Dagblaðið - 15.09.1981, Blaðsíða 2

Dagblaðið - 15.09.1981, Blaðsíða 2
2 DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 15.SEPTEMBER 1981. SENDLAR Afgreiðsla Dagblaðsins óskar eftir að ráða sendla í vetur, verða að hafa hjól til umráða. Upplýsingar á afgreiðslunni, sími 27022 IBIABIÐ EIGNANAUST HF. SKIPHOLTI5 SÍMAR 29555 OG 29558 OPIÐ KL. 1-5 LAUGARDAGA OG SUNNUDAGA. Asparfel/ 3ja herb. íbúð á 5. hæð, 90 ferm, helzt í makaskiptum á raðhúsi eða einbýli í Mosfellssveit. Dvergabakki 3ja herb. 83 ferm íbúð á 3. hæð, mjög vönduð og góð eign, verð kr. 500.000,00. Melgerði 3ja herb. 70 ferm risíbúð í tvíbýli, verð kr. 400.000,00. Hörgshlíð Einstaklingsibúð til sölu. Verð tilboð. Mosgerði 3ja herb. risíbúð, 70 ferm, í tvíbýli, verð kr. 360.000,00. Ljósheimar 3ja herb. íbúð á 4. hæð, 80 ferm, fæst helzt í skiptum fyrir sams konar eign með stórum stofum. Kjarrhólmi 3ja herb. 85 ferm íbúð á 2. hæð, falleg og góð eign, verð kr. 500.000,00. Hlógerði Kópavogi, einbýlishús á einni hæð, 90 ferm. Til sölu, verð aðeins kr. 400.000.00. Leirubakki 4 herb. plús eitt herb. í kjallara, mjög fallegt tréverk, vönd- uð eign, verð kr. 700.000,00. Lækjarkinn 3 svefnherbergi plús tvær samliggjandi stofur og 2 stór her- bergi í kjallara, alls 120 ferm, bílskúr, verð kr. 780.000,00. Kársnesbraut 4 herb. risíbúð, 110 ferm, í tvíbýli, verð kr. 510.000,00. Kaplaskjólsvegur 5 herb. íbúð á 4. hæð og í risi, alls 140 ferm, verð kr. 650.000,00. Áffheimar 4 herb. íbúð, 110 ferm, á 3. hæð, fæst í skiptum fyrir góða 3ja herb. ibúð. Vesturberg Raðhús á tveimur hæðum, mjög falleg og góð eign, samtals 190 ferm, verð kr. 1.000.000,00. Reykjavegur — Mosfellssveit Einbýlishús sem er 4 stór svefnherbergi, 2 samliggjandi stofur, eldhús og bað plús 50 ferm bílskúr, verð 1.000.000,00. Sandgerði Einbýlishús, 140 ferm plús 50 ferm bílskúr, verð kr. 850.000,00. Selfoss Einbýlishús á 2 hæðum, stór bílskúr, verð kr. 600.000,00. Fjárborg Hesthús, 11 bása plús stór hlaða, verð tilboð. Skerjafjörður Höfum verið beðnir að útvega góða byggingarlóð fyrir mjög fjársterkan kaupanda. Óskum eftir 3ja herb. íbúð á Grundunum Kópavogi eða Fossvogi, einbýlishúsi í gamla bænumn, með bílskúr, einbýlishúsi eða góðri sérhæð í Kópavogi, sérhæð eða raðhúsi í Heima- hverfi, Langholti eða Laugarnesi. SKOÐUM OG METUM ÍBÚÐIR SAMDÆGURS. GÓÐ 0G FUÓT ÞJÓNUSTA ER KJÖR0RÐ 0KKAR. AUGLÝSUM ÁVALLT í DAGBLAÐINU Á ÞRIÐJUDÖGUM 0G FIMMTUDÖGUM. EIGNANAUST, ÞORVALDUR LÚÐVÍKSSON HRL. Ljósastillingar eru framkvæmdar á vegum Bifreiðaeftirlits ríkisins — Bif reiðaeftirlitið vefengir ekki iðnréttindi manna 1206—8344 hringdi: Þannig er mál með vexti að Iðn- skólinn kennir bifvélavirkjun og út- skrifar bifvélavirkja. Dregið er um prófverkefni. Nú veit ég um mann sem dró það verkefni m.a. að stilla ljós á bílum og fékk hann góða einkunn f.yrir, enda ljósastilling kennd í skólanum. Þessi maður greiddi sitt prófgjald, eins og vera ber, og fékk sín fullu réttindi. Síðan byrjar hann að vinna en þá má hann ekki stilla ljós. Bifreiðaeftir- litið grípur í taumana og bannar honum að stilla ljós nema hann komi á námskeið til þeirra og greiði aftur prófgjald. Hvaða heimild hefur forstjóri Bif- reiðaeftirlitsins til þess að taka ljósa- stillingar sérstaklega út úr öðru námsefni, eftir að Iðnskólinn hefur útskrifað nemendur? Þarna er um tvö prófgjöld að ræða fyrirsama prófið. Sjónarmið Bifreiðaeftirlits ríkisins: Um þetta sagði Ragnar Jónsson, fulltrúi hjá Bifreiðaeftirlitinu: „Við litum þannig á að þessar ljósastilling- ar séu framkvæmdar á vegum Bif- reiðaeftirlitsins og að námskeiðin séu því nokkurs konar löggilding á þessum mönnum til þess að annast ljósastillingar fyrir okkar hönd.” Staðfesting dómsmálaráðuneytisins: Hjá dómsmálaráðuneytinu fékk DB eftirfarandi upplýsingar: Bifreiðaeftirlit ríkisins vefengir ekki iðnréttindi manna. Bifvélavirkj- um er því heimilt að stilla ljósabúnað bifreiða og gera við. Til þess, hins vegar, að Bifreiðaeftirlitið taki ljósa- stillingarvottorð gilt, þannig að komi í stað skoðunar bifreiðaeftirlits- manns, þarf það að ganga úr skugga um að þeir sem þau vottorð gefa út kunni til þeirra verka og vinni í sam- ræmi við þær reglur sem Bifreiða- eftirlitið hefur gefið út um ljósastill- ingar. Viðurkenning Bifreiðaeftirlitsins nær þannig til sjálfra ljósastillinga- tækjanna, til aðstöðunnar á vinnu- stað og til starfsmanna. Rétt er að taka fram að fram- kvæmd Bifreiðaeftirlitsins á viður- kenningu ljósastillingarmanna er gerð í samráði við félag bifvélavirkja. -FG. Framkvæmd Bifreiðaeftirlits rikisins á viðurkenningu Ijósastillingarmanna er gerð i samráði við félag bifvélavirkja, samkvæmt upplýsingum dómsmálaráðu- neytisins. Osamkomulag við Bræðraborgarstíg: Innkeyrslan varð skyndi- lega „bráðnauðsynleg” — nágrönnum blöskrar, segir íbúi íbúi við Bræðraborgarstig hringdi: Ég hringi vegna fréttar á baksíðu Dagblaðsins síðastliðinn föstudag. Afstaða bókaútgáfunnar Iðunnar og forsvarsmanns hennar gengur al- gjörlega fram af okkur sem búum við Bræðraborgarstíg. í sumar keyptu ung hjón ibúðar- húsið Bræðraborgarstíg 14 og með- fylgjandi lóð. Lóðinni mun fylgja sú kvöð, frá 1929, að yfir hana megi leggja aðkeyrslu að bakaríi Jóns Sím., sem þá var og hét. Við nágrannarnir viljum minna á að 1929 voru hér engir bílar svo hér var átt við göngustíg og handkerrur sem þá tiðkuðust. Áður en núverandi eigendur keyptu umrædda eign var lóðin ekk- ert nema möl og grjót og þyrnir í augum okkar allra. Auk þess var hún alls ekki notuð af Iðunnarmönnum, þar eð fyrri eigendur vörnuðu því með gulmáluðum umferðarsteinum, sem lítið gerðu til þess að prýða um- hverfið. Okkur nágrönnunum til óbland- innar ánægju hófust nýju eigendur lóðarinnar handa um að fegra þenn- an blett. Iðunnarmenn gerðu enga til- raun til þess að aka þarna yfir fyrr en þökulagningu var lokið, enda höfðu þeir aldrei komizt þetta fyrr vegna gulu steinanna áðurnefndu. Hins vegar var þökulagningunni ekki fyrr lokið en þeir hjá Iðunni tóku að böðlast þarna yfir og léku sér að því að spæna þarna upp svörðinn sem mest þeir máttu, eins og sjá má af myndum. Okkur nágrönnunum blöskraði og höfum við reynt að leggja bílum okkar þannig að þeir vörnuðu gegn þessum yfirgangi. Ég vil vekja athygli á setningu sem höfð er eftir forsvarsmanni Iðunnar. Hann segir: Aðstaða okkar í portinu er ákaflega þröng og þessi innkeyrsla okkur bráðnauðsynleg. — Það var og. Þar eð Iðunn hefur aldrei fyrr haft möguleika á að nota þessa innkeyrslu fáum við ómögulega skilið hvað veldur hinni nýtilkomnu „bráðu nauðsyn”. Við nágrannarnir mótmælum ein- dregið þessum yfirgangi Iðunnar- manna. » Baksiðugrein DB, síðastliðinn föstu- dag, er fjallar um erjur við Bræðra- borgarstíg. tutt ogskýrbréfi cinu sinni minnu lcsenJaJálkar DB alla þá. cr hynnjast senJa \tccttinum linu. aó láta fi’lgja fullt nafn heimilisfant!. símanúmcr tcf um þaó cr aó rtcóa) uy nafnnúmer. Þctta cr lltil fyrirhöfn fyrir hréfritara okkar i>U til mikilla þceyinJa fvrir DB. LcscnJur cru jafnframt minntir á aó hrcf ciya aó vcru stutt oy skýr. Askitinn crfullur réttur til aó stvtta hrcfou umoröa til aö spara rúm op koma cfni hctur til skila. Brcf ccttu helzt ckki aö vcra lenyri cn 200—300 oró. Símatimi lcscnJaJálka DB cr milli kl. 13 »u /5 frú mánuJöyum tilföstuJapa. íbúar vtt Bneðraborgaretí*: Taka höndum saman og ágangi Idunnar rf&a I6& vi& ruesta hús. „Loglegt en ANN- ARRA KOSTA VÖL” — segir Jóhann Páll Valdimarsson hjá liunni Raddir lesenda

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.