Dagblaðið - 16.07.1981, Side 1
friálst,
úháð
dagblað
7. ÁRG. - FIMMTUDAGUR16. JÍJLÍ1981 — 157. TBL
RITSTJÓRN SÍÐUMÚLA 12. AUGLÝSINGAR OG AFGREIÐSLA ÞVERHOLTI 11.-AÐALSÍMI 27022.
Hið konunglega
brúðkaup íEnglandi:
Forseti færir
brúðhjónun-
um mynd
af Hof sá
Sem kunnugt er hefur Vigdísi
Finnbogadóttur, forseta íslands,
verið boðið i brúðkaup Karls
Bretaprins og Lafði Díönu Spenc-
er siöar i mánuðinum. f brúðar-
gjöf mun forseti færa brúðhjón-
unum mynd af hylnum í Hofsá,
sem Karí prins hefur veitt flesta
laxa í, en Eirikur Smith málar
myndina, að þvi er heimildar-
menn DB hafa tjáð blaðinu.
Að sögn pantaði forseti mynd-
ina hjá Eiríki, en Karl hefur iðu-
lega komið og veitt i Hofsá i
Vopnafirði þótt ekki verði af
komu hans i sumar vegna brúð-
kaupsins. Brúðkaupið verður í St.
Páls kirkju í Londoq hinn 29.
júlí. -SA.
Engar
niðurstöður
í matareitr-
unarmáiinu
Sýni sem tekin voru vegna
matareitrunarinnar á Sauðár-
króki á dögunum hafa verið 1
rannsókn hjá Rannsóknarstöð
smitsjúkdóma í Atlanta í Banda-
ríkjunum undanfarnar vikur en
engar niðurstöður liggja enn
fyrir.
Arinbjörn Kolbeinsson, yfir-
maður sýklarannsóknardeildar
Landspítalans, sagði að skeyti
hefði borizt frá rannsóknarstöð-
inni þar sem sagt væri að rann-
sóknum yrði haldið áfram, en enn
sem komið er hefði stöðin engar
upplýsingar um það hvaöa mat-
væli hefðu valdiö eitruninni.
— Þetta er ein stærsta og full-
komnasta rannsóknarstöð sinnar
tegunar í heiminum og ein af
fáum sem fæst við rannsóknir á
þetta hættulegum bakteríum,
sagði Arinbjörn, og bætti því við
að ef niðurstöður fengjust I þessu
máli þá væri það á þessari rann-
sóknarstöð.
-ESE
^mmmmmmmmnmmmmmámmmœr
Það rigndi hressilega á Vigdísi Finnbogadótturforseta og aöra gesti l hinni stórkost- var um „ráðsfólk ” Vigdlsar á Ólafsfirði. Beðizt er velvirðingar áþví, en myndafrétta
legu útiveizlu á Akureyri I gœr. En það kom ekki að sök. Regnhllfum var beitt og ráðsfólkinu er ásamt mörgum myndum úrforsetaheimsókninni á bls. 10—111 dag.
gómsœtar snitturnar runnu niður. Alls voru gerðar 9000 snittur I Sjálfstœðishúsinu DB-mynd Sigurður Þorri.
og tók það hálfan annan sólarhring. Mistök urðu í forslðumyndataexta I gœr er rœtt
—gestir létu rigningu ekki aftra sér en vörðust með regnhlífum og utanyf irflíkum
Frá Atla Rúnari Halldórssyni blaða-
manni DB i fylgd með forsetanum:
Veizla aldarinnar í Lystigarðinum á
Akureyri í gær hæfði ekki skapsmun-
um veðurguðanna. Þeir mögnuðu
úrhellisrigningu á véizlugesti sem
reyndu að verjast vætunni með regn-
hlifum og utanyfirflikum. Akureyr-
ingar létu rigninguna ekki aftra sér frá
því að fagna forsetakomunni í rjóðrinu
i Lystigarðinum. Að loknum ræðu-
höldum og lúðrablæstri barst leikurinn
á annan stað í garðinum þar sem
bæjarstjórnin bauð gestum til veizlu.
Mörg þúsund snittur og ostapinnar
voru á gríðarmiklum langborðum og
góðgætinu skolað niður með heitu
kakói og gosdrykkjum. Talað er um að
þarna hafi um 2000 manns tekið
hraustlega til matar síns. Sigurður
Jóhannesson forseti bæjarstjórnar
ávarpaði samkomuna í Lystigarðinum
og Vigdís forseti tók til máls á eftir
honum. Forseti veitti viðtöku góðri
gjöf frá bæjarbúum: Langspili.
Forsetinn heimsótti Slippstöðina á
Akureyri að loknum hádegisverði í gær
og skoðaði m.a. nýtt togskip sem er í
smíðum fyrir Skagstrendinga. Þá lá
leiðin i Nonnahúsið, á bernskuslóðir
rithöfundarins Jóns Sveinssonar. Síðan
var Amtbókasafnið heimsótt og for-
setinn naut leiðsagnar Lárusar
Zophaníassonar, bókavarðar í safninu.
Að siðustu var farið að Hlíð, dvalar-
heimili aldraðra. Vistmenn höfðu safn-
azt saman i setustofu og biðu gestanna.
Vigdís flutti ávarp og þakkaði fyrir
gjöf sem henni var færð. Það er borð-
dúkur og púði sem Margrét Magnús-
dóttir, 81 árs gamall vistmaður, hafði
búið til.
Heimsókn forseta íslands um Norð-
austurland er lokið. Flugvél með hann
og fylgdarlið innanborðs átti sam-
kvæmt áætlun að leggja af stað kl.
12.30 ídag.
-ELA.
Viðbrögð ríkisstjómarinnar við súrálsskýrslunni:
Krafa um endurskoðun
raforkuverðs ogskatta
—sterklega kemur til greina að óska eignaraðildarað ísal
Nokkuð víst þykir að fyrstu við-
brögð ríkisstjórnarinnar gagnvart
Alusuisse í súrálsmálinu verði, í
krafti þeirra upplýsinga sem nú liggja
fyrir, að herða á kröfunni um endur-
skoðun gildandi samninga um raf-
orkuverð og jafnvel einnig skattatil-
högun. Þá kemur sterklega til greina
að rikið óski eignaraðildar aðíSAL.
Ráðherranefndin, sem sett var á
laggirnar til að fjalla um súrálsmálið,
kom saman til fundar í gær. Hver
ráðherra hafði með sér á fundinn
einn mann sér til ráðuneytis. Hjör-
leifur Guttormsson hafði Inga R.
Helgason, Steingrímur Hermannsson
hafði Guðmund G. Þórarinsson og
Friðjón Þórðarson hafði Þórodd Th.
Sigurðsson.
Meginniðurstöður ráðherra-
nefndarinnar og tillögur um næstu
skref liggja fyrir ríkisstjórnarfundi
sem hófst nú skömmu fyrir hádegi.
Þar verða málin rædd og ákvörðun
væntanlega tekin. Búizt er síðan við
að súrálsskýrslan fræga, eða a.m.k.
hluti hennar, verði gerð opinber á
blaðamannafundi siðar í dag eða á
morgun.
Ljóst er að ekki er hægt að birta
allar tölur vegna viðskiptaleyndar
sem Alusuisse óskaði eftir á sínum
tíma og fallizt var á. Þykir slíkt ekki
óeðlilegt.
Ríkisstjórnin óskaði, sem kunnugt
er, eftir viðræðum um endurskoðun
á samningum við Alusuisse i desem-
ber 1980. Þá var því um leið lýst yfir
að rikisstjórnin geymdi sér allan rétt
ef ekki væri staðið við gildandi
samninga. Það er í raun hótun um
málaferli.
-KMU.
Opinbeni heimsókn forseta um Norðausturland lokið:
NIÖRG ÞÚSUND SNITTUM 0G 0STAPINN-
UM SK0LAD NKNJR í VEQJU ALDAMNNAR