Dagblaðið - 09.03.1981, Page 31
31
Utvarp
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 9. MARZ1981.
Mads litli á við vandamál að striða sem veldur honuni hugarkvölum.
ÞAÐ ER SVO MARGT í HENNIVERÖLD - sjónvarp kl. 21,15:
LÍTILL STRÁKUR Á
í SÁLRÆNU STRÍÐI
— þrátt fyrir ást og umhyggju f oreldranna
Oft eiga börn, sem eiga við það
vandamál að stríða að væta rúmið, í
miklu sálrænu stríði. Slíkt veldur þeim
verulegum áhyggjum, oft hreinum
sálarkvölum. í kvöld verður sýnt í sjón-
varpinu danskt sjónvarpsleikrit um
þetta efni.
Það fjallar um lítinn strák, Mads að
nafni, sem virðist hvorki skorta ást né
umhyggju foreldra sinna. En hann á
við þann vanda að glíma að væta rúmið
sitt. Það veldur ekki aðeins honum
áhyggjum heldur foreldrunum líka sem
er umhugað um strákinn sinn. Þau vilja
allt fyrir hann gera og það kemur að
því að þau ákveða að leita ráða læknis.
Og farið er með Mads litla á sjúkrahús
til rannsóknar.
Þetta er eitt af þeim lejkritum sem
sumir kalla í frekar niðrandi tón
„vandamálaleikrit”. Opinber kvik-
myndaiðnaður á Norðurlöndum hefur
mikið fengizt við þess lags kvikmynda-
gerð eins og islenzkir sjónvarpsáhorf-
endur kannast mæta vel við. Minni
áherzla hefur aftur á móti verið lögð á
hreinar afþreyingarkvikmyndir og
einkaaðilum látið slíkt eftir.
Leikritið er eftir Bille August sem
einnig er leikstjóri. Dóra Hafsteins-
dóttir er þýðandi.
- KMU
'
Mánudagur
9. mars
12.00 Dagskráin. Tónleikar. Til-
kynningar.
12.20 Fréttir. 12.45 Veðurfregnir.
Tilkynningar. Mánudagssyrpa —
Þorgeir Ástvaldsson og Páll Þor-
steinsson.
15.20 Miödegissagan: „Litla væna
Lillí”. Guðrún Guðlaugsdóttir les
úr minningum þýsku leikkonunn-
ar Lilli Palmer i þýðingu Vilborg-
ar Bickel-ísleifsdóttur (4).
15.50 Tilkynningar.
16.00 Fréttir. Dagskrá. 16.15 Veður-
fregnir.
16.20 Siðdegistónleikar. Elly
Ameling syngur ljóðasöngva eftir
Franz Schubert. Dalton Baldwin
leikur með á píanó. / Maurizio
Pollini leikur Píanósónötu nr. 1 t
fis-moll op. 11 eftir Robert Schu-
mann.
17.20 Ragnheiður Jónsdóttir og
bækur hennar. Guðbjörg Þóris-
dóttir tekur saman.
17.50 Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvölds-
ins.
19.00 Fréttir. Tilkynningar.
19.35 Daglegt mál. Böðvar Guð-
mundssón flytur þáttinn.
19.40 Um daginn og veginn. Úlfar
Þorsteinsson skrifstofumaður tal-
ar.
20.00 Bertold Brecht og söngljóð
hans. Gisela May syngur lög eftir
Weill, Dessau og Eisler við ljóð
eftir Brecht; Kristin Anna Þórar-
insdóttir les ljóðið „Til hinna
óbornu” eftir Brecht í þýðingu
Sigfúsar Daðasonar. Kristján
Árnason flytur inngang og kynn-
ingar. (Áður útv. í okt. 1971).
20.40 Lög unga fólksins. Hildur
Eiríksdóttir kynnir.
21.45 Útvarpssagan: „Basilíó
frændi” eftir José Maria Eca de
Queiros. Erlingur E. Halldórsson
les þýðingu sína (2).
22.15 Veðurfregnir. Fréttir. Dagskrá
morgundagsins. Lestur Passíu-
sálma. Lesari: Ingibjörg Stephen-
sen(19).
22.40 Hreppamál — þáttur um mál-
efni sveitarfélaga. Stjórnendur:
Árni Sigfússon og Kristján Hjalta-
son.
23.00 Kvöldtónleikar: Frá tónlistar-
hátiðinni i Schwelzingen i júlí sl.
Flytjendur: Sinfóníuhljómsveit út-
varpsins í Stuttgart undir stjórn
Paul Sachers og Blásarasveitin í
Mainz. a. Metamorphosen (1945)
eftir Richard Strauss. b. Fjórir
þættir úr „Carmina burana” eftir
Carl Orff. c. „Petite valse Eur-
opéenne” eftir Jean Francaix.
23.50 Fréttir. Dagskrárlok.
Þriðjudagur
10. mars
7.00 Veðurfregnir. Fréttir. Bæn.
. 7.15 Leikfimi.
7.25 Morgunpósturinn.
8.15 Veðurfregnir. Forustugr. dag-
bl. (útdr.). Dagskrá. Morgunorð:
Haraldur Ólafsson talar.
8.55 Daglegt mál. Endurt. þáttur
Böðvars Guðmundssonar frá
kvöldinu áður.
9.00 Fréttir.
9.05 Morgunstund barnanna: Ferð-
ir Sindbaðs farmanns. Björg
Árnadóttir les þýðingu Steingrims
Thorsteinssonar (2).
9.20 Leikfími. 9.30 Tilkynningar.
Tónleikar. 9.45 Þingfréttir.
10.00 Fréttir. 10.10 Veðurfregnir.
10.25 Sjávarútvegur og siglingar.
Umsjón: Ingólfur Arnarson. Rætt
er við Emil Ragnarsson skipaverk-
fræðing um athuganir tækni-
deildar Fiskifélags íslands á olíu-
notkun fiskiskipa.
10.40 Gítarkonsert eftlr Stephen
Dodgson. John Williams leikur
með Ensku kammersveitinni;
Charles Groves stj.
11.00 „Áður fyrr á árunum”.
Ágústa Björnsdóttir sér um þátt-
inn. Lesinn verður „Þáttur af
Þórunni Sigurðardóttur” eftir
Brynjólf Jónsson frá Minna-Núpi.
11.30 Morguntónleikar. Glenn
Gould leikur Píanópartitu nr. 6 í
e-moll ettir J.S. Bach.
12.00 Dagskráin. Tónleikar. Til-
kynningar.
12- ^réttir. 12.45 Veðurfregnir.
Tilkynningar. Þriðjudagssyrpa —
Jónas Jónasson.
15.20 Miðdegissagan: „Litla væna
Lillí”. Guðrún Guðlaugsdóttir les
úr minningum þýsku leikkonunn-
ar Lilli Palmer í þýðingu Vilborg-
ar Bickel-Ísleifsdóttur (5).
15.50 Tilkynningar.
16.00 Fréttir. Dagskrá. 16.15 Veður-
fregnir.
I
Sjónvarp
&
Mánudagur
9. mars
19.45 Fréttaágripátáknmáli.
20.00 Fréttirogveður.
20.25 Auglýsíngarogdagskrá.
20.35 Sponni og Sparði. Tékknesk
teiknimynd. Þýðandi og sögu-
maöur Guðni Kolbeinsson.
20.40 íþróttir. Umsjónarmaður Jón
B. Stefánsson.
21.15 Það er svo margt í henni ver-
öld. Danskt sjónvarpsleikrit eftir
Bille August, sem einnig er leik-
stjóri. Aðalhlutverk Mikkel Koch,
Peter Schröder og Helle Merete
Sörensen. Mads iitla virðist hvorki
skorta ást né umhyggju foreldra
sinna. En hann á viö þann vanda
að etja að hann vætir rúmið sitt,
og þar kemur að hann fer á
sjúkrahús til rannsóknar. Þýðandi
Dóra Hafsteinsdóttir. (Nord-
vision — Danska sjónvarpið).
22.05 Reikistjarnan Júpíter. Júpíter
er 1300 sinnum stærri en jörðin.
Þar geisa hrikalegir fellibyljir, eld-
ingar leiftra og roða slær á himin-
inn. Þessi breska heimildamynd
lýsir þeim margháttuðu upplýsing-
unt, sem bandarísk geimskip hafa
aflað og visindamenn cru enn að
vinna úr. Þýðandi Jón O. Edwald.
22.55 Dagskrárlok.
Sjónvarp
BERT0LD BRECHT 0G SÖNGUÓÐ
HANS — útvarp kl. 20:
Varð f rægur
fyrir Túskild-
ingsóperuna
í kvöld verður endurflutt dagskrá
frá árinu 1971 um Bertold Brecht og
söngljóð hans. Gisela May syngur þá
lög við ljóð eftir Brecht og Kristín
Bertold Brecht (1898—1956).
Anna Þórarinsdóttir les Ijóð hans,
Til hinna óbornu, sem Sigfús Daða-
son þýddi. Inngang flytur Kristján
Árnason og hann kynnir einnig at-
riðin.
Nafn Bertolds Brecht er vel þekkt
hérlendis. Mörg af leikritum hans
hafa verið sett hér á svið, má nefna
Túskildingsóperuna, Góðu sálina í
Sesúan og Púntilla og Matta.
Brecht fæddist árið 1898, í Augs-
burg í Þýzkalandi. í fyrri heimsstyrj-
öldinni starfaði hann á hersjúkrahúsi
en hann hafði lagt stund á læknis-
fræði. Þar kynntist hann af eigin
raun hvernig stríð var í raun og veru
og átti það eftir að hafa mikil áhrif á
hann.
Árið 1933, þegar nasistar eru að
komast til valda, flúði Brecht til
Rússlands þar sem hann m.a. gaf út
blað í baráttunni gegn nasistum. 1941
fór hann til Bandaríkjanna þar sem
hann dvaldi næstu árin.
Brecht hafði orðið fyrir marxísk-
um áhrifum og koma þau fram í
nokkrum verka hans, aðallega í þeim
seinni. Brecht varð fyrst verulega
þekktur er hann sendi frásér Túskild-
ingsóperuna árið 1928 en hann
notaði oft söngva í leikritum sínum,
aðallega til dramatískrar áherzlu.
Bertold Brecht lézt í Austur-Berlín
árið 1956. -KMU
Trésmíðaverkstæði—
trésmíðavé/ar
Til sölu trésmíðaverkstæði með góðum vélakosti í 300
ferm leiguhúsnæði. Til greina kemur að selja vélarnar sér.
Vinsamlegast hringið í auglþj. DB í síma 27022 el tir kl. 13
fyrir 15. marz.
H-505
Hárgreids/usto/an
SPARTA
ii horni Auslurbrimur <>/> Noriiurhrúnar fe. i
Sími 31755 v y
Opid verdur fermingardagana
Tímapantanir
Ctústa Hreins. - BrynilisXiudjónsil.
VIDEO
*
*
*
*
nen
Kv
VHS videospólur til leigu í miklu úrvali ásamt mynd-
segulbandstækjum og litasjónvörpum. Ennfremur eru
til leigu 8 mm og 16 mm kvikmyndafilmur í
mjög miklu úrvali i stuttum og löngum útgáfum. bæði
þöglar og með hljóði, auk sýningarvéla (8 mm og 16
mm) og tökuvéla, m.a. Gög og Gokke, Chaplin. Walt
Disney, Bleiki Pardusinn, Star Wars o.fl. Fyrir full-
orðna m.a. Jaws, Marathon man, Deep, Grease. God-
father, Chinetown o.fl. Filmur til sölu og skipia.
Ókeypis kvikmyndaskrár fyrirliggjandi. Opið alla daga
nema sunnudaga.
Kvikmyndamarkaðurinn Sími 15480
Skólavörðustíg 19 (Klapparstígsmegin)
KVIKMYNDIR
*
¥
¥
¥
|