Dagblaðið - 15.09.1981, Qupperneq 5
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 15. SEPTEMBER 1981.
5
Kristilegur þjóðmálaf lokkur gæti orðið enn eitt aflið í íslenzkum stjórnmálum:
„Mikill áhugi á slíkrí hreyfíngu”
—segirÁmi Gunnlaugsson, bæjarfulltrúi í Hafnarfirði
„Ég hef mikinn áhuga á kristilegri
þjóðmálahreyfingu,” sagði Árni
Gunnlaugsson, hæstaréttarlögmaður
og bæjarfulltrúi í Hafnarfirði, í viðtali
við DB. Hann er nýlega kominn til
landsins eftir ferð, m.a. til
Norðurlanda þar sem hann hafði sam-
band við kristilega þjóðmálaflokka og
kynnti sér stefnu þeirra ogstörf.
Því er nú spáð, að Kristilegi þjóðar-
flokkurinn í Noregi verði með í
stjórnarmyndun, ef úrslit kosninganna
til Stórþingsins verða Verkamanna-
flokknum óhagstæð.
Kosningabaráttan hefur að vissu
leyti þróazt í einvígi milli Verkamanna-
flokksins og Hægri. Þess hafa minni
flokkar að vissu leyti goldið. Kristilegir
flokkar beita sér yfirleitt gegn fóstur-
eyðingum og áfengisneyzlu.
Yngstur Kristilegu flokkanna er
Kristen Demokratisk Samling í
Svíþjóð, stofnaður 1965. Hann hefur
kjörorðin: Samhjálp-Ábyrgð-Um-
hyggja.
Fyrir tveim árum var haldinn
kynningarfundur, fyrir kristilega
þjóðmálastefnu í Hallgrímskirkju.
,,Ég varð fyrir miklum vonbrigðum
með daufar undirtektir kirkjunnar
manna undir eflingu slíkrar hreyfingar
hér. Hvernig sem sú afstaða er nú þá
hefi ég, og raunar ýmsir fleiri, mikinn
áhuga á því að kanna jarðveginn fyrir
grundvöll slíkrar hreyfingar hér á
landi,” sagði Árni Gunnlaugsson.
-BS.
Fjárveitingar
tilvegamála
stórauknar næstu ár:
Lengd vega
með bundnu
slitlagi um
3000 km
eftir 12 ár
„Fjárveitingar til vegamála nú eru
2,1% af þjóðarframleiðslu
fslendinga, en á næstu 2—3 árum, er
ráðgert að auka það hlutfall í 2,4%.
Þetta eru mun hærri fjárveitingar en
hafa verið undanfarin 10 ár, en
meðaltal þeirrar ára er 1,88% af
þjóðarframleiðslu,” sagði Steingrím-
ur Hermannsson samgönguráðherra i
veizlu eftir að Borgarfjarðarbrú
hafði verið vígð
„Auknar fjárveitingar til vega-
mála eiga að tryggja að
framkvæmdir gangi hraðar fyrir sig
og ennfremur að hægt verði að gera
langtímaáætlanir í vegamálum lands-
ins,” sagði Steingrímur.
,,Meiri áherzla verður lögð á að
leggja bundið slitlag á vegi landsins
og innan 12 ára er vonazt til að
samanlögð lengd vega með bundnu
slitlagi verði um 3000 km. Þessu
takmarki er hægt að ná með því aö
leggja á ári hverju 200 km af vegum
með bundnu slitlagi,” sagði
Steingrímur Hermannsson
samgönguráðherra.
Margir tóku til máls í veizlunni,
þar á meðal alþingismenn, Halldór
E. Sigurðsson, sýslumaður o. fl., en
Rúnar Guðjónsson sýslumaður var
veizlustjóri. Allir voru sammála um
að Borgarfjarðarbrúin væri mikið og
stórkostlegt mannvirki, sem sýndi vel
að íslendingar byggju yfir verk-
kunnáttu til að glíma við erfiðustu
framkvæmdir í vegamálum íslands.
-SA.
Árneshreppur
áStröndum:
Þarverkabændur
í súrhey
Sláttur byrjaði í Árneshreppi á
Ströndum fyrstu dagana í ágúst.
Lauk honum um síðustu mánaða-
mót.
Almennt var allt hey sett í súrhey
Fóðrast féðvelá þvi.
Yfir heildina er heldur lakari
spretta en í fyrrasumar. Nokkrir
bændur, sem áttu litlar fyrningar í
vor, eru búnir að kaupa hey. Vorið
var slæmt og kindur báru allar í
húsum. Var þeim ekki sleppt fyrr en
um miðjan júní, á svo að segja
gróðurlausajörð.
-KMU/Regína, Gjögri.
SamiðáHöfn
Samningar tókust á laugardaginn
um kjör síldarverkunarfólks á Höfn í
Hornafirði. Var það eftir að stjórn
og trúnaðarmannaráði verkalýðs-
félagsins Jökuls hafði verið veitt
umboð til verkfallsboöunar.
Samningarnir verða teknir til
umræðu og atkvæðagreiðslu i
félaginu núna á næstunni. Enga sild
er ennþá farið að salta því bátamir
veiða lítið sem ekkert. Skipaey og
Reynir fengu hvort sínar 90 lestirnar,
en það þykir ekki mikið þar eystra.
Ekkert hefur veiðzt sunnan undir
landinu, það litla sem fengizt hefur,
hefur veiðzt langt í austri.
-DS/Júlía, Höfn.
I frumsýningarhléi á „Jóa”
leikríti Kjartans Ragnarssonar spád löngum lífdögum
Bjarnteifur okkar tók þessa mynd í kjatlaranum I Iðnó I hléi ófrumsýningu ú nýja
leikritinu„Jóa”semfjailarþroskaheftan ungan mann og viðbrögðfjölskyldu hans við
vandanum sem skapast þegar móðir hans deyr. Á hann að fara ó hteli — eða hvað?
Gagnrýnandi DB, Ólajur Jónsson, spóir leiknum mikilli aðsókn og það er ekki annað
að sjó en leikararnir séu bjartsýnir. Jón Hjartarson, í getrvi teiknisöguhetjunnar
Supermanns, situr yzt til vinstri I fremri röð, og við hlið hans, Ásdís Skúladóttir
leikstjóri, Hanna María Karlsdóttir, Guðmundur Pólsson og loks Elfa Gísladóttir. 1
aftari röð fró vinstri standa þeir Sigurður Karlsson, Jóhann Sigurðsson, sem leikur
Jóa (þau Elfa leika nú hjó atvinnuleikhúsi ífyrsta sinn og gera það gott), þó höfundur
og leikstjóri verksins Kjartan Kagnursson, og loks Þorsteinn Gunnarsson.
DB-mynd: Bjarnleifur.
Skúlagarður.
Rannsókn málsins f fullum gangi
hjá Hirti Aðalsteinssyni setudómara
— málið sent dómsmálaráðuneyti og ríkissaksóknara að rannsókn lokinnni
,,Ég hefi farið norður og tekið
skýrslur af þeim sem málið varðar,
kærandanum Þórarni Björnssyni,
forstöðumanni Skúlagarðs í Keldu-
hverfi, lögreglumönnum þeim sem
kærðir voru og raunar fleiri,” sagði
Hjörtur Aðalsteinsson, skipaður
setudómari í málinu, sem annars er
fulltrúi yfirsakadómarans í Reykja-
vík.
Aðfaranótt hins 19. júlí siðast-
Iiðins lauk samskiptum for-
stöðumanns Skúlagarðs og lög-
gæzlumanna með söguiegum og
óvenjulegum hætti, eins og DB hefur
greint frá.
Forstöðumaðurinn neitaði að
greiða reikning, sem lögreglumenn
framvísuðu fyrir löggæzlu á
skemmtun. Taldi hann reikninginn
svo háan, að sig skorti í raun heimild
til að greiða hann refjalaust.
Sauð svo upp úr af þessari ástæðu
og ef til vill öðrum, sem ekki eru
þekktar, að lögreglumennirnir
járnuðu forstöðumanninn og fluttu
hann í fangageymslu austur á Rauf-
arhöfn.
Kærði forstöðumaðurinn þetta
afhæfi.Dómsmálaráðuneytið skipaði
Hjört Aðalsteinsson, fulltrúa
yfirsakadómrans í Reykjavík,
setudómara í málinu.
Fleiri vitni verða yfirheyrð næstu
daga. Er óhætt að segja, að rannsókn
kærunnar og málsins ér í fullum
gangi hjá setudómaranum. Er þess
að vænta, að hann sendi dómsmáia-
ráðuneyti og ríkissaksóknara gögn
þau, sem hann hefur aflað í málinu.
-BS.
Borgames:
Kalda vatnið um
Borgarfjarðarbrúna
Borgarneshreppur er um þessar
mundir að leggja vatnslögn um Borgar-
fjarðarbrúna. Liggur hún frá vatnsbóli
Borgarness á Seleyri.
Nýja vatnslögnin kemur til með að
leysa eldri leiðslur af sem legið hafa í
firðinum. Hafa ýmis óþægindi fylgt
því, m.a. hefurviðhald veriðdýrt.
Er stefnt að því að nýja lögnin verði
tilbúin áður en slátrun hefst því að
slátrun krefst mikils vatns.
Vatnsveitan er ekki eina lögnin í
Borgarfjarðarbrúnni. Leiðslur sem
flytja eiga heitt vatn vegna
væntanlegrar hitaveitu eru fyrir í
brúnni. -KMU.
EYRARBAKKI
Nýr umboðsmaður á Eyrarbakka, Helga Svein-
dís Helgadóttir, Hofsstöðum, S 99-3189.
IMEBIABW