Dagblaðið - 09.03.1981, Síða 18
18
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR9. MARZ 1981.
Iþróttir Iþróttir Iþróttir Iþróttir
Tottenham í undanúrslitin
—og Ipswich, Man. City og Úlf arnir f ærðust skref i nær ef tir jaf ntef li í Nottingham, Liverpool og
Middlesbrough. í 1. deild hef ur Aston Villa náð Ipswich að stigum
Það var mikil spenna í 6. umferð
ensku bikarkeppninnar á laugardag.
Aðeins Tottenham tryggði sér sæti í
undanúrslitum en Ipswich, Man. City
og Úlfarnir komust skrefi nær með þvi
að ná jafntefli i útileikjunum erfiðu i
Nottingham, Livcrpool og Middles-
brough. Likurnar á því, að þessi lið
komist í undanúrslit ásamt Tottenham
eru mun meiri en áður.
Exeter úr 3. deild stóð lengi vel í
Tottenham á White Hart Lane í
Lundúnum. Lék sterkan varnarleik og
byggði síðan á skyndisóknum. Ekki
tókst liðinu að skora og það var ekki
fyrr en á 63. mín. að Lundúnaliðið
skoraði. Varnarmaðurinn Graham
Roberts skoraði þá með skalla og annar
varnarmaður, Paul Miller, gulltryggði
svo sigur Tottenham með marki tíu
min. siðar. En lítum á úrslitin í 6.
umferð.
Everton-Man. City 2—2
Middlesbro-Wolves l —I
Nottm. For.-Ipswich 3-3
Tottenham-Exeter 2—0
Það var hörkuleikur í Nottingham
og metaðsókn á leiktimabilinu, tæplega
35 þúsund áhorfendur. Eftir aðeins 23
mín. stóð 0—2 fyrir Ipswich og liðið
sterka frá Angliu virtist stefna á
auðveldan sigur. Á 14. mín. sótti Alan
Brazil að svarta bakverðinum Viv And-
erson hjá Forest. Bakvörðurinn ætlaði
að gefa aftur á Peter Shilton markvörð
en tókst ekki betur en svo, að Paul
Mariner náði knettinum. Eftirleikurinn
var auðveldur fyrir hann. 0—1. Á 23.
mín. gaf Arnold Múhren knöttinn inn
í vítateig Forest og vesalings Anderson
skallaði i eigið mark. 0—2. Hann vár
tekinn út af eftir leikhléið og Rar
mondo Ponte, Svisslendingurinn
snjalli fór í framlínuna. Gary Miils var
færður aftur sem bakvörður. Ekki var
Anderson tekinn út af vegna mistaka
sinna. Hann meiddist á öxl.
En þó staðan væri ljót gafst Forest
ekki upp. Tókst að jafna fyrir hálfleik.
Fyrra markið skoraði Trevor Francis,
sem átti mjög góðan leik og hann átti
einnig allan heiður af því síðara. Brauzt
upp kantinn. Tætti vörn Ipswich í
sundur áður en hann gaf á Colin
Walsh, sem skoraði. Það var á
fertugustu mín. Á 51. mín. náði Forest
forustunni, 3—2, þegar dæmd var víta-
spyrna á John Wark. Knettinum spyrnt
í handlegg hans og þótti fréttamönnum
það harður dómur. Robertson skoraði
úr vítinu. Ipswich lagði allt í sölurnar
til að jafna. Bakvörðurinn McCall var
tekinn út af og sóknarmaðurinn
O’Callaghan settur inn á. Eric Gates
misnotaði gullið tækifæri til að jafna á
74. min. en á 82. mín. sendi Franz
Thjissen knöttinn framhjá Shilton i
markið með frábæru lágskoti.
Knötturinn snérist inn í hornið án þess
að markvörðurinn snjalli kæmi við
nokkrum vörnum. Leikmenn Ipswich
fögnuðu mjög og fleiri mörk voru ekki
skoruð i þessum skemmtilega leik.
Liðin leika á ný í Ipswich á þriðjudag.
Liðin Nottm. Forest, Shilton, Ander-
son (Ponte), Frank Fray, Burns, Gunn,
Stewart Gray, Walsh, Mills, Wallace
Francis og Robertson. Ipswich,
Cooper, McCall (O’Callaghan), Mills,
Osman, Butcher, Thjissen, Wark,
Múhren, Gates, Mariner, Brazil.
Leikurinn á Goodison Park var
einnig bráðskemmtilegur. Man. City
mun betra liðið framan af en Everton
náði óverðskuldað forustu á 30. mín.
þegar Peter Eastoe skoraði. Steve
McKenzie hafði áður spyrnt knettinum
í þverslá marks Everton — John
Gidman náði knettinum af Reeves,
miðherja City, gaf fram á Eastoe, sem
skoraði. Gerry Gow tókst að jafna fyrir
Manchester-liðið fyrir hlé. Á 49. mín.
var dæmd vítaspyrna á Man. City.
Miðvörðurinn Caton hélt Varadi innan
vítateigs, þegar leikmaðurinn eldsnöggi
— af ungverskum ættum — var að
komast í færi. Trevor Ross skoraði úr
vítinu en það var spenna þegar hann
tók það. Everton hafði misnotað tvær
vítaspyrnur í leiknum á undan — gegn
Crystal Palace. Fyrirliði City, Paul
Power, tókst að jafna sex mín. fyrir
leikslok og mín. síðar var bakverði
Everton, Kevin Ratcliffe, vísað af velli
fyrir að slá Tommy Hutchison. Þannig
skýrðu fréttamenn BBC frá atvikunum
— hjá Reuter er hins vegar sagt, að
bakvörðurinn hafi fyrst verið rekinn út
af. Power jafnaði 60 sek. síðar. Liðin
leika á ný á miðvikudag á Maine Road í
Manchester.
Úlfarnir byrjuðu vel í Middles-
brough. Andy Gray skoraði eftir aðeins
átta mín. með skalla eftir fyrirgjöf Mel
Eves og sóknarloturnar buldu á vörn
heimaliðsins. Jim Platt varði hins vegar
mjög vel frá Eves og John Richards.
Middlesbrough einum færri í 14. mín:
David Armstrong meiddist en kom inn.
á aftur. Leikurinn jafnaðist og írski
landsliðsmaðurinn Terry Cochrane
jafnaði. Mikil barátta var í rigningunni
1 síðari hálfleik en fleiri urðu ekki
mörkin. Miðvörðurinn Berry bjargaði
þó Úlfunum rétt undir lokin, þegaf
knötturinn vaf á'leið í markið. Spyrnti
frá og á þriðjudag ættu Úlfarnir r—
þetta mikla bikarlið — að tryggja sér
sæti í undanúrslitum. Middlesbrough
hefur aldrei unnið til verðlauna í 104
ára sögu félagsins.
Villa náði Ipswich
Deildaleikirnir féllu mjög í skugga
bikarkeppninnar. Aston Villa náði
Ipswich að stigum í 1. deild með sigri í
Sunderland. Villa fékk óskabyrjun.
Alan Evans skoraði eftir aðeins 90. sek.
með skalla eftir fyrirgjöf Morley. A 20.
mín. komst Aston Villa í 0—2. Dennis
Mortimer, fyrirliði, skoraði eftir undir-
búning Shaw og Cowans. Það virtist
stefna í stórsigur Birmingham-liðsins
gegn Sunderland, sem var með marga
varamenn i liðinu sínu vegna meiðsla.
En það varð ekki og í lokin voru leik-
menn Villa fegnir, þegar dómarinn
flautaði leikslok. Joe Hinnigan, bak-
Viv Anderson, þar I enska landsliðs-
búningnum, gaf Ipswich tvö mörk á
laugardag.
vörður, minnkaði muninn í 1—2 á 70.
min. Síðan mikil barátta, en Villa varð
fyrir áfalli í lokin. Miðvörðurinn
sterki, Ken McNaught, borinn af velli.
Úrslit í deildunum.
1. deild
Brighton-Coventry 4—1
Leicester-Arsenal 1—0
Sunderland-A. Villa 1—2
Southampton-Man. Utd. 1—0
WBA-Crystal Palace 1—0
2. deild
Bristol City-Grimsby frestað
Cambridge-Bristol Rov. 1—3
Chelsea-Bolton 2—0
Notts. Co.-Luton 0—1
Preston-Orient 3—0
QPR-Blackburn 1—1
Sheff. Wed.-Derby 0—0
Shreswbury-Oldham 2—2
Watford-Cardiff 4—2
West Ham-Newcastle 1—0
Swansea-Wrexham 3—1
-3. deild
Burnley-Fulham 3—0
Carlisle-Walsall 1—1
Charlton-Barnsley 1 — 1
Chester-Swindon 1—0
Chester field-Portsmo uth 3—0
Colchester-Huddersfield 1—2
Gillingham-Blackpool 3—1
Newport-Brentford 1 — 1
Oxford-Hull City 1 — 1
Plymouth-Sheff. Utd. frestað
4. deild
Aldershot-Hartlepool 2—1
Bury-Peterbro 1—1
Crewe-Bradford 1—0
Halifax-Torguay 2—1
Lincoln-Doncaster 1 — 1
Mansfield-Southend 0—1
Port Vale-York 2—0
Scunthorpe-Bournemouth 1 — 1
Stockport-Northampton 1—2
Wigan-Rochdale 0—1
Wimbledon-Tranmere 2—1
Heldur betur er farið að halla undan
fæti hjá Man. Utd. Tap í
Southampton, þar sem Kevin Keegan
skoraði eina mark leiksins á þriðju
mín. Sjötti tapleikur United i röð á úti-
velli og liðið hefur aðeins hlotið þrjú
stig af síðustu 14 mögulegum. Með
sama áframhaldi kemst það í fallhættu.
Allan Ball lék að nýju með
Dýrlingunum og átti góðan leik, 35 ára.
Liðið hafði yfirburði framan af. Hefði
þá átt að bæta við markatöluna. Það
tókst hins vegar ekki og litlu munaði að
Steve Coppell næði stigi fyrir United í
lokin. Peter Wells varði hins vegar frá-
bærlega frá honum. Leikmönnum
United gengur illa að skora þrátt fyrir
tvo landsliðsmiðherja. Joe Jordan og
Gary Birtles. Liðið hefur aðeins
skorað tvö mörk i síðustu átta
leikjunum.
Botnliðunum gekk vel á laugardag,
nema Palace sem er svo gott sem fallið
í 2. deild. Brighton vann stórsigur á
Coventry á heimavelli. Mike Robinson
skoraði tvívegis, Gordon Smith og
Giles Stille hin mörkin. Leicester hefði
náð báðum stigunum af Arsenal.
Tommy Williams bakvörður skoraði
eina mark leiksins. Bryan Robson
skoraði sigurmark WBA — Alister
Brown var einnig orðaður við það
mark.
í 2. deild skoraði David Cross eina
mark West Ham gegn Newcastle. Það
var á 2. mín. og nægði til sigurs. 29.
mark Cross á leiktímabilinu. Luton
vann óvænt í Nottinghan gegn County.
Brian Stean skoraði eina mark leiksins.
Spennan er mikil hvaða lið fylgja West
Ham upp í 1. deild. Terry Curran hjá
Sheff. Wed. fór illa að ráði sínu gegn
Derby. Misnotaði vitaspyrnu og
jafntefli varðO—0. Loks vann Chelsea.
Walker og Mayes skoruðu. Malcoln
Poskett, tvö og Luther Blissett, tvö,
skoruðu mörk Watford.
í 3. deild er Charlton efst með 48
stig. Rotherham hefur 45 stig,
Huddersfield 45, Barnsley 43 ásamt
Portsmouth, en Chesterfield og
Burnley hafa 42 stig. Enski landsliðs-
maðurinn Martin Dobson, áður
Everton, skoraði tvö af mörkum
Burnley á laugardag. Annar frægur
kappi, Brian ,,Pop” Bobson, sem
Sunderland hefur selt til Carlise, átti
allan heiður af marki liðs síns gegn
Walsall. í 4. deild er Southend efst með
55 stig. Lincoln hefur 51, Doncaster 43,
Mansfield 41 og Aldershot 40. Ekki
byrjaði Larry Lloyd vel hjá Wigan.
Tap í fyrsta leiknum.
Staðan er nú þannig:
1. deild
Ipswich 31 19 10 2 62—25 48
A. Villa 32 21 6 5 55—27 48
WBA 32 15 11 6 44—30 41
Liverpool 32 13 14 5 65—37 40
Nottm. Ford. 32 15 9 8 49—33 39
Southampton 32 15 8 9 61—47 38
Arsenal 33 12 13 8 47—40 37
Tottenham 32 12 11 9 57—41 35
Man. Utd. 33 8 16 9 37—30 32
Everton 30 12 7 11 46—39 31
Middlesbro 32 13 5 14 45—44 31
Leeds 32 12 7 13 27—41 31
Man. City 31 11 8 12 42—43 30
Birmingham 32 10 10 12 42—48 30
Stoke 31 8 13 10 36—46 29
Coventry 33 10 8 15 39—55 28
Sunderland 33 10 7 16 41—42 27
Wolves 31 9 8 14 31—43 26
Brighton 33 10 5 18 41—57 25
Leicester 33 10 3 20 25 —49 23
Norwich 32 8 6 18 35—61 22
C. Palace 33 5 5 23 39—68 15
2. deild
West Ham 33 22 7 4 63—26 51
Notts. Co. 32 14 13 5 42—30 41
Sheff. Wed. 32 15 8 9 42—30 38
Chelsea 33 14 9 10 46—31 37
Blackburn 32 12 13 7 34—26 37
Derby 33 12 13 8 48—43 37
Swansea 32 13 10 9 49—37 36
Grimsby 32 12 12 8 35—26 36
Luton 32 13 9 10 45—38 35
QPR 33 12 10 11 43—31 34
Cambridge 32 15 4 13 39—44 34
Orient 32 11 10 11 41—42 32
Watford 33 11 9 13 38—38 31
Newcastle 32 10 11 11 21—36 31
Bolton 33 11 6 16 50—53 28
Wrexham 32 9 10 1 13 309—37 28
Cardiff 33 10 8 15 36—48 28
Preston 32 8 12 12 31—48 28
Oldham 33 8 11 14 28—40 27
Shrewsbury 33 6 13 14 31—39 25
Bristol City 31 5 12 14 20—37 22
Bristol Rov. 33 3 12 18 27—52 1 8
-hsim.
B0DDÍ-HLUTIR
Eigum fyrirliggjandi bretti i eftirtaldar
bifreiðar:
Audi ’80, Passat, Golf, Fiesta, Cor-
olla 20, Renault 4-5, M. Benz ’68-
’77, Saab 96-99, Volvo 144 ’67-’74,
Volvo 244 ’75, Simra 1100 og 130,
Old R. ’67-’77, Escort ’72-’77, Fiat
125p, 127, 128, 131 og 132, Lada
1200, BMW ’67-’74, 2ja dyra.
Hurðarbyrði fyrir Lada og Fiat 127.
Stuðarar og grill i margar gerðir o.fl.
Varahlutir - Ármúla 24 - Sími 36510.
Fjöleign hf.
félag ahugamanna um fiúgrekstur hel'ur opr
félagahugamanna um flúgrekstur hefuropnaðskril'stol'u aö Rauöarárstig
3I (áðurbilaleigan Falurl.
Skrifstofan verður opin vikulega mánudaga til lostudaga. kl. 2-6 eftir
hádegi. — Sinii 26822.
Þeir sem enn óska eftir að gerast hluthafar geta siiúið sér til skril
stofunnar og fengið þar algreiðslu.
Einnig eru vcitlar allar upplýsingar um hel/.tu viðlangsefni lclagsins.
Stjórnin.
Verkstjóri - Frystihús
Höfum verið beðnir að leita eftir verkstjóra í
stórt frystihús á Reykjavíkursvæðinu.
Upplýsingar veita Gísli Erlendsson eða Sævar
Hjálmarsson. n
njrekstrartækni sf.
U
SiSumúla 37 - Sími 85311
Rakarastofan Klapparstíg
Sími12725
Hárgreiðslustofa Klapparstíg
Tímapantanir
13010
Gjöf
Jóns Sigurðssonar
Verðlaunanefnd Gjafar Jóns Sigurðssonar hefur lil ráðstöfunar á árinu
1981 um I30 þús. kr. Samkvæmt reglum skal verja fénu lil ..vcrðlauna
fyrir vel unnin vísindaleg rit, og annars kostar til þess aðstyrkja útgáfur
merkilegra heimildarrita". Heimilt er og að „verja fé til viðurkenningar á
viðfangsefnum og störfum höfunda, sem hafa visindarit i smíðum". Öll
skulu rit þessi „lúta aðsögu Islands. bókmenntum þess, lögum. stjórn og
framförum".
Verðlaunanel'nd Gjal'ar Jóns Sigurðssonar auglýsir hér meðeftir umsókn-
um um fjárveitingar úr sjóðnum. Skulu þær stílaðar til verðlaunanefnd-
arinnar. ogsendar forsætisráðuneytinu. Stjórnarráðshúsi. I0I Reykjavik.
fyrir l. maí 1981.
Umsóknum skulu fylgja rit. rilgerðir eða greinargerðir um rit í smiðum.
Reykjavík i marsmánuði 1981.
Verðlaunanefnd Gjafar Jóns Sigurðssonar.
Magnús Már Lárusson
Óskar Halldórsson
Þór Vilhjálmsson.