Dagblaðið - 15.09.1981, Qupperneq 9
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 15. SEPTEMBER 1981.
9
Borgarfjarðarbm
erhálfurkm á
lengd og kostaði
155 millj. kr.
Rennsli undir brúna svip
að og Skeiðarárhlaup
„Við vorum 1 morgun uppi í
Norðurárdal að búa sumarbústað
okkar undir veturinn. Þar hellirigndi en
sonur minn sagði að það væri gott
veður í Borgarnesi, og það kom á
daginn. Þetta er dásamlegur dagur, rétt
eins og brúðkaupsdagur,” sagði
Halldór E. Sigurðsson, fyrrverandi
alþingismaður og samgönguráðherra,
er DB hitti hann að máli í veizlu að
lokinni vígsluathöfn Borgarfjarðar-
brúar í fyrradag.
Víst er að nafn Halldórs E.
Sigurðssonar verður um ókomna
framtíð tengt nafni Borgarfjarðar-
brúar, en Halldór flutti fyrir 23 árum
tillögu á Alþingi um brúar-
framkvæmdir við Seleyri. í fyrra var
svo brúin loks opnuð fyrir umferð, en
framkvæmdir við hana hófust 1975.
Kostnaður við brúna var 155 milljónir
kr. miðað við verðlag í ágúst sl.
Borgarfjarðarbrúin er 520 metra
löng, en alls er Borgarfjörður 1,8 km á
breidd þar sem brúin stendur. Höf
brúarinnar eru 13 og er hvert þeirra 40
metrar að lengd. í hverju hafi er 4 bitar
og vegur hver þeirra 65 tonn. Bitar eru
H
Draumsýn verður að veruleika. Halldór
E. Sigurðsson fyrrverandi alþingismaður
og samgönguráðherra klippir á borða og
vígir þar með Borgarfjarðarbrú.
forsteyptir uppi á Seleyri og síðan en brúin er níu metrar á breidd og
fluttir út á stöplana, sem einnig eru hefur tvöfalda akrein.
steyptir og hvila á 15 m löngum timbur- Vegurinn sitt hvorum megin við
staurum, sem reknir voru ofan i botn brúna liggur á grjótgarði en við enda
fjarðarins. Brúargólfið er einnig steypt brúarinnar eru byggðir bogadregnir
garðar hornrétt út frá vegfyllingu. Er
lögun þeirra og stærð með þeim hætti
að þeir leiði vatnið inn í brúaropið með
sem minnstum straumköstum og
jöfnustum hraða. Rennslið undir
brúina verður mest um 6000 rúmmetrar
á sekúndu eða svipað og í Skeiðarár-
hlaupum, en á hverju stórstraumsfalli
renna um 80 milljónir rúmmetra af
vatni undir brúna. Mikill munur er á
flóði og fjöru við Borgarfjarðarbrú
eins og annars staðar í Borgarfirði, eða
um 3,8 metrar á meðalstórstreymi.
-SA.
(a7>Dale .
Carnegie
námskeiðiÖ
virkilega hjálpað mér?
Lítum saman yfir nokkrar spurningar.
★ Óskar þú þess oft að þú hefðir betra starf?
* Hefur þú nauðsynlega sjálfsstjórn til þess að geta tekið
ákvarðanir?
* Geturðu tjáð þig af öryggi í samræðum eða á fundum?
* Finnst þér þú hafa of miklar áhyggjur?
★ Er öll sú ánægja og hamingja í lífi þínu, sem ætti að vera?
★ Vilt þú frekar hlaupa einn kilómetra heldur en „standa upp og
segja nokkur orð?
* Hefur þú stjórn á hlutunum þegar allt fer úr skorðnm?
★ Getur þú fengið fjölskylduna, vini og samstarlsmenn til að gera
það fúslega sem þú stingur upp á?
ÞÚ GETUR SJÁLFUR DÆMT
um það hvernig Dale Carnegie námskeiðið getur hjálpað þér. Þú
munt heyra þátttakendur segja frá þvi hvers vegna jxir tóku þátt i
námskeiðinu og hver var árangurinn. Þér er boðið, ásamt vinum og
kunningjum, að líta inn hjá okkur án skuldbindinga eða kostnaðar.
Þetta verður fræðandi og skemmtilegt kvöld er gæti komið þér að
gagni.
Næsti kynningarfundur verður haldinn fimmtudaginn 17. september
kl. 20:30 aðSíðumúla 31. Upplýsingar í sima 82411.
Kostnaður við Borgarfjarðarbrú varð hana 1975. Hún styttir leiðina til Borg-
aðeins um 10—15% hærri en ráð var arness um 28 km og leiðina til
fyrir gert vð upphaf framkvæmda við Norðurlands um 7 km. Um brúna liggja
aðveiturör fýrír hitaveitu til Borgarness
og ennfremur vatnsveitu staðaríns.
-DB-myndir Sveinn Agnarsson.
Reykjarfjörður fullur af sfld
—sfld ekki sézt þar Í35ár
Reykjarfjörður á Ströndum er
fullur af sild. Virðist sem hún sé
innilokuð eins og í Hvalfirði árið
1947. Hefur síldin verið þar í hálfan
annað mánuð en sjómenn urðu fyrst
varir við hana þá er þeir fengu hana
á færi. Var þá farið að leggja síldar-
net og veiddust þrjár tunnur af síld
jafnan í net.
Síld hafði ekki sézt íReykjarfirði í
35 ár þar til i fyrrasumar er hún rétt
sást. Þá stóð hún stutt við, var veidd
í tvo daga en hvarf svo.
Síldin er alveg verðlaus á
Ströndum. Engir athafnamenn eru
þar til að kaupa síld eins og t.d. á
Eskifirði. Síldin er því aðallega notuð
í skepnufóður og litils háttar til
matar.
-KMU/Regína, Gjögri.
MÁLASKÓLI
26908-
Danska, enska, þýzka, franska, ítalska, spænska
og íslenzka fyrír útlendinga.
Talmálskenns/u annast m.a. Jeffrey Cosser (ensku)
og Artor Yraola (spænsku).
Innrhun daglega kl. 1—7 e.h.
Kennsla hefst 21. sepL _ síðasta innrítunarvika.
26908-
HALLDÓRS
iQg:; 8241 1
Einkaleyfi á tslandi.
DALE CARNEGIE STJÓRNUNARSKÓLINN
NÁMSKEltílN Konráð Adolphsson