Dagblaðið - 09.03.1981, Qupperneq 32
Flugleiðavél íflugtaki á Aðaldalsflugvelli:
Annar hreyfill bilaði á
hættulegu augnabliki
—39 manns um borð — lending tókst vel og engan sakaði
Rétt eftir að Fokker-vél frá Flug-
leiðum hafði hafið sig til flugs frá
Aðaldalsflugvelli sl. laugardag bilaði
annar hreyfill vélarinnar. Flugstjór-
inn, Gylfi Jónsson, flaug vélinni einn
hring í kringum fiugvöllinn en lenti
svo. Tókst lendingin í alla staði vel og
sakaði engan. 36 farþegar voru um
borðásamt þriggja manna áhöfn.
Atburðurinn átti sér stað um eitt-
leytið á laugardag. Báðir hreyflar
gáfu fullt afl í flugtaksbruninu en
skömmu eftir að vélin var komin á
loft, í um 500 feta hæð, tóku flug-
mennirnir eftir þvi að annar hreyfill-
inn hitnaði of mikið. Að sögn Þor-
geirs Magnússonar, sem var að-
stoðarflugmaður í þessari ferð, var
reynt að kæla hreyfilinn en við það
missti hann afl svo ákveðið var'að
lenda strax.
Öryggiskröfur gera ráð fyrir þvi að
tveggja hreyfla vélar séu ekki hlaðnar
meira en svo að hægt sé að taka þær
á loft og fljúga, á aðeins öðrum
hreyflinum. Kom það sér vel í þetta
sinn.
Flugmenn fá einnig mikla þjálfun I
að stjórna vél við slíkar aðstæður.
Þegar hreyfUl á öðrum væng dettur
út myndast ójafnvægi sem flug-
maðurinn þarf að vinna á móti með
því að beita stjórnflötum, aðallega
stélstýri.
Tvær Twin Otter-vélar, frá Arnar-
flugi og Flugfélagi Norðurlands,
voru sendar til Húsavíkur seinna um
daginn til aðsækja farþegana.
í gærmorgun fór önnur Fokker-vél
norður til Húsavíkur með aukahreyf-
il um borð og 7 flugvirkja. Skiptu
flugvirkjarnir um hreyfil í gær og í
gærkvöldi var vélinni sem bilaði
flogið suður. Orsök bilunarinnar er
óljós en flugvirki sem DB ræddi við
og vann að viðgerð taldi ekki ólíklegt
að túrbína hefði bilað. Hreyfillinn
bilaði verður sendur við fyrsta tæki-
færi til Rolls Royce-fyrirtækisins í
Bretlandi sem mun annast viðgerð á
honum.
Vegna þessa óhapps varð nokkur
röskun á innanlandsfluginu og var
þota notuð í Akureyrarflug um helg-
ina af þeim sökum.
- KMU
Opinberir starf smenn í Bretlandi í verkfalli og f lugumf erð á brezku yf irráðasvæði
liggur niðri:
SETUR EKKISTRIK
í REIKNING FLUGLEIÐA
og umf erð um íslenzka svæðið eykst ekki í dag
Allsherjarverkfall hálfrar milljón-
ar opinberra starfsmanna á Bret-
landseyjum, sem m.a. lokar Heat-
hrow-flugvelli i London í dag, setur
ekki strik i reikninginn hjá Flugleið-
um. Samkvæmt upplýsingum DB í
morgun eru engar flugferðir fyrir-
hugaðar milli íslands og Bretlands í
dag en ferð til London er á áætlun
Flugleiða í fyrramálið.
Á miðnætti hófst verkfallið I Bret-
landi og stendur til miðnættis næst-
komandi. Atvinnulíf í landinu er
lamað, enda eru yfirleitt allir opin-
berir starfsmenn þátttakendur I verk-
fallinu, allt frá skrifstofumönnum
með jafnvirði 70.000 ísl. krónur í árs-
laun til yfirmanna í ráðuneytum með
jafnvirði 485.000 ísl. króna í árslaun.
Krafizt er 15% hækkunar launa en
ríkisstjórn Margaret Thatchers býður
mest 7% hækkun. Búizt er við frek-
ari átökum stjórnarinnar við starfs-
menn hins opinbera.
Heathrow-flugvöllur er sem fyrr
segir algerlega lokaður í dag, i fyrsta
sinn frá þvi hann var opnaður fyrir
35 árum. Umferð til og frá brezka
fugumferðarstjómarsvæðinu liggur
niðri. Flugumferð yfir Atlantshafið
verður þvi að beinast að leiðum sunn •
an eða norðan brezka svæðisins, í
síðarnefnda tilvikinu um islenzkt og
norskt umsjónarsvæði. Norðmenn
takmarka hins vegar umferðaraukn-
ingu aðeins við eina flugvél á klukku-
stund og af þeim sökum var í morgun
ekki búizt við að umferð i lofti við
ísland ykist í dag, heldur jafnvel að
hún yrði minni en venjulega. -ARH.
(ianfixlcllir höfudbornarinnar hufa ckki hcinlínis i crið nrciöfœrar a<) undanförnu.
Oftar cn ckki hcfur rcrið hcinlínis lifshiciiulcn hulku ú þcim cða snjóruðninxar.
Konan ú myndinni lœlur fœrðina ckkcrl ó sin fú «K kcmst lciðar sinnar mcð hyrði
scm maryur karimuðurinn mælli lcljasl jullsæmdur af. DK-mynd: h'.inar Ólason.
frfálst, úháð dagblað
MÁNUDAGUR9. MARZ 1981.
Banaslys
íKópavogi
—16 ára stúlka lézt af
völdum áverka
Á laugardagskvöld lézt 16 ára stúlka,
Hafdís Viborg Georgsdóttir, Króka-
hrauni 8 Hafnarfirði, af völdum
meiðsla er hún hlaut er hún varð fyrir
bíl á Nýbýlavegi í Kópavogi aðfaranótt
laugardags.
Atvik voru þau að stúlkan var að
fara úr bíl á leið austur Nýbýlaveg og
var á leið yfir götuna þegar bill kom
vestur Nýbýlaveg og lenti á henni.
Ungur maður, félagi stúlkunnar, var
rétt á undan henni yfir götuna en hann
slapp.
Lögreglan í Kópavogi lýsir eftir
sjónarvottum aðslysinu.
Á Akranesi varð 18 ára stúlka fyrir
bíl á Innnesvegi um kl. 3.40aðfaranótt
sunnudags. Ökumaður bílsins yfirgaf
slysstað áður en lögreglan kom að.
Konu, sem sá atburðinn og lét lögregl-
una vita, sýndist bifreiðin vera stór gul
fólksbifreið.
Stúlkan meiddist talsvert en líður nú
eftir atvikum.
Lögreglan á Akranesi lýsir eftir
sjónarvottumaðslysinu. -GSE
Jón V. Jónsson
og lögmenn hans:
„Ekki tilefni
til opin-
berrar kæru”
— segir ríkissaksóknari
Ríkissaksóknari metur rannsóknar-
gögn í kærumáli Jóns V. Jónssonar,
verktaka í Hafnarfirði, þannig, að þau
gefi ekki tilefni til opinberrar máls-
höfðunar gegn tveim lögmönnum sem
verktakinn hafi krafizt rannsóknar á
vegna starfa þeirra i hans þágu.
Gerði verktakinn þungorðar kröfur
um opinbera rannsókn, meða! annars á
meintu skjalafalsi og fjárdrætti Þor-
valdar Lúðvíkssonar og Svans Þórs Vil-
hjálmssonar lögmanna er þeir höfðu
með höndum margvísleg erindi fyrir
hann. Meðal annars önnuðust þeir að
talsverðu leyti fjárreiður fyrir Jón V.
Jónsson er hann var verktaki á Grund-
artanga.
Rannsóknarlögregla ríkisins ann-
aðist hina umbeðnu rannsókn. Er
niðurstaða ríkissaksóknara byggð á
henni.
Verktakinn rekur nú einkamál fyrir
borgardómi Reykjavikur gegn áður-
nefndum lögmönnum þar sem hann
gerir kröfur um skaðabætur á hendur
þeim.
- BS
Féll á milli skips
ogbryggju
Ungur skipverji féll á milli skips og
bryggju og i sjóinn um kl. hálffimm að
morgni laugardags. Atburðurinn átti
sér stað úti á Granda, við svokallaða
hafskipabryggju.
Maðurinn komst af eigin rammleik
aftur upp á bryggjuna en lögreglan,
sem kom í sama mund á staðinn, færði
hann til öryggis á slysadeild.
- KMU
diet pepsi
iVIINNA EN EIN
KALÓRÍA í FLÖSKU |
Sanilas
__________Z_________