Dagblaðið - 16.07.1981, Page 3
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 16. JÚLÍ1981.
3
Alltaf
eitthvað
nýtt og
spennandi
—-----------f
T0R0NT0
5. ágúst (vikufarð), laus sæti.
VerOfrékr. 2290,00
12. ágúst, biOiisti.
ÍRLAND
20. júií (14 daga ferO), örfá sæti
laus. VerO fré kr. 4860,00 miOaO
viO gistingu á Hotei Burlington í
Dubiin.
Vigdis Finnbogadóttir, forseti, & vin-
sældum aO fagna i Noregi.
Ágætt að
lendingur
Garri skrifar frá Noregi:
Við getum svo sannarlega verið
stolt af forsetanum okkar, henni Vig-
disi Finnbogadóttur. Ég hef orðið
áþreifanlega var við hlýhug í hennar
garð i Noregi. Þegar maður er
spurður hvaðan maður kemur og seg-
ist þá vera frá íslandi, þá brosir fólk
breitt og segir „já, já, þar sem hún
Vigdis er forseti”. Auk þess hef ég
tvisvar rekizt á norskar blaðagreinar,
þar sem Vigdísi er hælt á hvert reipi.
Hér í Noregi er lika fleira gott frá
íslandi. Fyrir fáeinum dögum var
„Óðurinn um afa” sýndur hér i sjón-
varpi og var ágætlega tekið. Utan-
garðsmenn hafa einnig gert það gott
hér, vitt og breitt um landið. Því
vera ís-
í Noregi
miður þurftu þeir að snúa heim aftur
og eru víst jafnvel að hugsa um að
hætta. Það yrði slæmt fyrir íslenzka
poppbransann, þar eð Utangarðs-
menn hafa verið stærsta númerið á
þessum vettvangi í Noregi undan-
farið, og tómlegt yrði á íslenzka
poppmarkaðinum ef Utangarðsmenn
hyrfu.
íslenzka sjónvarpið þarf ekkert að
skammast sín, því það er langt á und-
an norska sjónvarpinu, hvað efni
snertir. Nú er t.d. verið að sýna hér
irska framhaldsþáttinn ,,And-
streymi”, sem var í íslenzka sjón-
varpinu fyrir nokkrum árum.
En sem sagt, það er alveg ágætt að
vera íslendingur í Noregi.
Albert næsta borgarstjóraefni
Reykvikingur skrifar:
Senn liður að prófkjöri fyrir borg-
arstjórnarkosningar i Reykjavík. Þá
höfum við, hinir almennu kjósendur
tækifæri, til þess að velja menn til
forystu á endanlegan lista stjórn-
málaflokkanna.
Margt bendir til þess, að Sjálf-
stæðisflokkurinn ætli að velja Davíð
Oddsson sem næsta borgarstjóraefni
sitt. Hyggilegra hefði ég talið, að
Albert Guðmundsson, vinsælasti
borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins,
hefði orðið stóra trompið i næstu
kosningum.
Við, hinir almennu borgarar, sem
ekki höfum aðgang að þeim háu herr-
um, sem sitja við stjórnvöl borgar-
innar, eigum alltaf hauk í horni, þar
sem Albert er. — Það vitum við bezt,
sem þurft höfum að Ieita aðstoðar
við úrlausn ýmissa vandamála okkar.
Nú .höfum við, sem ekki vildum
„missa hann” til Bessastaða tæki-
færi á að sameinast í breiðfylkingu
um kosningu hans í borgarstjórasæti.
Allir hljóta nú að sjá, að öngþveiti
vinstri stjórnar verður ekki leyst við
taflborðið hjá Torfunni.
Sjálfstæðisflokkurinn á bezta
borgarstjóraefnið, sem völ er á, þótt
leitað sé aftur um mörg ár. Reykvík-
ingar hafa nú fundið svo fyrir þvi,
hvernig það er, að hafa ósamstæða
margflokka borgaróstjórn, sem er
eins og höfuðlaus her.
Víðtæk samstaða ætti að geta
náðsi um Albert Guðmundsson sem
borgarstjóraefni.
Reikningur frá ÁTVR reyndist fyrir-
tækinu hagstæður.
Albert Guðmundsson aiþlngismaður.
ÞRÁND-
HEIMUR
77. júá - Noregir, SvftóO, Hnry
iand, örfé sæti laus. 16 daga ferO.
VerOfrékr. 2350,00
WINNIPEG
28. júlí, 3ja vikna ferO, örfé sæti
laus.
P0RT0R0Z
22. júií, örfé sæti laus, i 11 eOa 22
daga.
2., 12. og 23. ágúst, biöiisti.
2. sept, biOlisti.
RIMINI
22. júlí, örfá sæti laus, i 11 eOa 22
daga.
2., 12. og 23. égúst biOlisti.
2. sept, 4 sæti laus.
Samvinnuferdir - Landsýn
AUSTURSTRÆTI 12 - SÍMAR 27077 S 28699 ,
ErATVR
að
drýgja
tekj-
urnar?
— lesandi telur það
Lesandi færði okkur reikning:
Samkvæmt honum keypti lesand-
inn brennsluspritt, spiritus denatur-
atus, hjá Áfengis- og tóbaksverzlun
ríkisins, og er hann leit nánar á reikn-
inginn kom þetta í ljós: Söluskattur
reiknaður af 23,50 ætti að vera 5,52
en er settur á 6 kr. Söluverðið er
síðan 23,50 en er hækkað upp í 24 kr.
Samtals reyndist reikningurinn því
vera reiknaður of hár svo nam um
það bil 1 kr. eða 100 gkr.
Lesandinn benti á að ef þessi hátt-
ur er hafður á yfirleitt hjá Áfengis-
og tóbaksverzluninni, þá safnast
þegar saman kemur, svo útkoman
ætti að geta orðið drjúgur skildingur.
Raddir
lesenda
w
Hvaða reynslu hefur þú
af mjólkurvörunum um
þessar mundir?
Jón Guðnason, skrifstofumaður: Mjög
siæma; mjólkin er súr og ódrekkandi
og osturinn er slæmur.
Kristin Pétursdóttir, nemi: Mjólkin er
súr og mjög vond og undanrennan líka.
Kristin Gunnbjörnsdóttir, smurbrauðs-
dama: Mér finnst hún geymast illa.
Ólafia Foged, hósmóðir: Það hefur
ekkert verið athugavert við það sem ég
hef fengið, nema smjörið er ekki gott.
Oddný Jóhannsdóttlr, húsmóðlr: Hún
er bara alveg ódrykkjuhæf.
Þuriður Björnsdóttir, húsmóðlr: Ég er
frá Akureyri, en dóttir mín er við nám í
Reykjavik og henni finnst mjólkin vera
gömul og skyrið ekki neyzluhæft.