Dagblaðið - 10.04.1981, Blaðsíða 24
Gunnar Sveinsson semfyrstur varð varvið gosið í Heklu:
„Taldi fyrst að svona
hátt léti í fossinum”
Flugmannaverkfallið
bannað með lögum
— keyrt í gegn á þremur tfmum og skulu þrír úrskurðaraðilar útkljá málið ef
sáttanef nd tekst ekki að leysa það
Otsýni til gosstöflvanna frá Skjólkvium. t baksýn til vinstri má sjð bólstrana
frá aflaigignum i Heklu en til hœgri, vió rœtur Litlu-Heklu, er neflri endi
sprungunnar. Þar komu upp í gœrdag mórauðir bólstrar sem bentu til eld-
virkni. Þegar leifl á daginn f gœr breyttist gosifl og þegar aftur rofafli til um
tiuleytið i gærkvöldi sást úr byggfl afl eldvirkni var uppi á allri sprungunm og
hraun rann beggja megin vifl Litlu-Heklu. Þar sem mennimir tveir standa i
forgrunni var töluvert hitauppstreymi úr gígunum frá 1970 og yfirborflifl vel
heitt. DB-mynd: Sigurflur Þorri.
„Mér heyrðist ég heyra drunur um
kl. 2.30 í fyrrinótt,” sagði Gunnar
Sveinsson, svæðisgæzlumaður við
Hrauneyjafossvirkjun, en hann varð
fyrstur manna var við Heklugosið. „Ég
taldi fyrst að svona hátt léti í fossinum
Páll Ólafsson staöarverkfræöingur Hrauneyjafossi:
Mestar áhyggjur af því
að raf magn slái út
— er blaut askan sezt á einangrun raflína
,,Það sem Landsvirkjun hefur mest-
ar áhyggjur af í augnablikinu er að
blaut askan setjist á einangrun á raf-
línum,” sagði Páll Ólafsson, staðar-
verkfræðingur við Hrauneyjafoss-
virkjun, í gær. „Við það fá linumar
jarðsamband og rafmagn getur slegið
út. En meðan vindátt helzt óbreytt
erum við ekki i bráðri hættu hvað þetta
varðar.
Hér vinna nú rúmlega 300 manns,
en verða 600—650 þegar mest verður í
sumar. Mannskapur hér hefur ekki
verið í neinni hættu. Jafnvel þótt raf-
magnið færi á ég ekki von á því að
mennirnir yrðu fluttir burtu, nema um
síðasta vinnudag fyrir páskafrí yrði að
ræða. Sá dagur er á morgun, laugar-
dag.”
-JH.
en tók siðan eftir því að aur tók að
safnast á bílrúðurnar þannig að rúðu-
þurrkurnar höfðu ekki undan. Er ég sté
úr úr bílnum heyrði ég drunurnar og
fann ólykt.
Mér fannst kjafturinn á mér fyllast
af sandi og kveikti þá á perunni. Mér
fannst þó lengi þetta ekki vera
alvörugos. Ég horfði í sortann en gat
ekkigreinteld.
Ég fór strax i síma og taldi eðlileg-
ustu viðbrögð að láta Almannavarnir
vita og hafði einnig samband við Búr-
'fell en þeir höfðu þá einnig heyrt
drunurnar. Vélstjóri þar taldi sig sjá
glæringar en var þó ekki viss.
Við stóðum klárir að þessu og vorum
viðbúnir að ræsa ef á þyrfti að halda,
en til þess kom þó ekki. Vindátt var
heppileg. Aska féll hjá okkur en ekki
við Búrfell eða á bæina í Landssveit.
Það gat í raun ekkert gerzt hér.”
-JH.
Gunnar Sveinsson: „Mér fannst
kjafturinn á mér fyilast af sandi.”
DB-mynd: Sigurður Þorri.
, ,Takist ekki samkomulag um sam-
einingu starfsaldurslista þeirra félags-
manna Félags ísl. atvinnuflugmanna
og Félags Loftleiðaflugmanna, sem
starfa hjá Flugleiðum hf., fyrir milli-
göngu sérstakrar sáttanefndar
tilnefnir Hæstiréttur íslands þrjá
menn sem úrskurðaraðila um það
efni.
Úrskurðaraðilar skulu hefja störf
þegar er ljóst liggur fyrir að störf
sáttanefndarinnar beri ekki árangur
og ekki sfðar en innan fjögurra vikna
frá gildistöku laga þessara.
Vinnustöðvun sú sem boðuð var
frá og með 10. apríl 1981 vegna deilu
um starfsaldurslista er óheimil, svo
og aðrar vinnustöðvanir i því skyni
að knýja fram aðra skipan mála en
lög þessi gera ráð fyrir. Ákvarðanir
úrskurðaraðila skulu vera bindandi
fyrir hlutaðeigandi frá 15. marz
1981”.
Þetta er efni laga sem 1 gær voru
m---------------►
Kristján Eglisson, formaður FÍA,
Ámundi Óiason flugstjóri og
Guðlaugur Þorvaldsson riklssátta-
semjari ræðast við um nýju lögin i
„Karphúsinu” igærkvöid.
DB-mynd: Einar Ólason.
samþykkt á tveimur klukkustundum
við þrjár umræður í hvorri deild.
Steingrímur Hermannsson sam-
gönguráðherra fylgdi frumvarpinu úr
hlaði.
Sjálfstæðismenn tóku fram að þó
ekki hefði verið haft samráð við þá
fyrr en kl. 13 í gær myndu þeir ekki
leggja stein í götu afgreiðslu málsins.
Sjálfstæðismenn tóku ekki afstöðu
til málsins og sátu hjá við atkvæða-
greiðslur.
Sjálfstæðismenn lögðu til að málið
væri kallað ,,sinu rétta nafni, þ.e.
frumvarp til laga um gerðardóm en
ekki frumvarp til laga um úr-
skurðaraðila o.s.frv.”
-A.St.
frfálst, úháð dagblað
FÖSTUDAGUR 10. APRÍL1981.
Sígarettuauglýsingarnar:
Reykinga-
varnanefnd
kærir
„Um hina lögfræðilegu hlið vil ég
ekki tjá mig en ég tei vafalaust að
blaðið verði látið standa fyrir máli sinu
ef hér er um lögbrot að ræða,” sagði
Vilhjálmur Ragnarsson, fram-
kvæmdastjóri Reykingavarnanefndar,
i viðtali við DB, en hann var spurður
um viðbrögð nefndarinar við
sígarettuauglýsingum, sem birtust í
síðasta tölubiaði Samúels.
Hann kvað það meðal annars hlut-
verk nefndarinnar að hafa eftirlit með
því að lögboðið auglýsingabann á
tóbaki sé ekki brotið.
„Það hefur áður verið reynt að
brjóta niður nauðsynlega löggjöf til
varnar gegn skaösemi reykinga, sem er
meðal annars i samræmi við stefnu
Alþjóöaheilbrigðisstofnunarinnar,”
sagði Þorvarður örnólfssoon, einn
nefndarmanna i Reykingavarnanefnd
og starfsmaður Krabbameinsfélags
íslands. Nefndin kemur saman í dag og
tekur þá væntanlega ákvörðun um,
hvort hún kærir áðurnefndar
sígarettuauglýsingar.
„Ég hefi ekki séð þetta blað og get
þvi ekkert um málið sagt, en ég geri ráð
fyrir að aðrir aðilar hafi frumkvæði um
aðgerðir í málinu ef þess gerist þörf,”
sagði Bragi Steinarsson vararíkis-
saksóknari í viðtali við DB.
-BS.
Mál & menning
dreifir Frí-
múrarabókinni
— Innkaupasambandið
guggnaði
„Það varð ofan á í stjórn Innkaupa-
sambands bóksala aö taka ekki bók
Úlfars Þormóðssonar til dreifingar,”
sagði Arnar Ingólfsson, formaður
stjórnar Innkaupasambandsins, í við-
tali við DB í morgun.
„Þessari niðurstöðu réðu viðskipta-
sjónarmið og eins það, sem ég sagði í
gær, að ég vil ekki taka þátt í að dreifa
neinu því sem sært gæd einhverja,”
sagði Árnar. Hann kvað það rétt, sem
fram kom í frétt DB í gær, að stjórnar-
menn hefðu viljað sjá bókina og efni
hennar áður en afstaða yrði tekin til
dreifingarinnar.
„Ég vil nú ekki kalla þetta rit-
skoðun, en við höfum dæmi um bók,
sem hafnað var dreifingu á vegna efnis
hennar,” sagði Arnar. „Um bók
Úlfars get ég ekkert sagt. Ég vonast til
að hún verði höfundi til sóma,” sagði
Arnar.
„Þaðerrétt, viðsjáumum dreifingu
bókarinnar Bræðrabanda eftir Úlfar
Þormóðsson. Henni verður dreift á
Stór-Reykjavíkursvæðinu í dag,” sagði
Hugo Andreasen, dreifingarstjóri
bókaútgáfu Máls og menningar, í
viðtali við DB í morgun. Bókinni
verður svo dreift um ailt land um og
eftirhelgina.
-BS.
diet pepsi
MINNA EN EIN
KALÓRÍA í FLÖSKU
Stinilas