Dagblaðið - 10.04.1981, Síða 5
DAGBLAÐID. FÖSTUDAGUR 10. APRÍL 1981. 5
Hárgreiðslustof ur hunza hámarksverð Verðlagsstof nunar:
Veró á hárgreiðslustofum allt
að 75% hærra en leyfilegter
Verðlagsstofnun hefur nýlega
ákveðið nýtt hámarksverð fyrir hár-
greiðslumeistara. Birtist nýja verð-
skráin i Lögbirtingablaðinu 20. marz
sl. Þetta hámarksverð á við á hvaða
stað sem vinnan er unnin. Hins vegar
ber svo við að varla nokkur hár-
greiðslustofa fer eftir þessu hámarks-
verði og í könnun sem DB gerði 1 gær
kemur fram að á 15 stofum, sem
teknar voru i könnunina, var verðið
hvergi það sama. Alls staðar var það
yfir hámarksverði og munurinn á
þeirri stofu sem tekur hæst gjald og
þeirri sem tekur lægst er hvorki meira
né minna en 120 krónur.
í könnuninni var spurt hvað kosti
klipping, permanent, hárþvottur og
næring fyrir stutt hár. Verðlagsstofn-
un gaf út tilkynninguna 14. marz sl.
en óskaði eftir að hárgreiðslustofur
fengju þriggja vikna frest til að
aðlagast nýja verðinu frá þvi til-
kynningin birtist i Lögbirtinga-
blaðinu. Þessar þrjár vikur eru nú
liðnar en árangurinn er bágborinn,
eins og fram kemur 1 könnun DB.
Verðlagsstofnun hefur lengi átt f
Tilkynning jVr.
Vcrðlagsráð hefur ákveðið efli 'l'arandi háinarksverð fyiir iiár'xreiðsluiiuMslarn. |
Klippinpr:
Mótun ............................................... kr. f».4á
Skjvraklipping (formklippi ij{> .....................
Sérstök klipping skv. sérst;:kri heíðni viðskiplavinar . . - - 48.S5
Hárþvottur:
Hárþvottur ............................................... 15.15
Hárlagning:
Iaigning. daxigrciðsla (ótiip rað)..................... ‘-(»,10
l'ppii'.llun <>(i útiíreiðsla:
-. '. kímIIii inr: 10.40
2. Á siðu hári ....................................... 41,15
Permanent:
I'yrir slutt hár ....................................... '••0.00
Fyrir sitt hár............................................ 107,25
(1 ofángrcindum verðuni er innifalin vinna, orka, handkkeði, pappir, plast-
hanskar, slá og önnur þjónusla, |>ó ekki efni, hárþvottur og hárnæring).
Kfni Stutt luir Silt tuir
Hárlakk .............................. kr. '<».10 kr. 8.10
Næring ............................... — 12,20 — 10,20
Sjampó ............................... — 8,50 — 4.05
Lagningarvökvi ..................... — 0,10 —■ 8,10
Hárvatn .............................. — 4.95 - .0.55
Permanentcfni ........................ 48,75 — 58,20
(Innifniið i verði efna, er vinna við isetningu. Nolkun efna á að vcra í samráði
við viðskiptavin).
Ofangreind verð eru hámarksverð, hvar sem vinnan er framkva’ind.
Eftirvinna greiðist með 40% ólagi, nætur- og helgidagavinna með 80% álagi á
ofangreinda taxta.
Rcvkjavík, 14. mars 1981.
* 1520) Verðlagsstofnun.
TUkynnlngin sem birtist i Lögbirtlngablaölnu 20. marz sl. um h&marksverð
fyrir hárgreiðslumelstara.
stríði við hárgreiðslustofur vegna of
hás verðlags. Margir hafa hringt og
kvartað undan háu verði á hár-
greiðslustofum en fáir hafa áttað sig
á því að sundurliðaða nótu þarf frá
viðkomandi hárgreiðslustofu svo
hægt sé að kæra. Eftir að hámarks-
verðið hefur birzt i Lögbirtinga-
blaðinu er það orðið opinbert og ber
hárgreiðslustofum þvl skylda til að
fara eftir þvl. Viðskiptavinir hár-
greiðslustofanna ættu þvi skilyrðis-
laust að fá sundurliðaða nótu fyrir
veittri þjónustu.
Við birtum hér tilkynninguna úr
Lögbirtingablaðinu lesendum til
glöggvunar og svo aftur verð þeirra
15 hárgreiðslustofa sem við
spurðumst fyrir um verð. Hár-
greiðslustofurnar voru valdar af
handahófi úr símaskrá. Má þvi vel
vera að einhverjar stofur sem ekki
voru með séu annaðhvort með hærra
eða lægra verð á þeirri þjónustu er
viðspurðumum. -ELA.
RÉTT VERÐ eftir til-
kynningu Verðlags-
stofnunar
Fyrir stutt hár
Mótun..................... 6,45
Skæraklipping........... 39,10
Permanent................ 90,60
Permanentefni............ 43,75
H&rþvottur................ 15,15
Sjampó.................... 3,50
Næring.................... 12,20
Samtals kr. 210,75
H&marksverð samkvæmt tilkynningu
verðiagsstofnunar
Verð á þeim 15 hárgreiðslustofum
sem athugun DB náði til. Spurt var
um verð á klippingu, permanenti,
hárþvotti og hárnæringu fyrir stutt
hár.
Viðskiptavinurinn borgar uppsett verð. Hringir sfðar f Verðlagsstofnun er
heim kemur og undrast blð h&a verðlag en þar sem engin nóta er fyrir hendi er
ekkert hægt að gera. Neytendur verða að vera varir um slg varðandl verðlag,
hvort sem það er & h&rgrelðsiustofunni eða i matvöruverziuninni.
Hðrgreiðslust Brósa, Starmýrí 2...................................kr. 340,-
Hárgreiðsiust Salon VEH, Atfheimum 74...............................- 322,-
HárgreiðslusL ValhöH, Óðinsgötu 2...................................- 321,-
HárgreiðskisL Klepparstlg..........................................- 305,-
Hárgreiðskmt Báru Kemp, Laufásvogi 17 .............................- 304,50
Hárgreiðsknt Hðtel Sögu.......... .................................- 301,-
Hárgreiðskist Papila, Laugavegi 24.................................- 297,-
Hárgreiðskist Siggu Dðru, Grimsbæ..................................- 294,-
Hárgreiðslust Krista, Rauðerárstig 19 .............................- 299,-
Hárgreiðslust. Kristínar Ingimundard., Kirkjuhvoli.................- 284,-
Hárgreiðskist Lðtus, Alftamýri 7...................................- 200,-
Hárgreiðskist Venus, Garðestræti 11 ...............................- 279,-
Hárgreiðslust. Bylgjan, Hamraborg 1, Kóp...........................- 271,-
Hárgreiðskrst Lokkur, Strandgötu 1, Hf............................ - 250,-
Hárgreiðskist Sðtey, Reynimel 88...................................- 220,-
Alþjóðlegurblær
áfýrírhugaðri
flugstöð
áKeflavíkur-
flugvelli:
Möguleiki á afgreiðslu
tólf f lugvéla f einu
„Allur viöur í byggingunni veröur
ljós, birki og/eöa beyki. Viðaráferö
verður nokkuð áberandi. Viður verður
notaður i ýmsar innréttingar, til dæmis
hurðir, létta skilveggi með gleri, af-
greiðslur og loft.
Þetta er lýsingin á því sem blasir við
þeim farþegum, sem eiga eftir að fara
um nýju flugstöðina sem reist verður á
Keflavikurflugvelli.
í lýsingu á flugstöðvarbyggingunni
segir meðal annars: Á síðari hluta
þessarar aldar hafa byggingarfram-
kvæmdir hérlendis þróazt á mjög
hliðstæðan hátt og annars staðar f
Norður-Evrópu.
Svo sem víðast i nágrannalöndum
stefnir þróun hérlendis í þá átt að
byggingarhefðin fái alþjóðlegan blæ.
Er því vart hægt að tala um frábrugðna
hérlenda byggingarlist þótt hún hafi að
sjálfsögðu sin sérkenni.
Á 1. hæð flugstöðvarinnar verða
brottfararskáli og komuskáli. í þeim
skálum verða skráning farþega annars
vegar og tollskoðun hins vegar.
Þar verða einnig snyrtiherbergi, far-
miöasala, ferðaskrifstofa, bilaleiga og
sala farmiða til Reykjavikur.
Aðalskálar hússins verða tengdir
með tengigangi á norðurhlið 1. hæðar.
Að honum liggja svo meðal annars
banki, pósthús og veitingabúð.
Um miðbik 1. hæðarinnar, milli
komuskála og brottfararskála, liggur
farangursskáli. f þeim skála fer fram
öll afgreiðsla á farangri, bæöi út úr
landinu og inn i það.
Suðurhlið 1. hæöarinnar hýsir ýmsa
tækniþjónustu, svo sem dælur og raf-
búnað. Þar verður tölvumiðstöð flug-
stöðvarinnar einnig. Þar verða og
aðstaða starfsfólks, búningsherbergi,
böð og setustofur.
Á þessu svæöi verður líka vörumót-
taka byggingarinnar. Á 1. hæðinni
undir landgangi við stigahúsin tvö
verður komið fyrir flugþjónustu til
áhafna varðandi veður, hleðslu, flugá-
ætlun og þess háttar. Þar verður einnig
komið fyrir þjónustu við ræstingu flug-
vélanna.
Fullkomin þjónusta
Íf/Tran8it"
Á 2. hæð verður biðsvæði sem
oftast er kallað transit. Verður það
fyrir miðju með áföstum landgangi til
suðurs að flugvélunum.
Innan þessa svæðis, þ.e. transit,
verður ýmiss konar þjónusta við far-
þega, svo sem verzlanir, veitingasala,
banki, pósthús, snyrtingar o. fl.
f vesturhlið 2. hæðar verður skrif-
stofusvæöi. Þar verða skrifstofur flug-
vallarstjóra, flugfélaga, pósts og síma,
lögreglu, útlendinga- og tolleftirlits,
veitingasölu og verzlunarreksturs.
í austurhlið flugstöðvarinnar verður
mötuneyti starfsmanna og eldhús sem
þjónar bæði veitingasölu flug-
stöðvarinnar og matargerð og af-
greiðslu á mat til flugvéla, svonefnt
flugeldhús. Maturinn verður fluttur um
sérstakan inngang á suðurhlið 2. hæðar
í vögnum, sem hafa sérstaka lyftu að
inngangsopinu.
f þakrými verður komið fyrir loft-
ræstikerfi undir súð. Þarna verður tals-
vert svæði, sem enn hefur ekki verið
ákveðið til hverra nota verður tekið,
eins konar húsrýmisbanki.
Lyftur og rúllu-
stigar með upphit-
uðum landgöngum
Biðsvæðið á 2. hæð tengist við 1.
hæðina með stigum, rúllustigum og
lyftum. Geta farþegar þegar valið um
þessa kosti til að fara á milli hæöa.
Þessir kostir allir eru reyndar víðar í
flugstöðinni.
Þá er gert ráð fyrir lokuðum og
upphituðum landgöngum frá báðum
hæðum flugstöðvarinnar til flugvéla.
Undir flugstöðinni er gert ráð fyrir
kjallara, þar sem fyrir verður komiö
meðal annars leiðslum alls konar og
lögnum, aðgengilegum til viögeröa og
viðhalds.
ITKiyiM./KI
/f T
t; 7>v. < -
umnTOfu.
-] hi
KMállfi IsuUinu AA I A.
f..».EU.SS..JLIw^,-y
Enn hefur ekki verið tekin afstaða
til nýtingar alls kjallarans. Sennilegt er
að siðar verði gerð skábraut fyrir bif-
reiðar niður að kjallaranum við
suðurhlið flugstöðvarinnar fyrir
vörumóttöku, geymslur og hugsanlega
sorp.
Nýja flugstöðin
helmingi stærri —
mörgum sinnum
fullkomnari
Nýtanlegt flatarmál nýju flug-
stöðvarinnar er talið um 12.300
fermetrar auk þess sem nýtanlegt flat-
armál 1 landgangi á 1. og 2. hæð verður
samtals 1.685 férmetrar.
Núverandi flugstöðvarbygging á
Keflavíkurflugvelli er að nýtanlegu
flatarmáli um 7 þúsund fermetrar.
Nýja flugstöðin er því helmingi stærri
að flatarmáli, þegar ekki eru taldir með
möguleikar á stækkun.
Minnsta stækkun, sem mælt er
með, erum3.300 fermetrar. Tvöföldun
á afkastagetu flugstöðvarinnar er
samtals 8.300 fermetrar.
Með þeirri stækkun og fullri
nýtingu á landgangi geta i allt 12 flug-
vélar lagzt að honum í einu. Þetta eru
að visu ýtrustu möguleikar, sem þó eru
teknir með í byggingardæminu
varðandi nýja flugstöð. Svo kann þó að
fara að hugmyndir hönnuða um af-
kastagetu nýrrar flugstöðvar á Kefla-
víkurflugvelli verði raunhæfari innan
tíðar en almennt er nú ráð fyrir gert.
-BS.
Þversnlð af húsaskipan 1 nýju flugstöðinnl.