Dagblaðið - 14.05.1981, Qupperneq 1
IMjálSly
úháð
dagmað
7. ÁRG. —FIMMTUDAGUR 14.MAÍ 1981 — 107. TBL.
RITSTJÓRN SÍÐUMÍILA 12. AUGLÝSINGAR OG AFGREIÐSLA ÞVERHOI.TI 11.—AÐALSÍMI 27022.
Hlóeinsogtmll
íklukkutíma
-sjáFÓLKábls.16
BATAHORFUR PAFANS
ERU SAGDAR GÓDAR
— eftir banatilræðið sem honum var sýnt á Péturstorgi í gær
Jóhannes Páll páfi annar gekkst i
gær undir fjögurra klukkustunda
langa skurðaðgerð eftir að tyrknesk-
ur öfgamaður sýndi honum banatil-
ræði á Péturstorgi í gær. Læknar
segjast vongóðir um að hinn sextíu
ára gamli páfi nái fullri heilsu á ný.
Tilræðismaðurinn slapp úr fangelsi í
Tyrklandi þar sem hann sat inni
vegna morðs sem hann hafði framið.
Hann mun áður hafa hótað að ráða
páfann af dögum.
Um allan heim hafa menn látið í
ljós hryggö sína og reiði vegna
tilræöisins við páfa og viða hafa
verið haldnar sérstakar bænaguðs-
þjónustur þar sem beðið hefur verið
fyrir heilsu páfa.
— sjáerl. fréttirbls. 6-7
Gunnar Thoroddsen
forsætisráðherra:
„Auðvitað
hlýtégað
fagna undir-
tektum
fólksins”
„Rikisstjórn sem nýtur stuðn-
ings meira en tveggja af hverjum
þremur sem taka afstöðu getur
ekki kvartað,” sagði Gunnar
Thoroddsen forsætisráðherra í
morgun er úrslit skoðanakönn-
unarinnar voru borin undir hann.
„Auðvitað hlýt ég að fagna
undirtektum fólksins og stuðn-
ingi þess viö tilraunir stjórnarinn-
ar til viðnáms gegn verðbólgunni.
En niðurstöðurnar sýna einnig að
stjórnarandstaðan hefur ekki haft
erindisemerfiöi.” -JH
ÓlafurG. Einarsson,
formaðurþingflokks
Sjálfstæðisflokksins:
Fleiriog
fleiri átta sig
á blekkingu
stjórnarinnar
„Könnunin sýnir minnkandi
fylgi við stjórnina frá janúar-
könnun. Með öðrum orðum:
fleiri og fleiri átta sig á blekking-
unni sem fólst í svokölluðum
efnahagsráðstöfunum um siðustu
áramót,” sagði Ólafur G. Einars-
son, formaður þingflokks Sjálf-
stæðisflokksins, í morgun.
„Stuðningsmönnum stjórnar-
innar hefur fækkað um 15% og
hópur andstæðinga og þeirra sem
neita að svara hefur vaxið um
24%.
Þegar kjósendur hafa áttaö sig
á siöustu sjónhverfingunum í
efnahags- og orkumálum verður
gengi stjórnarinnar enn minna.
Það mun næsta könnun sýna.”
-JH
Átökin
harðna í
Miðaustur-
löndum
Fjarstýrð ísraelsk eftirlitsvél
var skotin niöur af sovézkum
SAM-6 loftvarnaeldflaugum yfir
Bekaa dalnum í austur Libanon.
öfugt við það sem gerðist í gær
hafa ísraelsmenn viðurkennt að
þessi atburður hafi átt sér stað.
Óttazt er að ísraelsmenn grípi til
hefndaraðgerða, jafnvel þegar í
dag, og að friðarumleitanir
Philips Habibs sendimanns
Bandaríkjanna beri ekki árangur.
Vmsir óttast nú að spennan í
Miðausturlöndum sé komin á það
stig aö styrjöld ísraels og Sýr-
lands sé óhjákvæmileg.
-GAJ
Skoðanakönnun Dagblaðsins á fylgi ríkisstjómarinnar.
DREGUR ÚR FYLGI
STJÓRNARINNAR
—ennýturáfram fyigjs yfirgnæfandi meirihluta
Fylgi ríkisstjórnarinnar hefur
minnkað siðustu mánuði samkvæmt
skoðanakönnun sem Dagblaðið gerði
um síðustu helgi. Ríkisstjórnin nýtur
þó enn fylgis yfirgnæfandi meirihluta
þeirra sem taka afstöðu.
52,3 prósent af heildinni segjast nú
fylgjandi ríkisstjórninni, 23,7 prósent
segjast andvígir henni, 20% eru
óákveðnir og 4% vildu ekki svara
spurningunni. Þetta þýðir að 68,9%
af þeim sem taka afstöðu eru fylgj-
andi stjórninni en 31,1% andvígir.
Fylgi stjórnarinnar var meira í
könnun sem DB gerði í janúar síðast-
liðnum. Þá sögðust 61,5% af heild-
inni fylgja stjórninni, 20,8% voru
andvígir en 17,7% voru óákveðnir
eða vildu ekki svara. Af þeim sem
tóku þá afstöðu fylgdu 74,7% stjórn-
inni en 25,3% voru andvígir henni.
Fylgi stjórnarinnar er þó meira nú
en það var í september í fyrra sam-
kvæmt skoðanakönnun DB þá. -HH.'
—sjá nánar um skoðanakönnunina á bls. 5
„Við kunnum illa við að hafa svo fá börn i kringum okkur,” sögðu fóstrurnar Krist-
jana Karlsdóttir og Erna Sigurðardóttir á Sólbakka, dagvist Landspitalans, við
Sigurð Þorra Ijósmyndara DB sncmma i morgun. Foreldrar höfðu ekki áttað sig á að
kjaradeilan væri leyst og fá börn mætt i morgunsárið. Með fóstrunum, Kristjönu til
vinstri og Ernu, eru Örvar, Agnes, Marta, Kristin, Margrct og Snorri. . ARH
— Sjá baksíðu