litasjónvörpum. Ennfremur eru
jtil leigu 8 mm og 16 mm kvikmyndafilmur í
mjög miklu úrvali í stuttum og löngum útgáfum, bæði
þöglar og með hljóði, auk sýningarvéla (8 mm og 16
mm) og tökuvéla, m.a. Gög og Gokke, Chaplin, Walt
Disney, Bleiki Pardusinn, Star Wars o.fl. Fyrir full-
lorðna m.a. Jaws, Marathon man, Deep, Grease, God-
father, Chinatown o.fl. Filmur til sölu og skipta.
Ókeypis kvikmyndaskrár fyrirliggjandi. Opið alla daga ^ -^C
nema sunnudaga.
K vikmyndamarkaðurinn Sími 15480
Skólavörðustíg 19 (Klapparslígsmegin)
KVIKMYNDIR
spörum
RAFORKU
„DAUFASTITÍMINN í P0PPINU”
—segir umsjónarmaður Skonrok(k)sf Þorgeir Ástvaldsson
„Það hefur heldur verið erfitt um
aðdrætti undanfarið enda er þetta
daufasti tími ársins í poppinu,” sagði
Þorgeir Ástvaldsson er DB ræddi við
hann um Skonrok(k)ið en það er ein-
mitt á dagskrá sjónvarps í kvöld.
Þorgeir sagðist ætla að sýna myndir
sem urðu útundan á síðasta ári en
einnig þungar, nýjar. Segja má að þátt-
urinn sé tvískiptur, annars vegar létt
,,dans- og skemmtipopp”, s.s. Earfh,
Wind and Fire og Noian systur. Hins
vegar verða á dagskrá hljómsveitir eins
og Stranglers, Clash og Cure.
Þátturinn í kvöld er sá 38. og hefur
Þorgeir annazt þá alla. Hann gerði ráð
fyrir því að efnisöflunin færi nú að
hressast af dvala sem oft er í poppinu
upp úr jólum.
-KMU
Stranglers verða m.a. I Skonrok(k)i i kvöld.
spörum
RAFORKU
AF FINGRUM FRAM - sjónvarp kl. 22,30:
EIN AF BEZT LEIKNU
MYNDUM ÁRSINS 70
— um olíubormann sem hvergi festir yndi
Biómynd sjónvarpsins í kvöld fjall- Einn daginn kemur systir hans í
ar um mann sem starfar við olíubor- heimsókn og biður hann um að koma
un. Honum finnst þessi vinna hund- h'eim þvi faðir hans hafi fengið siag.
leiðinleg og varla sér samboðin, enda Hann snýr heim og þar er mættur
er hann ákaflega eirðarlaus. Hann bróðir hans með vinkonu sinni. Olíu-
festir hvergi yndi og lifir aðeins fyrir bormaðurinn girnist vinkonu bróður
daginn í dag. Foreldrar hans eru vel síns en meira viljum við ekki segja.
efnum búnir og sjálfur er hann ekki Jack Nicholson fer með aðalhlut-
illa menntaður, t.d. hefur hann verið verkið í þessari mynd.Eins og flestir
í tónlistarnámi. Hann býr með stúlku muna sjálfsagt fékk Nicholson ósk-
sem frekar er vitgrönn. arsverðlaunin fyrir leik sinn í Gauks-
hreiðrinu (One Flew Over the
Cookoo’s Nest).
Nicholson fékk einnig mikið
hrós fyrir leik sinn í myndinni í kvöld
sem reyndar var talin með b.ezt leiknu
kvikmyndum ársins 1970. Karen
Black og Susan Anspach er líka
hrósað fyrir góðan leik.
Leikstjóri er Bob Rafelson en
Kristmann Eiðsson er þýðandi mynd-
arinnar. -KMU