Dagblaðið - 09.03.1981, Page 28
28
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 9. MARZ 1981.
Börn segja f rá fyrra líf i sínu:
STÚLKAN KVAÐST VERA FLUGMAÐUR
SEM SKOTINN VAR NIÐUR í STRÍÐINU
athyglisverður f yrirlestur dr. lans Stevensons um rann-
sóknir á endurholdgun hjá Sálarrannsóknarfélagi íslands
Dr. lan Stevenson, geðlæknir og
prófessor við Virginíuháskóla í Banda-
ríkjunum, er staddur á íslandi um þess-
ar mundir og flutti erindi á vegum Sál-
arrannsóknarfélags tslands miðviku-
daginn 4. marz um „Rannsóknir á
endurminningum barna um fyrri líf”.
Dr. Stevenson hefur unnið að athug-
unum á þessu efni, ásamt öðrum svo-
nefndum dulrænum fyrirbærum, um
margra ára skeið og nýtur alþjóðlegrar
viðurkenningar fyrir vísindastörf sín,
bækur og greinar. Hann hefur einkum
einbeitt sér að rannsóknum á börnum
er á aldrinum 2—4 ára hafa gefið til
kynna endurminningar um fyrra líf eða
eru sögð endurborin. Þessi hópur var
talinn æskilegastur til rannsókna af
þessu tagi þar eð hann er ekki líklegur
til þess að hafa utanaðkomandi upplýs-
ingar eða vitneskju svo neinu nemur né
að vera að ráði markaður af umhverfi
sínu hvað þennan þátt varðar.
íslendingar
í hópnum
Grundvöllur þessa erindis eru athug-
anir á um 1800 einstaklingum, að 2/3
frá Suðaustur-Asíu og Asíu yfirleitt, en
þar hefur dr. Stevenson unnið hvað
mest að þessu verkefni. Jafnframt eru
meðtaldir einir 90 frá Bandaríkjun-
um, 50 frá Evrópu og þar af 4—5 frá
íslandi. Flestir koma samt frá svæðum
þar sem trúað er á endurholdgun. Til
dæmis hafa fjölmargir verið rannsak-
aðir á Norður-lndlandi en einungis
einn frá Suður-Indlandi. Vegna þessa,
sagði dr. Stevenson, eru ýmsir þeirrar
skoðunar að hugmyndaflug sé allauð-
ugt á Norður-Indlandi. Hann telur að
um aðra skýringu geti verið að ræða,
eða þá að þar hófust þessar rannsóknir
og hafa farið fram um margra ára
skeið.
Vísbendingar þær er farið hefur
verið eftir hafa verið t.d. fregnir af
barni er á aldrinum 1 1/2 til 2 ára, eða
um það bil og það fer að tala, hefur
komið með upplýsingar eitthvað á
þessa leið: ,,Ég á ekki heima hér — mitt
hús er stærra.” „Ég vil fara til minna
raunverulegu foreldra.” „Þetta hús er
með flötu þaki. Þakið á minu húsi er
svona.” (Og myndar þá reist þak með
höndunum.). Oft skortir börnin nauð-
synleg orð til þess að tjá sig um þessa
hluti og grípa þá til ýmissa bendinga.
Síðar meir er málþroski eykst greina
þau frá smáatriðum og koma með t.d.
nöfn.
Leitaði í
annan ættflokk
Iðulega verður vart við framkomu
sem er ekki í samræmi við umhverfi
barnsins. Á Shp-Lanka vildi stúlka af
Singal ætt þannig helzt umgangast fólk
af Tamil ættflokki og neyta Tamil
matar, en hátterni og mataræði þessara
tveggja hópa eru mjög ólík. Jafnframt
var hún með tvö ör, eða bletti, á eyrum
sem gátu svarað til eyrnahringa er tíðk-
ast hjá Tamilum en ekki Singölum.
Slík börn greina einnig oft frá því
hvernig dauða þeirra bar að höndum,
oft með voveiflegum hætti, og óttast
það vopn er beitt var ef því var að
skipta. Dr. Stevenson telur að óskýran-
legur ótti við ákveðna hluti eða staði
kunni stundum að eiga rætur að rekja
til fyrra lífs og að það sama geti átt við
hið öndverða þar sem að baki liggur já-
kvæð reynsla sem lýsir sér í ánægju af
sérstökum hlutum, hæfileikum eða
áhuga.
Eftirfarandi eru fáein dæmi um
hugsanlega endurholdgun.
Fann sitt
gamla heimili
Á Indlandi, sunnan við Calcutta, tók
þriggja ára telpa upp á því að vilja
klæðast fötum bróður síns. Móðirin ávít-
aði hana en sú litla vildi ekki gefa sig og
kvaðst vera drengur. Upp frá þessu fór
skrautvörum
fyrir ferminguna
Hringiö í dagogvið
póstsendum strax
Sálmabók m/nafnK.vllinKU......... 70,30 kr.
Vasaklútar í sálmabók.............frá 10,00 kr.
Hvítar slæður.................... 29,00 kr.
Hvítir crepehanskar.............. 33,00 kr.
50 stk. servfettur med nafni og ferm-
ingardegi áprentað................81,00 kr.
Stórt fermingarkerti m/mynd...... 26,00 kr.
Kertastjaki f. f. kerti.......frá 17,00 kr.
Kertahringur úr blómum............40,00 kr.
Kökustyttur...................frá 16.25 kr.
Blómahárkambar................frá 14.10 kr.
Fermingarkort...........frá 2,45 til 11,60 kr.
Biblía.skinnband, 18Xl3cm....... 185.25 kr.
KIRKJUFELL
Klapparstíg 27
sími 91 21090
Hefurðu lifað áður? Dr. lan Stevenson:
rannsakaðir hafa verið.
hún að segja frá lífi unglings eða ungs
manns og næstu vikurnar greindi hún
frá einum 40 atvikum og smáatriðum
úr lífi þessa manns, m.a. kvaðst hún
hafa búið í Burduan sem er nálægt Cal-
cutta en í um 90 km fjarlægð frá henn-
ar núveandi heimili. Þangað hafði fjöl-
skylda hennar aldrei komið og minntist
ekki þess að þekkja neinn þaðan. Um
síðir var farið með stúlkuna til
Burduan því hún sagðist geta fundið
sitt gamla heimili. Henni tókst það ekki
í fyrstu tilraun en þó í annarri. Hún
fékk að ganga um húsið og sagði nánar
frá ýmsum herbergjum þess, tiltók
m.a. hvar hún hefði verið vön að sitja
við nám. 95% af því sem hún hafði
staðhæft reyndist sannanlegt. Til
dæmis hafði þessi fjölskylda misst son
er æxli hafði að öllum líkindum leitt til
bana. Þetta var auðugt fólk sem tor-
tryggði söguna því fjölskylda stúlkunn-
ar var fátæk og það óttaðist að tilgang-
urinn væri að hafa af sér peninga. Sam-
gangur varð þvi enginn fram yfir þessa
einu heimsókn.
Á kynvilla rætur að
rekja til fyrra lífs?
Dr. Stevenson bjóst við að telpan
hætti að ganga í drengjafötum með
timanum því flest börn, sem halda sig
vera af hinu kyninu, sætta sig síðar við
sitt meðfædda kyn. Er hann kom aftur
einum 5—6 árum síðar klæddist hún
samt enn eins og drengur. Aðspurður
kvaðst dr. Stevenson ekki vilja þver-
taka fyrir að kynvilla gæti í sumum til-
vikum átt rætur að rekja til fyrra lífs.
Stúlka nokkur í Burma sagðist hafa
verið hermaður í fyrra lífi og kvaðst
hafa látizt í flugvél er skotin var niður á
stríðsárunum. Hún var karlmannleg í
fasi og hafði gjörsamlega neitað að
klæðast telpufötum í skóla eða annars
staðar. Vegna þessa var henni vikið frá
námi. Hún þótti raunar hafa japanskt
útlit og hræddist flugvélar. Hún var
orðin 19 ára er dr. Stevenson frétti af
henni og ekki reyndist unnt hvorki að
sanna né afsanna sögu hennar. Þess má
geta að hún sagði það velkoið að drepa
sig á hvaða máta sem væri ef hún gæti
endurfæðzt sem karlmaður.
í flestum tilvikum jafna börn sig
4—5 Islendingar i hópi þeirra sem
DB-mynd Einar Ólason.
samt og sætta sig við orðinn hlut að
fullu um 8—9 ára aldur, þótt ýmsir
hlutir loði samt stundum áfram við
þau; hræðsla við eitt og annað eða
áhugamál.
Barn sakaði
morðingja sinn
Dr. Stevenson kvaðst ekki geta til-
greint neinn aðila sem fullnægði öllum
þeim kröfum er hann og samstarfs-
hópur hans gera til ótvíræðra sannana
um endurholdgun en sagði að líklegasta
dæmið um þetta fyrirbæri, er hann
þekkti til og hefði rannsakað, væri svo-
hljóðandi: Maður var ákærður af barni
sem kvað hann hafa myrt sig í fyrra lífi
og sagði það frá nánari málsatvikum.
Á grundvelli þessa játaði hinn ákærði á
sig umrætt morð og var fangelsaður
fyrir. Dr. Stevenson ræddi við morð-
ingjann í fangelsinu og við fjölskyldur
þær er hlut áttu að máli. Enginn grunur
hafði fallið á morðingjann fyrr en
barnið óx úr grasi og ákærði hann. í
því sambandi má geta þess að um með-
göngutímann dreymdi móður þessa
barns að til sín kæmi maður, blóði drif-
inn vegna stungusára.
Þegar atvik sem þessi eru rannsökuð
er vitaskuld reynt að ná eins miklum
upplýsingum og unnt er og er þá farið
eftir ýmsum reglum. M.a. er reynt að
hafa upp á dánarvottorðum, fæðingar-
vottorðum, skýrslum sjúkrastofnana
og öllu þesslegu. Jafnframt er reynt að
sjá við hugsanlegum svikum og prett-
um. I stuttu máli eru gerðar allýtarlegar
kröfur sem slíkar sögur þurfa að stand-
ast til þess að þær séu rannsakaðar sem
hugsanleg vísbending um endurholdg-
un.
- FG
Dr. Ian Stevenson hefur beðið
DB að koma því á framfæri að
þekki fólk dæmi um endurholdgun
eða fyrirbæri, sem mætti túlka sem
sllkt, þá láti það vita bréflega (á
ensku eða Islenzku) til:
Dr. lan Stevenson
c/o Dagblaðið
- Franzisca Gunnarsdóttir.
SKÍÐAKENNSLA
SKÍÐASKÓLI SIGURÐAR JÓNSSONAR
3ja daga námskeið byrja hvert þriðjudags-
kvöld. Ferðir, lyftur, kennsla: Allt inni-
falið. Verð220kr.
INNRITUN í SÍMA
76740
EFTIR KL: 17.00
Tilboð óskast í eftirtaldar bifreiðar sem verða til sýnis
þriðjudaginn 10. mars 1981, kl. 13—16, í porti bak við
skrifstofu vora að Borgartúni 7:
Chevrolet Nova fólksbifrcið
Mercury Comet fólksbifreið
Ford Escort fólksbifreið
Chevrolet Sport Van
Ford Bronco
Ford Bronco
Ford Bronco
Volvo P144 fólksbifreið
Land Rover bensín
Land Rover dísil
Land Rover bensin
Land Rover bensin
Land Rover disil
Land Rover dísil
Land Rover dísil
Chevrolet sendiferðabifreið
Volkswagen 1200 fólksbifreið
Ford 4X4 pick-up
Volkswagen Combi fólksbifreið (skemmd)
Ford D 300 vörubifrcið
Lada station
Scania vörubifreið
BMW mótorhjól
Evinrude vélslcði, ógangfær
Johnson vélsleði, ógangfær
arg.
1977
1976
1976
1976
1974
1974
1973
1973
1970
1973
1973
1973
1974
1975
1975
1973
1973
1973
1978
1967
1977
1967
1965
Til sýnis hjá véladeild Vegagerðar ríkisins, Akureyri:
Volkswagen 1200 fólksbifreið
Volkswagen 1200 fólksbifreið
Land Rover disil
Land Rover bensín
/
árg. 1972
— 1972
— 1974
— 1973
Tilboðin verða opnuð sama dag, kl. 16.30, að viðstöddum
bjóðendum. Réttur er áskilinn að hafna tilboðum, sem ekki
teljast viðunandi.
INNKAUPASTOFNUN RIKISINS
BORGARTÚNI 7 SÍMI 26844 PÓSTHÓLF 1441 TELEX 2006