Dagblaðið - 09.03.1981, Qupperneq 16
16
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 9. MARZ 1981.
íþróttir
Iþróttir
iþróttir
íþróttir
Iþrótt
Celtic og
Rangers í
undanúrslitin
Stóru Glasgow-félögin tryggðu sér
auðveldlega rétt í undanúrslit skozku
bikarkeppninnar um helgina. Úrslit
urðu þessi.
DundeeUtd.—Notherwell 6—1
Rangers—Hibernian 3—I
Cellic—East Stirling 2—0
Morton—Clydebank frestað
Úrslit í úrvalsdeildinni urðu þessi.
Aberdeen-Hearts 4—1
Airdrie—Partick 2—0
St. Mirren—Kilmarnock 1—1
Gunnar var
kjörinn beztur
Á lokahófi KKÍ, sem fram fór að
Hótel Sögu á laugardagskvöld voru
nokkrum einstaklingum afhent verð-
laun, eins og venja hefur verið hjá sam-
bandinu mörg undanfarin ár. Garðar
Jóhannsson, KR, varð stigahæsti leik-
maðurinn (þ.e. af Íslendingunum) á
mótinu, Gunnar Þorvarðarson var
kjörinn bezti íslenzki leikmaðurinn,
Danny Shouse hlaut titilinn „bezti”.
Vítaskylta varð Kristján Ágústsson og
Jónas Jóhannesson hlaut titilinn
„prúðasti leikmaðurinn”. Þá hlaut Jón
Otti Ólafsson verðlaun sem bezti dóm-
arinn. Ennfremur veitti Karfan Gunn-
ari Þorvarðarsyni verðlaun, sem „mosl
valuable player”. -SSv.
Úrslit
á Englandi
Þrir lcikir voru háðir í ensku deilda-
keppninni í gær, sunnudag. Úrslit urðu
þessi.
3. deild
Millwall—Reading 2—I
4. deild
Bradford—Rochdale 2—I
Darlington—Hereford 2—I
Ingi fékk
gullmerki
Það voru fleiri en leikmenn, sem
voru heiðraðir á lokahófi KKÍ. Ingi
Gunnarsson fékk gullmerki KKI fyrir
frábær störf i þágu körfuknattleiksins
hérlendis og eftirtaldir hlutu silfur-
merki: Guðmundur Sigurðsson,
Borgarnesi, Hörður Tulinius, Akur-
eyri, Helgi Hólm, Keflavík, Guðrún
Ólafsdóttir, ÍR, Birgir Örn Birgis, Jón
Otti Ólafsson og Sigurður Helgason,
Valsmaður með miklu meiru. -SSv.
Austurrfsk
stúlka vann
íbruni
Austurriska stúlkan Elizabet Kirchl-
er varð sigurvegari i brunkeppni
kvenna i heimsbikarnum í Aspen í
Bandarikjunum á laugardag. Keppni
var mjög hörð. Úrslit.
1. E. Kirchler, Austurr. 1:25.07
2. R. Mösenlechner, V-Þýzkal. 1:25.12
3. Cindy Nelson, USA, 1:25.16
4. Holly Flanders, USA, 1:25.38
5. Sylvia Eder, Austurr. 1:25.65
Maria-Theresa Nadig, Sviss, hefur
fyrir löngu sigrað i keppni heimsbikars-
ins. Hefur hlotið 275 stig. í öðru sæti er
einnig svissnesk stúlka, Erika Hess með
201 stig. Hanni Wenzel, Lichtenstein,
sem sigraði i þessari keppni í fyrra og
var fremst allra á ólympíuleikunum í
Lake Placid, er komin i þriðja sæti ineð
172 stig. Hún hafði ákveðið að hætta
keppni. Snerist hugur en það var of
seint til þess hún gæti varið titil sinn. í
fjórða sæti er Perrine Pelen, Frakk-
landi, 167 stig. Síðan kemur Kinshofer
Vestur-Þýzkalandi, með 165 stig.
Irene Epple, V-Þýzkalandi, hefur 162
stig og Christin Cooper, USA, er í sjö-
unda sæti með 161 stig. Fabienne
Serrat, Frakklandi, hefur 153 stig og
siðan koma bandarísku stúlkurnar
Tamara McKinney og Cindy Nelson
með 135 stig hvor.
íslandsmeistarar Njaróvíkinga í 5. flokki ásamt þjálfara sínum. Aftari röö frá vinstri:
Halldór Jónsson. Viktor lljartarson, Jón Magnússon, Eövarö Eðvarðsson, Hrann-
ar Arason, Kristinn Einarsson, fvrirliði, og Danny Shouse, þjálfari liðsins. Fremri röð
frá vinstri: Helgi Arnarsson, 'l'eitur Örlygsson, Lárus Gunnarsson og Árni Arason.
Stór dagur í Niðurlöndum:
Pétur, Arnór og
Karl skoruðu allir
„Það var vissulega gaman að skora
mark eftir hina löngu bið,” sagði Pétur
Pétursson, glaður i bragði í gærkvöld,
er DB ræddi við hann að heimili hans i
Puttershoek, úthverfi Rotterdam.
„Mér tókst að skora með góðum skalla
á 13. minútu eftir hornspyrnu og
hafnaði boltinn efst í markhorninu —
nokkuð gott mark að mér fannst,”
sagði Pétur ennfremur. Feyenoord
náði forystu með þessu marki Péturs en
Roda jafnaði innan skamms. Þjóðverj-
inn Kaczor náði forystu fyrir Feye-
noord fyrir hlé en Roda jafnaði er langt
var liðið á leikinn.
Úrslitin í Hollandi urðu þessi:
Sparta—Utrecht 2—3
Deventer—Willem 11 4—2
Roda—Feyenoord 2—2
Wageningen—Twente 0—1
NAC Brcda—Maastricht 4—0
PSV Eindhoven—Ajax 3—1
Excelsior—NEC Nijmegen 2—0
Groningen—PEC Zwolle 4—2
Den Haag—AZ '67 0—4
AZ ’67 er gersamlega óstöðvandi og
vann Den Haag auðveldlega með
mörkum Nygaard, Tol, Kist og
Jonkers. Þá sigraði PSV Eindhoven
Ajax með mörkum Paul Postuma, sem
skoraði tvívegis og Jan Poortvliet.
Daninn Sören Lerby skoraði eina mark
Ajax. AZ ’67 hefur nú 41 stig úr 21 leik
— hefur aðeins tapað einu stigi I vetur.
Feyenoord kemur næst með 32 stig úr
22 leikjum og síðan Utrecht með 30 stig
úr 21 leik. Þar á eftir eru svo PSV og
Twente með 25 stig úr 21 leik.
Belgía
Arnór Guðjohnsen skoraði annað
marka Lokeren gegn Courtrai á útivelli
en það dugði skammt því heim;l ið
sigraði 4-2. Standard Liege Ásgeirs
Sigurvinssonar tapaði aftur — nú 0-2.
fyrir Beveren. Fyrra mark Bevern var
hreinn klaufaskapur hjá markverði
Standard — knötturinn hoppaði yfir
hann eftir langa stungusendingu fram
völlinn.
Blakið umhelgina:
ÍS og Hveragerði
áf ram f bikarnum
Litið var um að vera á blaksviðinu
um helgina. í bikarkeppninni átlu tveir
leikir að fara fram, í Neskaupstað léku
heimamenn við lið Stúdenta og var þar
um einstefnu að ræða. ÍS vann yfir-
burðasigur 3-0.
í Hveragerði áttu heimamenn að
leika við Víkinga. Víkingur mætti ekki
til leiks og úrskurðaði dómarinn því
Hvergerðinga sigurvegara eins og lög
gera ráð fyrir. Auk þess að útvega hús
undir leikinn höfðu Hvergerðingar
boðizt til að greiða helming ferðakostn-
aðar Víkingsliðsins en Víkingarnir
kröfðust þess að Hvergerðingar borg-
uðu hann að fullu.
Leikurinn átti að fara fram sl. mið-
vikudag í Reykjavík en var þá frestað
vegna ófærðar. Sömdu liðin sama dag
um að leika þennan leik næsta sunnu-
dag, þ.e.a.s. í gær, í Hveragerði, þrátt
fyrir að um heimaleik Víkings væri að
ræða. En Víkingarnir fengu bakþanka
og ákváðu að gera fjárkröfur á hendur
Hvergerðingum og það kostaði þá
sigurinn. Er ekki ólíklegt að hér verði
um kærumál að ræða.
Eyjamenn léku tvo leiki í 2. deildinni
um helgina og unnu báða. Á laugar-
dag mættu þeir HK í Vogaskóla og
unnu 3-0 og í gær lögðu þeir Samhygð
með 3-1 sigri. ÍBV er því komið í
úrslitakeppni 2. deildar.
-KMU.
Karl Þórðarson var í essinu sínu er
La Louviere lagði Charleroi 4-1 á
heimavelli að viðstöddum 15.000
áhorfendum. „Þetta var bezti leikur
minn eftir meiðslin,” sagði Karl við DB
í gærkvöld. „Ég skoraði síðasta mark
okkar og fiskaði að auki viti, sem við
skoruðum úr. Við höfum nú 23 stig en
efsta liðið, Tongerem, er með 31. Sigur
í næstu tveimur leikjum myndi iyfta
okkur upp um 3-4 sæti og þá erum við
komnir í hóp efstu liða,” bætti hann
við.
Úrslitin í Belgíu í gær:
Molenbeek—FC Brugge 2—2
Courtrai—Lokeren 4—2
Beerschot—Beringen 2—2
FC Liege—Antwerp>en 4—0
Beveren—Standard 2—0
Berchem—Gent 0—0
CS Brugge—Waregem 2—1
Winterslág—Anderlecht 1 — 1
Lierse—Waterschei 2—0
Anderlecht er sem fyrr langefst.
Hefur 41 stig. Beveren hefur 34 og
Lokeren 30. Standard, sem fyrr með
29. -SSv.
íþróttir
Austurríkismaður
varð brunmeistari
— Harti Weirather sigraði á síðasta
brunmóti heimsbikarsins í Aspen
Austurríkismaðurinn Harti Weirath-
er var sigurvegari i brunkeppni heims-
bikarsins í alpagreinum. Sigraði eftir
gifurlega keppni við Kanadamanninn
Steve Podborski. Sigur og annað sæti
Austurríkismannsins í Aspen í Colo-
rado í Bandaríkjunum færðu honum
sigur samanlagt i brunkeppninni. Hann
hlaut þar 115 stig en Podborski varð i
öðru sæti með 110 stig.
Tvö síðustu brunmót vetrarins í
keppni heimsbikarsins fóru fram í
Aspen. Hið síðara á föstudag. Fyrir
keppnina voru Weirather og Podgorski
jafnir að stigum. Þetta var því ein-
göngu innbyrðiskeppni milli þeirra. Sá,
sem yrði á undan, hlyti sigurverð-
launin.
Keppni þeirra var mjög hörð og þeir
urðu á undan öðrum í mark. Sáaustur-
ríski sigraði og hlaut þvi þau fimm stig,
sem hann gat bætt við sig. Sá kanadíski
sat eftir með sárt ennið. Varð i öðru
sæti en það skipti engu máli fyrst hann
varð á eftir Weirather. Fyrir mótin tvö i
Aspen virtist allt stefna í það að Steve
Podborski yrði fyrsti maðurinn utan
Evrópu, sem sigraði í bruni heims-
bikarsins. Það var ekki. Enn einu sinni
sigur Austurríkismanns — sá fyrsti
síðan Franz Klammer varð brun-
meistari 1978.
Podborski var meðal fyrstu manna,
sem kepptu í bruninu á föstudag. Hann
var með beztan tíma 1:52.49 mín. þegar
þrettán höfðu lokið keppni. En þá kom
að Weirather. Hann keyrði brautina á
ógnarhraða. Þar fór ekki milli mála að
bezti maðurinn var i brautinni. Engin
mistök og sigurinn var hans. Úrslit.
1. Harti Weirather, Aus. 1:52.21
2. S. Podborski, Kanada, 1:52.49
3. Franz Heinzer, Sviss 1:52.59
4. Toni Buergler, Sviss, 1:52.84
5. Peter Múller, Sviss, 1:53.05
Eins og áður segir hlaut Weirather
115 stig. Podborski 110 stig. Peter
Múller varð I þriðja sæti með 95 stig.
Haukarupp
í 1. deildina
Haukar tryggðu sér sæti i 1. deild-
inni i körfuknattleik um helgina er þeir
unnu úrslitakeppni 2. deildar. Þeir sigr-
uðu Tindastól 95-73 o| KFÍ 85-72.
Tindastóll sigraði svo KFl með 61-50.
-SSv.