Dagblaðið - 09.03.1981, Síða 8
FYRIRLIGGJANDI
YÐAR EIGIN BANKAHÓLF
Eldtraustir peningaskápar
með þjófavarnarhringingu.
Vœntanlegir 3744 kr. 3618 kr. 3333 kr.
RAFIÐJAN
Kirkjustræti 8 Sími 19294
C PRENTARAR >
PRENTSMIÐJUEIGENDUR
Ryobi 2800
Japönsk hönnun
Japönsk gæði
Sýni næstu 3 vikurnar
Ryobi 2800 offsetprentvél.
Nánari uppl. í síma 54666.
Prentvörur Reykjavíkurvegi 62 Sími 54666
Kúrekastígvél
a dömur
og herra
aiiwith
realIeather
ru
Keime
Utur: Hvitt laöur
vmrOkr,
564,85
'M
Postsendum
SKOVERZLUN
ÞORÐAR PETURSSONAR
Laugavegi 95 — Sími 13570 — Kirkjustræti 8 v/Austurvöll — Simi 14181
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 9. MARZ 1981.
I
Erlent
%
Erlent
Flugvélarræningjar halda enn 111 farþegum ígíslingu:
Ekkja Bhuttos
tatin í vitorði
með ræningjunum
— pakistanska flugvélin er komin til Damaskus
Sýrlenskir embættismenn hafa haft
talstöðvasamband við flugvélaræn-
ingjana þrjá sem komu í nótt til
Damaskus með flugvélinni sem þeir
rændu í innanlandsflugi í Pakistan.
Þeir halda enn 111 farþegum í gísl-
ingu og einn myrtu þeir meðan flug-
vélin hafði viðdvöl í Kabúl.
Vika er nú liðin frá því að ræningj-
arnir rændu vélinni sem var í innan-
landsflugi í Pakistan. Þeir hafa kraf-
izt þess að um nitíu fangar, sem eru í
haldi í fangelsum í Pakistan, verði
látnir lausir.
Ríkisstjórn Pakistan hefur lýst því
yfir að hún muni senda samninga-
nefnd til Damaskus til viðræðna við
ræningjana sem hótuðu að sprengja
flugvélina í loft upp í Kabúl í gær ef
ekki yrði gengið að kröfum þeirra.
Til þess kom þó ekki.
Ekkja Bhuttos fyrrum forsætisráð-
herra Pakistan var handtekin í gær,
grunuð um að vera í vitorði með
ræningjunum. Stjórnvöld hafa þó
ekki viljað viðurkenna að handtaka
hennar standi í sambandi við flug-
vélarránið en halda því fram að sonur
Bhuttos, Murtaza, stjórni ræningjun-
um. Dóttir Bhuttos og þrjátíu aðrir
félagar í Þjóðarflokki Bhuttos hafa
og verið handteknir.
Ræningjarnir segjast tilheyra Al-
Zulfikar hreyfingunni, sem verndi
hina fátæku í Pakistan.
Karl Bretaprins er að vonunt léttur i spori þessa dagana enda búinn að tryggja sér kvonfang sent brezka þjóðin hefur virzt
ákallega ánægð með. Myndirnar hér að ofan ;ýna Karl taka nokkur létt dansspor fyrir Ijósmyndara. Nú hefur verið ákveðið
að hjónavigsla hans og lafði Diönu Spencer fari fram 29. júli tiæstkomandi i St. Pauls kirkjunni í London en ekki í West-
minster Abbey eins og tenjan hefur verið með konungleg brúðkaup. Ástæðan til þessarar breytingar ntun vera sú, að búizt er
við ntun fleiri gcstum nú en við önnur konunglcg brúðkaup.
HESSFÆRÁFRAM
AÐ DÚSA
Æðsti dómstóll Vestur-Þýzkalands
hefur hafnað kröfu um að rikisstjórn
Vestur-Þýzkalands verði þvinguð til
að krefjast náðunar til handa hinum
Rudolf Hess,
INNI
86 ára gamla Rudolf Hess, fyrrum
staðgengli Hitlers.
Áður hafði dómstóllinn í Miinster
hafnað sömu kröfu árið 1979 sem
lögfræðingur Hess, Alfred Seidl
fyrrum innanríkisráðherra í Bayern,
setti fram.
Hann hélt því fram að Hess ætti
sem þýzkur ríkisborgari að njóta
réttarverndar gagnvart útlandinu.
Hann hélt því einnig fram, að stríðs-
glæparéttarhöldin i Nurnberg hefðu
ekki byggt á neinum lögum og
dómurinn yfir Hess hefði því ekkert
gildi. Sýknun væri því eðlileg, ekki
aðeins frá mannúðarsjónarmiði
heldur einnig í réttarlegu tilliti. Seidl
hélt því og fram að vestur-þýzka
stjórnin ætti að krefjast þess að
Mannréttindadómstóllinn tæki málið
upp.
Hess hefur setið i Spandaufangels-
inu síðan 1946, síðustu tólf árin al-
einn.
Gensher
og Reagan
ræðast við
Hans-Dieter Genscher, utanríkisráð-
herra V-Þýzkalands, sem kominn er til
Bandaríkjanna mun hitta Ronald
Regan forseta að máli í dag. Er búizt
við að hann muni láta í ljós áhyggjur
vegna kólnandi sambúðar Bandaríkj-
anna og Sovétríkjanna og hvetja til
þess að viðræðum stórveldanna um
afvopnunarmál verði haldið áfram.
Helmut Schmidt kanslari V-Þýzka-
lands hvatti Reagan í gær til að taka
boði Bréznefs, forseta Sovétríkjanna,
um fund leiðtoga Bandaríkjanna og
Sovétríkjanna.