Dagblaðið - 09.03.1981, Blaðsíða 22
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR9. MARZ 1981.
Kenneth East, sendiherra Breta, er á förum:
Æ tlar að lesa sögu á eftirlaunum
Sentliherrar og sendiráðsfólk eru
hinar mestu flökkukindur, ,,alltaf á
leiðinni” eins og segir i slagaranum,
sifellt að kveðja vini eftir tiltölulega
stulla viðkynningu. En væntanlega
gerir þelta fólk sér grein fyrir þcssum
annmörkum ástarfi sínu.
Nú er einmitt á förum hinn geð-
þekki fulltrúi brezku krúnunnar hér á
landi, Kenneth East sendiherra.
Hann hefur verið óvenjulega ötull
þátltakandi í því sem nefnt hefur
verið „íslenzkt menningarlíf” og
fvlgzt með ýmiss konar listviðburð-
um. Tónlisl er mikið áhugamál sendi-
herrans og hefur hann verið faslur
gestur á lónleikum hér í bæ, en auk
þcss hafa ntenn orðið varir við að
Itann er vel lesinn í bókmennlunt og
sögu. Í kveðjuhófi, sent East sendi-
Iterra hélt um daginn, náði DB lali al'
lionum og spurði Itvers hann mundi
sakna Itéðan l'rá íslandi.
Talsvert
fyrir göngur
,,Ég Iteld ég konri til með að sakna
alls,” sagði sendiherrann. ,,Ég er
lalsvert mikið fyrir göngur og þvi
mun ég sérstaklega sakna islcnzkrar
nátlúru sent er engu öðru lik. Ég kent
lieldur ekki lil með aðgleyma öllu þvi
ágæla fólki sent ég hef kynnzl.”
Kenneth East sendiherra: — Þeir ieyna á sór margir hverjir, segir hann
um starfsbræður sina. Það verður bara að gefa þeim tækifæri tii að njóta
sin. DB-mynd: Sigurður Þorri. j
East sendiherra er nú kominn á
eftirlaunaaldur og verður því ekki á
frekara flandri út um lönd sem dipló-
mat. DB spurði hann hvað hann
ætlaði að taka sér fyrir hendur þegar
hann settist í helgan stein.
Einbeiti mér að
brezkri sögu
,,Ég er með ýmislegt í huga. Fyrst
og fremst ætla ég að stunda bók-
lestur. Það er ekki ýkja langt síðan ég
fór að stúdera mannkynssögu eftir
langi hlé og komst þá að því hvað ég
vissi lítið. Nú ætla ég að einbeita mér
að brezkri sögu og er kominn á kaf i
sögu Rómarveldis sem er ágætur
undirbúningur.”
DB bar undir East sendiherra þá
skoðun ýmissa að diplómatar væru
margir lítt menningarlega sinnaðir ef
á heildina væri litið.
„Þeir leyna á sér, margir hverjir,”
sagði sendiherrann og brosti breitt,
„það verður bara að gefa þeim tæki-
færi til að njóta sin.”
Al
Reynir, Þórður, Asgeir og Tómas
með tónleika í Stúdentakjallaranum
— Rætt við Tómas Tómasson um „starfsmálin
„Þessi kvartett hefur legið í dvala
um nokkurt skeið — alveg síðan í
desember. En við erum nú að fara af
stað aftur og byrjum með tónleikum í
Stúdentakjallaranum í kvöld. Við
stefnum síðan á að vera þar á sama
tíma næstu vikurnar,” sagði Tómas
Tómasson bassaleikari í samtali við
blaðamann DB.
í kvartettinum eru auk Tómasar
þeir Ásgeir Óskarsson, Þórður Árna-
son og Reynir Sigurðsson. „Við
lékum undir nafninu Jasskvartett
Reynis Sigurðssonar á siðasta ári en
ég veit ekki hvort við stöndum undir
nafni lengur. En við ætlum samt að
FÓLK
AÐALSTEINN
INGÓLFSSON
áJ/
gera okkar bezta,” sagði Tómas.
„Kvartettinn lifir bara fyrir liðandi
stund. Þetta er engin hljómsveit í
þeim skilningi orðsins.”
Þursarar vakna
með vorinu
Eins og kunnugt er leikur Tómas í
Þursaflokknum ásamt þeim Ásgeiri
og Þórði (og að sjálfsögðu Agli
Ólafssyni). Hann sagði að venjuleg
starfsemi Þursaflokksins hafi legið
niðri nú um langt skeið vegna
söngleiksinsGrettis.
,,Við tökum að sjálfsögðu upp
þráðinn að nýju, þegar sýningum á
Gretti lýkur,” sagði Tómas. „Við
stefnum á að taka upp plötu með
vorinu og halda eitthvað af
hljómleikum. Tvö síðastliðin ár
höfum við farið um Iandið og haldið
tónleika í skólum og víðar. Það er
ljóst að af því getur ekki orðið að
þessu sinni, en við reiknum með að
geta farið eitthvað um.
Með Gunnari og
Björgvin á Vesturslóð
Auk þess að leika með Þursa-
flokknum og jasskvartettinum kemur
Tómas fram tvisvar í viku á veitinga-
staðnum Veturslóð. Þar leikur hann
country & western tónlist ásamt
Gunnari Þórðarsyni og Björgvini
Halldórssyni. Hann kvaðst hafa
gaman af að fást við það verkefni og
að sér virtist sem fólk kynni vel að
meta þessa spilamennsku þeirra. Að
minnsta kosti fer gestum Vestur-
slóðar fjölgandi.
„Maður verður að reyna að skapa
sér starfsvettvang sem víðast,” sagði I spilamennskunni,
Tómas. „Við sem höfum atvinnu af | hornúti.”
verðum að hafa öll
-ÁT-
i i . > :
í 'i i i
J’ i t i
Firmakeppni í kanttspyrnu á Skaganum:
Auglýstu sína stofnun
Bœjaruarfsmcnn báru sif’ur úr býluni i innanhússknattspyrnumóti fyrir-
Uvkja á Akranesifyrir nokkru. Kcppt var i tvcimur riólum op sipruóu hœjar-
starfsmcnn í sinum op starfsmcnn hjá skipasmtóastöd Þnrpcirs oy Ellcrts í
hinum. Úrslitalcikurinn milliþcirra tvcyyja fór slöan 4—
Nú hefði kcppni þessi tœpast þótt fréttncem éfckki hcfði komið til auplýsinp-
in á háninyum bœjarstarfsmanna. Þcir auglýstu að sjálfsöyðu sína stofnun
mcð tcxtanum Greiðið gjöldin! ilvaó skyldi svo hafa staðið framan á lcik-
mönnum Þorpcirs np Ellerts? Kannski Skröpum botna?
l.jósm.: fítvjarhlaðið. Akrancsi.
fólk
Lánað? Nei, hann
œtlaði sko að
borga strax!
Það þóttu og þykja enn miklir
kjarkmenn sem kaupa óséð hross og
þykja treysta vel orðum náungans.
Bílasölu má að mörgu leyti kalla
hestakaup nútímans en lítið er um að
menn kaupi bíla óséð, en kemur þó
fyrir.
Fyrir nokkru hringdi bóndi utan
af landi til Bifreiða og landbúnaðar-
véla og spurðist fyrir um bil:
„Þið eigið þarna til Lada Sport,
er það ekki?” Sölumaðurinn sem
fyrir svörum varð, kvað svo vera og
gaf nánari upplýsingar um verð.
„Já, ég ætla að fá einn svoleiðis,”
sagði bóndi. Sölumaðurinn gekk þá
frá því hvaða lit bóndi vildi hafa á
bílnum og öðru smálegu.
„Heyrðu,” sagði þá bóndinn,
„þið voruð að auglýsa nýjan fólksbíl,
hvað kostar hann?”
Sölumaðurinn leysti greiðlega úr
því við bónda. „Já, heyrðu, ég ætla
að fá einn svoleiðis líka,” bætti þá
bóndinn við.
Aftur upphófst rullan um hvaða
litur ætti að vera á bílnum, hvenær
þeir yrðu tilbúnir til afgreiðslu og
annað sem tilheyrir slíkum kaupum.
Að endingu spurði sölumaðurinn
hvað kaupandinn teldi sig þurfa að fá
lánað af kaupverðinu.
„Lánað!” sagði bóndi, „ég ætla
sko ekkert að fá lánað, að sjálfsögðu
ætla ég að borgabílana strax!”
Faraldur á
ritstjórn
Dagblaðið Tíminn á sem kunnugt
er í fjárhagserfiðleikum og kemur þar
margt til. Sumir telja að hluta
erfiðleikanna megi rekja til rit-
stjórnar blaðsins sem skipuð er
þremur ritstjórum, ritstjórnar-
fulltrúa, fréttastjórá, umsjónar-
manni Heimilis-Tímans, umsjónar-
manni Dödens magasin, umsjónar-
manni Byggða-Timans og þremur
blaðamönnum.
Glöggir menn telja að starfsmenn
ritstjórnar, eða meirihluti þeirra,
þjáist af veiki sem nefnd er SÚFilis.
Nokkuð lýsir hann sér öðruvísi en
önnur veiki sem hefur ypsilon sem
annan staf. Til dæmis byrjar
SÚFilisinn þar sem hinn endar, í
höfðinu.
Niður Laugaveg,
upp Hverfisgötu,
niður Laugaveg,
upp Hverfisgötu,
niður... upp...
Nýtt leiðakerfi Strætisvagna
Kópavogs er gengið í giidi. Kópa-
vogstíðindi skýrðu frá breytingunni á
forsiðu undir fyrirsögninni Bylting í
þjónustu strætisvagnanna. Síðan
voru kostir nýja kerfisins raktir í
rúmlega fjörutíu sentimetra langri
grein.
Ritara þessa pistils þótti ein
breyting á kerfi SVK öðrum betri,
samkvæmt frásögn Kópavogs-
tiðinda:
„Fram til klukkan níu að morgni
aka vagnar númer 20, það eru þeir
sem til Reykjavíkur aka, Kringlumýr-
arbraut og Laugaveg niður á Hlemm,
þaðan niður Laugaveg og upp
Hverfisgötu og síðan frá Hlemmi,
þaðan niður Laugaveg og upp
Hverfisgötu og síðan frá Hlemmi,
þaðan niður Laugaveg og upp
Hverfisgötu og síðan frá Hlemmi um
Laugaveg og Kringlumýrarbraut,
eins og gert er nú.”