Dagblaðið - 16.07.1981, Síða 17

Dagblaðið - 16.07.1981, Síða 17
17 DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 16. JpLÍ 1981. Hvað segja bændur um súru mjóHdna? Ætti að sækja mjólkina oftar —en sökina frekar að finna í kerfinu. Vond mjólk fljót aðeyðileggjagóða Fátt er meira rætt á Reykjavíkur- eyðilagt hefur dýrindis tertur eða svæðinu þessa dagana en súra mjólk- skap neytandans. in sem hér hefur verið á boðstólum. Menn velta vöngum yfir ástæðu Hvar sem fólk kemur saman eru fyrir gallaðrí mjólk og margar sagðar sögur af mjólk eða rjóma sem ástæður hafa verið taldar upp. Við Ólafur Kristjánsson, bóndi í Geirakoti: Held að sökin sé ekki hjá mönnum „Ég veit ekki hvað getur valdið þessu. Þetta er allt saman undir mjög ströngu eftirliti,” sagði Ólafur Krist- jánsson bóndi í Geirakoti, Sand- víkurhreppi. „Ég held að sökina sé ekki að finna hjá bændunum. Það mætti kannski sækja mjólkina oftar en þrisvar í viku yfir sumarmánuð- ina. Mjólkin er það iengi aö komast til neytandans. Hér eru oft tekin próf og við vitum aidrei fyrirfram hvenær þau eru gerð. stundum eru tekin próf þrisvar í röð og stundum ekki næstu þrjú skipti. Annars held ég að þetta sé orðið full- mikið fjölmiðlamál. Billinn tekur heilu sveitina í einu svo ekki er gott að átta sig á hvort mjólk frá einum bónda sé verri en frá öðrum. Þeim sem eru oft með slæma mjólk er fylgzt vel með og alltaf verið að rekast í þeim að bæta úr. Eitt í þessu máli er það að hér áður fyrr var alltaf unnið í mjólkurstöðvunum um helgar en nú er það ekki.” -ELA. Svavar Bjamason, Villingaholti II: MJÓLKIN EKKI SÓn NÓGU OFT — yfir sumarmánuðina ,,Ég hef sjálfur ekki verið með mjóikurframieiðslu i þrjátiu ár. Ég hef keypt mina mjólk í fernum og það hefur verið allt i lagi meö hana,” sagði Svavar Bjarnason bóndi í Vill- ingaholti II. „Ég gæti trúað að mjólkin væri ekki sótt nægilega oft yfir sumarmánuðina. Þriðji hver dagur er fulllangur tími og kannski sökina sé að finna þar,” sagði Svav- ar. -ELA. fáum þó varla botn i það mál fyrr en sérstök nefnd hefur rannsakað málið. En hvað segja bændurnir? Hverju vilja þeir kenna um? DB ræddi í gær við fjóra bændur og voru þeir ekki allir sammála frekar en aðrir. Allir voru þeir þó sammála um að mjólkin ætti að vera sótt oftar yfir sumar- mánuðina eða eins og einn bóndinn sagði, ,það er löng leið frá bóndanum til neytandans”. -ELA. Brynjólfur Guðmundsson, Galtastöðum: Vond mjólk fljótað eyðileggja góða mjólk ,,Það er erfítt að segja til um ástæður fyrir að mjólkin er skemmd,” sagði Brynjólfur Guðmundsson bóndi að Galta- stöðum í Árnessýslu í samtali við DB. ,,Það gæti verið einhverjum einstakl- iungi að kenna og einnig kerfinu. Ef einn framleiðenda sendir frá sér vonda mjólk er hún fljót að eyðileggja aðra mjóik í bílnum. Ef prufa er ekki tekin er erfitt að eiga við þetta. Fyrir mörgum árum kom þetta fyrir man ég og þá kom í ljós að vél- arnar voru illa þvegnar. Maður veit ekki. Núna eru sumarleyfin i gangi og kannski óvant fólk við þessar vélar. Annars eru alltaf einhverjir bændur sem eru með slæma mjólk og það er reynt að fylgjast vel með þeim. Mjólkin er sótt hingað þrisvar í viku en síðan líða þrír dagar sem hún er ekki sótt. Það mætti sækja mjólkina oftar yfir sumarmánuðina. Við bændur erum með rafkælda tanka svo mjólkin er vel kæld. Júgur- bólga hefur verið nokkuð algeng hér en ég held að hún ætti ekki að hafa neitt að segja. Ef kýr eru á fúkkalyfj- um er mjólkin alls ekki send i burtu. Annars er mikið rætt um þetta mál hér í sveitinni en erfitt að fá niður- stöðu,” sagði Brynjólfur. -ELA. Magnús Sigurðsson bóndi, Birtingaholti: REYNUM ALLTAF AÐ FRAM- r LEIÐA SEM BEZTA MJOLK —og því verður að hafa rétta kælingu „Það er erfitt að segja hvað veldur þessu. Okkur bændum þykir þetta mál mjög slæmt og bagalegt. Við reynum alltaf að framleiða sem bezta mjólk,” sagði Magnús Sigurðsson bóndi í Birtingaholti í Hrunamanna- hreppi. „Ég geri ráð fyrir að erfitt sé að segja eitthvað eitt ákveðið, liklegast er þetta samverkandi. Á sumum stöðum er kæling ekki nógu ör og ég hef t.d. nýlega sett upp hjá mér for- kælingu. Það má lika segja aö leiðin sé löng frá bændum til neytandans. Annars hef ég ekki heyrt um eina ein- ustu kvörtun frá Selfossi. Það er hugsanlegt að skemmd mjólk hafi komizt i bilana en ég held aö sökina sé miklu frekar að finna í kerfinu. Ef um skemmda mjólk er að ræða tekur bílstjórinn oft eftir því og þá hvort óeðlilegt hitastig sé í tönk- unum. Ef mjólkin er of heit kemur strax athugasemd og bændum skylt að koma kælingu i lag. Við erum alltaf að reyna að gera eitthvað til að halda mjólkinni sem beztri og til að halda megi upp venju- legum dagstimplunum.” -ELA. - HJÓNAMIÐLUN OG KYNNING er opin frá kl. 1—6. Sími 26628. Geymið aug/ýsinguna. Kristján S. Jósepsson. Byggingar/óð á Arnarnesi Til sölu er byggingarlóð á Arnarnesi, mmlega 1700 m2 á mjög fallegum stað. Útsýni óhindrað, nánari upplýsingar á skrifstofunni. Fasteignasalan Eignanaust Skipholti S, R. Símar 29555-29558 Litir: Svart leður StærOir: 41—46 Brúnt leOur StærOir: 36—46 VerO kr. 298,70 Póstsendum SKOVERZLUIM ÞÓRÐAR PÉTURSSONAR Kirkjustræti 8 v/Austurvöll, sími 14181 Laugavegi 95, sími 13570.

x

Dagblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.