Dagblaðið - 14.05.1981, Qupperneq 8
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 14. MAl 1981.
I
Erlent
Erlent
Erlent
Erlent
Erlendar
fréttir
Skotárásin á páfa var Reagan mikið áfall:
Forsetafríun afboö-
aði fímleikasýningu
—Bandaríkjamem biðja fyrir páfanum
Ronald Reagan Bandaríkjaforseti,
sem sjálfur varð fyrir skotárás fyrir
hálfum öðrum mánuði, sagði að
skotárásin á páfa væri sér mikið
áfall. Sendi hann páfanum þau boð
að Bandaríkjamenn myndu biðja
fyrir lífi hans.
,,Ég var rétt í þessu að fá hinar
hörmulegu fréttir um árásina á þig,”
sagði í kveðju Reagans til páfans.
„Allir Bandaríkjamenn eru samhuga
mér í von og bænum um að þér batni
fljótt af sárunum sem þú hlauzt. Við
erum með þér í bænum okkar. ”
Alexander Haig utanrikisráðherra,
sem sjálfur hitti páfa fyrir tíu dögum,
sendi páfa kveðju þar sem hann
sagðist vera miður sín vegna frétt-
anna um hina „ragmennskulegu og
svívirðilegu árás á líf þitt. ”
Frú Nancy Reagan afboðaði fyrir-
hugaöa fímleikasýningu á grasflöt-
inni við Hvíta húsið vegna fréttanna
um tilræöið við páfa.
Nancy Reagan.
ÞUSUNDiR MANNA
Á BÆN m VATÍ-
KANIÐ í NÓTT
Þúsundir manna söfnuðust saman
fyrir utan Vatíkanið í nótt og báðu
fyrir páfa en alþýðleg og vingjarnleg
framkoma hans hefur áunnið honum
óteljandi aðdáendur bæði utan og
innan kaþólsku kirkjunnar sem telur
750mi!ljónir manna.
Jóhannes Páll páfi fæddist í Wad-
owice í Póllandi 18. mai 1920 og verður
því 61 árs í næstu viku. Hið pólska
nafn hans var Karol Wojtyla. Hann var
kjörinn páfi í október 1978 og var
fyrsti páfinn í 456 ár sem ekki er ítali.
Páfinn hefur verið mjög á faralds-
fæti síðan hann tók við embætti og alls
staðar hefur opinská og vingjarnleg
framkoma hans áunnið honum mikla
hylli. Hann hefur reynzt óþreytandi
boðberi kristinnar trúar og friðarhug-
sjónar kristindómsins.
Hann virti öryggisráðstafanir að
vettugi til að geta komizt í nánari snert-
ingu við alþýðu manna og þannig var
því einmitt farið í gær.
ítalskir stjórnmálamenn létu í Ijós
djúpa hryggð yfir tilræðinu sem
Arnaldo Forlani forsætisráðherra kall-
aði „djöfullegt ofbeldi” sem væri
tilræði við heiminn.
Agostino Casaroli, forsætisráðherra
Vatíkansins flaug strax frá New York
er hann frétti af tilræðinu. Dagleg
stjórn Vatíkansins verður nú í höndum
Paolo Bertoli kardínála.
Vingjarnleg framkoma páfans hefur áunnið honum mikla h.vlli hvar sem hann hcfur
komið. Hér lætur hann vel að ungu barni.
„Táknum
hnignun
menningar
okkar”
Viðbrögð manna um allan heim
voru mjög á eina lund við fréttinni af
tilræðinu við Jóhannes Pál páfa. Menn
létu í ljós reiði sína og hryggð sem síðan
breyttist i feginleika þegar fréttist að
páfinn hefði lifað af tilræðið og vonir
stæðu til að hann næði fullum bata á
ný.
Robert Runcie, erkibiskup af
Kantaraborg, yfirmaður ensku
biskupakirkjunnar, sagði að allir
kristnir menn hlytu að biðja fyrir lífi
páfa. Hann minnti á ræðu sem páfinn
flutti á trlandi í fyrra þar sem hann
kvaðst knékrjúpandi biðja menn að
skilja að vegur ofbeldisins væri ekki
vegur Krists.
í Rómönsku Ameríku, þar sem
íbúarnir eru langflestii rómversk-
kaþólskrar trúar, voru útsendingar
sjónvarps- og útvarpsstöðva rofnar til
að koma að fréttinni um tilræðið við
páfa og fátt annað komst að í dag-
skránni í gær.
Erkibiskupinn í Brasilíu, Avelar
Brandao Videla, sagði að tilræðið væri
„tákn um hnignun menningar okkar.”
Kurt Waldheim, framkvæmdastjóri
Sameinuðu þjóðanna, sagði að heimur-
inn væri í mikilli þörf fyrir andlega
leiðsögn páfa og baráttu hans fyrir
friði.
Palestínska upplýsingastofnunin i
Bandaríkjunum sagði í yfirlýsingu:
„Jóhannes Páll páfi er maður friðar-
ins. Hann talaði um réttlæti til handa
hinni palestínsku þjóð. Við biðjum
fyrir öryggi hans og fordæmum þessa
atlögu að lífi hans.”
Bandarísk
vopntil upp-
reisnarmanna
í Angóla?
Utanríkismálanefnd öldungadeildar
Bandarikjaþings samþykkti í gær með
10 atkvæðum gegn 2 að aflétta banni á
aðstoð Bandaríkjamanna við upp-
reisnarmenn í Angóla. Nefndin sagði
að slík aðstoð yrði þó að vera tengd því
að birti til í Namibíudeilunni.
Áður hafði utanríkismálanefnd full-
trúadeildarinnar lýst því yfir að hún
væri andsnúin því að banninu yrði
aflétt.
Frægðinni fylgja hættur:
Lífvörðurgætir Foster
allan sólarhringinn
Leikkonan Jodie Foster er i hópi mikils fjölda heimsfrægs fólks sem hefur lifvörð sér
til varnar allan sólarhringinn. Siðan John Hinckley reyndi að myrða Rcagan forseta i
þcim tilgangi, aö þvi er hann sagði, að sýna ást sina á Jodie Foster hefur lífvörður
fylgt henni allan sólarhringinn.
Eftir tilræðið við Reagan var hótað að sprengja I loft upp heimavist við háskólann þar
sem Foster stundar nám. Þá var einnig handtekinn maður sem grunaður var um að
hafa ætlað sér að myrða Reagan og hafði ritað bréf þar sem hann sagðist gera það af
sömu ástæðu og Hinckley; vegna ástar á Foster.
Jóhannesi Páli páfa öðrum sýnt banatilræði á Péturstorgi:
Batahorfur páfans
eru sagðar góðar
—Læknar segja hina fjögurra klukkustunda skurðaðgerð, sem gerð var á páfa,
hafagengjðvel
Jóhannes Páil páfi annar gekkst
undir fjögurra klukkustunda
skuröaögerð í gær eftir að honum
hafði verið sýnt banatilræði af tyrkn-
eskum öfgamanni. Læknar segjast
vongóðir um aö páfinn muni ná sér
að fullu.
Hinn sextíu ára gamli páfi, sem
fékk skot I kviðarholið, hægri hand-
legg og vinstri hönd, komst til
meðvitundar í nótt. Hann var þó enn
i nokkurs konar svefni eftir skurðað-
gerðina og hafði ekki talað neitt.
Strax að lokinni aðgerðinni sagði
Giancarlo Castigliori prófessor á
Gemelli sjúkrahúsinu í Róm: „Hann
komst vel frá aðgerðinni og við erum
vongóðir um bata hans.”
Læknar sjúkrahússins segja að
mesta hættan sem heilsu páfans sé
búin felist í sýkingarhættu i þörmun-
um eftir skuröaögerð á kviöarholi
hans. En þar sem engin liffæri heföu
skaddazt alvarlega kváðust læknarnir
vongóðir um að páfinn gæti náð
fuliri heilsu.
Pertini forseti Ítalíu kom á einka-
sjúkrastofu páfa strax að lokinni að-
gerðinni. Páfinn bar kennsl á forset-
ann og kinkaði kolli.
Jóhannes Páll páfi annar vará ferö
um Péturstorgið í opnu ökutæki síð-
degis í gær (kl. 15.19 að islenzkum
tíma) þegar vopnaður maður sem
leyndist i mannfjöldanum hóf skotár-
ás. Páfinn féll i hendur fylgdarmanni
sinum og hvít klæði hans voru
alblóðug.
Er hann var i ofboöi fluttur til
Gemelli sjúkrahússins misstu pila-
grímar á Péturstorgi gjörsamlega
stjórn á sér. Margir féllu á jörðina og
grétu hástöfum. Tilræðismaðurinn,
Mehmet Ali Agca, 23 ára gamall
Tyrki, var fljótlega yfirbugaður af
nærstöddum, afvopnaður og fenginn
lögreglunni í hendur.
Tveir ferðamanna á Péturstorgi
urðu fyrir skotum. Annar þeirra,
Anne Odre, 60 ára gömui kona frá
Buffalo í New York, særðist ábrjósti
og sögðu læknar ástand hennar
„mjög alvarlegt”. Rose Hall, 21 árs
gömui stúlka frá Jamaica, fékk skot 1
vinstri handlegg og var líðan hennar
sögðeftir atvikum.