Dagblaðið - 09.03.1981, Page 1
íríálst
aháð
dagblað
7. ARG. — MANUDAGUR 9. MARZ 1981 — 57. TBL.
RITSTJÓRN SlÐUMÚLA 12. AUGLÝSINGAR OG AKGREIÐSLA ÞVERHOLTI 1 l.-AÐALSÍMI 27022.
Skíðadagur fjölskyldunnar á laugardaginn:
GREINILEGT AÐ SKÍÐAGANGA A
VAXANDIFYLGIAÐ FAGNA
— mikill fjöldi fólks kom og naut góða veðursins á Miklatúni
Á annað þúsund manns komu í
góðviðrinu á laugardaginn á Skíða-
dag fjölskyldunnar á Miklatúni. Það
er greinilegt að skíðaganga á vaxandi
fylgi að fagna og mátti sjá jafnt unga
sem aldna á göngu á Miklatúni á
laugardaginn. Einnig voru börnin
með sleða og snjóþotur og skemmtu
sér vel á meðan fullorðna fólkið naut
veðurblíðunnar. í gærdag var einnig
mikið um að fólk notfærði sér
göngubrautirnar á Miklatúni.
Margir þeirra sem komu á Mikla-
tún á laugardaginn létu þau orð falla
að þeim hefði hreinlega ekki dottið í
hug að ganga á skíðum hér innan
borgarinnar. Einn kunnan skíðá-
kappa hittum við þegar hann var
búinn að hlaupa tiu hringi um Mikla-
tún og sagðist hann svo sannarlega
ætla að notfæra sér þessa braut
næstu daga á meðan snjór héldist i
stað þess að æða upp á fjöll.
-DB-mynd: Sigurður Þorri
— sjá nánar á bls. 14-19
EkkjaBhuttosí
vitoröimeð fiug-
vélarræningjunum
— sjá erlendar fréftir
bls.8-9
Ingemarréðekki
við Phil Mahre í
Aspen
— sjáíþróttiríopnu
Fiskisúpan sem
aldreibregzt
— sjá DB á neytenda-
markaði bls.4
Endurholdgun:
Bamsakaði
morðingja sinn
— sjá bls. 28
Kom mjögskemmti-
foGTO O Áua&h segirsigurvegarinn
fGjfrCf Cf Uruf I ísöngvakeppninni
Alls óþckktur sönnvahöfunilur,
Ciuömunúur Inf-ólfsson, 27 ára sál-
frœðinemi við lláskólann, varð si/fur-
veffari í Söngvakeppni sjónvarpsins
sem fram fór í heinni útsendinnu á
laupardaffskvöldið. Lafi Guómundar,
rokklaffið Af litlum neista hlaut lann-
flest atkvœði þeirra tœplega 500 dóm-
nefndarmanna sem sjónvarpið hafði
komið fyrir víðs veffar um landið.
Myndin var tekin af Guðmundi á heim-
ili hans i yær og þarna flayyar hann
verðlaunapripnum oy „ávisun " upp á
5000 krónur — hálfa milljón yamalla
króna.
DB-mynd: Einar Ólason
— sjánánarábls.6
Karpov og Kortsnoj ákveða sigídag:
MOGULEIKARISLANDS
HUÓTA AÐ VERA GÓDiR”
—segirdr. Ingimar Jónsson, forseti Skáksambands íslands
Mér heyrðist á fulltrúa Kortsnojs
að hann muni ákveða sig um hádegis-
bilið. Ég er mjög spenntur en veit
ekki hvernig málin standa,” sagði dr.
Ingimar Jónsson forseti Skáksam-
bands íslands er blaðamaður DB
hafði samband við hann í morgun. í
dag munu þeir Karpov og Kortsnoj
velja úr þeim þremur stöðum sem
boðizt hafa til að sjá um einvígi
þeirra.
„Karpov hefur ekki sýnt áhuga.
Við höfum reiknað með að hann velji
Las Palmas og að Kortsnoj velji
Merano og að fsland verði í báðum
tilfellum númer tvö,” sagði dr. Ingi-
mar og bætti því við, að í því til-
fellli hlytu möguleikar íslands að
vera góðir.
„Fulltrúi Kortsnojs var ánægður
með aðstæður hér, Þjóðleikhúsið og
hótelin. Það var á honum að skilja,
að aðstæður hér væru sizt lakari en á
hinum stöðunum og raunar skildist
mér á honum að aðstæður á Las
Palmas væru ekki nándar nærri eins
góðar,” sagði dr. Ingimar.
Hann sagði að Skáksambandinu
væri ekkert að vanbúnaði að taka
einvigið að sér. Fjármálin hefðu verið_
tryggð með stuðningi ríkisins. Dr.
Ingimar sagði að kostnaðarhliðin
hljóðaði upp á tæpar sex milljónir en
í henni væru vissir óvissuþættir. Það
væri til dæmis alveg óljóst hvaðan
dómararnir kæmu. Hann lagði
áherzlu á að þó stuðningur ríkisins
kæmi til væri Ijóst að skáksambands-
menn yrðu að vera duglegir við að
afla fjár svo endar næðu saman.-GAJ