Dagblaðið - 16.07.1981, Side 28
Kjallarínn mældur inn
undir hús nágrannans
—„Mistök í mælingum” fækkar bflageymslum í nýja Miðbæjarhúsinu
Er gröftur hófst fyrir kjallara
nýbyggingarinnar í miðbænum,
Pósthússtræti 13, eða húsinu bak við
Hótel Borg, kom í ljós að mistök
höfðu átt sér stað í mælingum fyrir
grunni hússins. Verða nú allir upp-
drættir að húsinu að fara aftur fyrir
bygginganefnd. „Vonazt er til að
það verði 30. júlí nk. og þá hljóti
málið endanlega afgreiðslu”, sagði
Gunnar Sigurðsson byggingafulltrúi í
morgun.
Mælingamistökin fólust i því að
Borgin lét lóðarhöfum í té mjóa
lóðarspildu austan við þá lóð sem
lóðarhafar í Pósthússtræti 13 höfðu
keypt. Gegn lóðarsölunni létu lóðar-
hafar borginni í té bilastæði í kjallara
hins nýja húss. Er byrjað var að grafa
eftir teikningunum á austurkanti
nýju húslóðarinnar reyndist kjallar-
inn eiga að ná innundir húsið nr. 6
við Lækjargötu. Höfðu þarna átt sér
stað mistök af hálfu borgarstarfs-
manna sem kippa þarf í lag.
„Mistökin” leiða hins vegar
endanlega til þess að bílageymslum
þeim sem borgin átti að fá í kjallara
nýja hússins fækkar eitthvað úr 14
eins og þau áttu að vera. Auk borgar-
bilastæðanna í kjallara verða níu
bílageymslur fyrir níu íbúðir hins
nýja húss.
1 sambandi við nýja húsið hefur
einnig verið óskað eftir deiliskipulagi
eða yfirlýsingu varðandi nýtingu hús-
lóða við Kirkjutorg. Vinnur lögfræð-
ingur að þeim málum fyrir börn
Valdimars Þórðarsonar kaupmanns.
Hefur erindinu verið vísað til borgar-
skipulags.
-A.St.
Utí móa á leið til fæðingardeildar
Verðandifaðir var ígœr áfleygiferð á leið tilfœðingardeildar með konu sína sem komin var nálœgt fæðingu. Hann átti skammt eftir á
varanlega slitlagið við Móa á Kjalarnesi þegar hann missti stjórn á bílnum í lausamölog hafnaði utan vegar.
Ekki varð um alvarlegt slys að ræða, að sögn lögreglu, en aðrir urðu að flytja konuna síðasta spölinn í sjúkrahús. DB-mynd S.
Kröfu Time-Life Corp. hnekkt:
LÍF FÆR AÐ HALDA NAFNISÍNU ÁFRANI
Bæjarþing Reykjavikur úrskurð-
aði í gær að Frjálsu framtaki væri
heimilt að nota nafnið Lif á tfzkublað
sitt en bandariska útgáfufyrirtækið
Time-Life Corp. taldi Frjálsu fram-
taki óheimilt að nota það nafn þar eð
það væri skrásett eign Time-Life
Corp.
Bandaríska fyrirtækið höfðaði mál
á hendur Frjálsu framtaki skömmu
eftir að fyrsta eintak Lif kom út en
dómur féll þó ekki fyrr en í gær. Þá
var í dómnum einnig tekið fram að
Time-Life Corp. skytdi greiöa allan
málskostnað.
Dómsformaður i málinu var Hrafn
Bragason og þeir Gaukur Jörundsson
prófessor og Knútur Hallsson
deildarstjóri meðdómendur. Hjörtur
Torfason hrl. var lögmaður islenzka
fyrirtækisins en Sigurgeir Sigurjóns-
son hrl. hins erlenda.
-SA.
Tillögur vísindanefndar Alþjóða hvalveiðiráðsins:
100 færrí langreyðar
veiddar við Island
Href nu- og sandreyðakvóti óbreyttur
Visindanefnd Alþjóða hvalveiði-
ráðsins hefur lagt til við ráðið að leyft
verði að veiða 159 langreyðar hér við
land á næsta ári og að veiðikvóti á
sandreyðum og hrefnum verði
óbreyttur. Eru þessar tillögur að
langmestu leyti byggðar á rannsókn-
um Hafrannsóknastofnunarinnar, en
vísindanefndin varð ekki sammála
um veiðikvótaá búrhvölum.
„Það eru flestir sammála um að
það mat sem Hafrannsóknastofnunin
hefur lagt á stærð hvalastofna við
fsland sé mjög heiðarlegt,” sagði Jón
Jónsson, forstöðumaður Hafrann-
sóknastofnunarinnar í samtali við
DB, en Jón dvelur nú i Englandi þar
sem hann tekur þátt í störfum vís-
indanefndarinnar.
Jón sagði að samkvæmt rannsókn-
um Hafrannsóknastofnunarinnar
væri stærð langreyðastofnsins nú um
60% af því sem hann var er hval-
veiðar hófust að nýju við ísland 1948
og væri talið að um 159 dýr bættust
við stofninn á hverju ári. Talið væri
að stofninn væri nýtanlegur og því
lagt til að fslendingar mættu veiða
jafnmargar langreyðar á hverju ári
og næmi viðbótinni, þannig að stofn-
inn héldist í jafnvægi. Ef tillögur vís-
indanefndarinnar verða samþykktar
á fundi Alþjóða hvalveiðiráðsins, þá
þýðir það að veiðikvótinn á langreyð-
um minnkar um sem svarar 30% frá
fyrri árum en eins og áður segir þá
leggur visindanefndin til að aðrir
kvótar hér við land verði óbreyttir,
með þeim fyrirvara að búizt er við
„pólitískri ákvörðun” um veiðar á
búrhvölum.
„Ég hef ekki ástæðu til að ætla
annað en að tekið verði fullt tillit tU
tillagna visindanefndarinnar enda
ekki völ á betri og heiðarlegri upplýs-
ingum um stærð hvalastofna við ís-
land,” sagði Jón Jónsson.
-ESE
frjáJst, úháð dagblað
FIMMTUDAGUR 16. JÚLÍ 1981.
Færeyska togskipið:
,,Góð von
umleyfi
stjórnvalda”
— segirBorgþór
Pétursson
„Við höfum góða von um að fá leyfi
stjórnvalda til að kaupa þetta skip þó
að engin staðfesting Uggi ennþá fyrir,”
sagði Borgþór Pétursson, fram-
kvæmdastjóri Búlandstinds hf. á
Djúpavogi, í samtali við DB en eins og
skýrt hefur verið frá þá hefur fyrirtæk-
ið fest kaup á togskipi frá Færeyjum.
Kaupverð er 9—9,5 mUljónir króna.
Borgþór sagði að þeir hefðu gömul
loforð stjórnvalda til skipakaupa og
væru því eiginlega með rUcisábyrgð upp
á vasann, þó að heimildin hefði ekki
verið nýtt á sínum tíma. „Við ákváðum
sem sagt að láta uppbyggingu frysti-
hússins ganga fyrir skipakaupum en nú
vantar okkur skip til hráefnisöflunar.”
Að sögn Borgþórs verður sótt um lán
tU fiskveiðasjóðs vegna kaupanna á
skipinu þó að vel mætti vera að skipið
teldist of gamalt samkvæmt ströngustu
skUgreiningu fiskveiðasjóðs.
„Nú, ef við fáum ekki lán úr
sjóðnum þá er bara að leita fyrir sér um
lán erlendis,” sagði Borgþór Péturs-
son. . ESE
IVIKUHVERRI
IDAG
ER SPURNINGIN:
í hvaða dálki, á hvaða blaðsíðu er
þessi smáauglýsing i blaðinu í dag?
Kawasaki Z 1000 ZIR til sölu árg.
’78, skráð ’80, ekið aðeins 12 þús.
km. Fallegt hjól. Uppl. i sima
22685 eftirkl. 19.
Ilver er auglýsingasimi Dagblaðs-
ins?
SJÁ NÁNAR Á BAKSÍÐU
BLAÐSINS Á M0RGUN
Vinningur
vikunnar
er Útsýnarferð
til Portoroz
Vimúngur I þessari viku er Útsýn-
arferð til Portoroz meó Ferðaskrif-
stofimni Útsýn, Austurstrœti 17
Reykjarik.
1 dag er birt ú þessum stað l
blaðinu spuming, tengd smúauglýsing-
um blaðsms, og nqfh heppins úskrif-
anda dregið út og birt I smúauglýs-
ingodúlkum ú morgun. Fylgizt vel
með, úskrtfendur, fyrir næstu helgi
verður emn ykkar glœsBegri utan-
landsferð rikari
c ískalt
Sewmip.
pf
hressir betur.