Dagblaðið - 09.03.1981, Síða 4
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 9. MARZ 1981.
DB á ne ytendamarkaði
FISKISUPAN SEM ALDREIBREGZT
Veizlumatur fyrir innan 10 kr. á mann
Sennilega ættum við íslendingar
helzt aldrei að borða annan mat en
fisk. Við höfum á boðstólum bezta
fisk í heimi og getum alltaf fengið
hann glænýjan. Samt er engu líkara
en að unga fólkið vilji heldur
einhvers konar kjötmeti, jiótt
vitanlega séu til undantekningar þar
frá. — Eftir að hafa dvalið í rúmar
fjórar vikur vestur í Bandaríkjunum,
þar sem fiskur er ekki daglega á
borðum, var dásamleg tilbreyting að
koma heim og fá nýjan fisk.
Gamaldags
fiskisúpa
Umsjónarmaður Neytenda-
síðunnar tók vitaskuld með sér nýja
ýsu vestur um haf, en sóma s'tns vegna
gat hann ekki sjálfur etið alla ýsuna.
Varð að skilja eitthvað eflir handa
þeirn sent ytra búa. En síðan komið
var heim hefur nýr fiskur verið á
borðum nærri daglega. Eitt af þvi
sem okkur finnst allra bezt er soðin
lúða i fiskisúpu. Oft búum við til
„gamaldags” fiskisúpu með ediki,
rúsínum og sveskjum eins og kennt
var hjá frú Kress í Miðbæjar-
skólanum í gamla daga. Við höfum
einnig reynt eina af uppskriftunum úr
Vikunni (eftir Þórarin Guðlaugsson
yfirmatreiðslunmann á Loftleiða-
hótelinu). Hún var stórfín.
Okkar eigin fiskisúpa
Það er orðin eins konar hefð á
heimilinu að þegar útlenda gesti ber
að garði, eða landa erlendis frá, að
bjóða þeim upp á „okkar eigin
fiskisúpu”. Ekki svo að skilja að hún
sé ekki oft á borðum endranær,
raunar næstum því í hverri einustu
viku eða í það minnsta annarri
Itverri.
Við notum alltal lúðu, sent skorin
er i hæfilega slór stykki. I angbezl er
að biðja fisksalann um að gera þ;tð,
Þegar viA elduðum fiakisúpuna ( „tilrauna-
eldhúsinu" var Ijósmyndarinn vlðs fjarri. Við
verðum því að láta mynd af þessari stór-lúðu
duga með þessari fiskisúpugrein. Við notum
ekki svona stóran fisk f okkar fiskisúpur, satt
að sogja hef óg aldrei vitaö hvað gert er við
svona risafiska! -DB-mynd.
því búrhnífar heimilisins vinna ckki
nógu vel á lúðubeinunum. —
Fiskurinn er soðinn í söltuðu vatni,
með nokkrum lárberjablöðum. Gott
er að krydda fiskinn með svörtum
pipar (möluðum).
Ef búa á til mikið magn af súpu
bökum við hana upp. Ef aðeins á að
nota lítið magn, eins og t.d. handa
fjórum, hrærum við hveitijafningi út
í. Við erum ekki enn orðin svo for-
frömuð á matreiðslubrautinni aðgeta
notað aðferð frönsku meistaranna að
þykkja súpur með rjóma eingöngu.
Það finnst okkur einnig of dýrt.
Höfum hins vegar notað þá aðferð
stöku sinnum við sósugerð og gefizt
mjög vel.
Aukakraftur
nauðsynlegur
Þótt við segjum sjálf frá þá er
þessi fiskisúpa alveg frábærlega góð,
en nauðsynlegt er að nota i hana
aukakraft. Við erum sérlega hrifin af
Toro dufti sem við notum í allt sem
Eina
búðin
hérlencflis
sem lagar
og selur...
tegundir af
lifrarkæfu
Kjötbúð
Suðurvers Simi 35645
kynnir eigin framleiðsiu
Grófhökkuð
áleggskœfa,
ein sú allra hez.ta of>
Óbökuö
lifrarkœfa
Bakið sjálf hcima o)> berið kæfitna
hcita fram scm forrétt, einnig frábær
scm álegg. Tvær stærðir, ca 250 gr og
500 gr.
Verzlió hjá vióur-
kenndum kjötidnaðar
mönnum
nöfnum tjáir að nefna, meðal annars
fiskisúpuna.
Einnig notum við örlitið af
hvitlauksdufti (það má ekki vera of
mikið — verður að vera hárná-
kvæmt), svartan pipar, salt (auðvitað
íslenzkt), aromat, edík og siðan soðið
af rúsínunum og sveskjunum sem
búið var að sjóða i um það bil hálf-
tíma í svolitlu vatni. Vera má að
e.t.v. þurfi að bæta örlitlu magni af
sykri í súpuna, en það fer að sjálf-
sögðu eftir smekk hvers og eins.
Eigin kartöflur með
Siðan við tókum
kartöfluræktunina i eigin hendur
höfum við soðnar steinseljukartöflur
með og einnig bráðið smjör (verður
að vera ekta smjör). Það er hins veg-
ar mesti óþarfi, en eigin heima-
ræktaðar kartöflur og íslenzkt smjör
með glænýrri lúðu — nammi
namm. Ég fæ alveg vatn í munninn
við tilhugsunina eina saman.
Og verðið? Á dögunum keyptum
við lúðu fyrir 78 kr. Hún dugði
handa átta manns. Afgangurinn var
látinn i tvö form með hlaupi (aðeins
lúða og hlaupið). Það dugði í mat
handa fimm manns (og vel borðað).
Reikna má með sveskjum og rúsínum
fyrir um það bil 16 kr. Krydd og
hveiti má reikna á um það bil 50
aura, þannig að heildarkostnaðurinn
við þessa lúðumáltið, sem í
rauninni dugði sem vel úti látinn há-
degisverður fyrir tólf manns var
94.50 kr., eða um 8 kr. á ntann.
-A.Bj.
Svona fcr fyrir kjíiklingunum i Bandaríkjunum. Frá cggi að stcikarofni cru stöðugar sprautur og náktæmt cftirlit
Bandaríkin
Hormónum og lyfjum dælt í kjúklingana
Þeir Bandaríkjamenn, sem vilja
fylgjast með því hvað þeir láta ofan í
sig, hafa nú vaxandi áhyggjur af því
að kjúklingar eru ekki það sem þeir
voru þar í landi. Frá því
kjúklingurinn verður til í eggi sínu og
þar til hann er kominn á borð neyt-
enda, um 8 vikum síðar, er sífellt
verið að gefa honum hormóna og lyf
I einu formi eða öðru. Talið er að á
þessum átta vikum fái kjúklingurinn
alls um 20 tegundir af fúkkalyfjum,
hormónum og vítaminum sem eiga
að auka vöxtinn og koma 1 veg fyrir
dauðsföll sem ekki eru ákveðin af
slátraranum.
í nýlegu bandarísku blaði er
einmitt löng grein um þetta mál. Þar
er sagt að kjúklingurinn fái meira að
segja meðferð áður en hann verður
til, því hænan, móðir hans, er alin á
hormónum og lyfjum til þess að
„framleiða” betri unga og hraustari.
Þegar litla greytð kemur svo út úr
egginu er það sprautað stöðugt með
hvers kyns lyfjum og þeim jafnframt
blandað saman við fæðu þess.
Kjúklingunum eru einnig gefnir
hormónar til þess að auka vöxtinn og
til þess að gera þá fallega gula á
litinn. Þá fæst betri skorpa í
steikingunni. Nákvæmlega er fylgzt
með þeim allan vaxtartímann og séð
um að þeir fái sprauturnar sínar á
réttum tíma og svo framvegis. Öll
lyfin sem þeir fá eru samþykkt af
matvæla- og lyfjaeftirliti Banda-
ríkjanna á þeirri forsendu að ef
þeirra nyti ekki við myndi
framleiðslan minnka um 80%. Það
þarf ekki nema einn kjúkling með
smitsjúkdóm í risabúi til þess að allir
hinir fái hann. Sett eru þau skilyrði
að hætta verði að gefa fuglunum
sum lyfin I tiltekinn tima áður en
þeim er slátrað til þess að koma í veg
fyrir að þeir sem borða fuglana, fái
krabbamein.
Ekki hér:
Páll A. Pálsson yfirdýralæknir
var spurður að þvi hvort kjúklingar
hér Íandi fengju svipaða meðferð.
Hann kvað nei við því. Hér væru
þessi lyf öll háð ströngum reglum og
kjúklingabændur fengju þau ekki í
hendur, enda væri sem betur fer
þannig ástatt hjá okkur að þessir
sjúkdómar þekktust ekki í sama mæli
og víðast annars staðar. Okkur hefði
tekizt að koma i veg fyrir að alvar-
legustu sjúkdómarnir næðu fótfestu í
landinu og vildi Páll þakka það
hömlun á eggjainnflutningi. ,,Við
erum yfirleitt á eftir nágrönnum
okkar í öllum efnum. í þessu tilfelli
er það gott, ” sagði Páll. -DS.
UpplýsingaseðiU
til samanDuiðar á heimiliskostnaði
Hvað kostar heimilishaldið?
Vinsamlcga scndið okkur þcnnan svarseðil. Þannig cruð þcr orðinn virkur þátttak-
andi I upplýsingamiðlun mcðal almennings um hvcrt sé meðaltal heimiliskostnaðar
fjölskyldu af sömu stærð og yðar. Þar að auki eigið þér von um að fá nytsamt hcimilis-
tæki.
Nafn áskrifanda
Heimili
Sími
Fjöldi heimilisfólks.
Kostnaður í febrúarmánuði 1981.
Matur og hreinlætisvörur kr.____
Annað
kr.
Alls. kr.
m vmw
i