Dagblaðið - 09.03.1981, Síða 15
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 9. MARZ 1981.
1
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Ljótt tap Dortmund og vonin
um UEFA-sæti dvínar frekar
— Hamborg náði tveggja stiga forystu í Bundesligunni um helgina
D
Frá Hilmar Oddssyni, fréttaritara
DBí Miinchen:
Óvæntustu úrslitin í Bundesligunni í
langan tima áttu sér stað á laugardag er
Bayer Leverkusen tók meistara Bayern
Miinchen í kennslustund og sigraði 3—
0. Sigurinn var fyrir margra hluta sakir
merkilegur, m.a. þær að Leverkusen
hafði ekki sigrað í síðustu 12 leikjum
sínum og svo að öll mörkin komu á
fyrstu 24 minútum leiksins. Það var
Norðmaðurinn Lars Arne Ökland, í
liði I.everkusen, sem stal gersamlega
senunni gegn Bayern. Hann átti stór-
leik og fékk 6 í einkunn hjá BILD fyrir
frammistöðu sína. Ofan á ailt skoraði
hann öll mörkLeverkusen. Það fyrsta á
4. mínútu af vítateig og siðan bætti
hann öðru við á 19. minútu. Þrennuna
fullkomnaði hann siðan á 24. minútu
með skalla. Leikmenn Bayern vissu
ekki hvaðan á þá stóð veðrið en hinir
16.000 áhorfendur í Leverkusen, út-
borg Köinar, léku á als oddi. Að sögn
þýzkra fjölmiðla var leikurinn mjög
góður og aðeins vantaði betri
frammistöðu Bayern til að hann yrði
frábær. Við þessi úrslit náði Hamborg
tveggja stiga forskoti i baráttunni um
meistaratitilinn með sigri gegn
Mönchengladbach, en hér koma úr-
slitin:
Leverkusen-Bayern 3—0
Hamborg-Gladbach 2—1
1860 Miinchen-Frankfurt 0—2
Bochum-Köln 1 — 1
Duisburg-Kaiserslautern 1—1
Karlsruhe-Núrnberg 4—1
Bielefeld-Dortmund 1—0
Shcalke04—DOsseldord 0—4
Stuttgart-Uerdingen 3—2
Hamborg náði tveggja stiga forskoti
með sigri á Gladbach að viðstöddum
25.000 áhorfendum. Ivan Buljan náði
forystunni fyrir HSV á 29. mínútu eftir
homspyrnu Kaspar Hemering og á 42.
mínútu bætti Eelix Magath öðru marki
Hamborgar við eftir fyrirgjöf
Memering. Hannes minnkaði muninn
fyrir Gladbach á 70. minútu úr víta-
spyrnu, en sigur Hamborgar var
öruggur þrátt fyrir að Jakobs og
Hrubesch lékju ekki með.
Gengi Borussia Dortmund hefur
verið slakt undanfarið og engin
breyting varð á á laugardag. Þá mátti
Dortmund þola 0—1 tap fyrir Bielefeld
á útivelli. Bielefeld er neðst í Bundes-
ligunni eins og er og hefur reyndar
Sú svissneska í
algerum sérflokki
Svissneska stúlkan, Denise
Biellmann, sigraði með nokkrum yfir-
burðum i heimsmeistarakeppninni í
listhlaupum á skautum í Hartford í
Connecticut í Bandaríkjunum á laugar-
dag. Hún varð Evrópumeistari i
Innsbruck á dögunum. í öðru sæti í
keppninni á laugardag varð bandaríska
stúlkan Elaine Zayak — rúmum
þremur stigum á eftir þeirri svissnesku
— en rétt á undan Claudiu Kristofics-
Binder, Austurríki. í fjórða sæti varð
Debbie Cottrill, LBretlandi. Fimmta
varð Katarine Witt, Austur-Þýzka-
landi, en finnska stúlkan Kristina
VVeglius varð i sjötta sæti.
Eyja-Þór aftur
upp í 2. deild
— eftir 13-12 sigur á Gróttunni
Þórarar úr Eyjum tryggðu sér sæti
sitt f 2. deildinni á nýjan leik er þeir
sigruðu Gróttu 13—12 í sannkölluðum
úrslitaleik i Eyjum á föstudagskvöld.
Áður hafði Stjarnan tryggt sér sæti í 2.
deildinni fyrir nokkru en jafntefli í
þessari viðureign hefði að líkindum
dugað Gróttumönnum til sætis í 2.
deild eftir 18—18 jafntefli gegn
Sljörnunni um fyrri helgi.
Það var Herbert Þorleifsson, sem
var stjarna Þórarar á föstudag. Hann
Tap hjá Viggó
og Gústa
Svavars
Viggó Sigurðsson og lið hans, Bayer
Leverkusen, fékk skell á heimavelli
sinum á laugardag, er Uðið mætti
Grosswallstadt. Gestirnir sigruðu 17—
13, en önnur úrslit i Bundesligunni
urðu þessi:
Milbertsh.-Heppenheim 18—17
Kiel-Göppingen 18—16
Hiittenberg-Nettelstedt 18—14
Gunzburg-Hofweier 18—18
Gummersbach-Dietzenbach 23—16
-HO, Munchen.
lék þarna sinn 100. leik með félaginu og
að þeim loknum hefur hann skorað 303
mörk og 300. mark hans var einmitt 9.
mark Þórs í leiknum. Herbert hefur
leikið alla meistaraflokksleiki Þórs frá
því félagið hóf að leika í deilda-
keppninni 1976 — sannkallaður mátt-
arstólpi. Herbert fór á kostum þegar
mest reið á og skoraði 4 af 6 síðustu
mörkum Þórara.
Þór fékk óskabyrjun og komst í 5—
2, en skoraði síðan ekki mark í næstu
15 mínútur og Grótta lagaði stöðuna í
4—5 fyrir leikhlé. Strákarnir af nesinu
mættu síðan tvíefldir til leiks í síðari
hálfleiknum og komust í 10—7, en þá
var komið að þætti Herberts, sem áður
er lýst. Hann skoraði sigurmark Þórs er
44 sek. voru til leiksloka og þrátt fyrir
ákafar tilraunir í þá átt tókst
Gróttunni ekki að jafna metin.
Mörkin. Þór: Albert Agústsson 5,
Herbert Þorleifsson 4, Böðvar
Bergþórsson 3, Óskar Brynjólfsson 1.
Grótta: Sverrir Sverrisson 6, Jóhann
Pétursson 3, Jóhannes Gunnarsson 2
og Gauti Grétarsson 1. Rétt er að geta
markvarðanna hjá liðinum en þeir
Sigmar Þröstur hjá Þór og Ragnar
Halldórsson I marki Gróttu vörðu
geysilega vel, báðir m.a. tvö vítaköst.
-FÓVASSv.
Þór og KR
leika íkvöld
Einn leikur fer fram i bikarkeppni HSÍ
í kvöld. Mætast þá Þór og KR í Eyjum
og hefst leikur liðanna kl. 201 '
vermt botninn í allan vetur. Það var
Sackewitz sem skoraði eina mark
leiksins á 78. mínútu. Atli Eðvaldsson
var tekinn útaf á 65. mínútu en fékk á-
gæta dóma fyrir leik sinn. Dortmund
hrapaði við tapið úr 7. sæti í það 9. og
vonirnar um UEFA-sætið eru orðnar
litlar.
Schalke 04 steinlá á heimavelli
sínum fyrir Dússeldorf og kom tapið
verulega á óvart eftir gott gengi liðsins
undanfarið. Klaus Allofs kom
Dússeldorf á bragðið á 13. minútu og
bróðir hans, Thomas, bætti öðru
marki við á 35. mínútu. Tvö mörk
Weikl i síðari hálfleiknum innsigluðu
öruggan sigur hinum 38.000 áhorf-
endum til vonbrigða.
Geysilegt fjör var i Stuttgart loka-
kafla leiks heimamanna og Uerdingen.
Strax á4. mínútu varði Höselbach víta-
spyrnu Hans Múller, en Stuttgart náði
forystu á 29. min. með marki Szatmari.
Síðan kom ekki mark fyrr en á 72.
mín., er Múller bætti öðru marki Stutt-
gart við. Mínútu siðar svaraði Hofman
fyrir Uerdingen og á 85. mínútu
jafnaði hin 39 ára gamla kempa Sigi
Held. Sælan varð þó skammvinn því
Túfecki tryggði Stuttgart bæði stigin
mínútu síðar.
Nickel skoraði bæði mörk
Frankfurt í Múnchen þar sem 32.000
áhorfendur horfðu á 1860 leika. Áhorf-
endur eru oft lítið færri á leikjum 1860
en Bayern. Tony Woodcock skoraði
mark Kölnar gegn Bochum fyrir hverja
Blau svaraði. Manfred Dietz skoraði
mark Bochum, en Melzer jafnaði fyrir
Kaiserslautern. Wiesener skoraði fyrst
fyrir Karlsruhe áður en Oberracher
jafnaði fyrir Núrnberg. Mörk frá þeim
Eder (sjálfsmark), Bold og Gross
tryggðu Karlsruhe, sem tekið hefur
geysilegt stökk að undanförnu, örugg-
an sigur.
í 2. deildinni léku bæði Homburg
og Fortuna Köln. Fortuna sigraði
Hannover 96 3—0 á sama tíma og
Homburg steinlá heima fyrir Bayreuth
1—3. Gengi Fortuna er afar skrykkjótt
— hreint óútreiknanlegt lið
Staðan í Bundesligunni:
Hamborg 23 16 4 3 53—25 36
Bayern 23 14 6 3 55—32 34
Stuttgart 22 11 6 5 44—31 28
Frankfurt 23 1 6 6 43—35 28
Kaiserslautern 21 10 6 5 39—35 26
Köln 23 9 7 7 41—35 25
Karlsruhe 23 7 10 6 36—40 24
Bochum 22 6 11 5 36—29 23
Dortmund 23 8 7 8 46—40 23
Gladbach 22 8 5 9 38—43 21
Duisburg 23 6 8 9 29—36 20
Leverkusen 22 5 9 8 31—34 19
Dússeldorf 23 6 7 10 42—47 19
Núrnberg 23 7 4 12 34—42 18
Uerdingen 23 6 5 12 36—46 17
1860 Múnchen23 6 5 12 32—47 17
Schalke04 23 5 6 12 33—63 16
Bielefeld 23 4 6 13 31—49 14
Sigi Held, sem lék með Þjóöverjunum í
HM-keppninni í Englandi 1966, lætur
ekki á sjá þrátt fyrir 39 ár að baki. og
skoraði annað marka Uerdingen gegn
Stuttgart.
Brezka parið sigraði
Enska parið Jayne Torvill og
Christofer Dean frá Nottinham urðu
heimsmeistarar i ísdansi á heimsmeist-
aramótinu i Hartford í Bandarikjunum
á föstudagskvöld. í öðru sæti urðu
Irina Moisseeva og Andrei Minenkov,
Sovétríkjunum og í þriðja sæti Judy
Blumberg og Michael Seibert, Banda-
ríkjunum. Sovézk pör urðu i fjórða og
sjötta sæti en I .indariska parið, Carol
Fox og Richard Dalley, i fimmta sæti.
Karen Barber og Nicholas Slater,
Rretlandi, i sjöunda sæti.
FERÐAÞJÓNUSTA Á ÍSLANDI
RÁÐSTEFNA
Á HÓTEL LOFTLEIÐUM12. MARZ1981
DAGSKRÁ
Kl.
12.15—13.00 Hádegisverður í Víkingasal
13.00—13.30 Ávarp:
Steingrímur Hermannsson,
samgönguráðherra.
Kristalssalur:
13.30— 14.00 Skilyrði til ferðaþjónustu á
tslandi: Steinn Lárusson, for-
maður FÍF.
14.00—14.30 Þáttur ferðaþjónustu í þjóðar-
búskap tslendinga: Bjarni Snæ-
björn Jónsson, hagfræðingur
Ví.
14.30— 15.30 Framtíð ferðaþjónustu —
möguleikar Íslands sem ferða-
mannalands: Heimir Hannes-
son, formaður Ferðamálaráðs,
Sigurður Helgason, forstjóri
Flugleiða hf., Áslaug Alfreðs-
dóttir, formaður SVG.
15.30— 17.30 Kaffi.
Álmennar umræður.
Ályktanir.
17.30 Ráðstefnuslit.
Siuurður
ÁslauK
Vinsamlegast tilkynn-
ið þátttöku til Verzl-
unarráðs íslands í
síma 11555.
FEL ÍSL.
FERÐASKRIFSTOFA
VERZLUNARRÁÐ
ÍSLANDS