Dagblaðið - 15.09.1981, Síða 1
7. ÁRG. — ÞRIÐJUDAGUR 15. SEPTEMBER 1981 - 208. TBL. RITSTJÓRN SÍÐUMÚLA 12. AUGLÝSINGAR OG AFGREIÐSLA ÞVERHOLTI 11.—AÐALSÍMI 27022.
ÚA reisir skreiðarhjalla á hlaðibænda í Glæsibæjarhreppi:
BÆNDUR LOKUÐU VEGINUM
MEÐ TRAKTORUM SÍNUM
—þegar Útgerðarfélag Akureyringa hafðiítrekað hundsað óskirþeirra um
að verða á brott með hjallana
„Ég held að niðurstaðan sýni að
hinn almenni maður getur náð rétti
sínum ef hann fylgir málinu nægilega
vel eftir,” sagði Reynir Hjartarson á
Brávöllum í Glæsibæjarhreppi i
Eyjafirði í samtali við DB í morgun.
Þar tóku bændur sig til í gær og
lokuðu af með traktorum og öðrum
vinnuvélum vegi að ólöglegum
skreiðarhjöllum Útgerðarfélags
Akureyringa. Lokaðist a.m.k. einn
bill ÚA inni við aðgerðirnar. Létu
bændur ekki af aðgerðunum fyrr en
forystumenn ÚA lofuðu í gærkvöld
að hætta að nota hjallana.
Skreiðarhjallar ÚA hafa verið tals-
vert hitamál á Akureyri í sumar. Um
langa hrið deildu íbúar í Glerárhverfi
við ÚA vegna skreiðarhjalla sem
settir höfðu verið upp mjög nærri
byggð í hverfinu. Svo gerðist það
fyrir um það bil mánuði, að sögn
Reynis Hjartarsonar, að ÚA hóf að
reisa skreiðarhjalla í Glæsibæjar-
hreppi án allra tilskilinna leyfa og
langt innan þeirra marka sem lög
segja til um að eigi að vera milli
slíkra hjalla og mannabústaða. Það
eru 500 metrar en þrír bæir í hreppn-
um voru í minni fjarlægð frá hjöllun-
um, þar af einn í aðeins um 100 m
fjarlægð.
„Við vorum búnir að margbiðja þá
með góðu að hætta við þessa hjalla
og fjarlægja allt sitt hafurtask,”
sagði Reynir. „Þegar það bar engan
árangur samþykkti almennu fundur i
hreppsfélaginu sl. fimmtudag að fela
sveitarstjórn að stöðva framkvæmd-
irnar. Enn var ekki hlustað á orð
okkar og því fóru bændur í gær með
traktora og lokuðu veginum. Þá fyrst
fóru hjólin að snúast. Við vorum
beðnir að hleypa bílunum þeirra út en
það vildum við ekki fyrr en endanleg
lausn væri fundin á málinu. Það var
svo loks í gærkvöld að þeir gáfu
skriflegt loforð um að ekki yrði hengt
upp meira þarna en á móti samþykkt-
um við að það sem þegar hefur
verið hengt upp fái að vera þar til ÚA
hefur fundið annan stað fyrir sína
hjalla. í dagásvoaðgirðasvæðið.”
-ÓV.
Verður kristilegur
þjóðmálaflokkur
stofnaður?
— sjá bls. 5
■
Lítillvandiað
útbúagott
nestiískólann
— sjá DB á neytenda-
markaði bls.4
Sænski rís-
inn fallinn
í valinn
Þá er hann fallinn sœnski risinn sem
svo lengi stóð á horni Skúlagötu og
Kalkofnsvegar. Frystihúsið er kennt.
var við Svía þó lengstum vteri það
Islenzkt kjöt og íslenzkur fiskur sem
þar var innan dyra. „Niðurrifs”mcnn
tóku á honum stóra sínum i gœr-
kvöldi og jöfnuðu húsið við jörðu.
Varstóra myndin tekin um áttaleytið
I gœrkvöldi en sú litla snemma I
morgun þegar slðasti veggurinn var
fallinn.
DS/DB-myndir Sig. Þorri.
SIGUR HÆGRIAFLANNAI
N0RSKU ÞINGKOSNINGUNUM
KosningasigurFram-
faraflokksins niður-
lægingfyrir okkur
öll, segir norska
Dagblaðið
Frá Sigurjóni Jóhannssyni, fréttarit-
araDBiOsló:
Hægri flokkurinn hér í Noregi er
sigurvegari kosninganna, með 31,5%
atkvæöa og 54 þingmenn, sem er 13
þingsæta aukning frá þingkosningun-
um 1977.
Það sem mest kom þó á óvart i
kosningunum var að Framfaraflokk-
urinn (Fremskridspartiet) fékk fjögur
þingsæti en hafði ekkert áður.
Verkamannaflokkurinn fékk ekki
eins slæma útreið og margir áttu von
.................................
á, hlaut 37,5% atkvæða og 66 þing-
menn en tapaði samt 10 þingsætum.
Þá urðu margir undrandi yfír að
Kristilegi flokkurinn og Miðflokkur-
inn skyldu báðir tapa verulegu fylgi
en þessir flokkar sögðust fyrir kosn-
ingarnar ætla að mynda þriggja
flokka borgaralega ríkisstjórn með
Hægriflokknum. Kristilegi flokkur-
inn tapaði sjö þingsætum og Mið-
flokkurinn tveimur.
Sósfalski vinstriflokkurinn bætti
við sig tveimur þingsætum og hefur
nú fjögur, Vinstriflokkurinn stóö í
stað með tvö þingsæti.
Káre Villoch mun þegar í dag hefja
viðræður viö Kristilega flokkinn og
Miðflokkinn um stjórnarmyndun.
Hann er i ákaflega sterkri samnings-
aðstöðu þar sem Hægri flokkurinn
fékk tvisvar sinnum meira fylgi en
miðflokkarnir tveir. Það getur svo
farið að miðflokkarnir tveir séu ekki
allt of fúsir til stjórnarsamstarfs eftir
hin neikveeiu úrsU' íyrir Þá-
Óþægilcgui er fyrir Káre Villoch
hinn óvænti sigur Framfaraflokksins
sem er hreinn hægri flokkur og oft
likt við flokk Glistrups í Danmörku.
Norska Dagblaðið segir i leiðara i
morgun að það sé ekki nein niður-
læging fyrir Verkamannaflokkinn að
lenda í stjórnarandstöðu um sinn. Ef
horft er til stöðu flokksins fyrir
nokkrum mánuðum má líta á úrslitin
sem eins konar varnarsigur. Það er
líka plástur á sárin að sigur Hægri-
fiokksins var ekki eins mikill og
margir spáðu. Sigur hægriaflanna er
þó gifurlegur sé atkvæðum Fram-
faraflokksins bætt við atkvæði
Hægriflokksins. Lokaorð leiðara
Dagblaðsins eru þessi: ,,Og kosn-
ingasigur Framfaraflokksins er
niðurlæging fyrir okkur öll.”
-KMU.
— sjá einnig erl. fréttir bls. 6-7