Dagblaðið - 09.03.1981, Blaðsíða 9
DAGBLAÐIÐ. MANUDAGUR 9. MARZ 1981.
I
Erlent
Erlent
Erlent
Erlent
i
Kkkert lát virðist ætla að verða á morðöldunni i Atlanta í Bandarikjunum. Nú fyrir
heluina fannst lík enn eins blökkubarns og eru þau þá orðin tuttugu. Lögreglan
stendur enn sem fyrr ráðþrota og veit ekki, hvort öll morðin eru framin af sama mann-
inum. Morðin eiga það sameiginlegt, að öll fórnarlömbin hafa verið svört börn á aldr-
inum sjö til fimmtán ára. Útgöngubann er i gildi í Atlanta eftir klukkan sjö á kvöldin
fyrir börn undir sautján ára aldri en allt kemur fyrir ekki. Börnin hverfa jafnt um
miðjan dag.
MINNINGARPLATA
UM JOHN LENNON
Nú er hins vegar fullyrt að margar af
þekktustu rokkstjörnum heimsins
muni sameina krafta sína til heiðurs
Lennon og gefa saman út plötu í minn-
ingu Bítilsins fyrrverandi, sem myrtur
var í New York 8. desember sl. Meðal
þeirra, sem spila munu inn á plötuna
eru nefndir Rod Stewart, Eric Clapton,
Keith Richard úr Rolling Stones og
Bitlarnir fyrrverandi Ringo Starr og
Paul McCartney.
Allur ágóði af plötunni á að renna til
friðarsjóðs Yoko Onos og John Lenn-
on.
Þá munu þau Yoko Ono og hinn
sautján ára gamli sonur Johns Lennon,
Julian, nú vinna saman að því að ljúka
við LP-plötu sem Lennon var að vinna
að þegar hann var myrtur.
Stjórn Scmidts
tapar fylgi sínu
Enn á ný er fullyrt í erlendum
blöðum að í bígerð sé að gefa út minn-
ingarplötu um hinn látna Bítil John
Lennon. Nýlega var greint frá því að
Bítlarnir þrír sem eftir lifa hygðust gefa
út slíka plötu. Því hefur Bítillinn Paul
McCartney neitað staðfastlega og sagt
að Bítlarnir muni aldrei koma saman
framar.
John Lennon.
Skoðanakannanir' sýna að fylgi sam-
steypustjórnarinnar í Vestur-Þýzka-
landi hefur dvinað mjög síðan hún
vann kosningasigur sinn i október-
mánuði síðastliðnum.
Skoðanakönnun Wickert-stofnunar-
innar sýnir að Jafnaðarmannaflokkur
Helmuts Schmidt kanslara fengi nú
aðeins 38,2 prósent atkvæða í stað 42,9
prósent í kosningunum í október.
Hinn stjórnarflokkurinn, Frjálslyndi
flokkurinn (FDP), fengi nú 10,1 pró-
sent i stað 10,6 í kosningunum.
Samkvæmt skoðanakönnuninni
ættu kristilegir demókratar nú að fá
48,5 prósent í stað 44,5 prósent í kosn-
ingunum, sem var lakasti árangur
þeirra siðan sambandslýðveldið var
stofnað árið 1949.
Niðurstöður skoðanakönnunarinnar
eru taldar endurspegla óánægju kjós-
enda með deilur þær sem eru innan
Jafnaðarmannaflokksins um varnar-
mál, vopnasölu og stefnu í orkumálum. Helmut Schmidt
Erlendar
fréttir
RAFMAGNSSTÓLUNN
í NOTKUN AÐ NÝJU
—fjórða aftakan í Bandaríkjunum síðan 1967
Prestar og aðrir andstæðingar ekki mann deyða. Steven Judy hefur sú fjórða sent fram fer síðan 1967.
dauðarefsingar i Bandaríkjunum lýst því yfir að hann óski eftir því að Siðastur var tekinn af lífi Jesse
söfnuðust í nótt fyrir framan rikis- fá að deyja. Hann var dæmdur til Bishop i október 1979. Hann lét lífið
fangelsið i Indiana þar sem 24 ára dauða fyrir að hafa nauðgað og myrt í gasklefa í Nevada.
gamall morðingi, Steven Judy, beið unga móður og drekkt fjórum börn-
þess að láta lifið i rafmagnsstól. Af- um hennar. Á sama tíma og prestarnir mót-
taka hans átti að fara fram fyrir dög- mæltu dauðarefsingunni var fundur
un í morgun. Dauðarefsingu hefur ekki verið haldinn í hinum enda borgarinnar
Prestarnir héldu á logandi kertum beitt oft í Bandaríkjunum á undan- Þar sem krafizt var aukinnar beit-
og skiltum með áletruninni: Þú skalt förnum árum og verður aftaka Judys >ngar dauðarefsingar.
___Jil viðskiptamanna__
banka og sparisjóóa
Verðtryggð
spariinnlán
til 6 mánaða
Innstæða óhreyfð í 6 almanaksmánuði er að fullu
verðtryggð í hlutfalli við breytingu lánskjaravísitölu
og ber auk þess 1 % ársvexti.
Verðbæturnar færast mánaðarlega á innlánin.
Innstæða er sjálfkrafa laus til útborgunar einn
almanaksmánuð á sex mánaða fresti, óski eigandi
að ráðstafa henni.
Vakin er sérstök athygli á því, að frá 1. apríl geta
eigéndur bundinna innlánsreikninga flutt innstæður
sínar án uppsagnar inn á 6 mánaða verðtryggð inn-
lán. Beiðnir um slíka flutninga mega nú berast í
marsmánuði, vegna vísitölutryggingar í apríl. Eig-
andi verður sjálfur að koma í stofnunina (eða maður
með skriflegt umboð hans) til þess að sjá um flutn-
inginn.
Reglur um 3ja mánaða vaxtaaukainnlán eru þó
óbreyttar og kalla á uppsögn sem fyrr.
Binditími tveggja ára verðtryggðra reikninga er
stofnaðir voru frá 1. júlí 1980 hefur verið styttur í sex
mánuði og falla þeir sjálfkrafa undir sex mánaða
verðtryggð spariinnlán.
Starfsfólk banka og sparisjóða er reiðubúið með leið-
sögn, og skriflegar upplýsingar liggja frammi.
6. mars 1981
Samvinnunefnd bankaog sparisjóóa-'