Dagblaðið


Dagblaðið - 04.08.1981, Qupperneq 4

Dagblaðið - 04.08.1981, Qupperneq 4
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 4. ÁGÚST 1981. 4 íbawst'* GOÐUR REGNFATNAÐ- UR ER NAUDSYNLEGUR Þessir bræöur brugöu sér f regnkápur i Utiiífi fyrir okkur. Eins og sji má er minni kápan vel skreytt endurskinsmerkjum. DB-myndir Bj.Bj. UpplýsingaseöiU til samanburðar á heimiliskostnaði Hvað kostar heimilishaldið? Vinsamlega sendið okkur þennan svarseðil. Þannig eruð þér orðinn virkur þátttak- andi í upplVsingamiðlun meðal almennings um hvert sé meðaltal heimiliskostnaðar fjðlskvldu af sömu stærð og vðar. Þar að auki eigið þér von um að fá nvtsamt hcimilis- tæki. Nafn áskrifanda Heimili Sími Fjöldi heimilisfólks----- Kostnaður í júnímánuði 1981 Matur og hreinlætisvörur kr. Annað kr. Alls kr. IffíÍV i Hvort sem okkur likar betur eða verr er kominn ágúst. Og hér sunnan- lands hefur það oftar en ekki gerzt að rigningardagar f ágúst hafa veríð fleiri en þeir þurru. Íslendingar eru af einhverjum dularfullum ástæðum ótrúlega tregir til að verja sig rign- ingu. Fólk sést á rigningardögum svo blautt að úr því rennur, án þess að bera hönd fyrir höfuð sér. Ef til vill liggur skýríngin f þvf að að morgni er kannski bjart og stillt veður en að kvöldi farið að rigna. Það er því erfitt að klæða sig eftir veðri á ísalandinu góða. En góð regnföt ættu þó allir að eiga og nota þegar þvi verður við komið og er nauðsynlegt. Neytendasiðan brá sér f verzlanir að kynna sér það sem til var af regn- fötum. Við fórum f Ellingsen þar sem seldir eru gallar sem henta vel ölium þeim sem vinna úti við og einnig hinum sem sjaldnar nota regnföt. I Karnabæ kynntum við okkur nýjustu tizkuna og í Útilffí regnkápur og buxur fyrir alla fjölskylduna. Óþarfi ætti að vera að taka fram að hver ein- asta fataverzlun með einhvern sjálfs- metnað selur regnfatnaö þannig að mikiðmeiraertililandinu. -DS Regnföt á alla fjölskylduna f í Útilífi I Glæsibæ rákumst við á klassisk regnföt fyrir alla aldurs- flokka og bæði kyn. Boðið var upp á þrjár tegundir regnfatnaðar. Vind- þétta galla sem hrinda frá sér nokkru vatni, gúmmf-regnföt og regnföt úr efni sem kallast gorotex og andar frá sér raka. Vindþéttu gallarnir voru aðeins til fyrir fullorðna. Þeir kosta 341 krónu jakki og buxur. Jakkinn er renndur með rennilás og buxurnar eru í mitti. Regnfatnaður úr gúmmii var hins vegar til fyrir allan aldur eins og áður er sagt. Verðið var misjafnt eftir stærð en regnkápur kostuðu frá 91 krónu og upp 1347 krónur. Kápurnar voru með smellum að framan og hettum. Buxur við kostuðu frá 86 krónum og upp í 184 krónur. Fatnaður úr undraefninu gorotex var nokkuð dýrari. Hann er einkum ætlaður þeim sem lengi i einu klæðast regnfötum, til dæmis við vinnu úti við. Regnkápa kostar 1061 krónu og buxur við um 700 krónur. Þó að gall- inn andi frá sér innri raka á aö vera alveg öruggt að hann hleypir ekki inn svo mikið sem einum dropa af ytri raka. - DS Anorak frá Taiwan íKamabæ Regnfatnaður er eins og annaö háður tizkustraumum. Það veröur liklega að segjast eins og er að aðal- lega er það kvenþjóðin sem eltist við tfzkuna jafnt í regnfötum og öðru. Karlmennimir reyna að minnsta kosti að láta lfta út fyrir að þeim sé sama. Við litum inn í elztu tfzkuverzlun landsins og spurðum um regnfatnaö. Til var kápa með anoraksniði og náði hún niður á mið læri. Kápan var smellt saman og meö snúru f mitti og að neðan. Hún er frá Taiwan og kostar 198 krónur. Líklega myndu aðeins konur fara f þessa flfk þó vel sé hægt fyrir karlmenn að smeygja sér f hana lfka. - DS Nýkomin úr sólinni á Ibiza er vlssara j að vera vlð öllu búin. Rigningln gæti I átt eftlr að hrjá hana þessa. Hún Idæðlst hér regnkápu frá Kamabæ. Mjólkin líka súr fyrir austan K.P. skrifar: Litið minnka útgjöldin hjá mér. Nú er frystikistan svo til tóm enda nokkur hækkun á matarreikningn- um, 3.056,95 kr. (764á mann). Annaö langar mig til að sundurliða enda háar tölur sem endranær, 13.123,55 kr. Ber þar hæst kostnað við húsið, t.d. teppi og fleira f stofu á 7.069,80, vfxill á 1.463,20, rafmagn 1.292,00, tannlæknir 1.552,00 (hrika- legt), efni + peysur 1.020,45 og klipping 200,00. Margt smátt gerir eitt stórt. Heldur finnst mér bókin undir heimilisbókhaldið losaraleg, enda ætla ég mér að halda áfram með stlla- bókina mfna. Gamall vani. Mjóikin hérna fyrir austan er svipuð og hjá ykkur fyrir sunnan, löngu orðin fúl og súr fyrir síðasta söludag. Við höfum mjóikursamlag hérna. Smjörið er unnið f 25 kflóa pakkningar hérna sent suöur og pakkað þar og sent aftur austur. Án efa mjög hagkvæmt f framkvæmd. Svar: Þetta er fyrsta röddin sem við heyrum um það að mjólk sé fúl og súr á fleiri stööum en I Reykjavík. Hafa menn ekkert kvartað þarna fyrir austan eða hvað? Heimilisbókhaldsbókin er ekki los- araieg ef menn bregða henni í heft- ara. Venjulegur heimilisheftari er vel nothæfur. En af tæknilegum ástæðum var ekki hægt að hefta þau eintök sem fóru út með Dagblaðinu þó þau eintök sem út fóru með Vik- unni hafi öll verið heftuð. - DS Raddir neytenda

x

Dagblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.