Dagblaðið - 16.07.1981, Page 5
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 16. JÚLÍ1981.
5
„Sumarhúsamálið”:
Verkið boðið út
—viðræðunum við Hosby-hús sf. hætt
Viðræður BSRB og Hosby-húsa sf. á
Akureyri um smiði sumarhúsa fyrir
bandalagið eru nú farnar út um þúfur.
Að sögn Kristjáns Thorlaciusar for-
manns BSRB náðist ekki samkomulag
um fjárhagshlið málsins og þvi var við-
ræðunum hætt.
Eins og greint hefur verið frá i DB
hafa islenzkir sumarhúsaframleiðendur
með landssamband iðnaðarmanna aö
baki sér verið mjög óánægðir með
hvernig BSRB hefur staðið að þessu
máli, ekki sízt eftir að öllum tilboðum i
gerð sumarhúsanna var hafnað og við-
ræður teknar upp við umboðsaðila
danskra húseininga, sem átti eitt hæsta
áný
tilboðiðíverkið.
Kristján Thorlacius sagði í samtali
við DB að orlofsheimilanefnd BSRB
hefði ákveðið á fundi sínum í gær að
bjóða verkið út að nýju síðar í sumar
og yrði þar um annars konar útboð að
ræða enhiðfyrra.
-ESE.
Hetöar Bimarsson, Þak hf.:
„Haldlítið fyrir Kristján að
skýla sér bak við heilsárshúsin”
Þann 13. júlí gerir Kristján Thorla-
cius athugasemd við ummæli mín þrem
dögum áður í Dagblaðinu og segir þar
meðal annars: ,,Eins og allir félags-
menn BSRB og margir fleiri vita, eru
orlofshús samtakanna ekki aðeins not-
uð á sumrin, heldur allan ársins hring.
Það er því fullástæða til að BSRB miði
uppbyggingu næsta áfanga orlofsheim-
ila sinna við þessa staðreynd.” Vafa-
laust hafa allir félagsmenn BSRB vitað
þetta nema stjórn orlofsheimila. Alla-
vega kemur það ekki fram í þeim út-
boðsgögnum er hún lét frá sér fara.
Burtséð frá þvi, þá er haldlítið fyrir
Kristján að skýla sér bak við þetta
atriði að BSRB vilji fá heilsárshús og
Áskríftarsími
Eldhúsbókarinnar
er 2-46-66
j/2 SVÍNAskrofckar i frystinn
þess vegna hafi verið gengiö til samn-
inga við erlenda aðila. Fjölmargir af
þeim íslenzku framleiðendum sem
sendu inn tilboð eru einmitt framleið-
endur heilsárshúsa, t.d. Húseiningar
hf. á Sigiufirði, Samtak hf. á Selfossi
og Húsasmiðjan hf. í Reykjavik.
Þá komum við einmitt að öðru atrið-
inu í athugasemd Kristjáns, en þar segir
orðrétt: „Húsasmiðjan reisti 13 hús í
Munaðarnesi fyrir BSRB. Þau hafa
verið notuð í 10 ár. Þetta eru mjög
vönduð hús og Húsasmiðjan, fyrirtæki
Snorra Halldórsson, í alla staði traust.
Ekki unnt að hugsa sér betri og
ánægjuiegri viðskipti en þau, sem
BSRB átti við Snorra Halldórsson, syni
hans og starfsmenn.” Svo mörg voru
þau orð. Fyrir mér eru þetta engin ný
sannindi. Ég hef lengi vitað að þeir
feðgar reka myndarlegt fyrirtæki af
miklum dugnaði og framleiða vandaða
vöru. En hitt kemur mér spánskt fyrir
sjónir að úr því Kristján býr yfir þessari
reynslu, skuli hann þá ekki færa sér
hana í nyt.
Hús Þaks hf. voru ekki talin henta
fyrir þá notkun sem um var að ræða
hjá BSRB. Við sendum inn tilboð með
tveimur húsagerðum og báðar upp-
fylltu þau skilyrði sem sett voru i út-
boði.
Þá er það þetta mikilvæga atriði hjá
Kristjáni með hæsta tilboðið. Að visu
sagði ég aldrei að þeir væru að taka
hæsta tilboði af þvi einfaldlega að mér
fannst nægilega hátt hjá nefndinni að
fara í 17. sætið af 20. í athugasemd
sinni tilgreinir Kristján hæsta verð kr.
503.602 á hús. Þá tölu kannast ég ekki
við né aörir þeir bjóðendur er ég hef
haft samband við. Kannski þar sé
kominn þessi dularfulli 21. bjóðandi.
Aldrei voru lesnir upp nema 20 viö
opnuntilboða.
Ég ét það með mestu ánægju ofaní
mig aftur að norsku húsin í Munaðar-
nesi haldi hvorki vatni né vindi, annað
hefði dugaö. En kannski er þetta eitt af
því sem allir félagsmenn BSRB vita,
nema stjórn orlofsheimila.
Svo er það rúsinan í pylsuendanum
og vitna ég þá enn á ný í orð Kristjáns:
„Þess ber að lokum að geta, að öll
vinna við þetta verk er innt af hendi af
íslendingum, nema framleiðsla eining-
anna.” Þakka skyldií Vinna á bygging-
arstað er 25,8% af tilboðsfjárhæð en
framleiðsla eininga, eða það sem
Kristján kallar „nema”, er 74,2%.
Auðvitað erum við íslenzkir iðnaðar-
menn í hjarta okkar þakklátir fyrir að
fá að halda þessum 25,8%. Betri er
hálfur skaði en allur.
Að lokum þetta, Kristján, með hags-
muni Þaks hf. Hér er ekki lengur um þá
að ræða heldur hagsmuni allra inn-
lendra einingahúsaframleiðenda. Við,
þessir innlendu framleiðendur, biðjum
ekki um nein sérréttindi okkur til
handa þrátt fyrir að stefna opinberra
aðila hér sé sú að kaupa jafnvel innlent,
þótt það sé 10% dýrara en erlent. í
samkeppni okkar við erlenda aðila
biðjum við aðeins um það eitt að fá að
sitja við sama borð og þeir. Með þvi að
hafna tilboðum okkar á grundvelli ótil-
greindra gæðaeftirá, er veriðað læðast
aftan að okkur og misbjóða.
Engin þörf er á að skora á fjölmenn-
ustu launþegasamtök íslands að styðja
við bakið á iðnaði síns eigin lands. Það
er óþarft því við erum þegar búnir að
sýna það og sanna á síðastliðnum árum
að við erum fyllilega samkeppnisfærir
við erlenda sumarhúsasmíði.
Teg. 013
Litír.
Blátt/btótt nælon/rúskinn
Hvítt/hvítt nælon/rúskinn
Beige/vínrautt nælon/rúskinn
Stærðir36—41
Verðkr. 219,65
Teg.021
Utír:
Svart/rautt nubuck
Vínrautt/beige nubuck
Dökkbtótt nubuck
Grátt nubuck
Stærðir39—4S
Verðkr. 255,75
Teg. 012
Utír:
Hvítt nubuk
Beigenubuk
Btótt nubuk
Stærðir 36-43
Verðkr. 255,75
Póstsendum
SKÓVERZLUN
Þ0RÐAR PÉTURSSONAR
Laugavegi 95 — Sími 13570
GLORIA
SLÖKKVITÆKIÍ
BÍLA, HJÓLHÝSI
OGTJALDVAGNA
KOLSÝRUHLEÐSLAN SF.
Seljavegi 12 - Simi 13381
MARES
UMB0ÐIÐ
A
ISLANDI
SIMI
77612
Söluumboð á Vestfjörðum
E/NAR GUDFINNSSONHF:
Simi 94-7200
Þurrbúningur frá hinu þekkta og margviður-
kennda ítaiska fyrirtæki MARES
Atvinnukafarar velja Antartide þurrbúning-
inn frá MARES.
Antartide er á hagstæðu verði með stuttum
afgreiðslufresti.
17 feta sportbátur með eða án vélar. Gang-
hraði með 170 merc. vél 36 sjómílur.
Minnum á MARES vindbrettin