Dagblaðið - 09.03.1981, Page 3
3
DAGBLAÐID. MÁNUDAGUR9. MARZ 1981.
Háskóli íslands:
Kosningar ti/ Stúdenta-
ráös og Háskólaráös
— Umbótasinnar hyggjast einbeita sér að málum sem snerta stúdenta beint en
:vem
Hringið's,,n®
2702?
Electropower
leiða dægurþras hjá sér
1578-9832 skrifar:
Nú, Þegar líða tekur að kosningum
í Háskóla íslands, en kosningar til
Stúdentaráðs og Háskólaráðs fara
fram 11. marz, hlýtur hinn almenni
stúdent að spyrja sig nokkurra spurn-
inga. Hann hlýtur að spyrja, hvernig
hagsmunamálum stúdenta hafi
vegnað, hvernig staðan í þeim málum
er í dag og hver sé liklegt að hún verði
eftir næstu kosningar.
Svarið við fyrstu spurningunni er
r
Rauði kross Islands:
Mikil þörf
á sjálf-
boðaliðum
— til starfa við hin
ýmsu verkefni
Sjúkravinur hringdi:
Mig langar til að spyrja konur sem
hafa tima og einnig þær sem eru ein-
mana: Vitið þið af kvennadeild
Rauða krossins, þar er alltaf þörf
fyrir konur á öllum aldri til starfa við
bókasöfn, sölu, föndur og margs
konar aðstoð við aldraða.
Nú er sérstaklega mikil þörf fyrir
sjálfboðaliða. Þar getið þið unnið
frjálst og ánægjulegt starf sem veita
mun ykkur lífsfyllingu.
einfalt. Nær ekkert, sem til tíðinda
getur talizt, hefur gerzt í baráttumál-
um stúdenta um árabil. Nægir þar að
nefna að stúdentar greiða margfalt
verð i sínu mötuneyti á við verð í
mötuneytum flestra starfsstétta, þeir
borga háa leigu fyrir óíbúðarhæft
húsnæði og hafa litla sem enga
ánægju af málgagni sínu, Stúdenta-
blaðinu.
Ef við vikjum að stöðunni í dag er
ljóst að báðar gömlu fylkingarnar,
Vinstri menn og Vaka, vígbúast af
kappi og hefðu ugglaust tekið upp
gamalkunnugt karp sitt nú ef ekki
hefði komið til ný vígstaða. Nýtt
framboð Umbótasinnaðra stúdenta
hefur litið dagsins ljós en að því
standa menn úr öllum pólitískum
flokkum, auk óháðra, þó að eðlilega
fari mest fyrir miðjumönnum enda
þeir afskiptir hingað til í stúdenta-
pólitík. Þetta framboð hyggst
einbeita sér að málum sem snerta
stúdenta beint en leiða dægurþras hjá
En hvað verður gert eftir kosning-
arnar? Ljóst er að stúdentar vilja um-
bætur en þeir hafa undanfarin ár
ávallt hafnað Vöku sem valkosti í
þeim efnum og engar líkur eru til þess
Það líður að kosningum í Háskóla Is-
lands.
að annað gerist nú. Þvi er aðeins ein
leið fær ef umbætur eiga að verða:
Gerum veg Umbótasinnaðra stúdenta
sem mestan í kosningunum næst-
komandi miðvikudag.
fjöllum
Skíðamaður hringdi:
Ég var á skíðum uppi í Bláfjöllum
um síðustu helgi. Þegar hungrið fór
að sækja á mig renndi ég mér að bil
frá Aski sem var þarna á svæðinu.
Þar sem ég er þar að snæðingi kemur
að fólksvangsvörður svæðisins og
tjáir mönnunum sem þarna voru að
selja veitingar að þvi miður sé þeim
ekki leyfilegt að selja þarna, vegna
þess að búið sé að neita svo mörgum
um leyfi til þess.
Mér og fleirum finnst það ansi
hart að missa þessa þjónustu og
sjáum ekki hvern hún skaðar.
GIRMOTORAR
RAFMÓTORAR
EIGUM JAFNAN TIL
GÍRMÓTORA:
Ýmsir snúningshraðar lns fasa: 3/4 - 1 1/2 hö 3ja fasa: 1/3 - 20 hö
RAFMÓTORA:
1400 - 1500 sn/mín. lns fasa: 1/3 - 3 hö 3ja fasa: 1/3 - 20 hö
Utvegum allar fáanlegar stærðir og gerðir.
FÁLKIN N
SUÐURLANDSBRAUT 8, SÍMI 84670
Hartað
banna
veitinga-
söluíBlá-
dagsins
ú---------------------------i
Finnst þór að fara eigi fram
almenn atkvæðagreiðsla um
nýgerða samninga BSRB og
ríkisins?
(Starfsmenn Pósts og sfma vifl
Austurvöll)
Astrid Jensdóttir talsimavörður: Já,
það finnst mér.
Kristbjörg Rafnsdóttir lalsimavörður:
Já, mér finnst að það ætti að fara fram
atkvæðagreiðsla um þessa samninga.
Jakob Tryggvason skrifstofumaður:
Nei, mér finnst alls engin ástæða til
þess.
Lilja Úlfsdóttir skrifstofumaður: Já, er
það ekki iýðræðislegast að láta fara
fram kosningar?
Hilmar Svavarsson tæknifulltrúi: Já, er
það ekki lýðræðislegast að láta fara
fram kosningar?
Nils Axelsson tæknifulltrúi: Já, mér
finnst það bæði eðlilegast og lýðræðis-
legast aö fram fari atkvæðagreiðsla.