Dagblaðið - 16.07.1981, Síða 10
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 16. JÚLÍ1981.
Opinber heimsókn forseta íslands:
Veðurguðimirheldur óhqgstæðir
l - — ---
Valdimar Bragason bœjarstjóri Dalvikur ávarpar forsetann i Bergþórs-
hvoli á Dalvík. Bergþórsh voil er í eiau Kiwanisklúbbsins HrAH* A nahiiu
Frá Atla Kúnari Halldórssyni
fréttamanni DB í fylgd með forset-
anum:
Veðurguðirnir voru Vigdísi Finn-
bogadóttur forseta ekki alveg nógu
hagstæðir þegar hún heimsótti
byggðir út með Eyjafirði á þriðju-
daginn. Rigning var að visu ekki, en
þoka og skyggni í verra lagi. Þoka
var t.d. niður í miðjar hlíðar Svarf-
aðardalsfjalls, þegar forseti ók þar
um. Fór minna fyrir annálaðri fegurð
dalsins en ella.
Aðeins fárra metra skyggni var á
Múlavegi, á leiðinni til Ólafsfjarðar.
Bæjarstjórnarmenn Ólafsfirðinga
komu til móts við forseta uppi i
múlanum og fylgdu honum þangað
að heimsókn lokinni. Fyrirfólkið
heilsaðist og kvaddist í niðaþoku.
Minna varð úr skoðunarferðalagi um
Ólafsfjarðarbyggðir en ráð hafði
verið fyrir gert, veðursins vegna.
Dalvíkingar og Svarfdælingar fjöl-
menntu að Dalbæ, heimili aldraðra á
Dalvík, dl að fagna forseta. Mót-
tökuathöfnin var undir berum himni.
Valdimar Bragason bæjarstjóri og
Rafn Arnbjörnsson forseti bæjar-
stjórnar heilsuðu gestunum fyrir
hönd heimamanna og Vigdís þakkaði
fyrir sig.
Á Ólafsfirði hafði Ármann
Þórðarson orð fyrir heimamönnum.
Ólafsfirðingar komu á fund forseta í
félagsheimilinu Tjarnarborg og
drukku veizlukaffi með gestunum.
Færri komust að borðum en vildu.
í gærmorgun ók forsetinn með
fylgdarliði fram Eyjafjörð og kom
við í Freyvangi, Saurbæjarkirkju,
Grund og Kristneshæli. Leiðsögu-
maður var sr. Bjartmar Kristjánsson.
Bæjarstjórn Ákureyrar bauð til
hádegis- og kvöldverðar á Hótel
KEA.
Á Akureyri heimsótti forsetinn
Amtbókasafnið, Slippstöðina, elli-
heimilið og Fjórðungssjúkráhúsrð.
-JH.
Ung og fallega búii stídke, Hóimfriður Jónsdóttir, afhenti Vigdísi forsete blóm við komuna til Datvíkur. Áður
hafði forsetinn og fylgdariið farið útsýnisforð um Svarfaðardal með Hirti Þórarinssyni á Tjöm. í baksýn eru
sýslumannshjón Eyfirðinga, Elías Elíasson og Sigriður Lúðvíksdóttir og bæjarstjómarmenn i Daivik, Rafn Am-
bjömsson forseti bæjars tjórnar og VakHmar Bragason bæjarstjóri.
Ármann Þórðarson, forseti bæjarstjómar Ólafsfjarðar, afhendir Vigdísi
gjöf Ólafsfirðinga. Það er rekaviðardrumbur, málaður af Ingibjörgu
Einarsdóttur. Á drumbinn er mélaður landnámsmaðurinn í Ólafsfirði,
Ólafur bekkur og hans fólk. Fremst á myndinni situr Þórgunnur Rögn-
valdsdóttir, eiginkona Ármanns.
Börnin stilltu sér fallega upp og barnfóstrur fremstar er forsetinn gekk um götur Dalvíkur. Á hæla Vigdisar
ganga Rafn Arnbjörnsson forsetibæjarstjórnar og Valdimar Bragason bæjarstjóri.