Dagblaðið - 16.07.1981, Page 2
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 16. JÚLÍ 1981.
Eru ofstæki og ruddaskapur kjömrð
Verzlunarmannafélags Reykjavíkur?
Allt á verdandi mæður
það álítur reiður borgari
Borgari skrifar:
Lögregluaðgerðir forráðamanna
Verzlunarmannafélags Reykjavíkur
gagnvart kaupmönnum, viðskipta-
vinum verzlana og þeim félagsmönn-
um sem vilja og hafa áhuga á að
vinna á laugardögum, hafa vakið
mikla athygli. Reyndar er þetta ekki í
fyrsta skipti sem forráðamenn VR
beina byssusúngjum að hinni frjálsu
verzlun, er þeir hafa sjálfir státað af
að ríkti á íslandi. Þetta er heldur ekki
í fyrsta skipti sem þreyttir þursar VR
verða sér tíl skammar og athlægis.
Sömu foringjar hafa kvartað mjög
undan áhugaleysi félagsmanna á
störfum Verzlunarmannafélagsins.
Þeir kvarta undan lélegri fundar-
sókn, þegar mikið liggur við, setja
þá upp fölsk spariandlit; spariandlit
sem félagar VR eru löngu farnir að
sjá í gegnum. Þursar Verzlunar-
mannafélagsins, með Magnús L.
Sveinsson í fararbroddi, þurfa ekki
að halda það, að félagsmenn láti
bjóða sér ofstæki og ruddaskap, sem
því miður virðist vera motto núver-
andi stjórnar VR. Félagsmenn eru
sjálfir færir um að meta hvort þeir
hafa áhuga og þrek til þess að vinna
yfirvinnu og helgarvinnu.'
Þursarnir hafa í langan tíma stefnt
að því að brjóta niður sjálfsbjargar-
viðleitni félagsmanna sinna með að-
ferðum er einna helzt minna á Gesta-
póaðferðirnar. Það er hart til þess að
vita að fólk, sem leyfir sér að vinna
hjá kaupmönnum, er veita þjónustu
á laugardögum, skuli vera komið á
svartan lista hjá félaginu. Það nær
jafnframt engri átt að vera með hót-
anir gegn þeim félagsmönnum sem
vilja vinna og hafa stutt félagið
gegnum árin.
Sú framkoma að siga lögreglunni
hvað eftír annað á kaupmenn og aðra
félagsmenn hlýtur að teljast sjúkleg,
svo að ekki sé meira sagt, og þekkist
ekki nema í einræðisríkjum. Þessir
menn verða einnig að gera sér grein
fyrir að þessi framkoma verður þeim
ekki til framdráttar.
Það er kominn tími til að þessum
foringjum verði gefið frí og nýjum
mönnum verði falin forusta Verzlun-
armannafélags Reykjavíkur. Áður
fyrr var borin virðing fyrir þessu fé-
lagi og þá blómstraði það, en þá var
enginn Magnús L. Sveinsson, né
aðrir menn sem beittu samborgara
sína ofstæki og ofbeldi.
Óætur íslenzkur ostur
á markaði í New York
—og vond lykt af honum
KjóU
Verókr.390
Buxur Mussa Skokkur Bolur Kjóll
Verðkr.248 Verðkr.295 Verðkr.394 Verðkr.88 Verðkr.496
Skokkgalli
Verð kr. 636
Bolur
Verð kr. 61
Sett
Verðkr.445
Bolur
Verð kr. 53
-,60*»**
Draumurinn
ATH!
Brey ttur opnunartími:
T/* 1 • 1 i» ^ • s~\ /'■'* t~i Breyttur opnunartim
Kirkjuhvoli— oimi ZZolo ki-1218
Skokkur Bolur
Verðkr. 329 Verðkr.94
„Þá var enginn Magnús L. Sveinsson, né aðrir menn sem beittu samborgara sfna
ofstæki og ofbeldi,” sagði reiður borgari f bréfi til Dagblaðsins.
DB-mynd: Pétur Maack.
4695-5838 hringdi:
Mig langar að taka fram að ég hef
keypt islenzkan ost á Manhattan í
New York, og hann hefur yfirleitt
verið óætur og vond lykt af honum.
Hann er yfirleitt lang ódýrasti ostur-
inn i búðunum og ég held að þetta sé
sá ostur, sem í gamla daga var kall-
aður 35%, en er seldur undir heitinu
Icelandic cheese. Á umbúðunum er
tekið fram að engin aukaefni séu sett
f hann. p
Kvartanir hafa borizt fjölmiðlum
undanfarið vegna lélegrar mjólkur-
vöru og nú kveðst 4695-5838 hafa
keypt óætan fslenzkan ost f New
York.
Anorakur Buxur
Veró kr. 370 Verð kr. 248
Bolur Verðkr.61
Buxur Bolur Buxur Mussa
Verðkr. 345 Verðkr.53 Verðkr.248 Verðkr.349
Buxur Mussa
Verð kr. 248 Verð kr. 220
Skokkur Bolur
Verðkr.320 Verðkr.88