Dagblaðið - 14.05.1981, Blaðsíða 10
/
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 14. MAÍ 1981
10
1
Erlent
Erlent
Erlent
Erlent
D
Framkoma erlendra fréttamanna á Norður-írlandi þótti til lítillar fyrirmyndar:
Fréttamenn greiddu fjár-
muni fyrír auknar óeiröir
Rosaleen Sands, móðir IRA-félagans Bobby Sands, og Marcella systir hans fylgja honum til grafar.
Fréttamenn er komu til Norður-ír-
lands til að fylgjast með dauðastríði
IRA-félagans Bobby Sands og óeirð-
um er búizt var við I kjölfar dauða
hans, hafa sætt harðri gagnrýni fyrir
að kynda undir óeirðirnar til að ná
sem beztum fréttamyndum.
Hundruð blaðamanna, ljósmynd-
ara og sjónvarpsmanna héldu til Bel-
fast í síðustu viku til að skýra frá at-
burðum þar í kjölfar dauða Bobby
Sands sem lét lífið eftir 66 daga hung-
urverkfall til að leggja áherzlu á
kröfur sínar um að IRA-félagar í
brezkum fangelsum verði meðhöndl-
aðir sem pólitískir flóttamenn.
Lögreglan á Norður-írlandi,
brezki herinn og margir íbúar Norð-
ur-írlands eru þeirrar $koðunar, að
nærvera fréttamanna, einkum ljós-
myndara og sjónvarpsmanna hafi
orðið ungmennum í Belfast og öðrum
borgum Norður-írlands hvatning til
óeirða.
Areiðanlegar heimildir fullyrða að
nokkrir erlendir fréttamenn hafi sett
dramatískar myndir á svið með því
að biðja óeirðaseggi um að láta til
skarar skríða á þeim tíma sem hent-
aði ljósmyndurunum og jafnvel hafi
verið dæmi þess að fréttamenn hafi
greitt fyrir sviðsetningu á þeim
myndum sem þeir vildu fá.
Dagblaðið The Newsletter í Belfast
skýrði frá því að fréttamenn frá einni
sjónvarpsstöð hefðu greitt börnum
fimm pund fyrir hverja plastkúlu,
sem öryggissveitirnar skutu að þeim.
Sunday Express í London setti
fram svipaðar ásakanir gegn sjón-
varpsmönnum og bar að þeir hefðu
boðið fé fyrir sviðsetningu óeirða.
Tony McGrath, gamalreyndur
ljósmyndari við brezka dagblaðið
The Observer, var svo hneykslaður á
framferði ýmissa hinna yngri starfs-
bræðra sinna að hann fór fram á að
fá að skrifa frétt um málið sjálfur.
„í fyrsta skipti í tólf ár við frétta-
öflun af heimsmálunum og einkum
málefnum Norður-lrlands hef ég
reiðzt svona og neyözt til að draga
hlutlægni starfsbræðra minna alvar-
lega í efa,” skrifaði hann.
Fréttamaður Reuters sá hóp ljós-
myndara við brennandi götuvígi í
einu kaþólsku hverfanna í Belfast
biðja dreng sem virtist ekki meira en
sex ára gamall um að stilla sér upp
fyrir framan eldslogana. Þeir báðu
hann að draga ullarhúfu sina niður
fyrir andlitið að sið IRA-skæruliða
og lyfta hægri hnefanum krepptum á
loft sem tákn um andstöðuna við
brezku stjórnina.
Atvik sem þetta leiddi til fundar er-
lendra ljósmyndara í Belfast. Þar
vöruðu margir hinna eldri Ijósmynd-
ara hina yngri við því að búa til fréttir
og fordæmdu hegðun þeirra, sem
slfkt hefðu gert.
Flestir sökuðu unga óreynda ljós-
myndara á eigin vegum um að ganga
fram af of mikilli hörku við töku
fréttamynda vegna hinnar miklu
samkeppni.
Lögreglan á Norður-írlandi segist
hafa fengið kvartanir frá fjölmörgum
blaðamönnum sem hafa borið sig illa
yfir framkomu ýmissa starfsbræðra
sinna. Kváðust þeir ekki vilja vera
bendlaðir við fréttamennsku eins og
þá sem stunduð var af ýmsum frétta-
mönnum sem komnir voru til
Norður-írlands.
Hvorki lögreglan né brezki herinn
höfðu þó sjálfir orðið vitni að svið-
setningu fréttamanna á óeirðum en
sögðust telja, að nálægð ljósmyndar-
anna ein nægði til að æsa upp ýmsa
óeirðaseggi.
Eftir dauða Bobby Sands í síðustu
viku keyrðu fréttamenn og ljósmynd-
arar í bílaleigubílurri um hverfi
kaþólskra í þeim tilgangi að leita
uppi hugsanlegar óeirðir.
Ein bandarisk sjónvarpsstöð var
með sjö hópa fréttamanna á sama
tímanum.
írskir lýðveldissinnar eru ekki
óvanir fréttamönnum og gera sér
grein fyrir mikilvægi þess að hafa
samband við fjölmiðlana í því áróð-
ursstríði sem þeir heyja gegn brezkri
stjórn á Norður-írlandi.
Blaðamönnum var veitt leyfi til að
koma inn á heimili Bobby Sands eftir
lát hans og sjá likið sem var nánast
REUTER1
beinagrindin ein eftir 66 daga föstú.
Einnig var sérstök aðstaða útbúin
fyrir fréttamenn í kirkjugarðinum
þar sem Sands var borinn til grafar.
Ekkju lögreglumannsins Philip
Ellis, sem féll fyrir skæruliðum IRA,
var sýnilega umhugað um að hin hlið
átakanna á Norður-írlandi fengi rúm
í fjölmiðlunum og veitti hún ljós-
myndurum leyfi að mynda sig þar
Belfast-krakkar á þaki bifreiðarflaks
sem eldur hafði verið borinn að. Var
hér um sviðsetningu að raeöa?
sem hún fylgdi líki manns síns grát-
andi í kirkjugarðinum.
Flestum finnst þó sem hinir er-
lendu fréttamenn hafi, a.m.k. sumir
þeirra, gengið of langt í fréttaöflun
sinni á Norður-írlandi. Þessum við-
horfum var meðal annars lýst í hinu
virta dagblaði The Times í London:
„Því miður er sú tilhneiging fyrir
hendi hjá fjölmiðlum að spilla frétt-
unum með of mikilli einföldun og
hafa áhrif á fréttirnar og móta þær
með nærveru sinni”.
(REUTER).