Dagblaðið - 14.05.1981, Blaðsíða 9
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 14. MAÍ1981.
Erlent
Erlent
Erlent
Erlent
Tilræðinu var
spáð ígærdag
—tímarit í Kólumbíu spáði tilræðinu
ígærmorgun
Tímarit í Kólumbíu sem kom út í
gærmorgun hafði að geyma grein þar
sem tilræði við líf Jóhannesar Páls páfa
var spáð.
Tímaritið Cromos hafði það eftir
Marcellusi nokkrum sem sagður var
sérfræðingur í dulspeki að lófi páfans
sýndi að atlaga yrði gerð að lífí hans.
Fyrirsögnin á greininni hljóðaði svo:
„Ritað í lófa hans. Páfinn kann að
verða myrtur”. Tímaritið hvatti páfa
og lífverði hans til að sýna aðgát í
fólksfjölda því þar kynni að leynast
einhver úr öfgakenndri trúar- eða
stjórnmálahreyfingu sem vildi ráða
hann af dögum.
Þá var að rifjað upp á Ítalíu síðast-
liðinn föstudag að Nostradamus,
franskur stjörnuspekingur sem uppi
var á 16. öld, hefði spáð því að páfinn
yrði í lífshættu þegar „franska rósin
væri í blóma”. En rósin er tákn Jafn-
aðarmannaflokksins undir forystu
Mitterrands sem kosinn var forseti á
sunnudaginn.
Túlkandi þessa spádóma sagði í
blaðaviðtali síðastliðinn fðstudag að
samkvæmt þessu mætti páfinn „ekki
hreyfa sig eða ferðast þegar franska
rósin eríblóma.”
Tilræðismaðurínn flúði úr tyrknesku fangelsi:
„Hanneróvinurtyrk-
neskuþjóðarinnar”
— sagði sendiherra Tyrklands í Bandaríkjunum
Sendiherra Tyrklands í Bandaríkjun-
um sagði í gær, að Tyrkinn sem
sakaður er um að hafa skotið Jóhannes
Pál páfa hefði sett svartan blett á
ímynd tyrknesku þjóðarinnar gagnvart
umheiminum.
Sendiherrann, Sukru Elekdag, sagði
að hinn gfunaði tilræðismaður,
Mehmet Ali Agca, hefði sloppið úr
tyrknesku fangelsi þar sem hann sat
inni fyrir morð á kunnum ritstjóra.
Sendiherrann sagði í samtali við
blaðamenn, að Agca hefði framið
„óþokkalegt athæfi sem hefði sett
svartan blett á imynd tyrknesku
þjóðarinnar og væri því enn einu sinni
óvinur tyrknesku þjóðarinnar.”
Sendiherrann sagði að áherzlan á að
endi yrði bundinn á hryðjuverk og
morð yrði að fá algjöran forgang
meðal siðmenntaðra þjóða. Til þess
yrði að beita öllum tiltækum meðulum.
Wyszynski kardináli, yfirmaður pólsku kirkjunnar, og hinn pólski páfi, Jóhannes
Páll annar. Kaþólska kirkjan í Póllandi fékk tvöfalt tilefni í gær til aö hryggjast
enda mun ekki ofmælt að segja að þjóðarsorg hafi verið i Póllandi í gær.
Wyszynski kardí-
náli í lífshættu
Tilræðið við hinn pólska páfa, Jó-
hannes Pál annan, er hinni strangka-
þólsku pólsku þjóð mikið áfall. Það
er ekki til að draga úr harmi pólsku
kirkjunnar að yfirmaður hennar
heimafyrir, Stefan Wyszynski kardí-
náli, er nú þungt haldinn eftir lang-
varandi veikindi og er óttazt um líf
hans.
Fréttin um tilræðið við Jóhannes
Pál páfa kom aðeins fáeinum
klukkustundum eftir að kaþólska
kirkjan í Póllandi hafði sent út til-
kynningu þess efnis, að heilsu
Wyszynskis kardínála hefði hrakað
mjög.
PAP, hin opinbera pólska frétta-
stofa, skýrði frá því að pólska stjórn-
in hefði boðizt til að senda lið sér-
fræðinga á sviði læknisfræðinnar til
Rómar til að annast um páfann.
Fréttastofan sagði að Pólland vonaði
að páfinn næði fullri heilsu á ný
þannig að hann gæti haldið áfram
sínu mikla og lofsverða hlutverki.
Jaruzelski forsætisráðherra og
Jablonski forseti sendu frá sér sam-
eiginlega yfirlýsingu þar sem beðið
var fyrir skjótum bata páfa og
hryggð pólsku þjóðarinnar lýst.
Lech Walesa, leiðtogi Einingar,
sem nú er staddur í Japan, sagði að
páfinn hefði verið með pólskum
verkamönnum á erfiðleikatímum.
„Núna erum við með honum. Ekkert
er okkur mikilvægara en líf hans og
heilsa.”
Talsmaður japönsku verkalýðs-
samtakanna sagði að Walesa og aðrir
fulltrúar í pólsku sendinefndinni sem
er i heimsókn í Japan hefðu allir
brostið í grát er þeim barst fréttin um
árásina á páfann.
PierreTrudeau:
„Villimann-
legur heimur”
Pierre Trudeau, forsætisráðherra
Kanada, sem er kaþólskrar trúar, er
væntanlegur í heimsókn til Rómar
næstkomandi þriðjudag. Hann sagði í
skeyti til Vatíkansins: „Maður hlýtur
að spyrja sig hvort heimurinn sé orðinn
svo villimannlegur að hann sé ekki fær
um að virða friðarboða Guðs sjálfs. ”
Brady er
á batavegi
James Brady, blaðafulltrúi Hvíta
hússins, sem fékk skot í gegnum höfuð-
ið í tilræðinu við Reagan forseta fyrir
hálfum öðrum mánuði, hefur tekið
miklum framförum að því er sagt var í
tilkynningu Hvíta hússins í gær.
Læknar hafa ekki áður látið 1 ljós
jafnmikla bjartsýni með að Brady ætti
eftir að ná góðri heilsu á ný. Hann
hefur gengizt undir þrjár mismunandi
skurðaðgerðir eftir skotárásina.
Jóhannes Páll páfi annar.
LOGREGLUVERND
FYRIR KENNEDY
Edward Kennedy.
Sérstakur lögregluvörður var fyrir-
skipaöur um Edward Kennedy öld-
ungadeildarþingmann þegar fréttist
af tilræðinu við páfa. Eins og allir
vita féllu bræður hans, John forseti
og Robert, báðir fyrir morðingja-
hendi. Allt frá þeim tíma hafa menn
óttazt að sömu örlög kynnu að bíða
yngsta bróðurins.
Edward Kennedy, sem er róm-
versk-kaþólskrar trúar, sagði í öid-
ungadeild Bandaríkjaþings í gær:
„Stærsta friðartákn heimsins hefur
orðið fyrir árás sálarlauss of-
beldis . . . Þetta skot hefur hitt sál
heimsins. Við skulum biðja fyrir
páfanum ogokkursjálfum.”
Jóhannes Páll páfi hefur virt allan öryggisviðbúnað að vcttugi þegar um það hefur verið að ræða að komast i sem nanasta
snertingu við alþýðu manna.
ítölsklög:
LÍFSTÍDARFANGELSI
FYRIR ÁRÁS Á PÁFA
Refsing fyrir árás á páfann er lífs-
tíðarfangelsi að ítölskum lögum. Nær
fullvíst er talið að það verði á Ítalíu
sem dómur verður kveðinn upp yfir til-
ræðismanni páfa.
Samkvæmt sáttmála frá 1929
sem gildir um samskipti Vatíkansins og
Ítalíu hefur páfinn samkvæmt bók-
stafnum vald til að ákveða refsingu
fyrir glæpi sem framdir eru á yfirráða-
svæði hans. í reynd eru hinir seku nær
undantekningarlaust færðir ítölskum
yfirvöldum í hendur.
Biskupinn í Róm, þ.e. páfinn, er
lagður að jöfnu við forseta Ítalíu og
árás á annan hvorn þeirra, jafnvel þó
hún leiði ekki til dauða, felur í sér lífs-
tíðarfangelsi að ítölskum lögum.
Lög og reglu í Vatíkaninu eiga hinir
litskrúðugu svissnesku öryggisverðir að
tryggja ásamt lögregluliði páfagarðs.